Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 53
DV
Kvikmyndir.is
Mbl
Kvikmyndir.com
1/2 kvikmyndir.is
1/2 kvikmyndir.com
Tímaritið Sánd
Rás 2
Yfir 32.000 áhorfendur
Þær eru fjarska fallegar
En ekki koma of nálægt
Eina leiðin til að verða einn af strákunum aftur... er að verða “ein” af
stelpunum! Ekki missa af þessum geggjaða sumarsmell!
Sýn
d á
klu
kku
tím
afre
sti
Sýnd kl. 7.15 og 10.
B. i. 16. Vit 381.Sýnd kl. 8. Vit 367 Sýnd kl. 5.30. Ísl tal. Vit 358.
Sýnd kl. 9.30 og 11.10.
B.i. 16. Vit 388.
Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit nr. 370.
kvikmyndir.is
MBL
Sýnd kl. 6, 7, 8, 9, 10 og 11. Vit 393.
1/2kvikmyndir.is ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 7.15 og 10.
Vit 380.
Sýnd kl. 7.30 og 10. Vit 384.
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4507-4500-0030-3021
4507-2800-0001-4801
4507-4500-0030-6412
4507-4500-0030-6776
4507-2900-0005-8609
4741-5200-0002-4854
! "#
"$%&'
()( )$$$
Hverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 5.30,
8 og 10.30. B.i 16.
Yfir 47.000 áhorfendur!
1/2
kvikmyndir.com
Radíó X
1/2HK DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.B.i. 10.
Leitin er hafin!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
B.i 16.
Hún er ein af milljón og möguleikar hans á að finna
hana eru engir! N*Synctöffararnir Lance Bass og Joey
Fatone leita að hinni einu sönnu í rómantískri gaman-
mynd af bestu gerð. Troðfull af frábærri tónlist frá
N*Sync, Britney Spears ofl.
1/2 RadióX
1/2 kvikmyndir.is
Sánd
DOUBLE-LASH
Eykur vöxt og
þykkir augnhárin
DOUBLE-LASH einstök næturmeðferð, sem styrkir, þykkir
og örvar vöxt augnháranna. Einfaldlega burstið á hrein
augnhárin fyrir svefn. Eftir þrjár vikur er orðinn sýnilegur
árangur.
Aðrar sérhæfar vörur: EYE-BASE (grunnur), eykur endingu
augnfarðans. EYE MAKE-UP REMOVER púðar hreinsa fljótt
og auðveldlega vatnsheldan farða. Þessar þrjár vörur frá
MAVALA stuðla að fegurð augna þinna.
-
-
Helstu útsölustaðir: Hygea Smáralind/Hygea
Kringlan/Hygea Laugavegi/Lyf og heilsa Mjódd/Lyf og
heilsa Háaleitisbraut/Árbæjar Apótek/Grafarvogs
Apótek/Snyrtvöruverslunin Nana/Snyrtivöruverslunin
Fína/Snyrtivöruverslunin Glæsibæ/Snyrtihúsið Selfossi
MAVALA
Dreifing: Medico ehf.
LEIKARINN Charlie
Sheen gekk að eiga hina
íturvöxnu Denise Richards
í Los Angeles á dögunum.
Vígslan var að kaþólskum
sið og fór fram á heimili
framleiðanda sjónvarps-
þáttanna Spin City, þar
sem Sheen fer með aðal-
hlutverkið.
Brúðhjónin voru bæði
íklædd hönnun úr smiðju
Giorgio Armani en brúð-
kaupsveislan var þó smá í
sniðum og einungis nán-
ustu ættingjum boðið.
Hjónakornin kynntust
við tökur á myndinni Go-
od Advice fyrir tveimur
árum og hafa verið saman
síðan. Þetta er fyrsta
hjónaband Richards, sem
er 31 árs, en Sheen var
áður giftur fyrirsætunni
Donnu Peele.
Sheen hafði getið sér
orðspor sem glaumgosi og
kvennagull áður en hann byrjaði
með Richards. Vinir hans segja
hann þó hafa róast mikið að und-
anförnu. Þeir segjast einnig hafa
gert sér grein fyrir alvarleika
sambandsins þegar Sheen afhenti
sinni heittelskuðu geysistórt
klámmyndasafn sitt á síðasta ári.
