Morgunblaðið - 19.06.2002, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 41
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Boðun til hluthafafundar
Síldarvinnslan hf. hefur farið þess á leit við stjórn
SR-mjöls hf. að boðað verði til hluthafafundar
í SR-mjöli hf. þar sem fram fari kjör til stjórnar
félagsins.
Á fundi stjórnar SR-mjöls hf. hinn 3. júní 2002
var samþykkt að verða við þessari beiðni og
boðar stjórn félagsins hér með til hluthafafundar
í félaginu hinn 20. júní 2002 kl. 14.00.
Fundurinn verður haldinn í veitingasal á 14. hæð
í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, Reykjavík.
Dagskrá: Kjör til stjórnar SR-mjöls hf.
Stjórn SR-mjöls hf.
KENNSLA
Ársfundur Byggðastofnunar
og málþing um byggðamál
Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn í
Félagsheimilinu Hnífsdal föstudaginn 21. júní
2002 og hefst kl. 10:00, áætluð fundarlok eru
kl. 12:00. Eftir matarhlé kl. 13:00 verður málþing
um byggðamál sem áætlað er að ljúki kl. 17:00.
Ársfundur kl. 10:00—12:00
Setning fundarins:
Valgerður Sverrisdóttir; ávarp iðnaðar- og
viðskiptaráðherra.
Kristinn H. Gunnarsson; ræða stjórnarfor-
manns Byggðastofnunar.
Theodór A. Bjarnason; skýrsla forstjóra
Byggðastofnunar.
Fundarstjóri Ólafur Kristjánsson, formaður
Fjórðungssambands Vestfirðinga.
Matarhlé kl. 12:00—13:00
Málþing um byggðamál kl. 13:00—17:00
Stefna ríkisstjórnar í byggðamálum fyrir árin
2002—2005: Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið.
Stefnumótun í byggðamálum fyrir Vestfirði:
Fjórðungssamband Vestfirðinga.
Byggðarannsóknir: Háskólinn á Akureyri.
Pallborð, umræður og fyrirspurnir.
Fundarstjóri Birna Lárusdóttir, forseti bæjar-
stjórnar í Ísafjarðarbæ.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku með tölvupósti
til helgad@bygg.is eða í síma 455 5453;
455 5400.
TIL SÖLU
Háþrýstidæla — 500 bör
Óska eftir til-
boðum í 500
bara háþrýsti-
dælu. Keyrð 43
klst., árg. 2001.
Upplýsingar í
síma 862 8038.
SUMAR- OG ORLOFSHÚS
Sumarhúsalóðir
Til sölu stórar sumarhúsalóðir á nýlega skipu-
lögðu sumarhúsasvæði í landi Signýjarstaða
í Borgarfirði.
Kalt vatn og vegur kominn, hitaveita væntanleg.
Upplýsingar í síma 435 1218 og 893 0218.
TILKYNNINGAR
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
Hringtorg á gatnamótum Hringvegar og
Snæfellsnesvegar, Borgarbyggð, skuli ekki
háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lög-
um nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er
einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnun-
ar: http://www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 17. júlí
2002.
Skipulagsstofnun.
Aðfangaeftirlitið
Fóðurframleiðendur/
fóðurinnflytjendur
Framleiðendur á blönduðu fóðri og innflytjend-
ur aukefna og/eða forblandna sem ekki hafa
sótt um viðurkenningu hjá Aðfangaeftirlitinu
samkvæmt 8. gr. og 14. viðauka reglugerðar
nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri geta haft
samband við Aðfangaeftirlitið í síma eða á
Keldnaholti í síðasta lagi 21. júní nk. vilji þeir
fá viðurkenningu á þessu ári. Um er að ræða
viðurkenningu á notkun/innflutningi aukefna
eða forblandna með aukefnum sem eru í meiri
styrkleika en leyfilegt er að nota beint fyrir
skepnur, óháð því fyrir hvaða dýrategund
fóðrið er ætlað eða hvort það er ætlað til sölu
eða notkunar hjá blöndunaraðilanum.
Aðfangaeftirlitið,
RALA húsinu,
Keldnaholti,
112 Reykjavík.
Sími 577 1010.
