Morgunblaðið - 19.06.2002, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 11
Á FUNDI borgarráðs á föstu-
dag í síðustu viku var tekið fyrir
bréf Ólafs F. Magnússonar,
borgarfulltrúa F-lista, varðandi
ósk listans um að fá áheyrnar-
fulltrúa í tilteknar nefndir og
ráð á vegum borgarinnar. Í bréfi
til borgarráðs er óskað eftir að
einn kjörinn fulltrúi listans fái
sæti sem áheyrnarfulltrúi í fé-
lagsmálaráði, fræðsluráði, leik-
skólaráði, skipulags- og bygg-
ingarnefnd, umhverfis- og
heilbrigðisnefnd og í samgöngu-
nefnd. Í umfjöllun borgarráðs
kemur fram að ljóst sé að F-listi
eigi rétt á að tilnefna áheyrnar-
fulltrúa í borgarráð með mál-
frelsi og tillögurétti en að slíkur
réttur nái ekki til annarra
nefnda borgarinnar. Engu að
síður samþykki borgarráð að F-
lista verði heimilt að tilnefna
borgarfulltrúa eða varaborgar-
fulltrúa sem áheyrnarfulltrúa
með málfrelsi og tillögurétti í
tvær nefndir, auk borgarráðs.
Skal sú ákvörðun framboðslist-
ans kynnt borgarráði.
Ósk F-lista um
áheyrnarfulltrúa
Fá fulltrúa
í tvær
nefndir auk
borgarráðs
ÞING Sambands ungra framsóknar-
manna samþykkti ályktun um
helgina þar sem skorað er á Halldór
Ásgrímsson, utanríkisráðherra og
formann Framsóknarflokksins, að
bjóða sig fram í Reykjavík í næstu
kosningum. Í ályktuninni segir að
Framsóknarflokkurinn hafi verið í
mikilli sókn síðustu mánuði.
,,Framundan eru alþingiskosning-
ar og mikilvægt er að flokkurinn
fylgi eftir þessum góða árangri sem
hefur náðst að undanförnu og því
skora ungir framsóknarmenn á Hall-
dór Ásgrímsson, formann Fram-
sóknarflokksins, að bjóða sig fram í
Reykjavíkurkjördæmi næsta vor,“
segir í ályktuninni.
Haldið verði áfram vinnu við
uppfærslu EES-samnings
Einnig var samþykkt ályktun um
utanríkismál á þinginu eftir miklar
umræður, þar sem m.a. er vikið að
Evrópumálum: ,,Haldið verði áfram
vinnu við uppfærslu EES-samnings-
ins í samræmi við skýrslu Evrópu-
nefndar Framsóknarflokksins. Jafn-
framt verði hafin ítarleg vinna við að
skilgreina samningsmarkmið Ís-
lendinga. Skal þeirri vinnu verða að
fullu lokið fyrir ársbyrjun 2005,“
segir í ályktun þings SUF.
Halldór
Ásgrímsson
fari fram í
Reykjavík
Þing Sambands ungra
framsóknarmanna
FUNDI í allsherjarnefnd Alþingis
sem halda átti í gær var frestað til
næsta föstudags. Fulltrúar Samfylk-
ingarinnar fóru þess á leit að fundur
yrði haldinn í nefndinni þar sem rætt
yrði um aðgerðir stjórnvalda vegna
heimsóknar forseta Kína og yfirlýs-
ingar stjórnvalda í tengslum við það.
Að sögn Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur, formanns Allsherj-
arnefndar, þurfti að fresta fundinum
þar sem í ljós kom að ekki höfðu allir
tök á að mæta.
Fundi alls-
herjarnefndar
frestað til
föstudags
OPINBERRI heimsókn Jiang Zem-
ins, forseta Kína, lauk á sunnudags-
morgun þegar hann fór af landi
brott ásamt fylgdarliði sínu, áleiðis
til Litháen. Áður en forsetinn
kvaddi færði Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, honum möppu
með ljósmyndum úr ferðinni eftir
Gunnar V. Vigfússon ljósmyndara.
Á laugardag skoðaði forsetinn
Nesjavelli, Þingvelli, Gullfoss og
Geysi. Yfirleitt bar lítið á mótmæl-
um en talsverður fjöldi Falun Gong-
iðkenda og annarra mótmælenda
var á hinn bóginn á hverasvæðinu
við Geysi. Hafði fólkið m.a. falið sig
í kjarri í nágrenninu og lítill hópur
gerði æfingar á hól í grennd við
Hótel Geysi. Lögregla rýmdi hvera-
svæðið áður en forsetinn kom á
staðinn. Við Geysi voru einnig
margir Kínverjar sem hugðust
fagna forsetanum og báru þeir
stóra kínverska fána og borða.
Hvorki sást til mótmælenda né
þeirra sem fögnuðu forsetanum frá
akstursleið hans.
Allstór hópur mótmælenda úr
hópi Falun Gong-iðkenda safnaðist
saman á Reykjanesbraut, skammt
frá afleggjaranum að Leifsstöð, á
sunnudagsmorgun og hugðist mót-
mæla þegar bílalest forsetans færi
þar um. Þeim varð ekki að ósk sinni
þar sem ákveðið var að aka aðra
leið að flugstöðinni.
Ekki verið að fela
mótmælendur
Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri
dómsmálaráðuneytisins, segir að
aðgerðir lögreglu hafi miðað að því
að tryggja öryggi kínverska forset-
ans og það hafi alls ekki verið til-
gangur lögreglu að koma í veg fyr-
ir að hann sæi til mótmælenda.
