Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 48
DAGBÓK 48 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag eru væntanleg Flam- enco, Kiel, Brúarfoss og Goðafoss. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag eru Viking, Ocean Tiger og Polar Princess væntanleg. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Sól- vallagötu 48. Skrifstofa s. 551 4349, opin miðvikud. kl. 14–17. Flóamarkaður, fataúthlutun og fatamót- taka s. 552 5277 opin ann- an og fjórða hvern miðvi- kud. kl. 14–17. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 og kl. 13 vinnustofa. Jóns- messuferð verður frá Aflagranda 40 fim. 20.júní. Lagt af stað 12.15, ekið verður til Þorlákshafnar, Eyrar- bakka og Selfoss þar sem komið verður við í Kaupfélaginu. Jóns- messukaffi í Skíðaskál- anum. Kaffihlaðborð, skemmtiatriði, dans. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofan, kl. 13 spilað, kl. 13–16.30 opin smíðastofan. Bingó er 2 og 4 hvern föstudag. Púttvöllurinn er opin alla daga. Allar upplýsingar í s. 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8.30– 12.30 böðun, kl. 9–16 handavinna kl. 9–17 fóta- aðgerð, kl. 10–10.30 banki, kl. 13–16.30 spilað. Farið verður á Hólmavík fimmtud. 20. júní kl. 8. Sr. Sigríður Óladóttur tekur á móti okkur í Hólmavíkurkirkju. Sýn- ingin Galdrar á Strönd- um og Sauðfé í sögu þjóð- ar skoðaðar. Kaffi og meðlæti í Sæ- vangi. Kvöldverður í Hreðavatnsskála. Leið- sögumaður: Anna Þrúð- ur Þorkelsdóttir. Skrán- ing í s. 568 5052. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hár- greiðslu-og handa- vinnustofur opnar, kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 14.30 banki. Félagsstarf aldraðra í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Jónsmessuferð á Þingvöll, Selfoss og Stokkseyri, mánudaginn 24. júní. Lagt af stað kl. 15 frá Damos. Uppl. og skráning hjá Svanhildi í síma 586 8014 e.h. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15–16. Skrifstofan í Gullsmára 9 opin í dag kl 16.30–18. Farið verður til Vest- mannaeyja mánudag 24. júní með Herjólfi og komið til baka miðvikud. 26. júní. Ferðatilhögun: 1.dagur. Farið frá Þor- lákshöfn kl 12. og farin skoðunarferð um eyjar, kvöldverður. 2. dagur, skoðunarferðir á landi og sjó, kvöldverður. 3. dagur. Brottför frá eyj- um kl. 15.30. Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst. Rútuferð frá Gjábakka kl. 10.15 og Gullsmára kl.10.30, Þátttökugjald greiðist til Boga Þóris Guðjónssonar fyrir 14. júni. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9.30 hjúkrunarfræð- ingur á staðnum, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Dagsferð að Skógum í dag, mið. 19. júní. Lagt af stað frá Hraunseli kl. 10. Línu- dans kl. 11 og pílukast kl. 13.30. Á morgun, fimmtudag, félagsvist kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan op- in virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Mið- vikudagur. Göngu- Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10. Línudanskennsla Sigvalda kl. 19.15. Fimmtudagur: Brids kl. 13. Söguferð í Dali 25. júní dagsferð, Eiríksstaðir-Höskulds- staðir-Hjarðarholt- Búðardalur-Laugar- Hvammur. Léttur há- degisverður að Laugum í Sælingsdal. Kaffihlað- borð í Munaðarnesi Leiðsögumaður Sig- urður Kristinsson .Vin- samlegast sækið farmið- ann fyrir helgi. Þórsmörk – Langidalur 4. júlí, Kaffihlaðborð á Hvolsvelli. Leiðsögn Þórunn Lárusdóttir. Hálendisferð 8.