Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 42
HESTAR 42 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Vörurnar sem virka FREMSTIR FYRIR GÆÐI ÞETTA er sá fjöldi sem hefur heim- ild til að mæta á landsmótið og taka þátt í kynbótasýningu mótsins en fullvíst má telja að ekki muni allir nýta sér þann rétt. Sum þessara hrossa munu mæta til leiks í gæð- ingakeppni landsmótsins og ekki er ósennilegt að einhver þeirra sem eiga hross rétt yfir einkunnamörkum til þátttöku muni ekki telja það fyr- irhafnarinnar virði að mæta með þau. Þrátt fyrir að landsmótin séu eftirsóttur vettvangur til að kynna góð kynbótahross þá er ekki hægt að horfa framhjá þeirri staðreynd í þessum hrossafjölda hreinlega týn- ast mörg hrossanna og fáir taka eftir þeim og enn færri muna eftir þeim að loknu móti. Að fara með hross á landsmót er þó nokkuð fyrirtæki og kostnaðar- samt fyrir þá sem þurfa um langan veg að fara. En toppunum gleymir enginn og það eru efstu hrossin sem draga vagninn. Kynbótasýningarnar hafa löngum verið vinsælasti þáttur landsmótanna og má ætla að engin breyting verði á því nú. Bróðurbetrungur efstur Af stóðhestum sex vetra og eldri stendur efstur Þyrnir frá Þórodds- stöðum og er á góðri leið með að fylgja í fótspor albróður síns Hams frá Þóroddsstöðum og er hann með 8,60 í aðaleinkunn. Hamur hefur alla burði til slá bróður sínum við í ein- kunn og það sem kannski öllu máli skiptir er að hann virðist ætla að verða mun eftirsóttari en bróðir hans hjá hryssueigendum. Þyrnir bætir sig nokkuð víða en lækkar sig í 9,5 fyrir prúðleika, var með 10,0. Hann fær þrjár níur í sköpulagi fyrir höfuð, fótagerð og hófa. Tvær níur í hæfi- leikum fyrir tölt og fegurð í reið. Hann er jafn í einkunnum fyrir sköpulag, 8,58 og hæfileikum 8,61. Næstur kemur Forseti frá Vorsabæ með 8,58. Hann fær 9,5 fyrir bæði hófa og bak og lend en hinsvegar 6,5 fyrir réttleika sem vissulega rýrir talsvert gildi hans sem kynbótahests, fyrir sköpulag fær hann út 8,39. Hæfileikarnir eru í góðu lagi 8,71 og þar ber hæst 9,0 fyrir tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið. Ekki er það lakara hjá þriðja hestinum sem er Ófeigur frá Þorláksstöðum, hann er með 8,77 fyrir hæfileika, 9,5 fyrir fet og 9,0 fyrir brokk, skeið og vilja og geðslag. Fyrir prúðleika fær hann 10,0 og 9,5 fyrir hófa en hefur sama djöful að draga og Forseti er með 6,5 fyrir réttleika. Keilir frá Miðsitju siglir nokkuð lygnan sjó í fjórða sæti með 8,48, er með 9,0 fyrir háls herðar og bak og lend og sömueliðis fyrir vilja og geðs- lag og fegurð í reið. Margir hafa beð- ið spenntir eftir að Keilir springi út með yfirferðina en eitthvað virðist ætla að standa á því, vantar meira rými en fer mjög fallega á þeim hraða sem hann ræður við. Hann bætir heldur í skeiðið er nú kominn með 8,5. Slapp fyrir horn hjá Flygli Flygill frá Vestri-Leirárgörðum hefur átt við fótamein að stríða en kom nú fram með mikilli sprengisýn- ingu á Gaddstaðaflötum og hlaut 8,87 fyrir