Morgunblaðið - 19.06.2002, Page 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ VAR margt til gamans gert
17. júní í Kópavogi. Tónlist ómaði
víða en pallbílar á vegum bæjarins
óku með „brassbönd“ um göturnar
gestum og gangandi til skemmtun-
ar.
Á Kópavogsvelli var efnt til kapp-
hlaups í umsjón frjálsíþróttadeildar
Breiðabliks og eldri borgarar stóðu
fyrir púttmóti á Listatúni. Líkt og í
flestum öðrum bæjarfélögum fór
skrúðganga um bæinn og þrátt fyrir
hvassviðri var góð þátttaka. Þá fór
fram hátíðardagskrá á Rútstúni þar
sem kenndi ýmissa grasa og börnin
skemmtu sér í margs konar leik-
tækjum. Þar var einnig boðið upp á
andlitsmálningu í tilefni dagsins.
Handverkshafnarhátíð var við
höfnina þar sem listamenn úr Kópa-
vogi seldu og sýndu vörur sínar.
Hægt var að taka þátt í dorgveiði-
keppni og sjá ísskúlptúra verða til.
Dagskráin endaði með útitónleikum
á Rútstúni þar sem Milljónamær-
ingarnir og Raggi Bjarna, Írafár,
Buttercup og Land og synir komu
meðal annarra fram.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íþróttir og ísskúlptúrar
Kópavogur
Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN
hefur myndast sú hefð sem
liður í hátíðardagskránni að
ungar konur komi fram í hlut-
verki fjallkonunnar, klæddar
skautbúningi, og fari með ljóð
sem oft er óður til ættjarðar-
innar. Að þessu sinni var
Brynja Muditha Dan Gunn-
arsdóttir fjallkona Hafnar-
fjarðar, en hún er sextán ára
menntaskólamær.
Brynja er af erlendu bergi
brotin, var ættleidd hingað
frá Sri Lanka þegar hún var
tveggja mánaða gömul og eru
foreldrar hennar Snjólaug
Stefánsdóttir og Dan Gunnar
Hansson sem er látinn.
„Ég ákvað að taka að mér
hlutverk fjallkonunnar til að
gera eitthvað nýtt sem hafði
ekki verið gert áður,“ sagði
Brynja og sagðist ekki vita til
þess að fjallkonan hafi áður
verið af erlendum uppruna.
„Mér skilst að þetta hafi verið
liður í átaki til að berjast gegn
fordómum og ég er viss um að
þetta hefur haft góð áhrif.“
Brynja segist hafa fengið
mjög jákvæð viðbrögð og er
þess fullviss að hlutverkið hafi
orðið til þess að brjóta ísinn,
opna augu fólks og sýna fram
á hversu fjölbreytilegu þjóð-
félagi við búum nú í. „Það kom
sumum á óvart að sjá mig í
hlutverki fjallkonunnar.
Margir búast við að sjá
þekkta leikkonu sem fjallkon-
una og fannst þetta kannski
ekki alveg við hæfi en ég fékk
mjög góð viðbrögð við þessu.“
Brynja flutti ljóð eftir Jó-
hann Guðna Reynisson, upp-
lýsingastjóra Hafnarfjarðar, í
tilefni dagsins.
Ljósmynd/Árni Guðmundsson
Brynja M. Dan Gunnarsdóttir var fjallkona í Hafnarfirði.
Fjallkona ættuð
frá framandi landi
Hafnarfjörður
HÁTÍÐARHÖLD 17. júní
voru vel sótt á höfuðborg-
arsvæðinu þrátt fyrir norð-
an hvassviðri og kulda eftir
mikla veðurblíðu dagana á
undan. Reykvíkingar létu
veðrið ekki á sig fá og þús-
undir manna söfnuðust
saman í miðborginni og
nutu tónlistar og annarra
skemmtiatriða og dægra-
dvalar sem í boði var.
Að venju hófst dagskráin
í Reykjavík á því að lagður
var blómsveigur á leiði
Jóns Sigurðssonar í kirkju-
garðinum við Suðurgötu.
Hátíðardagskrá á Aust-
urvelli hófst með því að
forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, lagði
blómsveig frá ís-
lensku þjóðinni að
minnisvarða Jóns
Sigurðssonar á
Austurvelli. Boðið
var upp á fjölbreytt
tónlistar- og
skemmtiatriði allan
daginn og söng
Karlakórinn Fóst-
bræður þjóðsönginn
áður en Davíð
Oddsson forsætis-
ráðherra flutti
ávarp sitt á Aust-
urvelli.
Á Arnarhóli og
við Ingólfstorg
safnaðist fjöl-
skyldufólk saman
og hlýddi á barna-
og fjölskyldu-
dagskrá sem saman
stóð af tónlist,
dansi, leiklist og
söng. Ýmsar uppá-
komur voru víðs
vegar um borgina
vegna þjóðhátíð-
arinnar og var t.d.
margmenni í Hús-
dýra- og fjöl-
skyldugarðinum.
Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, formaður þjóðhá-
tíðarnefndar, sagði í ávarpi
sínu á Austurvelli að það
væri kaldhæðnislegt að Ís-
lendingar, sem fyrstir þjóða
viðurkenndu sjálfstæði
Litháens svo eftir var tekið
á alþjóðavettvangi, skyldu
nú vera í heimsfréttum
vegna skerðingar á mann-
réttindum og ákveðinnar
tegundar af kynþátta-
hyggju.
Steinunn sagði að atburð-
ir síðustu daga hlytu að
vekja fólk til umhugsunar
um gildi tjáningarfrelsisins
og almenn mannréttindi. Þá
sagði hún að viðbrögð
landsmanna hlytu að sýna
sterka réttlætiskennd og
„mótmæli við því að yf-
irvöld, bæði stórra valda-
mikilla ríkja sem og okkar
eigin, segi okkur hvað sé
rétt og hvað rangt þegar
grundvallarmannréttindi
eru annars vegar.“
Tónleikar
á Lækjartorgi
Að venju voru haldnir
tónleikar á Lækjartorgi að
kvöldi 17. júní og komu þar
fram margir af helstu dæg-
urtónlistarmönnum landsins
fyrr og nú. Á Ingólfstorgi
komu Hljómar og hljóm-
sveitin BSG ásamt söngv-
urunum Björgvini Halldórs-
syni, Sigríði
Beinteinsdóttur og Grétari
Örvarssyni fram en á Lækj-
artorgi skemmtu Írafár,
Mínus, Land og synir og
fleiri sveitir yngra fólkinu
fram eftir kvöldi.
Hátíðarhöldin fóru vel
fram en nokkur erill var
hjá lögreglunni í Reykjavík
fram eftir nóttu.
Þúsundir fögnuðu
þjóðhátíð í höfuðborginni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blómsveigur var að venju lagður að styttu Jóns Sigurðs-
sonar á Austurvelli í tilefni þjóðhátíðardagsins.
Dansinn var stiginn í miðbæ
Reykjavíkur þrátt fyrir að vindur-
inn blési kröftuglega.
Reykjavík
Morgunblaðið/Jim Smart