Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 49 DAGBÓK Árnað heilla LJÓÐABROT UM HANA SYSTUR MÍNA Sáuð þið hana systur mína sitja lömb og spinna ull? Fyrrum átti ég falleg gull. Nú er ég búinn að brjóta og týna. Einatt hefur hún sagt mér sögu. Svo er hún ekki heldur nízk: Hún hefur gefið mér hörpudisk fyrir að yrkja um sig bögu. Hún er glöð á góðum degi, – glóbjart liðast hár um kinn, – og hleypur, þegar hreppstjórinn finnur hana á förnum vegi. Jónas Hallgrímsson 85 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 19. júní, er 85 ára Margrét Her- dís Thoroddsen, viðskipta- fræðingur og fyrrv. deild- arstjóri hjá Trygginga- stofnun, Sólheimum 25, Reykjavík. HVENÆR á að spila út trompi og hvenær ekki? Frægt er tilsvar Banda- ríkjamannsins Lews Mathes um það efni. Makker hans hafði gefið samning á trompútspili og Mathe húð- skammaði hann fyrir tiltæk- ið: „Það er aðeins í einni stöðu sem rétt er að trompa út,“ sagði Mathe. „Hvenær er það?“ spurði makker hans. „Þegar það er rétt!“ hvæsti Mathe. Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ KG876 ♥ 7 ♦ K763 ♣G63 Vestur Austur ♠ Á9 ♠ D10543 ♥ G98 ♥ K1042 ♦ D952 ♦ G10 ♣D852 ♣Á9 Suður ♠ 2 ♥ ÁD653 ♦ Á84 ♣K1074 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 2 lauf Pass Pass Pass Tilsvar Mathes hljómar eins og útúrsnúningur, en bridshöfundurinn Mike Lawrence leggur í það dýpri skilning: „Mathe var að benda á þá staðreynd að trompútspil eigi að hafa til- gang eins og önnur útspil,“ segir Lawrence. „Það á ekki að trompa út bara af því manni dettur ekkert snjall- ara í hug.“ Lawrence hefur skrifað bók um útspil sem kom út árið 1996 og heitir einfald- lega „Opening leads“. Þetta er að mörgu leyti gott rit, en uppsetningin mætti þó vera skýrari. Í næstu þáttum verður hugað að rökum með og á móti trompútspilum og stuðst við dæmi úr bók Lawrence. Helsta ástæðan fyrir því að trompa út er þessi: Sagn- hafi hefur sýnt tvo liti í sögn- um og blindur virðist vera stuttur í hliðarlit sagnhafa. Trompútspil hefur þá þann tilgang að fækka stungum sagnhafa í borðinu. Spilið að ofan er af þessu tagi. Eftir sögnum að dæma er norður stuttur í hjarta og útspil í trompi miðar að því að standa vörð um hjartastyrk makkers. Austur tekur á ás- inn og spilar aftur trompi. Nú er sama hvað leið sagn- hafi velur, hann fer alltaf einn niður. Með útspili í tígli gæti sagnhafi fengið átta slagi með því að taka kóng- inn og svína hjartadrottn- ingu. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. Rg5 d5 5. exd5 Ra5 6. Bb5+ c6 7. dxc6 bxc6 8. Be2 h6 9. Rh3 Bd6 10. d3 O-O 11. Rc3 Rd5 12. O-O Hb8 13. Kh1 Rxc3 14. bxc3 Be6 15. f4 Bxh3 16. gxh3 exf4 17. Bxf4 c5 18. Dd2 Hb6 19. Be3 Dh4 20. Bg4 Kh7 21. Hf5 De7 22. Hg1 He8 Staðan kom upp á Sigem- an-mótinu sem lauk fyrir skömmu í Málmey. Sigur- vegari mótsins, Nigel Short (2673), hafði hvítt gegn Tom Wedberg (2540). 23. Bxh6! g6 23...gxh6 gekk ekki upp vegna 24. Bh5 Db7+ 25. Bf3 Dd7 26. Dxh6+ Kxh6 27. Hh5#. Eftir textaleikinn verð- ur hvítur peði yfir og með betri stöðu. 24. Bg5 Db7+ 25. Bf3 Dd7 26. Hd5 De6 27. h4 Heb8 28. h5 Hb1 29. hxg6+ fxg6 30. Be3 Rc6 31. Hdg5 Hxg1+ 32. Hxg1 Re5 33. Be4 Dh3 34. De2 Hf8 35. d4 Dh4 36. Bg5 Hf2 37. Bxh4 Hxe2 38. dxe5 Bxe5 39. Bxg6+ Kh6 40. Bg3 Bxg3 41. Hxg3 og svartur gafst upp. Loka- staða mótsins varð þessi: 1. Nigel Short (2673) 6 vinn- inga af 9 mögulegum 2. Pet- er Heine Nielsen (2636) 5 ½ v. 3.-4. Jonny Hector (2513) og Leif Erlend Johannes- sen (2452) 5 v. 5.-6. Jan Timman (2616) og Vladimir Epishin (2606) 4 ½ v. 7.-8. Thomas Luther (2566) og Emanuel Berg (2514) 4 v. 9. Hannes Hlífar Stefánsson (2598) 3 ½ v. 10. Tom Wed- berg (2540) 3 v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. BRÚÐKAUP. Hinn 1. júní sl. voru Ölöf Guðrún Ólafs- dóttir og Thibaut Guilbrt gefin saman í Akureyrar- kirkju af séra Svavari B. Jónssyni. Heimili þeirra er í Danmörku. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake TVÍBURAR Afmælisbörn dagsins: Þú ert sagður hugaður og hvetjandi persónuleiki sem býr yfir miklum persónutöfr- um. Þú getur auðveldlega vakið sterkar tilfinningar hjá öðrum. Þá getur áhugi þinn á öðru fólki orðið til þess að þú færð það á þitt band. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þennan dag ætti að nota til þess að fara í stutta ökuferð eða til sambærilegrar skemmtunar. Naut (20. apríl - 20. maí)  Kauptu listrænan hlut eða eitthvað fallegt fyrir heimili þitt í dag. Einnig kemur til greina að kaupa eitthvað handa einhverjum í fjölskyld- unni til þess að sýna að þér er stendur ekki á sama. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það er tilvalið að segja ein- hverjum að þú elskir viðkom- andi því þú hefur þörf fyrir að tjá þig um hluti sem þú ert jafnan alltof feimin/n til að ræða um. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Samræður við einhverja sem starfa fyrir stjórnvöld eða stórar stofnanir geta komið sér að góðum notum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Hikaðu ekki við að tala við yf- irmann þinn eða einhvern sem er í forsvari. Þú ert sér- staklega hrífandi og háttvís sem vekur hringingu hjá öðr- um. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Notaðu tímann fyrir tóm- stundaiðju. Til dæmis er hægt að skoða listasafn, fara á sýningu eða lesa bók þér til skemmtunar. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Daður við einhvern eldri, kennski yfirmann, veitir þér gleði í dag. Atvik sem þessi eru algjörlega saklaus og vin- gjarnleg. Þú skalt því njóta andartaksins. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Hlutirnir ganga vel fyrir sig í dag, hvort sem það er í fjár- málum, í vinnu eða á heim- ilinu. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú kannt að meta fegurð þeg- ar þú sérð hana, en þú getur notað hana til þess að bæta andlega líðan þína. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Einbeittu þér að því sem snýr að þér og láttu mál annarra eiga sig. Þú hefur nóg með þitt og aðrir eiga að leysa sín verkefni sjálfir. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú hefur þann hæfileika að beita fagurgala til þess að fá málum þínum framgengt og ná eyrum fólks. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Notaðu daginn til dag- drauma, notaðu ímyndun- araflið og slakaðu á. Ef þú getur skaltu taka þér frí frá vinnu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda.          Það er allt í lagi að kenna honum hunda- kúnstir, en er þetta ekki fulllangt gengið?! Með morgunkaffinu MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Sumarhappdrætti Útdráttur 17. júní 2002 Peugeot 307 XS, kr. 1.789.000 Bifreið eða greiðsla upp í íbúð kr. 1.000.000 Úttekt hjá verslun eða ferðaskrifstofu kr. 100.000 1537 2480 3269 4565 7290 7402 7405 7543 8016 8114 8414 8667 10833 10938 10984 11465 12080 12514 14998 15038 16639 17260 19518 20815 20980 21526 26102 27522 27809 30206 30440 32077 32533 33236 33540 34227 35197 36000 36025 37137 37565 37582 39854 39911 40910 41705 42169 43195 43276 46928 47303 48710 49772 49821 49839 50838 50974 51291 52740 53087 56125 56506 58534 58571 59084 59289 59573 59966 61521 62451 62501 62640 63480 64404 67420 69725 70690 71802 72287 72332 73407 74084 75569 76026 76122 76706 77261 77653 78908 80358 80903 81397 81910 83141 84539 84721 84745 85754 86310 86312 86369 87043 87110 88075 88459 88539 88591 92489 95530 95863 98627 99901 100301 100600 103306 103383 103684 104007 104947 105089 105245 107339 108138 109171 109325 109508 109977 109991 110576 111576 112071 113482 113902 115070 116588 116948 117278 117793 118378 121331 121613 123195 123611 126929 127802 128239 131315 131662 132392 132795 74977 49779 Birt án ábyrgðar. ALEXANDERTÆKNI fyrir alla Fjárfestu í sjálfum þér Jónína Ólafsdóttir, sími 552 2175 gsm 695 2175 Einkatímar í Alexandertækni. Losað um spennu í líkama. Bætir svefn og almennt andlega líðan. Leiðréttir slæma ávana og vekur líkamlega meðvitund. Alþjóðlegt IATA/UFTAA ferðamálanám Alþjóðleg IATA/UFTAA ferðamarkaðsfræði Bíldshöfða 18, sími 567 1466 • www.menntun.is                     Bikini og sundbolir í skálastærðum Strandkjólar Nóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá, Sendum í póstkröfu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.