Morgunblaðið - 19.06.2002, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
BANKASTJÓRN Seðlabanka Íslands hefur
ákveðið að lækka vexti bankans í endurhverfum
viðskiptum við lánastofnanir um 0,3% í 8,5% frá og
með 25. júní nk. Seðlabankinn lækkaði síðast vexti
í maí sl. og hafa vextirnir nú lækkað um 1,3% frá
aprílbyrjun.
Viðskiptabankarnir munu fylgja í kjölfarið og
lækka vexti á inn- og útlánum. Landsbanki Ís-
lands hf. hefur ákveðið að lækka vexti helstu
óverðtryggðra innlána og útlána um 0,3%. Bún-
aðarbankinn hefur ákveðið að lækka vexti óverð-
tryggðra útlána um 0,3% en innlánsvexti á bilinu
0,15-0,3%. Íslandsbanki hefur ákveðið að lækka
vexti um 0,3% á óverðtryggðum útlánum en vextir
á innlánum munu lækka minna. SPRON mun
einnig taka tillit til vaxtalækkunar Seðlabankans.
Vonast til að vaxta-
lækkanaferli haldi áfram
Birgir Ísleifur Gunnarsson, seðlabankastjóri,
segir að vaxtalækkunin nú eigi ekki að koma á
óvart miðað við fyrri yfirlýsingar Seðlabankans.
„Við vorum að vonast til þess að það ferli vaxta-
lækkana, sem hafið er, gæti haldið áfram en við
munum að sjálfsögðu skoða það í ljósi verð-
lagsþróunar og annarra aðstæðna,“ segir Birgir
Ísleifur m.a. Seðlabankinn mun næst birta verð-
bólguspá og nýtt mat á ástandi og horfum í efna-
hagsmálum í byrjun ágúst. Birgir Ísleifur vill ekki
segja til um hvort hugsanlegt sé að Seðlabankinn
lækki vexti enn frekar áður en að því kemur.
Viðskiptabankar lækka vexti í
kjölfar lækkunar Seðlabankans
Vaxtalækkun nú/20
FIMM manns létust í tveimur bíl-
slysum í fyrradag. Annað varð við
Blöndulón á Kjalvegi og hitt við
Finnafjarðará í Finnafirði við
Bakkaflóa. Alls hafa 17 látist í um-
ferðarslysum á árinu.
Fjórir fórust sl. mánudagskvöld er
jeppi sem þau voru farþegar í fór út
af Kjalvegi og ofan í Blöndulón.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Blönduósi virðist sem öku-
maður hafi misst stjórn á bílnum er
hann fór yfir ristahlið á varnargarð-
inum við Blöndulón. Vegurinn er
malarvegur. Telur lögreglan bílinn
ekki hafa verið á miklum hraða en
hann kastaðist yfir lágan grjótgarð
og ofan í lónið. Ökumanni tókst að
komast út en öðrum ekki. Þau sem
létust voru af kínversku bergi brotin
en búsett hérlendis, eiginkona öku-
manns og sonur þeirra á fyrsta ári og
foreldrar ökumannsins.
Þá lést kona sem var farþegi í
jeppa er hann féll í Finnafjarðará.
Var bílnum ekið inná brúna að aust-
an og lenti hann á brúarhandriði og
kastast þaðan ofan í ána. Ökumanni
tókst að komast úr bílnum og hringja
eftir hjálp. Lögregla og björgunar-
sveitir komu á vettvang ásamt lækni
sem úrskurðaði konuna látna.
Uggandi yfir framhaldinu
Kristján Þorbjörnsson, yfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni á
Blönduósi, segir nauðsynlegt að
gripið verði til aðgerða til að auka
umferðaröryggi þar sem slysið á
Kjalvegi varð. Eitthvað verði að gera
til að koma í veg fyrir að svona slys
geti endurtekið sig. Hann segir að
Vegagerðin hafi skoðað aðstæður við
veginn í gær og væntir hann þess að
ráðist verði í framkvæmdir á svæð-
inu í kjölfarið.
Sautján hafa látist í umferðarslys-
um frá áramótum til og með 17. júní.
Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri
Umferðarráðs, segir þetta mesta
fjölda sem látist hafi í umferðarslys-
um á þessu tímabili. Árið 1973 hafi 14
látist fram á 17. júní en oft hafi 3-4
látist á þessu tímabili.
Þá nefndi framkvæmdastjórinn
sem dæmi að árið 1977 þegar 37 lét-
ust í umferðarslysum létust 25 á
tímabilinu frá 17. júní og út árið.
„Oftast hafa fleiri slys orðið síðari
hluta ársins og ég er mjög uggandi
yfir framhaldinu í sumar,“ segir Óli
H. Þórðarson. Segir hann bæði þurfa
meiri löggæslu en ekki síður hitt að
ökumenn hagi akstri eftir aðstæðum
og gæti vel að hraða. Hvetur hann
ökumenn til að líta í eigin barm og
sýna ábyrgð í akstri.
