Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 33
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 33 Í ÁRSSKÝRSLU Alþjóða Rauða kross- ins um hamfarir og neyðaraðstoð, sem kemur út í dag, er lögð megináhersla á mikilvægi neyðar- varna og meðal ann- ars bent á fyrirkomu- lag neyðarvarna á Íslandi sem fyrir- mynd fyrir aðrar þjóðir. Þetta er mikil viðurkenning og hvatning til að gera enn betur – innan lands sem utan. Þegar móðuharð- indin riðu yfir landið fyrir rúmum tveimur öldum, og ollu því að skepnur hrundu og margir létu lífið, var Ísland fátækt land sem mátti ekki við miklu. Nú erum við ein af ríkustu þjóðum í heimi og gætum væntanlega stað- ist aðra Skaftárelda. Auk almennr- ar velmegunar erum við svo hepp- in að búa við gott ástand í neyðarvörnum sem hugur allra stendur til að bæta enn á allra næstu misserum. Mörg lönd heims eru hins vegar í svipaðri stöðu og Íslendingar á átjándu öld. Íbúar þeirra vinna hörðum höndum við að hafa í sig og á og allt sem er umfram það er notað til að bæta kjör næstu kyn- slóðar. En líkt og gerðist eftir Skaftárelda hér á landi þá geta hamfarir – hvort sem þær eru af völdum manna eða náttúru – eyði- lagt í einu vetfangi áratuga erfiði við uppbyggingu. Staðreyndirnar eru ískyggileg- ar. Á áttunda áratugnum urðu 700,000 manns fyrir barðinu á hamförum af einhverju tagi; á síð- asta áratug tveir milljarðar manna. Ástæðurnar eru margvís- legar, frá gróðurhúsaáhrifunum, sem valda meiri og fleiri hitabelt- isstormum, til fólksfjölgunar sem hefur þau áhrif að fleira fólk býr á hættulegri stöðum. Þannig varð felli- bylurinn Mitch til þess að færa efna- hagsástandið í Hond- úras aftur um tvo ára- tugi og landsfram- leiðsla í Venesúela minnkaði um 10 pró- sent vegna aurskriðna á árinu 1999. Jarð- skjálftar á Indlandi í fyrra urðu þess valdandi að fátækt fólk í þúsundatali missti það litla sem það átti. Eyðileggingarmátt- ur hamfara er nefni- lega ekki bara fólginn í dauðs- föllum og eignaskemmdum heldur einnig og ekki síður í því hvernig þjóðir sem eru að vinna sig upp úr fátæktinni eru færðar aftur niður í áframhaldandi vítahring örbirgðar og síendurtekinna hamfara. Við Íslendingar búum við nokkra sérstöðu. Við njótum al- mennrar velmegunar þrátt fyrir að búa í hrjóstrugu landi ofsafeng- innar náttúru sem stundum leikur okkur grátt. Reynslan hefur kennt okkur mikilvægi neyðarvarna og við þær taka höndum saman op- inberar stofnanir og frjáls félaga- samtök. Nýlega var undirritaður samningur milli Almannavarna ríkisins, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Rauða krossins um þessi mál. Nú eru um 700 flokksstjórar um allt land í neyð- arvarnakerfi Rauða kross Íslands reiðubúnir að bregðast við ef kallið kemur. Hugur okkar stendur til að efla neyðarvarnir félagsins enn meir á næstunni. Jafnframt því sem við byggjum upp þetta kerfi heima fyrir ber okkur skylda til að miðla af þeirri reynslu sem við höfum til þeirra sem þurfa á því að halda. Rauði kross Íslands hefur um árabil haldið úti öflugu hjálparstarfi víða um heim. Niðurstaða hamfara- skýrslu Alþjóða Rauða krossins er hvatning til okkar að leggja æ meiri áherslu á neyðarvarnir í al- þjóðlegu hjálparstarfi félagsins. Vinna sem miðar að því að koma í veg fyrir alvarlegar afleiðingar hamfara er ekki hliðarverkefni. Hún er kjarnaverkefni mannúðar- samtaka eins og Rauða krossins. Neyðarvarnir borga sig Úlfar Hauksson RKÍ Mörg lönd heims eru, segir Úlfar Hauksson, í svipaðri stöðu og Íslendingar á átjándu öld. Höfundur er formaður Rauða kross Íslands. EITT af því sem er svo yndislegt við Sól- heima í Grímsnesi, og fólkið sem vinnur þar, er sú tryggð og vinátta sem þar