Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 20 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ BANKASTJÓRN Seðlabanka Ís- lands hefur ákveðið að lækka vexti bankans í endurhverfum viðskiptum við lánastofnanir um 0,3% í 8,5% frá og með 25. júní nk. Seðlabankinn lækkaði síðast vexti í maí sl. og hafa vextirnir nú lækkað um 1,3% frá apr- ílbyrjun. Birgir Ísleifur Gunnarsson, seðla- bankastjóri, segir að vaxtalækkunin nú eigi ekki að koma á óvart miðað við fyrri yfirlýsingar Seðlabankans. „Við vorum að vonast til þess að það ferli vaxtalækkana, sem hafið er, gæti haldið áfram en við munum að sjálfsögðu skoða það í ljósi verð- lagsþróunar og annarra aðstæðna. Verðmæling frá síðustu viku er í sam- ræmi við verðbólguspá okkar. Ef við leggjum saman mælingar tveggja síðustu mánaða og berum það saman við spána, sem við birtum í byrjun maí, er hún nokkurn veginn í sam- ræmi við það sem við spáðum. Þess vegna teljum við það í lagi að halda þessu ferli áfram og vonumst vissu- lega til þess að hægt verði að halda áfram að lækka vexti eftir því sem líð- ur á árið.“ Seðlabankinn mun næst birta verðbólguspá og nýtt mat á ástandi og horfum í efnahagsmálum í byrjun ágúst. Birgir Ísleifur vill ekki segja til um hvort hugsanlegt sé að Seðla- bankinn lækki vexti enn frekar áður en að því kemur. Aðrir vextir Seðlabankans lækka einnig um 0,3% frá 21. júní nk. ef frá eru taldir vextir á innstæðum á við- skiptareikningum lánastofnana í Seðlabankanum sem verða óbreyttir. Viðskiptabankarnir fylgja Viðskiptabankarnir munu fylgja vaxtalækkun Seðlabankans eftir að nokkru eða öllu leyti. Landsbanki Ís- lands hf. hefur ákveðið að lækka vexti helstu óverðtryggðra innlána og út- lána um 0,3%. Vaxtabreyting þessi tekur gildi frá og með 21. júní nk. Búnaðarbankinn hefur ákveðið að lækka vexti óverðtryggðra útlána um 0,30 prósentustig. Lækkun innláns- vaxta er heldur minni, eða á bilinu 0,15-0,3 prósentustig, mismunandi eftir einstökum innlánsformum bankans. Guðmundur Hauksson, sparisjóðs- stjóri SPRON, segir að SPRON hafi tekið fullt tillit til stefnu Seðlabank- ans í vaxtamálum og muni gera það áfram. Lækkun Seðlabankans á þessum vettvangi muni leiða til vaxtalækkunar hjá SPRON. Íslandsbanki hefur ákveðið að lækka vexti um 0,3% á óverðtryggð- um útlánum í kjölfar vaxtalækkunar Seðlabankans. Vextir á innlánum munu lækka minna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Ís- landsbanka. Frekari vaxtalækkanir að óbreyttu Seðlabankinn lækkaði síðast vexti í endurhverfum viðskiptum um 0,5% frá 21. maí sl. með vísun til þess að óvissu um kjarasamninga hafði verið eytt og að góðar líkur væru á að verð- bólguspá bankans frá því í byrjun maí myndi rætast. Í frétt bankans um þá vaxtalækkun sagði að hjaðnaði verðbólga áfram í samræmi við spá bankans sem birt var í Peningamál- um í maí myndu vextir að óbreyttu lækka frekar á komandi mánuðum. „Breyting vísitölu neysluverðs í júní hefur enn aukið líkur á að spá bankans frá því í maí gangi eftir enda var hækkun vísitölunnar í maí og júní í mjög góðu samræmi við spána. Þá sjást ekki mikil merki þess að hugs- anleg upphlaðin verðhækkunarþörf hafi komið fram en of snemmt er þó að fullyrða að slíkt gerist ekki í ein- hverjum mæli. Það styrkir enn frek- ar lækkun vaxta nú að gengi krón- unnar hefur verið til-tölulega stöðugt á undanförnum vikum. Þrátt fyrir þessa vaxtalækkun er aðhaldsstig peningastefnunnar tölu- vert eins og það birtist í raunvöxtum, enda verðbólgualda nýgengin yfir. Í ljósi samdráttar eftirspurnar verður því að óbreyttu