–14. júlí ekið norður Sprengisand og til baka um Kjöl, eig- um örfá sæti laus. Silfurlínan er opin á mánu- og miðvikudögum kl. 10–12 f.h. í s. 588 2111. Skrifstofa fé- lagsins er flutt í Faxafen 12, sama símanúmer og áður. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 fótaaðgerð, opin vinnu- stofa, m.a. postulín, mósaik og gifsafsteypur, kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 9–16 böðun. Gerðuberg, félagsstarf. Í dag kl. 9–16.30 vinnu- stofur opnar. Kl. 9.30 sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug. Frá há- degi spilasalur opinn. Veitingar í Kaffi Berg. Á morgun, Jóns- messufagnaður í Skíða- skálanum. Örfá sæti laus. Fim. 27. júní: Ferðalag um Suðurnes. Nánar kynnt síðar. Upp- lýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, kl. 13 félagsvist FEBK, kl. 15–16 viðtalstími FEBK, kl. 17 bobb. Tek- ið verður við staðfesting- argjaldi í ferðalag Sund- hópsins og félagsstarfs- ins um Vestfirði dagana 15.–19. júlí mið. 19. júní frá kl. 10.30-12 í Gjá- bakka. Uppl. í síma 554- 3400. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið frá kl. 9–17 hádeg- ismatur alla virka daga, heitt á könnunni og heimabakað meðlæti. Handuvinnustofan er op- in kl. 9.15–16 á þriðju- dögum og miðvikudögum kl. 13-16 og fim. kl. 9.15– 16. Hraunbær 105. Kl. 9 op- in vinnustofa, handa- vinna, bútasaumur, kl. 9– 12 útskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla og fótaað- gerðir, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, kl. 9 og kl. 10 jóga. Fótaaðgerð, hársnyrting. Allir velkomnir. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–16 fótaaðgerðir, kl. 9– 12 tréskurður, kl. 10 sögustund, kl. 13 banki, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Allir velkomn- ir. Vesturgata 7. Kl. 8.25 sund, kl. 9–16 fótaaðgerð og hárgreiðsla, kl. 9.15– 16 postulínsmálun og mósaik, kl. 13–14 spurt og spjallað.Verslunarferð í Bónus kl. 13.30. Í dag er farið í rútuferð og ekið um Álftanes, Hafn- arfjörð, Heiðmörk, Hafravatn, Mosfellsbæ og nýju hverfin í Graf- arvogi. Kaffihlaðborð í Ásláki, Mosfellsbæ. Allir velkomnir. Uppl. í síma 561 0300. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan, kl. 9.30 bókband og hand- mennt, kl. 10 morg- unstund, kl. 12.30 versl- unarferð Bónus. Bankaþjónusta 2 fyrstu miðvikudaga í mánuði. Ellimálaráð Reykjavík- urprófastsdæma. Boðið er upp á orlofsdvöl í Skál- holti í sumar. Í boði er dvöl 1.-5. júlí. Skráning á skrifstofu f.h. virka daga í síma 557 1666. Minningarkort Bergmál, líknar og vina- félag. Minningarkort til stuðnings orlofsvikna fyrir krabbameinssjúka og langveika fást í síma 587–5566, alla daga fyrir hádegi. Minningarkort barna- deildar Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíró- seðils. Minningarkort Thor- valdsensfélagsins eru til sölu á Thorvaldsens- bazar, Austurstræti 4, s. 551–3509. Minningarspjöld Kristni- boðssambandsins frást á skrifstofunni, Holtavegi 28 (hús KFUM og K gegnt Langholtsskóla) sími 588-8899. Í dag er miðvikudagur 19. júní, 170. dagur ársins 2002. Orð dagsins: En hann sagði við þá: „Mér ber og að flytja hinum borg- unum fagnaðarerindið um Guðs ríki, því að til þess var ég sendur.