Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
15. 6. 2002
4
8 1 8 1 1
7 2 8 3 3
17 19 30 35
12
12. 6. 2002
2 12 18
19 24 27
3 25
einfaldur
1. vinningur
í næstu viku
þrefaldur
1. vinningur
í næstu viku
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Vit 379
Hann ætlar að reyna hið óhugsandi. Alls ekkert kynlíf í 40 daga og
40 nætur. Drepfyndin grínmynd með hinum ómótstæðilega Josh Hartnett.
STUART TOWNSEND AALIYAH
Sýnd kl. 10.10. B. i. 16. Vit 377.
ALI G INDAHOUSE
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16. Vit 385.
Sýnd Kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 387.
Þær eru fjarska fallegar
En ekki koma of nálægt
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 12. Vit 382.
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Vit 389.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 393.
Einnig sýnd í lúxussal VIP
Sýnd í lúxus kl. 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit nr. 393.
Eina leiðin til að verða einn af strákunum aftur... er að verða
“ein” af stelpunum! Ekki missa af þessum geggjaða sumarsmell!
Óskarsverðlaunahafarnir Kevin Cost-
ner og Kathy Bates fara á kostum í
dularfullum og yfirnáttúrulegum trylli
í anda THE SIXTH SENSE.
ÞEGAR ÁSTVINUR DEYR...
ER HANN ÞÁ
HORFINN AÐ EILÍFU?
Nýjasta
snilldarverkið
frá meistaranum
drepfyndna...
hinum eina
sanna
Woody Allen.
Ný ímynd, nýr
Allen. Ath!
Áhorfendur
verða dáleiddir
af hlátri.
kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Strik.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Ástin stingur.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Loksins er Sly Stallone kominn í góða gamla Rambó gírinn
aftur. Rafmagnaður spennuhasar frá upphafi til enda.
Að lifa af
getur reynst
dýrkeypt
Sun kl. 8.
ÓHT Rás 2
1/2HK DV
HL Mbl
Kvikmyndir.com
Frábær teiknimynd fyrir alla
fjölskyduna. Með íslensku tali.
Þau drukku safa sem
neyddi þau til að kafa
Sýnd kl. 6. Íslenskt tal. Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 12.
ALI G INDAHOUSE
Sýnd kl. 5.45.
Sýnd kl. 10.15. Bi 16.
HK DV
HJ Mbl
MULLHOLLAND DRIVE
NOKKRAR athyglisverð-
ar myndir koma út á leigu-
myndbandi í vikunni. Af
þeim sem sýndar voru í bíó
má nefna dramað I am
Sam með Sean Penn og
Michelle Pfeiffer og reyf-
arann The Heist, nýjustu
mynd kvikmyndagerð-
armannsins og skáldsins
Davids Mamets, með Gene
Hackman, Danny DeVito
og Delroy Lindo. Penn var
einmitt tilnefndur til Ósk-
arsverðlauna fyrir hlut-
verk þroskahefts manns
sem þarf að berjast fyrir því að fá
að halda 7 ára gamalli dóttur sinni.
Það eru einnig nokkrar myndir,
allrar athygli verðar, frumsýndar á
myndbandi í vikunni.
Riding in Cars with Boys var á
góðri leið í bíó á sínum tíma en
komst ekki að vegna plássleysis –
eins og gengur. Hér er á ferð ljúf-
sárt drama gert eftir sjálfsævisögu
rithöfundarins Beverly Donofrio.
Hún ólst upp í smábæ í Connecticut
og dreymdi um langskólanám. Allir
slíkir draumar urðu að engu er hún
varð ófrísk 15 ára gömul eftir
skyndikynni við 18 ára gamlan
gaur. Ekki þótti annað sæmandi en
að þau gengju í það heilaga þannig
að 16 ára gömul var Beverly orðin
ráðsett heimavinnandi húsmóðir.
En þrautaganga hennar var þá rétt
að hefjast því eiginmaðurinn reynd-
ist hinn mesti ónytjungur, forfall-
inn eiturlyfjaneytandi og svikull.
Drew Barrymore fer með hlutverk
Donofrio í myndinni og hefur feng-
ið fína dóma fyrir túlkun sína, sér-
staklega fyrir það hversu vel hún
leysir að leika í senn 15 ára ungling
og þrítuga konu.
Þetta er sannkölluð kvennamynd
því um stjórntaumana hélt hin þaul-
reynda Penny Marshall. Hún hóf
feril sinn sem gamanleikkona í
bandarísku sjónvarpi á sjöunda
áratugnum en fór að láta til sín
taka sem kvikmyndagerðarkona á
níunda áratugnum með myndum á
bor við Big, Awakenings og A
League of Their Own.
The Old Man Who Read Love
Stories er nýjasta mynd hollenska
Ástralans Rolf De Heer sem gerði
Bad Boy Bubby, þá óhugnanlegu
mynd sem sýnd var hér á landi fyrir
tæpum áratug eða svo við þónokkra
eftirtekt. Myndin, sem gerð er eftir
þekktri skáldsögu, er með Richard
Dreyfuss í aðalhlutverki einmana
eldri manns sem býr í smáþorpi við
bakka Amazon-fljóts og eyðir tíma
sínum í lestur rauðra ástarsagna.
Hann neyðist þó til að leggja bókina
frá sér þegar gest í hefndarhug ber
að garði í líki jagúars.
