Morgunblaðið - 19.06.2002, Page 10

Morgunblaðið - 19.06.2002, Page 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ er óábyrgt, að mati Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra, að útiloka að sá tími geti runnið upp að Íslendingar telji hagsmun- um sínum betur borgið innan Evr- ópusambandsins en utan þess, að því er fram kom í hátíðarræðu hans á Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstað Jóns Sigurðsssonar, á þjóðhátíðardaginn. „Ég hef á undanförnum vikum og mánuðum talið það skyldu mína að standa fyrir opinni umræðu um stöðu Íslands í samfélagi þjóð- anna, til að mynda gagnvart Evr- ópusambandinu. Almennt hefur þjóðin tekið þessari umræðu vel og því ber að fagna, enda fagleg um- ræða undirstaða skynsamlegrar niðurstöðu. Þær raddir heyrast, sem telja að umræðan ein og sér um Evrópusambandið sé ótímabær eða jafnvel með öllu óþörf, þar eð Ísland muni aldrei í fyrirsjáanlegri framtíð verða þar aðili. Við erum Norðurlandaþjóð, við erum Evrópuþjóð. Örlög okkar og framtíð tengjast með órofa hætti okkar bræðra- og vinaþjóðum. Við deilum með þeim ákvörðunum, þeirra fullveldi og sjálfstæði hefur áhrif á okkar fullveldi og sjálf- stæði. Samvinnan við þessar þjóðir er grundvöllurinn að þátttöku okk- ar í alþjóðavæðingunni sem snertir alla heimsbyggðina. Þegar menn deila kjörum með öðrum, jafnvel fullveldi, verða hinir sömu að eiga fulla aðild að sameiginlegum ákvörðunum er varða framtíðar- hag. Það er að mínu mati óábyrgt að útiloka að sá tími geti runnið upp að Íslendingar telji hagsmunum sínum betur borgið innan sam- bandsins en utan. Við hér á Hrafnseyri í dag erum ekki betur í stakk búin til að sjá fyrir um fram- tíðina, en þeir sem á undan okkur fóru. Eða hver sá fyrir sér þá stór- kostlegu þróun sem orðið hefur t.d. með falli kommúnismans og hruni járntjaldsins í Evrópu á tveimur síðustu áratugum?“ sagði utanríkisráðherra meðal annars í ræðunni. Hann gerði einnig verk Jóns Sigurðssonar að umtalsefni og sagði að hann hefði átt mestan þátt í því að Alþingi var end- urreist, Latínuskólinn endur- bættur, Prestaskólinn stofn- settur, verslunarfrelsi gefið, læknaskipan endurbætt og þjóðréttindi efld, enda mennt- un grundvöllur sjálfstæðis. Hann hefði átt stóran þátt í því sjálfstæði sem vannst með stjórnarskránni 1874 og hefði ótrauður í ræðu og riti stutt allt sem til framfara horfði og ekki síst það sem varðaði rétt- indi og virðingu þjóðarinnar. „Hann kunni flestum frem- ur að meta það sem í raun ein- kennir þjóðleg gildi okkar Íslend- inga, en vildi ekki ríghalda í það sem var orðið úrelt og lét ekkert aftra sér frá því að kynna sér þró- un annars staðar og nýjungar. Jón Sigurðsson var þannig mik- ill Íslendingur, en um leið sannur heimsmaður. Þröngsýni var honum andstyggð, en víðsýnin í blóð bor- in. Hið óþekkta var honum áskor- un og fróðleiksþorstinn óslökkv- andi. Þessi þrá, þessi eðlislæga fróðleiksfýsn Jóns Sigurðssonar var mikil gæfa íslenskri þjóð, sem við njótum enn í dag. Við lifum á tímum mikilla breyt- inga. Ekki aðeins Íslendingar, heldur jarðarbúar allir. Gríðarleg framþróun síðustu aldar hefur svo sannarlega fleytt okkur fram, en við verðum þó ávallt að halda vöku okkar, því kyrrstaða er afturför. Við megum aldrei taka það sem við höfum öðlast sem sjálfsagðan hlut. Framfarir eru svo miklar og lífskjörin hafa batnað svo skjótt, að alltof víða gleymist sú mikla vinna sem að baki liggur. Frelsi í nýtingu auðlinda, óheft samkeppni á peningamarkaði eða í viðskiptum hefur ekki sömu merkingu og það frelsi sem Jón Sigurðsson þráði svo heitt og barðist fyrir. Ótak- markað frelsi á öllum sviðum tryggir ekki endilega lýðræði og frið. Sérhvert samfélag þarf á stöðugum og sanngjörnum leik- reglum og skipulagi að halda, til þess að tækifærin deilist sem jafn- ast meðal þegnanna og jafnræði ríki sem víðast. Þá fær hver ein- staklingur að njóta sín á eigin for- sendum, en um leið er þess gætt að þeir sem standa höllum fæti, njóti einnig tækifæra til að