Mosfellsbær
Aðalskipulag
Mosfellsbæjar
2002-2024
Framlenging á athuga-
semdafresti
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar auglýsir fram-
lengingu á athugasemdafresti vegna tillögu
að aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002—2024
samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997, með síðari breytingum.
Tillagan verður til sýnis í afgreiðslu bæjar-
skrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2,
fyrstu hæð, frá 3. maí 2002 til 1. júlí 2002.
Jafnframt er hægt að kynna sér tillöguna
á heimasíðu Mosfellsbæjar, (www.mos.is).
Athugasemdir ef einhverjar eru, skulu hafa
borist skipulagsnefnd Mosfellsbæjar fyrir
1. júlí 2002.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkir tillögunum.
Bæjarverkfræðingurinn í Mosfellsbæ.
Auglýsing
vegna Sultartangalínu 3
Samvinnunefnd miðhálendis auglýsir tillögu að
breytingu á Svæðisskipulagi Miðhálendis Íslands
2015 vegna Sultartangalínu 3.
Auglýsingin er skv. 14.gr. a sbr. 13.gr.a í skipu-
lags- og byggingarlögum nr. 73/1997 m.s.br.
Gerð er tillaga um eftirfarandi breytingar á svæð-
isskipulaginu:
Gert er ráð fyrir að 50-60 m norðan við Sultar-
tangalínu 1 (SU 1) sem er núverandi háspennu-
lína á svæðisskipulagskorti komi Sultartangalína
3 (SU 3) fyrirhuguð háspennulína.
Fyrirhuguð SU3 víkur frá SU1 við Háafoss
og Gullfoss. Gert er ráð fyrir að SU3 fari yfir
ána um 1,3 km norðan Háafoss eða 700 m
norðan núverandi háspennulínu. Um 3 km
austan Hvítár kemur rúmlega 8 km kafli þar
sem Sultartangalína 3 beygir til norðurs til
að minnka sýnileika línunnar við Gullfoss.
Hún þverar Hvítá um 5 km norðan við fossinn,
1,5 km norðan við núverandi háspennulínu.
Á Haukadalsheiði, vestan Hvítár koma línurn-
ar aftur saman og liggja samsíða upp í Mosa-
skarð. Þaðan liggur leiðin norðan við Lamba-
hraun, Hlöðufell og Skjaldbreið vestur fyrir
Sandfell. Vestan við Sandfell er farið suður
yfir SU1 og er SU3 eftir það sunnan við hana,
í 50 m fjarlægð, allt vestur á Uxahryggi. Farið
er yfir Kaldadalsveg (F 550) um 300 m norðan
við vegamótin við Uxahryggjaveg (F52).
Breytingartillagan verður til sýnis á skrifstofutíma
á eftirtöldum stöðum frá og með miðvikudegin-
um 19. júní til og með miðvikudagsins 17. júlí
2002.
● Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
● Félagsheimilinu Aratungu.
● Félagsheimilinu Borg, Grímsnesi.
● Félagsheimilinu Árnesi.
● Skrifstofu Hrunamannahrepps, Akurgerði 6.
● Félagsheimilinu Brautarholti, Skeiðum.
● Héraðsnefnd Eyjafjarðar, Strandgötu 29,
Akureyri.
● Sýslumanninum á Ísafirði, Stjórnsýslu-
húsinu, Hafnarstræti 1, Ísafirði.
● Sýslumanninum á Selfossi, Hörðuvöllum 1,
Selfossi.
● Skrifstofu samvinnunefndar miðhálendis,
Skúlagötu 21, Reykjavík.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er
hér gefinn kostur á að gera athugasemdir við
breytingartillöguna. Frestur til þess að skila inn
skriflegum athugasemdum rennur út miðviku-
daginn 31. júlí 2002.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu sam-
vinnunefndar miðhálendis að Skúlagötu 21,
101 Reykjavík.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir við breytingart-
illöguna fyrir tilskilinn frest, teljast sam-
þykkir henni.
Fyrir hönd samvinnunefndar
miðhálendis,
Óskar Bergsson, formaður.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.