hæfileika sem er að því er virð- ist hæsta einkunn hjá stóðhesti þetta árið. Voru það engar smáeinkunnir, 9,5 fyrir brokk og vilja og geðslag, 9,0 fyrir tölt. Hann er verðugur fulltrúi föður síns, rýmisbankans Kolfinns frá Kjarnholtum. Vonandi fá lands- mótsgestir að sjá þessa hamhleypu þrusa eftir brautum Vindheimamela en auðvitað gæti fótamein hans kom- ið í veg fyrir það. Flygill hlýtur að- eins 7,81 fyrir sköpulag sem þykir í lægri kanti hjá stóðhestum í dag. Jafnir með 8,44 eru Nagli frá Þúfu og Kjarni frá Árgerði, sá fyrrnefndi skeiðlaus en sá síðarnefndi með 8,5 fyrir skeið. Nagli er með skrautlega hæfileikaeinkunn, 9,5 fyrir brokk og stökk og 9,0 fyrir töltvilja og geðslag og fegurð í reið. Kjarni er með 9,0 fyrir bak og lend, hófa og hófa, vilja og geðslag og fegurð í reið. Næstir koma svo Tígull frá Gýgjarhóli með 8,43, Töfri frá Kjartansstöðum, 8,38 og Frami frá Ragnheiðarstöðum með 8,36 og Glampi frá Vatnsleysu með 8,35. Ætla má að mikill spenningur verði í kringum Töfra sem er með 9,5 fyrir tölt og þrjár níur í hæfileikum. Spennan snýst meðal annars um það hvort honum og Stíganda frá Leys- ingjastöðum, sem er einnig með 9,5 fyrir tölt, tekst að teygja sig í tíuna á landsmótinu. Auðvitað getur röð frá forskoðun breyst en víst má telja að það verði þessir hestar sem muni berjast um toppsætin. Vel á þriðja hundrað kynbótahrossa komin með farseðil á landsmót Hörð barátta framundan hjá elstu stóðhestunum Ætla má að Forseti frá Vorsabæ og Þórður Þorgeirsson muni sækja hart að Daníel og Þyrni á landsmótinu. Þótt Töfri frá Kjartansstöðum eigi kannski ekki bestu möguleika á efsta sæti í elsta flokki stóðhesta á hann vafalaust eftir að ylja landsmótsgestum með fögru tölti og spurningin hvort hann fær tíuna langþráðu. Knapi er Jóhann R. Skúlason. Tvö hundruð fjörutíu og átta kynbóta- hross hafa tryggt sér farseðil í einstaklings- dóm á landsmótinu á Vindheimamelum í byrjun júlí. Valdimar Kristinsson kynnti sér hestakostinn sem þar mun væntanlega gleðja mótsgesti. Morgunblaðið/Vakri Þyrnir frá Þóroddsstöðum á góða möguleika á að feta í fótspor albróður síns Hams og taka fyrsta sætið í elsta flokki stóðhesta á landsmótinu. Knapi er Daníel Jónsson. A-flokkur 1. Víglundur frá Vestra-Fíflholti, kn.: Jóhann G. Jóhannsson, eig: Kvistir ehf., 8,63/8,90 2. Andvari frá Sléttabóli, kn.: Vignir Siggeirsson, eig.: Jóhann Svav- arsson, 8,51/8,66 3. Kvistur frá Hvolsvelli, kn.: Elvar Þormarsson, eig.: Þormar Andr- ésson, 8,44/8,61 4. Íðir frá Vatnsleysu, eig. og kn.: Vignir Siggeirss., 8,40/7,76 5. Eitill frá Hala, kn.: Sigurður Ó.Kristinsson, eig.: Jón Karlsson, 8,53 A-flokkur áhugamenn 1.Esjar frá Holtsmúla, kn.: Elín Sigurðardóttir, eig.: Holtsmúlabúið, 8,42/8,39 2. Dillon , eig. og kn.: Logi Guðmundsson, 7,53/8,38 3. Glaumur frá Lynghaga, eig. og kn.: Magnús Halldórsson, 7,79/7,93 4. Kolskör frá Flugumýrarhvammi, kn.: Katla Gísladóttir, eig.: Ásta B. Ólafsdóttir, 8,03/7,89 5. Katla frá Oddhóli, kn.: Axel Ómarsson, eig: Þórunn Bergsdóttir og Axel Ómarsson, 7,36/7,51 B-flokkur 1. Guðni frá Heiðarbrún, kn.: Hallgrímur Birkisson, eig.: Hrossa- ræktarbúið Krókur, 8,70/8,81 2. Stæll frá Miðkoti, kn.: Ólafur Þórisson, eig.: Þórir Ólafsson, 8,52/ 8,74 3. Blökk frá Teigi, kn.: Árni Pálsson, eig.: Árni Jóhannsson, 8,50/8,69 4. Fáni frá Kálfholti, kn.: Ísleifur Jónasson, eig.: Jónas Jónsson, 8,48/ 8,49 5. Stjörnufákur frá Miðkoti, eig. og kn.: Ólafur Þórisson/Vignir Sig- geirsson, 8,42/8,43 B-flokkur áhugamenn 1. Rán frá Hrólfsstaðahelli, kn.: Eiður Kristinsson, eig.: Anna B. Stefánsdóttir, 8,20/8,50 2. Perla, kn.: Þórunn Kristjánsdóttir, 8,32/8,44 3. Brúnka frá Varmadal, kn.: Gunnar Rúnarsson, eig.: Haraldur Magnússon, 8,29/8,43 4. Bróðir frá Rifshalakoti, kn.: Malin E. Ramm, eig.: Hrossaræktarbúið Krókur, 8,19/8,31 5. Krummi frá Bólstað, eig. og kn.: Björk Svavarsdóttir, 8,26/8,30 Ungmenni 1.Kliðja frá Litlu-Tungu, kn.: Eydís S. Tómasdóttir, eig.: Vilhjálmur Þórarinsson, 8,44 2. Gormur frá Grímsstöðum, kn.: Maria B. Andersen, eig.: Hrossa- ræktarbúið Krókur, 8,26 3. Spori frá Berustöðum, eig. og kn.: Andri L. Egilsson, 8,08 4. Amor frá Hömrum, eig. og kn.: Guðjón Björnsson, 8,06 Unglingar 1. Viðja frá Neðra-Seli, kn.: Katla Gísladóttir, eig.: Gísli Sveinsson, 8,58/8,62 2. Eydís frá Djúpadal, kn.: Helga B. Helgadóttir, eig.: Benedikt Val- berg, 8,46/8,58 3. Kári frá Þóreyjarnúpi, kn.: Unnur L. Hermannsdóttir, eig.: Unnur L. Hermannsdóttir og Hallgrímur Jónasson, 8,40/8,53 4. Kjarni frá Flögu, kn.: Elín Sigurðardóttir, eig.: Holtsmúlabúið, 8,42/8,48 5. Bragur frá Eyrarbakka, kn.: Laufey G. Kristinsdóttir, eig.: Laufey G. Kristinsdóttir/Ólafur Pálsson, 8,53/8,43 Börn 1. Úlfur frá Hjaltastöðum, kn.: Inga B. Gísladóttir, eig.: Ásta B. Ólafsdóttir, 8,77/8,80 2. Vígar frá Skarði, kn.: Hekla K. Kristinsdóttir, eig.: Kristinn Guðnason, 8,77/8,75 3. Fáni frá Hala, kn.: Rakel N. Kristinsdóttir, eig. Hekla K.Krist- insdóttir, 8,42/8,55 4. Jökull frá Kálfholti, kn.: Bergrún Ingólfsdóttir, eig.: Jónas Jóns- son, 8,37/8,48 5. Drottning frá Hlíðarenda, kn.: Ásdís H. Árnadóttir, eig.: Guðrún Stefánsdóttir, 8,35/8,33 150 metra skeið 1. Hrafnar frá Efri-Þverá, eig.og kn.: Þráinn Ragnarsson, 14,92 sek. 2. Tangó frá Lambafelli, kn.: Magnús Benediktsson, eig.: Tryggvi Geirsson, 15,15 sek. 3. Ísafold frá Ytra-Dalsgerði, kn.: Logi Laxdal, eig.: Hugi Krist- insson og Kristinn Hugason, 15,30 sek. 250 metra skeið 1. Kormákur frá Kjarnholtum, eig. og kn.: Logi Laxdal, 22,25 sek. 2. Sif frá Hávarðarkoti, kn: Einar Ö. Magnússon, 23,90 sek. 3. Sprettur frá Kirkjubæ, kn.: Axel Geirsson, eig.: Þráinn Ragn- arsson, 24,48 sek. 300 metra stökk 1. Dreitill frá Bólstað, kn.: Ólafur Þórisson, eig.: Svavar Ólafsson, 24,05 sek. 2. Funi frá Ey, eig. og kn.: Halldór Magnússon, 24,47 sek. 3. Sörli frá Nikhól, kn.: Orri Örvarsson, eig.: Atli M. Guðjónsson, 24,55 sek. Úrslit á hestamóti Geysis á Gaddstaðaflötum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.