Glaumgosi gengur út
Charlie Sheen og Denise Richards.
Charlie Sheen og Denise Richards í það heilaga
Reuters
ROKKÓNGURINN Elvis
Presley heldur svo sannarlega
áfram að standa undir nafni,
jafnvel nú 25 árum eftir að hafa
horfið yfir móð-
una miklu.
Í vikunni
skaut hann
nefnilega sjálf-
um Bítlunum
ref fyrir rass
þegar hann
náði þeim
merka áfanga
að hafa átt alls
18 lög í efsta
sæti breska vinsældalistans en
fram að þessu hafði hann deilt
þessu meti með Bítlunum, eða
alls 17 topplögum.
Nýja lagið er þó alls ekkert
nýtt af nálinni heldur er um að
ræða endurútgáfu á „gleymdu“
lagi Presleys. Lagið, „A Little
Less Conversation“, var fyrst
flutt í einni þeirra kvikmynda
sem Elvis lék í á sjöunda ára-
tugnum og fylgdi svo með sem
aukalag á smáskífu hans Almost
In Love sem kom út árið 1968.
Svo virðist sem lagið hafi fallið í
gleymskunnar dá eftir það en
hefur nú verið reist úr ösku-
stónni. Lagið heyrðist óma í
endurgerðinni á kvikmyndinni
Ocean’s Eleven og síðan notaði
Nike það í auglýsingaherferð
fyrir HM í knattspyrnu. Þýski
plötusnúðurinn DJ JXL, eða
Tom Holkenborg, var að lokum
fenginn til að sjá um hljóðblönd-
un á laginu góða sem nú hefur
komið Presley á toppinn á ný.
Presley bak-
ar Bítlana
Elvis
Presley
GARETH Malham, 26 ára gamall
háskólanemi og listamaður frá New-
castle-upon-Tyne í Englandi, hefur
selt sálu sína fyrir rétt rúmar 1500
krónur.
Salan fór fram á Net-
inu þar sem Malham
bauð sál sína hæstbjóð-
anda á eBay uppboðs-
vefsetrinu. Uppboðið
hófst í 10 pundum, 1310
krónum, og á endanum
var sálin slegin karl-
manni frá Oklahoma í
Bandaríkjunum fyrir
11.61 pund, eða 1520 krónur. Að
sögn Malhams vantaði kaupandann
sál vegna þess að hann hafði tapað
sinni eigin í hokkíveðmáli. Kirkjunn-
ar menn í Bretlandi hafa fordæmt
söluna og lýst hana „hættulega“.
Malham segist hafa
fengið hugmyndina frá
Simpson-þætti þar sem
Bart framkvæmir svip-
aðan verknað.
Salan á sálunni fer
þannig fram að sögn
Malhams að þegar
hann hefur fengið send-
an í pósti tékkann fyrir
sálu sinni þá muni hann
útbúa löglegt afsal, skrifað með sínu
eigin blóði, og senda hinum nýja eig-
anda sálar sinnar.
„Auðvitað hef ég ekki áhyggjur af
því að ég sé í raun og veru að selja
sálu mína, því ég trúi því að hún sé
ennþá innra með mér og ófæran-
leg,“ segir Malham. „Það sem
heillar mig mun meira er sú stað-
reynd að einhver var tilbúin til þess
að kaupa sálina.“ Malham segist
vera með þessu athæfi sínu að sýna
fram á að nú á tímum markaðsdýrk-
unar sé nákvæmlega allt falt. Þó
segist hann viðurkenna fúslega að
hafa vonast eftir að fá meira fyrir
sálina því þegar hann verði búinn að
greiða fyrir sendingakostnaðinn
verði hagnaðurinn trúlega uppur-
inn.
Seldi sálu sína
fyrir 1.500 krónur
Sál til sölu! Gareth
Malham auglýsir sálu
sína á Netinu.
Rokkkóngurinn slær met
25 árum eftir dauða sinn