Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 15
LITAVER, Grensásvegi 18, s. 581 2444
MOSRAF, Mosfellsbæ, s. 566 6355
BYGGINGAHÚSIÐ, Akranesi, s. 431 5710
MÁLNINGARÞJÓNUSTAN, Akranesi, s. 431 1799
KB BYGGINGAVÖRUVERSLUN, Borgarnesi, s. 430 5544
LITABÚÐIN, Ólafsvík, s. 436 1313
GUÐNI HALLGRÍMSSON, Grundarfirði, s. 438 6722
SKIPAVÍK, Stykkishólmi, s. 430 1415
G.E.SÆMUNDSSON, Ísafirði, s. 456 3047
KAUPFÉLAG V-HÚNV., Hvammstanga, s. 451 2370
KAUPFÉLAG HÚNVETNINGA, Blönduósi, s. 455 9030
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA, Sauðárkróki, s. 455 4610
BJARNI ÞORGEIRSSON, Siglufirði, s. 867 1590
JÓKÓ, Furuvöllum 13, Akureyri, s. 462 7878
ÖRYGGI, Húsavík, s. 464 1600
KJG, Þórshöfn, s. 853 1880
KAUPFÉLAG VOPNFIRÐINGA, Vopnafirði, s. 473 1203
KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA, Egilsstöðum, s. 470 1220
BYGGT & FLUTT, Norðfirði - Eskifirði - Fáskrúðsfirði, s. 477 1515
KASK, BYGGINGAVÖRUR, Höfn, s. 470 8210
KLAKKUR, Vík, s. 487 1223
BRIMNES, Vestmannaeyjum, s. 481 1220
KÁ, BÚREKSTRARDEILD, Austurvegi 69, Selfossi, s. 482 3767
HÚSIÐ VERSLUN, Grindavík, s. 426 7666
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Fagleg ráðgjöf
og þjónusta
SUMARTILBOÐ
á útimálningu og viðarvörn
590kr.
Verð á lítra
á Hörpusilki og Útitex
miðað við 10 lítra dós og ljósa liti
Íslensk gæðamálning
Endursöluaðilar
BÆJARSTJÓRN Garðabæjar hef-
ur samþykkt tillögu að deiliskipulagi
við Arnarnesvog á svæði þar sem
nýtt strandhverfi er fyrirhugað.
Einnig var samþykkt breyting á að-
alskipulagi Garðabæjar á svæðinu.
Tillögurnar voru kynntar fyrr á
árinu og voru þær samþykktar
óbreyttar í megindráttum á fundi
bæjarstjórnar í síðustu viku. Stefnt
er að því að framkvæmdir geti hafist
á svæðinu í haust og fyrstu íbúð-
irnar verði jafnvel tilbúnar síðla árs
2003.
Við Arnarnesvog er gert ráð fyrir
blandaðri landnotkun fyrir íbúðir,
verslun, þjónustu og stofnanir. Gert
er ráð fyrir að skipulagið öðlist gildi
síðar í sumar. Breytingin á aðal-
skipulaginu er til komin vegna deili-
skipulags nýs strandhverfis og nær
yfir sama svæði. Núgildandi aðal-
skipulag gerir ráð fyrir iðnaðar-
svæði við höfnina og blandaðri land-
notkun á svæðinu vestan við hana.
Með breytingunni verða þessi svæði
að einu skipulagssvæði með bland-
aðri landnotkun.
Garðabær hefur gert viljayfirlýs-
ingu við fyrirtækin Björgun ehf. og
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars
ehf. um samstarf við uppbyggingu
svæðisins, segir í frétt frá Garðabæ.
Íbúðir fyrir eldri borgara
Samkvæmt deiliskipulaginu verð-
ur í hverfinu íbúðabyggð með 560 al-
mennum íbúðum og 200 íbúðum sem
ætlaðar eru eldri borgurum. Í
tengslum við íbúðirnar fyrir eldri
borgara verður reist þjónustusel þar
sem m.a. verður matsalur með eld-
húsi. Garðabær hefur óskað eftir því
við framkvæmdaraðila að íbúðir af
mismunandi stærðum verði byggðar
í hverfinu og þar á meðal verði íbúð-
ir sem eru minni en 80 fm.
Meirihluti húsa í strandhverfinu
verður tveggja til fjögurra hæða
fjölbýlishús. Á fyllingunni verða hús
þó mest þrjár hæðir.
Húsin verða hærri innar í landinu
þar sem landið liggur lægst.
Vestast við voginn er náttúruleg
fjara sem verður áfram óhreyfð. Í
beinu framhaldi af henni til austurs
er gert ráð fyrir svæði þar sem
verða leikskóli, sparkvöllur og sjó-
baðsströnd sem snýr í sólarátt. Að-
stöðu til fuglaskoðunar verður kom-
ið fyrir á tanga. Strandlengjan
verður öll opin almenningi og gang-
stígur tengir hana og hverfið við
miðbæ Garðabæjar.
Deiliskipu-
lag við Arn-
arnesvog
samþykkt
Garðabær
Morgunblaðið/Árni Sæberg
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111