tilefni til frekari lækkunar vaxta á komandi mánuð- um,“ segir í frétt Seðlabankans en tímasetningar ráðast hins vegar af framvindunni og mati á horfum. Seðlabanki Íslands lækkar vexti um 0,3% frá og með 25. júní nk. Vaxtalækkun nú á ekki að koma á óvart Morgunblaðið/Þorkell Birgir Ísleifur Gunnarsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands. STÆRSTU hluthafar í Lands- banka Íslands, á eftir ríkissjóði, eru Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 og Tryggingamiðstöðin hf. eftir sölu á 20% hlut ríkisins í bankanum í sl. viku. Stærstan hlut, um 3%, keypti Tryggingamiðstöðin, sem er að stórum hluta í eigu Landsbankans. Salan fór öll fram í gegnum við- skiptakerfi Verðbréfaþings Íslands og fór fram í yfir 90 viðskiptum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbankanum. Var þar bæði um að ræða viðskipti milli þingaðila og viðskipti sem Landsbankinn- Landsbréf tilkynnti á grundvelli kaupbeiðna frá fagfjárfestum. „Á bak við viðskiptin er því mun fjöl- mennari hópur einstaklinga og lög- aðila en fjöldi viðskipta gefur til kynna,“ segir í tilkynningunni. Söluandvirði hlutarins nam 4,8 milljörðum króna og var því um að ræða umfangsmestu einkavæðing- arsölu ríkissjóðs sem framkvæmd er með almennu útboði. Þótti salan takast afar vel enda seldist hlut- urinn sem í boði var á nokkrum mínútum. Öll viðskiptin hafa verið afgreidd af Landsbankanum- Landsbréfum með fyrirvara um uppgjör. Selt var á genginu 3,50 en loka- gengi bréfanna í gær var 3,65 og námu viðskipti með bréfin 208 milljónum króna. Lífeyrissjóðir Banka- stræti og TM stærstir   &    $   # ' ( ) ** *&     $      & &     + ** *,*   $   * $ $    & $#  -    * ,.  ,.  $   /   $  -   , 01 23  4*& $ ** *,*   56    *    ++  -   7 3      $ ,     * ,.   &  48 +  ,  # 9:  ;  . #   , * ,. :<= #    3< *  4 * 8,    $     &= #   ,    $               ! > ? @ " 7 ( A B !C !! !> !? !@ !" !7 !( !A !B >C >! >> >? >@ >" >7 >( >A >B ?C           *. */0 1** .1/ 2*/ *0 *1 010 1  2 330 32* 21 /3* /3* /3* /  /11 *3* 030 02. 0/2 0 . 01 1  1. 13/ 102 11 /   *                               *                              )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   )4   SPARISJÓÐSSTJÓRI nb.is-spari- sjóðs hefur sent Samkeppnisstofnun erindi þar sem farið er fram á að strax verði hætt birtingu auglýsinga frá Íslandsbanka þar sem að mati nb.is koma fram rangar og villandi upplýsingar. Að mati nb.is er það röng fullyrðing hjá Íslandsbanka að bankinn bjóði „...hagstæðustu kjör banka og sparisjóða“. „Nb.is-sparisjóður er sjálfstæður sparisjóður sem tekur sjálfstæðar vaxtaákvarðanir. Á peningasíðu Morgunblaðsins er nb.is getið í sér dálki við hlið Landsbanka, Búnaðar- banka, Íslandsbanka og Sparisjóð- anna sem heildar. Þar kemur fram svart á hvítu að nb.is býður hagstæð- ustu yfirdráttar- og innlánsvexti banka og sparisjóða. Íslandsbanki kýs eingöngu að bera sig saman við þá samkeppnisaðila sem þeim hentar og geta nb.is ekki. Þennan saman- burð í auglýsingunum teljum við vera óeðlilegan, villandi og til þess fallinn að valda misskilningi,“ segir í erindi nb.is-sparisjóðs. Nb.is telur að fyrirsögn auglýsing- ar frá Íslandsbanka „Íslandsbanki býður best!“ sé villandi fyrir neyt- endur og til þess fallin að valda mis- skilningi og það sama eigi við um auglýsinguna í heild. „Nb.is-spari- sjóður fer fram á að strax verði hætt birtingu þessara röngu og villandi auglýsinga,“ segir enn fremur í er- indi nb.is-sparisjóðs. Birtingu auglýsinga verði hætt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.