“ (Lúk. 4,43.) Víkverji skrifar... MENNING var nokkuð ofarlegaá dagskrá Víkverja um liðna helgi. Meðal afreka hans var að sækja ekki færri en tvær listsýning- ar. Er það mikið á venjulegan mæli- kvarða hans þar sem hann er af ein- hverjum ástæðum ekki meðal helstu áhugamanna um myndlist. Líklega eru mánuðir fremur en vikur frá því hann síðast sótti myndlistarsýningu. Víkverji gefur engin loforð um að bæta úr þessu en tekur fram að hon- um leiðist ekki myndlist neitt sér- staklega og getur alveg unað um stund við heimsóknir sem þessar. Í það minnsta undi hann sér nokkuð vel á þessum sýningum en önnur var í Norræna húsinu og hin í Listasafni Íslands. Eitt er það þó sem Víkverji hefur aldrei skilið í sambandi við sýningar á myndlist en það eru merkingar myndanna eða upplýsingar sem skráðar eru á spjöld við hverja og eina mynd. Þær eru mjög staðlaðar, nafn listamanns, heiti myndar og hvenær hún var máluð eða unnin. Fleiri upplýsingar má síðan fá í sýn- ingarskrá sem oftast liggur frammi. En það sem Víkverji skilur ekki er hversu smátt letrið þarf alltaf að vera á þessum merkingum við myndirnar. Verður yfirleitt að ganga alveg að viðkomandi mynd til að sjá hvað þar stendur. Má ómögulega hafa þetta letur stærra? Myndi það hafa áhrif á myndina? Myndi það skemma mynd- ina ef textinn væri læsilegur úr fjög- urra metra fjarlægð? Víkverji getur ekki ímyndað sér það. Beinir hann því þeim tilmælum til þeirra sem sjá um sýningarhald að hafa næst pínu- lítið stærra letur á þessum merking- um. Og Víkverji viðurkennir ekki sjóndepurð í þessu sambandi því allir aðrir þurftu líka að ganga svo til al- veg að myndunum ef þeir vildu sjá heiti þeirra og ártal. x x x ÞÚSUNDIR Reykvíkinga héldu ímiðborgina á þjóðhátíðardaginn og var Víkverji einn þeira. Það hefur hann gert öðru hverju gegnum árin en ekki verið mjög bundinn við dag- skrána og því oft alveg eins haldið út úr bænum og haldið með öðrum hætti upp á daginn. Veðrið var þokkalegt, nokkur strekkingur en þurrt. Hægt var að róla sér um mið- borgina og hlýða á skemmtidagskrár og tónlist á Ingólfstorgi, við Arnarhól og Austurvöll og iðka ýmsar íþróttir og leiki í Hljómskálagarðinum. Allt er þetta hefðbundið og skemmtilega líflegt og alltaf tilbreyt- ing við hvunndaginn. Sjálfsagt er að halda upp á þjóðhátíðardaginn og sjálfsagt þarf líka að innprenta ung- viðinu hversu þýðingarmikil lýðveld- isstofnunin var. x x x ÁRLEGT kvennahlaup var haldiðvíða um landið sl. sunnudag. Í það hópast þúsundir kvenna á öllum aldri og ganga, skokka og hlaupa vegalengd við sitt hæfi. Þetta finnst Víkverja líka skemmtilegur siður rétt eins og hátíðahöld þjóðhátíðar- dagsins. Þótt hann komi hvergi nærri þessu tiltæki finnst honum ágætt að konur skuli taka sér einn dag til að sýna afrek sín á þessu sviði. Eins og karlar vita hafa konur af ýmsu að státa, líka í íþróttum. Dagur kvennahlaupsins er dagur með íþrótt allra kvenna og því ekki nema sjálf- sagt að hvetja konur til að halda þessum sið áfram. Málfrelsi í hávegum haft UM þessar mundir verður mönnum tíðrætt um menn- ingarbyltingar, Íslendingar hafa einnig kynnst þeim með ýmsum hætti. Verkalýðssamtökin og Alþýðuflokkurinn reistu Alþýðuhúsið við Hverfis- götu með dagverkagjöfum, fjárframlögum alþýðu og sænsku láni jafnaðar- manna. Jón Baldvinsson vígði húsið 1. maí. Kallaði það „musteri alþýðunnar“. Hugðust forystumenn Samfylkingar og stjórnvöld að sýna forseta Kína „súlu- dans“ á knæpunni í kjallar- anum? Bankaráð Seðlabankans býður úrvalsliði marga kosti. Þangað veljast helst þeir sem hafa fjölbreytta reynslu í því að stýra fyr- irtækjum í gjaldþrot. Átti að efna til sýnikennslu? Mál og menning hefir jafnan þótt