Morgunblaðið - 19.06.2002, Page 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 27
Verslunin hættir um
mánaðamótin en vinnustofan
verður starfrækt áfram á
Barðaströnd 18, Seltjarnarnesi
Garðar Ólafsson
úrsmiður, Lækjartorgi, sími 551 0081
ÚTSALA • ÚTSALA
Armbandsúr • Vasaúr • Klukkur • Skartgripir
50 %
AFSLÁTTUR
DOKTOR B. er kominn á kreik,
enn einu sinni, með fullt af nýjum
verkum, tækjum og tólum, að því
er virðist til að gefa erfðavísind-
unum undir fótinn. Það sem vekur
athygli er kaldhæðnin sem fylgir
þessum samsetningum, svona lík-
ast því að Olga Bergmann – alías
doktor B. – hefði ekki minnstu
áhyggjur af vísindaslysum þeim
sem yfir heiminum vofa ef Sev-
erino Antinori og hans nótar halda
áfram tilraunum sínum með lykla
lífeðlisfræðinnar.
Staðgengillinn dularfulli er ekki
óáþekkur doktor Moreau, sem
Marlon Brando túlkaði svo eftir-
minnilega, enda prýðir báða
flugnanet sem gerir þá tortryggi-
lega en virkar um leið eins og ein-
kennisbúningur, í anda Joseph
Beuys með björgunarvestið, hatt-
inn og stafinn.
Það sem þó stendur upp úr í
þessari annars bráðskemmtilegu
og vel útfærðu sýningu Olgu og
doktors B. er undirlagið sem lesa
má sem neðanmál við alla skemmt-
unina á yfirborðinu. Það er sérstök
tilfinning fyrir smáatriðum sem
virkar vekjandi, ef til vill með viss-
um þunglyndishætti, og fær áhorf-
andann til að staldra við og velta
fyrir sér tilverunni, svo sem þeirri
náttúru sem við höldum burt frá
okkur hversdagslega en kallar okk-
ur óforvarendis hvar og hvenær
sem er. Þá er sem við séum vakin
af dróma. Slík áhrif leynast í sytru
sem vökvar jurtir í næsta fárán-
legri skál. Í heimi sem horfinn er
burt frá náttúrunni virkar renn-
andi vatn sem endurheimt minn-
inga um liðin tengsl við upprunann.
Olga sækir í sig veðrið tæknilega
séð. Samsetningarnar eru betur út-
færðar en nokkru sinni fyrr. Þar
kemur til markvissari smíði og
hvassari samtvinnun andstæðra
efnisþátta. Smáveröldin sem hún
bregður upp innan við safngler og
skjár með myndbandsgerð af
þvældri og slitinni kvikmynd í hug-
vitssamlegri, en hispurslausri um-
gjörð bera vott um tæknilega sókn
hennar sem þó er laus við maníer-
ískar klisjur.
Með rólegum en öruggum tökt-
um nær Olga stöðugt betri tökum á
því sem hún vildi sagt hafa, sem þó
er engan veginn eins augljóst og
virðist við fyrstu sýn. Aukin tilfinn-
ing hennar fyrir hinu smáa og blæ-
brigðaríka lofar vægast sagt mjög
góðu.
Morgunblaðið/Arnaldur
Frá sýningu Olgu Soffíu Bergmann – doktor B. – í Galleríi Sævars Karls.
Enn af
doktorn-
um dul-
arfulla
MYNDLIST
Gallerí Sævars Karls
Til 20. júní. Opið á verslunartíma.
BLÖNDUÐ TÆKNI
OLGA SOFFÍA BERGMANN
Halldór Björn Runólfsson
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122