verður til. Jafnvel löngu eftir að fólk hefur hætt þar störfum heldur það tryggð við staðinn. Þetta má meðal annars sjá í bréfi til Morgun- blaðsins sem Rut Gunnarsdóttir skrifar fjórtánda júní. Hún er talsmaður Sólheima- samtakanna. Ég er að vísu ekki sammála öllu sem Rut segir. Ég gat ekki annað en skellt uppúr, þegar hún talaði um stjórnarformanninn, Pétur Sveinbjarnarson. Henni finnst prestastefna bera svo mikið traust til hans, að það sé eins og þar fari heil- agur maður. Ýmislegt hefur verið um Pétur sagt, en jafnvel hann sjálf- ur heldur ekki að hann sé dýrlingur. Fjári nálægt því, örugglega, en ekki alveg. Pétur er satt að segja eins og jarð- ýta. Og þessvegna umdeildur. Sumir þola hann alls ekki. Hann á það til að valta yfir fólk, í sannfæringu um að hann sé að gera rétt. Ég er alls ekki sammála öllu sem Pétur hefur gert. Hann er engan veginn óskeikull. Mér finnst hins vegar að kostir hans, eins og dugnaður og ósérhlífni, yf- irvegi ókostina. Og enginn getur efast um að velferð Sólheima er hon- um jafn hugleikin og félögum Sól- heimasamtakanna. Rut gerir at- hugasemdir við hluti eins og Vistmenningarhús, sem hún telur að skipti vistmenn litlu máli. Eins við gistihús, sem sé rekið með tapi, ár eftir ár. Þá efast hún um hlutverk verslunarinnar Völu, sem og aðra hluti, eins og hárgreiðslu og nudd, sem sé veitt á staðnum. Nú er að koma kirkja, og Rut óttast að með þessu öllu minnki möguleikar heimilisfólksins til þess að hitta annað fólk. Ég veit að Rut gleðst yfir að heyra að svo er ekki. Heimilisfólkið á Sólheimum er stans- laust á ferðinni. Það fer út um allar trissur, bæði innan lands og ut- an. Það fer hitt og þetta í verslunarferðir, fer í bíó, fer í leikhús, fer í skoðunarferð- ir, fer á listmunasölusýningar Sól- heima í Reykjavík (með listmuni sem það hefur sjálft búið til) og þar fram- eftir götunum. Við hjónin glettumst stundum með það að okkar fólk á Sólheimum fari oftar til útlanda en við sjálf. Sú starfsemi sem tínd hefur verið til, og raunar margt annað, stuðlar svo að því að fleira fólk kem- ur í heimsókn að Sólheimum. Ég vil til dæmis hvetja alla sem það geta að sjá hinar stórkostlegu kabarettsýningar sem hin yndislega Edda Björgvinsdóttir stendur fyrir. Þær eru á laugardögum og sunnu- dögum, klukkan fjögur, í allt sumar. Þar flytur heimilisfólkið atriði úr söngleiknum Hárinu, af þvílíkri inn- lifun og einlægni, að maður fær kökk í hálsinn. Allir klappa og allir syngja með. Til viðbótar við það fær Edda ýmsa helstu og bestu skemmtikrafta landsins til þess að koma í heimsókn. Eins og Valgeir Guðjónsson, Kaffi- brúsakallana og fleiri. Sýningarnar eru haldnar í Samveru- og fé- lagsmiðstöðinni sem stjórn Sólheima var hundskömmuð fyrir að búa til, úr gömlu gróðurhúsi sem átti að rífa. Það kostar ekkert inn, og það er best að mæta snemma, því það er alltaf fullt út úr dyrum. Ég vil svo að lok- um biðja Rut og félögum hennar allr- ar blessunar, og þakka þeim fyrir umhyggjuna sem þau sýna ástvinum okkar á Sólheimum. Staðreyndir um Sólheima Óli Tynes Sólheimar Jafnvel löngu eftir að fólk hefur hætt þar störfum, segir Óli Tynes, heldur það tryggð við staðinn. Höfundur er fréttamaður. Fyrirlestur um stefnumótun finnska þjóðþingsins á sviði vísinda, tækni og þekkingarstjórnunar. Markku Markkula, þingmaður og formaður nefndar finnska þjóðþingsins um þekkingarþjóðfélagið og formaður finnska verkfræðingafélagsins. Hádegisfundur í Borgartúni 6 fimmtudaginn 20. júní kl. 12:00. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til rannis@rannis.is, vfi@vfi.is eða tfi@tfi.is. Hádegisfundur á vegum RANNÍS og VFÍ/TFÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.