Síðast en ekki síst ber að nefna
Everything Put Together, litla
sjálfstæða mynd, svolítið hrollvekj-
andi, sem tilnefnd var til dómnefnd-
arverðlauna á Sundance-hátíðinni
2000.
Nokkur athyglisverð myndbönd koma út í vikunni
Nýbakaðir foreldrar: Steve Zahn og Drew
Barrymore í Riding in Cars with Boys.
!"
!"
!" #
!" #
#
!"
!"
!" $
%&'()
!#(
*
#
!"
!" %&'()
!#(
#
#
!" #
+
+
,
+
+
+
,
,
,
+
,
+
+
+
+
,
,
+
+
,
!
"
!
#
$
&
' (
Barrymore með
barn í maga
skarpi@mbl.is
Skotinn í hjartað/
Shot in the Heart
Ágeng en lágstemmd og djúp-
ræn lýsing á síðustu dögum Gary Gil-
more sem varð árið 1977 fyrsti fang-
inn til þess að vera tekinn af lífi í
Bandaríkjunum í áratug.
Viktor Vogel
Lúmskt fyndin og skemmtileg
þýsk ádeila á aurasýki í auglýsinga-
bransanum.
Mexíkóborg/
Mexico City
½ Sterk spennumynd sem lýsir
örvæntingaraðstæðum ferðamanna í
ókunnri borg, handan landamæra
„siðmenningarinnar“.
Embættismaðurinn/
The Commissioner
½ Fínn Evrópupólitískur
spennutryllir frá George Sluizer, leik-
stjóra The Vanishing.
Standa sig í stykkinu/
Walk the Talk
Þessi mynd er engum öðrum
lík. Fetar merkilegt einstigi milli
húmors og andstyggðar. Gamansaga
um hinn endanlega „ætlarsér“ eða
„wannabe“.
Strákurinn sem allt snýst um /
All Over the Guy
Lúmskt fyndin og sérstaklega
vel leikin rómantísk gamanmynd um
ástir karla og kvenna. Mæli sérstak-
lega með henni.
Níundi viðtalstíminn/Session 9
Framan af og þegar „best“
lætur nær þessi fagmannlega unni og
vel leikni spennutryllir fágætri ónota-
kennd í ætti við Seven.
Skilorðseftirlitsmaðurinn/
The Parole Officer
½ Temmilega fyndin gaman-
mynd en státar af besta gamanleikara
Breta, Steve Coogan. Arftaki Sellers?
Villt í Harry / Wild About Harry
½ Léttleikandi og lúmsk
skemmtun. Brendan Gleason fanta-
fínn sem óforbetranlegur ruddi sem
missir minnið og verður óvart góður.
Enski landsliðseinvaldurinn
Mike Bassett/Mike Bassett
England Manager
½ Fyrir þá með HM-frá-
hvarfseinkenni á kvöldin er þessi
besta meðalið. Drepfyndin grínheim-
ild um „heimspekingana“ sem „stýrt“
hafa enska landsliðinu síðustu árin.
Valentínusardagur hellisbúans/
The Caveman’s Valentine
Ágætis glæpatryllir með
Samuel Jackson í aðalhlutverki, þar
sem endurspeglun á innri veröld geð-
sjúkrar aðalpersónu er fléttuð inn í
úrlausn glæpamáls.
Stríð Foyles/ Foyle’s War
Afar vel gerð sakamálamynd
sem bregður upp trúverðugri mynd
af rósturssömum tímum síðari heims-
styrjaldar. Leikur er framúrskar-
andi.
Trúlaus / Trolösa
Vel heppnuð og frábærlega
leikin stúdía Ingmars Bergmans og
Liv Ullmann á mörkum sannleika og
skáldskapar.
GÓÐMYNDBÖND
Heiða Jóhannsdóttir/Skarphéðinn Guðmundsson
Veðravíti
(Gale Force)
Spennumynd
Bandaríkin, 2001. Myndform VHS. (100
mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn:
Jim Wynorski. Aðalhlutverk: Treat Will-
iams, Michael Dudikoff og Tim Thomer-
son.
Í ÞESSARI spennumynd er gerð
ótrúlega misheppnuð tilraun til að
finna upp á einhverju nýju til að láta
dæmigerða spennufléttu snúast um.
Þar segir frá hópi aðalsöguhetja sem
eru þátttakendur í veruleikasjón-
varpsþætti, þar sem markmiðið er að
lifa af á eyðieyju og finna fjársjóð
sem þar hefur verið
falinn. Þegar á
reynir þurfa þátt-
takendurnir í leikn-
um að glíma við að-
vífandi fárviðri og
hóp illskeyttra
málaliða sem einn-
ig girnast gullið.
Leikarinn Treat
Williams hefur ver-
ið fenginn til þess að leika þar aðal-
hlutverkið, óstýrláta löggu sem lend-
ir í hópi þátttakenda og tekur málin í
sínar hendur. Í sérstaklega einfeldn-
ingslegum söguþræði brytjast síðan
nokkrir úr hópnum niður meðan hin-
ir halda áfram o.s.frv. Ég vona að
aumkunarverð tilraun sem þessi
kvikmynd gerir til að næla sér í
áhorfendur með því að leggja nafn
sitt við versta sjónvarpsefni í heimi,
þ.e. „veruleikaþætti“, takist ekki í
mjög mörgum tilfellum. ½
Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Misheppnuð
fjársjóðsleit