Sautján látnir í umferðarslysum á árinu
Fimm létust í um-
ferðinni á mánudag
Fjórir biðu bana/4
EKKI tókst að koma Guðrúnu
Gísladóttur KE-15, sem strandaði
við Lofoten í Noregi í gær, á flot í
gærkvöld. Til stóð að gera aðra til-
raun til að koma skipinu á flot á há-
flóði klukkan 6 að íslenskum tíma í
morgun. Einn dráttarbátur var á
slysstað í gærkvöld, en um miðnætti
kom Tromsø, skip norsku strand-
gæslunnar, á vettvang. Það er búið
bæði mengunar- og dráttarbúnaði.
Tilkynning um strand skipsins
barst norsku strandgæslunni rétt
fyrir klukkan níu að íslenskum tíma
í gærmorgun. Tuttugu manna
áhöfn var um borð í skipinu og
tókst björgun hennar giftusamlega.
Skipverjar fóru umsvifalaust í
björgunarbáta þar sem skipið tók
strax að hallast. Áhöfninni var
bjargað um borð í björgunarskipið
Skomvær III um 45 mínútum eftir
að tilkynnt var um strandið. Áhöfn-
in beið í tæpan hálftíma í björg-
unarbátunum og segir Helgi
Bjarnason, háseti á Guðrúnu Gísla-
dóttur, að ekki hafi væst um menn-
ina þar sem þeir voru íklæddir flot-
göllum. Áhöfnin gisti á hóteli í
Leknesi í nótt og fór vel um skip-
verjana, að sögn Helga.
Hann segir að skerin sem skipið
steytti á hafi ekki verið merkt inn á
sjókort skipsins og að norska
strandgæslan hafi staðfest það.
Skipið var lengst af í um 45° halla
en það tókst að rétta það nokkuð af
seint í gærkvöld. Þá hafði vatni ver-
ið dælt úr skipinu og stóð til að
halda því verki áfram í nótt.
Óttast var að olía læki frá skipinu
en 300 tonn af dieselolíu og 2 tonn
af smurolíu eru um borð í skipinu.
Guðrún Gísladóttir er eitt stærsta
skipið í íslenska flotanum. Það kom
nýsmíðað til landsins frá Kína síð-
asta haust. Það er 71 m langt, 14 m
breitt og 2.626 brúttótonn.
Skerin voru ekki
merkt á sjókort
Reyna átti.../6
Ljósmynd/Lofotposten
Áhöfn Guðrúnar Gísladóttur KE-15 við komuna til Lekness í gær. Þeir voru skó- og yfirhafnalausir og var verslun í þorpinu opnuð fyrir þá.
Mannbjörg þegar Guðrún Gísladóttir
KE-15 strandaði við Lofoten
51 af 59 bátum í eigu félagsmanna
Snarfara – félags sportbátaeig-
enda, hefur verið settur í farbann í
kjölfar eftirlitsskoðunar fulltrúa
Siglingastofnunar Íslands á bát-
unum á laugardag. Í ljós kom að
þeir uppfylltu ekki skilyrði um
haffærni.
Skoðunarmenn límdu miða á
bátana sem ekki höfðu verið færð-
ir til skoðunar og þar stóð: „Þetta
skip er óskoðað og notkun þess er
bönnuð.“ Tómas Sigurðsson, for-
stöðumaður skoðunarsviðs Sigl-
ingastofnunar Íslands, segir að
margir smábátanna hafi verið án
nafns og númers. „Bátarnir reynd-
ust vera 51 án haffæris, en átta
með haffærni í lagi. Nokkrir bátar
reyndust án nokkurra merkinga,
þ.e.a.s. nafns, heimahafnarmerk-
inga eða númers. Þetta er mjög al-
varlegt mál og við verðum að
fylgja þessu eftir,“ sagði Tómas.
Átta af
59 bátum
haffærir
ÍSLENSKA ríkið mun standa
straum af kostnaði sem Flugleiðir
verða fyrir vegna endurgreiðslna á
farseðlum og útlögðum kostnaði til
þeirra farþega sem komust ekki til
landsins vegna aðgerða stjórnvalda
gegn Falun Gong, að sögn Björns
Friðfinnssonar, ráðuneytisstjóra í
dómsmálaráðuneytinu.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir að félagið
hafi tekið þá ákvörðun að endur-
greiða fólkinu farseðilinn til Íslands
og útlagðan kostnað, t.d. vegna
gistingar. Aðrar hugsanlegar kröf-
ur, s.s. vegna vinnutaps, andlegs
álags o.s.frv., fari í eðlilegan farveg
innan fyrirtækisins, rétt eins og
aðrar kröfur sem gerðar eru á flug-
félagið. Það fari eftir aðstæðum
hvort fólkið eigi rétt á endur-
greiðslum.
Ríkið greið-
ir kostnað
Flugleiða
♦ ♦ ♦