þrosk- ast í lífi og starfi. Í lífinu vinnast sigrar á hverjum einasta degi, jafnt stórir sem smáir,“ sagði utanríkisráðherra enn- fremur. Halldór sagði einnig að sér hefði orðið tíðrætt um Jón Sigurðsson, enda ástæða til. Það væri þó ástæða til að minna á að sjálfstæðisbar- áttunni hefði ekki lokið með starfi Jóns Sigurðssonar. „Aðrir tóku við kyndlinum og hófu hátt á loft. Í kjölfar- ið hafa margir sigrar unnist. Fullveldið, lýðveldisstofn- unina og landhelgisbarátt- una ber hæst í því efni. Þótt við tölum þannig um sigra er ekkert til sem heitir fulln- aðarsigur. Að viðhalda sjálfstæði þjóðar, svo ekki sé talað um smá- þjóðar, er mikið starf – þrotlaus barátta – sem aldrei tekur enda. Ávextir þess starfs eru miklir, en þeir verða aldrei til án fórna. Við verðum hvert og eitt að starfa með því hugarfari. Ólíkir hagsmunir verða ekki sættir með stöðugum átökum um skiptingu þjóðartekna, heldur verðum við öll að standa saman um stöðugleikann. Ég tel að verkalýðshreyfingin, ekki síst Alþýðusamband Íslands, hafi sýnt og sannað að undanförnu, hverju öflug fjöldahreyfing fær áorkað þegar kraftar manna eru samein- aðir í stað þess að menn gangi sundraðir til verks. Íslendingar eiga allt sitt und- ir viðskiptum við önnur lönd En sjálfstæðið sem hugtak má aldrei verða til þess að myndaðir séu um það ímyndaðir pólar, t.d. landsölumanna annars vegar og sjálfstæðissinna hins vegar. Heimsmyndin er ekki svo einföld, hvorki hér á landi né annars stað- ar, og landsmenn allir vilja landi sínu og þjóð vel. Sumir hafa hins vegar séð sér hag í að tengja and- stöðu sína við erlent samstarf, t.d. innan Atlantshafsbandalagsins eða Evrópusambandsins, við sjálfstæð- isbaráttu þjóðarinnar. Slík einföld- un er vitaskuld fjarri lagi og þeir sem telja mikilvægt að Ísland og Íslendingar fari vel með hlutverk sitt og stöðu í samfélagi þjóðanna eru að sjálfsögðu ekki með því að draga úr sjálfstæði þjóðarinnar, né vinna gegn hagsmunum hennar. Þvert á móti má færa fyrir því gild rök, að Ísland eigi allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd og þró- un og hlutverk alþjóðastofnana varði því afar miklu. Í heimi al- þjóðaviðskipta er fyrir löngu orðið ljóst að gilda þurfi samræmdar leikreglur svo jöfn staða allra sé tryggð. Smærri ríki, eins og Ísland, hafa ekki hvað síst mikla hagsmuni af slíku samstarfi og leikreglum sem tryggja ákveðna vernd gagnvart ofurvaldi risastórra hagkerfa sem geta síður tekið mið af eigin hags- munum og verða í auknum mæli að miða áætlanir sínar við hags- muni fleiri ríkja – á hnattræna vísu. Ég hlýt að vara við alhæfingum í svo mikilvægri umræðu. Menn verða ekki sjálfkrafa landsölu- menn við það að vilja ræða sam- starf Íslands og annarra þjóða, fremur en að þeir einir teljist sjálfstæðissinnar sem hafna öllu samstarfi og kjósa einangrun og tómhyggju. Palladómar af því tagi eru hrein ögrun við þær hetjur fortíðarinnar, þar á meðal Jón Sig- urðsson, sem lögðu allt undir í baráttu sinni fyrir raunverulegu sjálfstæði þjóðarinnar og áttu þátt í stærstu sigrum okkar sem full- veðja þjóðar,“ sagði utanríkisráð- herra ennfremur í hátíðarræðu sinni á Hrafnseyri. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra í hátíðarræðu á Hrafnseyri við Arnarfjörð Óábyrgt að útiloka að hagsmunum sé betur borgið innan ESB en utan Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra. ALMANNAVARNAÆFINGIN Samvörður 2002 verður haldin á Ís- landi dagana 24.–30. júní næstkom- andi, en æfingin er hluti af alþjóð- legu öryggis- og varnarmála- samstarfi Atlantshafsbandalagsins og var kynnt í gær. Landhelgisgæsl- an og Varnarliðið á Keflavíkurflug- velli hafa í sameiningu skipulagt Samvörð 2002 en undirbúningur hefur staðið í rúmt ár. Á þeim tíma hafa þrjár undirbúningsráðstefnur verið haldnar, bæði hér á landi og erlendis. Að sögn Dagmarar Sigurð- ardóttur, upplýsingafulltrúa Land- helgisgæslunnar, verða þátttakend- ur rúmlega þúsund manns, 550 Íslendingar og um 500 útlendingar. Ásgrímur L. Ásgrímsson, deild- arstjóri hjá Landhelgisgæslu Ís- lands, er verkefnisstjóri Samvarðar 2002 og segir hann að upphaflega hafi verið gert ráð fyrir fastaflota NATO á æfinguna, en vegna atburð- anna 11. september hafi orðið óljóst með þátttöku flotans og í desember var endanlega staðfest að af þátt- töku hans yrði ekki. Vettvangsæfingin, sem er aðalæf- ingin, fer fram í Vestmannaeyjum 28.