Varðandi breytingu á akstursleið
til Leifsstöðvar segir Stefán að ekki
hefði verið hægt að treysta því að
mótmælendur hlypu ekki í veg fyrir
bílalestina.
Hann telur að lögregla hafi stað-
ið sig einstaklega vel við erfiðar að-
stæður. Þá hafi aðgerðir stjórn-
valda í þeim tilgangi að takmarka
fjölda Falun Gong-iðkenda hér á
landi verið nauðsynlegar. Hann
segir kínversku sendinefndina hafa
verið afar ánægða með heimsókn-
ina.
Morgunblaðið/Þorkell
Við Geysi voru bæði Falun Gong-iðkendur sem hugðust mótmæla for-
setanum og Kínverjar sem vildu fagna honum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Um 100 manns hugðust mótmæla þegar bílalest forsetans æki að Leifs-
stöð. Þeim varð ekki að ósk sinni þar sem valin var önnur leið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff, heitkona
hans, veifa til Jiang Zemins og eiginkonu hans, Wang Yeping.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, færði Jiang Zemin, forseta
Kína, að gjöf möppu með ljósmyndum úr heimsókninni. Zemin var
skemmt þegar Ólafur sýndi honum ljósmynd af því þegar sá fyrrnefndi
söng O sole mio í Perlunni á föstudagskvöld.
Fór héðan í
opinbera heim-
sókn til Litháen
Opinberri heimsókn Jiang Zemins, forseta Kína, lauk á sunnudag
GUÐNI Ágústsson, landbúnaðarráð-
herra, Margrét Hauksdóttir, eigin-
kona hans, og Connie Magnusson,
fjallkona, lögðu blómsveig að styttu
Jóns Sigurðssonar í Winnipeg í Kan-
ada 17. júní að viðstöddu miklu fjöl-
menni.
Guðni Ágústsson hefur ásamt
fylgdarliði verið í heimsókn í Mani-
toba síðan sl. fimmtudag og er hóp-
urinn væntanlegur aftur til Íslands á
föstudag. Um helgina var m.a. heim-
sókn til Lundar í tilefni 50 ára afmæl-
is landbúnaðarsýningarinnar þar og
auk þess var komið við hjá Brett
Arnason, hrossabúgarður hans skoð-
aður og verðlaun afhent á sýningu á
íslenskum hestum.
Athöfnin fyrir framan þinghúsið
17. júní heppnaðist vel í mjög góðu
veðri, en Neil Bardal, aðalræðismað-
ur í Gimli, stjórnaði henni. Deanna Is-
leifsson bauð gesti velkomna, en síðan
fluttu stutt ávörp Peter Liba, fylkis-
stjóri Manitoba, Gary Doer, forsætis-
ráðherra, Eiður Guðnason sendi-
herra, aðalræðismaður í Winnipeg,
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráð-
herra, Lillian Thomas, aðstoðarborg-
arstjóri Winnipeg, og Connie Magn-
usson, fjallkona, en sr. Ingþór Ísfeld
fór með bæn í lokin. Sunnukórinn
söng undir stjórn Margrétar Geirs-
dóttur rétt eins og á hátíðinni í Lund-
ar. Kórinn söng einnig í móttöku að-
alræðisskrifstofu Íslands, sem var í
Norræna húsinu, og mættu þar um
200 manns, en þetta er ein fjölmenn-
asta móttaka sem haldin hefur verið í
Winnipeg 17. júní.
Meðan á dvöl ráðherrans stendur
heimsækir hann m.a kjúklingaslátur-
hús, mjólkurbú, býflugnabú, kartöflu-
verksmiðju, landbúnaðardeild og ís-
lenskudeild Manitoba-háskóla og
landbúnaðarráðuneyti Manitoba.
Hann fer auk þess í kynnisferð um
Nýja Ísland og hittir bændur af ís-
lenskum ættum.
Með í för eru frú Margrét Hauks-
dóttir, eiginkona ráðherra, Svein-
björn Eyjólfsson, aðstoðarmaður ráð-
herra, Níels Árni Lund deildarstjóri
og frú Kristjana Benediktsdóttir,
Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri
og frú Oddný Sæmundsdóttir.
Guðni
Ágústsson í
heimsókn í
Manitoba
Í Winnipeg í gær. F.v.: Níels Árni Lund, Kristjana Benediktsdóttir, Mar-
grét Hauksdóttir og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra.
♦ ♦ ♦
Færðu lög-
reglunni
tónlist til
æfinga
FULLTRÚAR Falun Gong-iðkenda
hér á landi færðu lögreglunni í
Reykjavík í gær þakkir fyrir sam-
starfið fyrir og á meðan á heimsókn
Jiang Zemins, forseta Kína, stóð.
Gáfu þau Ingimundi Einarssyni
varalögreglustjóra og Karli Steinari
Valssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni
geisladisk með tónlist sem Falun
Gong-iðkendur nota þegar þeir gera
æfingar sínar.
Karl Steinar bendir á að lögreglan
í Reykjavík hafi haft frumkvæði að
því að ræða við fulltrúa Falun Gong-
iðkenda um hvernig þeir vildu haga
mótmælum. Í framhaldi af því báru
þeir fram óskir um staðsetningu sem
borgaryfirvöld féllust á. Karl segir
að samstarfið við Falun Gong-iðk-
endur hafi í flestum tilvikum verið
gott. Helst hafi lögregla verið
óánægð með veru þeirra í Öskjuhlíð
þegar forseta Kína var boðið í Perl-
una til veislu, enda hafi það verið í
andstöðu við samkomulagið sem þeir
gerðu við lögreglu.
Falun Gong-iðkendur
þakka samstarfið
♦ ♦ ♦