gróskumikið og blómlegt fyrirtæki allt frá dögum Kristins E. Andrés- sonar, HKL og Stalíns. Nú hefir útgáfuréttur ritverka Halldórs Laxness flust til arftaka Rússakeisara, Pút- íns og umboðsmanna hins austræna veldis, Björgólfs fjármálafursta Guðmunds- sonar. Halldór forstjóri, sem tók við kefli Kristins E. Andréssonar, kveðst una því vel. Félag ungra jafnaðarmanna gæti ljósrit- að fundargerðir síðan í september 1946 og sannað með því hve málfrelsi var haft í hávegum í því félagi þegar rætt var um her- stöðvar Bandaríkjanna og afstöðu Hannibals Valdi- marssonar. Pétur Pétursson, þulur. Þakkir ÉG vil koma á framfæri þökkum til ríkissjónvarps- ins fyrir þættina Hálanda- höfðingjann, bæði nýja og endursýnda þætti, og út- varpinu fyrir þætti Jóns Ormars og Jónasar Jónas- sonar, bæði kvöldþættina og þáttinn Kæri þú. Svo vil ég þakka fyrir lestur Kilj- ans í vetur og fyrir barna- söguna Sumar á Saltkráku. Ég hlusta mikið á úvarp og finnst margir þættir frá- bærir. Kærar þakkir fyrir rás 1. 071021-2389. Dýrahald Týndur páfagaukur HÚN Bína okkar, sem er Blackheaded Caique-páfa- gauksungi, flaug út um glugga í vesturbæ Reykja- víkur þann 17. júní. Hún er með hring um fótinn og er marglit; svört, hvít, appelsínugul og græn. Hún er frekar stygg og fúlsar ekki við eplum og hnetum. Finnandi eða þeir sem hafa orðið hennar varir vinsam- lega hringi í síma 699 3903 eða 691 1704. Tinna er týnd TINNA er smávaxin læða, eins og hálfs árs gömul. Hún er svört og hvít og var með bleika ól þegar hún týndist. Hún er eyrna- merkt. Tinna hvarf að heiman frá sér, Glósölum 10, aðfaranótt miðviku- dagsins 12. júní. Þeir sem geta gefið okkur uppl. um ferðir Tinnu vinsamlega hringið í síma 587 2274. Hennar er sárt saknað. Kittý er týnd ÞESSI dökkgráa læða týndist frá Miklubraut/ Lönguhlíð og er sárt sakn- að. Hún var með ól en kannski hefur hún dottið af. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 892 4504. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is K r o s s g á t a 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 strita, 4 trítla, 7 ginnti, 8 lauslætisdrósin, 9 veið- arfæri, 11 þvaður, 13 ósoðinn, 14 trylltar, 15 stutta leið, 17 óreiða, 20 tímgunarfruma, 22 star- ir, 23 totta, 24 ber, 25 smávaxna. LÓÐRÉTT: 1 beitir tönnum, 2 öldu, 3 lengdareining, 4 naumt, 5 kemur auga á, 6 korns, 10 gufa, 12 hnöttur, 13 skar, 15 seguljárn, 16 getum gert, 18 milt, 19 yfirvara- skeggs, 20 vex, 21 van- sæl. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 höfrungur, 8 bolum, 9 forða, 10 man, 11 Ingva, 13 akrar, 15 svelg, 18 ótrúr, 21 róm, 22 aftri, 23 innan, 24 hildingur. Lóðrétt: 2 örlög, 3 remma, 4 nefna, 5 urrar, 6 obbi, 7 gaur, 12 val, 14 kát, 15 skar, 16 eitli, 17 grind, 18 óminn, 19 röngu, 20 rann. ÉG sá heimildarmynda- flokkinn í Ríkissjónvarp- inu um erfðaeiginleika mannsins og nýjar upp- götvanir á því sviði. Allt ku vera til staðar í 4 gen- um, orka, eða ekki orka, glæpahneigð eða ekki glæpahneigð, og annað þar á milli. Eitt er snoðlíkt með fjallgöngumönnum og vís- indamönnum, þeir hætta ekki fyrr en þeir hafa klif- ið hæsta tindinn. Hvað svo tekur við, veit ég ekki. Eitt er víst, einhvers staðar stendur: Leitið og þér munuð finna. Og nú er ekki úr vegi, að skora á Kára Stef- ánsson, að finna 5. genið – Það sem gefur manninum frjálsborna hugsun, að velja og hafna. Guðrún Jacobsen. Mannlíf í mótun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.