–30. júní og er meginverkefnið að bjarga fólki frá eyju þar sem eldgos og jarðskjálftar ógna lífi þess. „Vestmannaeyjar voru taldar ákjós- anlegur vettvangur þar sem bæði hraunið og gígurinn eru til staðar og það auðveldar þeim sem að taka þátt í æfingunni að ímynda sér að- stæður, en við viljum endilega taka það fram að það eru engin vísinda- leg rök sem liggja fyrir því að eld- gos sé að hefjast í Vestmannaeyjum, heldur eru eyjarnar taldar æskileg- ur vettvangur fyrir svona æfingu,“ segir Ásgrímur. Takmarka þurfti þátttöku viðbragðsaðila Hann bendir á að flestum helstu viðbragðsaðilum á suðvesturhorninu hafi verið boðin þátttaka, en hins vegar hafi þurft að takmarka þátt- töku sökum takmarkaðrar stærðar Vestmannaeyja, takmarkaðrar flutningsgetu eftir að fastafloti NATO datt út úr myndinni og þar sem Pollamótið verði haldið á sama tíma í Vestmannaeyjum. „Við reyn- um að trufla íbúa Vestmannaeyja eins lítið og við mögulega getum og eins ungviðið sem þarna verður við æfingar,“ bætir hann við. Erlendir þátttakendur verða varnarliðið, sem leggur meðal ann- ars til þrjár Chinok-flutningaþyrlur og björgunarsveitir frá Danmörku, Eistlandi, Belgíu, Litháen, Rúmeníu og Uzbekistan, auk þess sem önnur ríki eiga fulltrúa á æfingunni. Að sögn Ásgríms verður æfing- unni skipt í nokkra hluta. „Að auki verður alþjóðleg æfing á sviði sprengjueyðingar haldin á varnar- svæðinu á sama tíma,“ segir hann og munu fimm þjóðir taka þátt í þeirri æfingu. Kostnaður íslenska ríkisins af æfingunni er áætlaður um sjö milljónir króna. Almannavarnaæfingin Sam- vörður 2002 haldin á Íslandi Fólki bjargað frá gosi og skjálftum FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi fimmtán Íslend- inga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 17. júní. Þeir sem hlutu orðuna voru: Auður Guðjónsdóttir hjúkr- unarfræðingur, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir störf í þágu mænuskaddaðra. Auður Laxness húsfreyja, Mos- fellsbæ, stórriddarakross fyrir framlag til íslenskrar menningar. Guðrún Nielsen íþróttakennari, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íþróttamála aldraðra. Gunnsteinn Gíslason, oddviti í Árneshreppi á Ströndum, ridd- arakross fyrir störf að félags- og byggðarmálum. Halldór Björnsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í þágu launafólks og verkalýðs- hreyfingar. Haraldur Örn Ólafsson, Reykja- vík, riddarakross fyrir afreks- verk. Ólafur Jónsson, fv. fram- kvæmdastjóri, Selfossi, ridd- arakross fyrir störf í þágu skóg- ræktar. Ólafur Jónsson, fv. bæj- arfulltrúi, Kópavogi, riddarakross fyrir störf að félagsmálum. Ríkharður Jónsson, fv. knatt- spyrnumaður, Akranesi, ridd- arakross fyrir störf í þágu íþrótta. Sigríður Theódóra Sæmunds- dóttir húsfreyja, Skarði á Landi, riddarakross fyrir störf í þágu safnaðar- og félagsmála. Tinna Gunnlaugsdóttir leik- kona, Reykjavík, riddarakross fyr- ir störf í þágu menningar og lista. Valdimar K. Jónsson prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu vísinda. Valgeir Þorvaldsson, for- stöðumaður Vesturfarasetursins, Hofsósi, riddarakross fyrir eflingu menningartengdrar ferðaþjón- ustu. Þórir Einarsson ríkissáttasemj- ari, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu. Össur Kristinsson stoðtækja- fræðingur, Kópavogi, ridd- arakross fyrir tækninýjungar og frumkvöðulsstörf í atvinnumálum. Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ásamt þeim fimmtán Íslendingum sem hinn 17. júní voru sæmdir heið- ursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Fimmtán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.