Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 9
Síðumúli 13, sími 568 2870
Dæmi um verð: Áður: Nú:
Bómullarpeysa 4.900 2.900
Jakkapeysa 4.900 3.200
Blúndubolur 3.800 2.400
Bodybolur 2.800 1.900
Dömuskyrta 3.200 1.900
Gallajakki 4.900 2.900
Túnika 3.900 2.400
Sítt pils 3.900 2.500
Dömubuxur 3.000 1.900
Kjóll 4.500 2.900
...og margt margt fleira
ÚTSALA ÚTSALA
40—70% afsláttur
Opið frá kl.10.00-18.00
Gallafatnaður
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Opið mánudaga-föstudaga frá kl. 12-18 og laugardaga frá kl. 12-15
Skólavörðustíg 2 – sími 544 8880.
AFSLÁTTADAGAR
í tilefni endurbóta á Skólavörðustígnum
Glæsilegt úrval af minkapelsum og loðtreflum
TILBOÐ
25% afsláttur
af yfirhöfnum
fimmtudag
til laugardags
Kringlunni,
sími 588 1680,
v/Nesveg,
Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
Laugavegi 56, sími 552 2201
MINNISMERKI til heiðurs frönsku
fiskimönnunum sem um aldir veiddu
þorsk við Ísland var afhjúpað á sjó-
mannadaginn á Patreksfirði. Að því
stóðu afkomendur þessara fiski-
manna í bæjunum Binic og þar um
kring á Bretagne-skaga undir for-
ustu Jean Pols Dumond le Douarec.
Myndhöggarinn Patrick Henry Stein
hafði með aðstoðarmanni sínum unn-
ið minnismerkið í stein á Patreks-
firði. Sendiherra Frakka, M.L. Bar-
dollet, afhjúpaði listaverkið við
hátíðlega athöfn kl. 5 að viðstaddri
Vigdísi Finnbogadóttur, Jóni Gunn-
ari Stefánssyni bæjarstjóra, Jóni
B.G. Jónssyni, forseta bæjarstjórnar,
sjómannadagsráði og fleiri gestum,
íslenskum og frönskum
Minnismerkið er unnið í tveggja
metra háan íslenskan basaltstein og
táknar skipsstefni er snýr að sjónum.
Listamaðurinn Patrick Henry Stein
dvaldi í 10 daga á Patreksfirði og
vann það þar með aðstoðarmanni sín-
um Ciril Michau. Listamaðurinn er
þekktur í Frakklandi, hefur þar hlot-
ið ýmis verðlaun auk alþjóðlegra við-
urkenninga í Kína, Finnlandi, Kan-
ada og Alaska. Við afhjúpunina lýsti
J.P. Dumond hugmyndinni á þá leið
að þarna mætti greina stefni á brun-
andi skipi á öldum er endaði í konu-
mynd, en full segl blöktu að baki.
Hluti verksins, aðskilið og hærra, er
mastur úr ryðfríum málmi og úr því
tengd stög eins og á seglabúnað.
Verkið nefndi hann Les Goelettes
Blanches, þ.e. Hvítu góletturnar, ein-
kennisskip Íslandsveiðanna, en Jean
Pol veitir forustu félagsskap með því
nafni, sem stóð fyrir minnismerkinu.
Í upphafi athafnarinnar var í stöð-
ulinn múrað flöskuskeyti með upp-
lýsingum um þá sem að stóðu, lögðu í
söfnun fram fé og með nöfnum þeirra
14 frönsku skútusjómanna sem vitað
er að hlutu gröf á Patreksfirði og þar
í nánd. Af þessu tilefni voru komnir
til Patreksfjarðar 18 Frakkar. Auk
afkomenda og áhugamanna um Ís-
landssjómennina 10 manna hljóm-
sveitin Cabane frá Nantes, sem sér-
hæfir sig í gömlum sjómannasöngv-
um og leikur á gömul hjóðfæri. Léku
þeir við ýmis tækifæri á sjómannahá-
tíðinni.
Ferðamálafulltrúi Cotes Armour-
héraðs og skipuleggjandi hinnar fjöl-
sóttu árlegu Hátíðar þorsksins þar á
ströndinni Daniel Brosse flutti
kveðju frá borgarstjórnum bæjanna
Pordic, Binic og Plerin, sem hafa tek-
ið upp sívaxandi samband við Pat-
reksfjörð. Afhenti hann þremur Ís-
lendingum minnispeninga, fána,
mynda- og söngvadiska með kveðjum
frá þeim bæjum: Vigdísi Finnboga-
dóttur, Elínu Pálmadóttur, rithöf-
undi og blaðamanni, og Halldóri
Árnasyni skipstjóra, sem hann kvað
ásamt Maríu konu sinni hvatamann
og óþreytandi verndara minninganna
um franska fiskimenn á Patreksfirði.
Þau hefðu lagt sig fram um að við-
halda sambandi milli Frakklands og
Íslands. Kvað hann þessa bretónsku
bæi hafa hug á að tengja enn betur og
formlegar menningarlegt samband
við Patreksfjörð sem heimamenn
tóku undir.
Morgunblaðið/Finnur
Listamaðurinn Patrik Henry Stein (t.h.) og
aðstoðarmaður hans Ciril Michau við minn-
ismerkið um frönsku fiskimennina á Patreks-
firði, Hvítu góletturnar.
Daníel Brosse, fulltrúi frönsku bæjanna á Bretagne, Vig-
dís Finnbogadóttir, M.L. Bardollet, sendiherra Frakka,
Elín Pálmadóttir blaðamaður, Halldór Árnason skip-
stjóri, J.P. Dumond le Douarec, myndhöggvarinn Patrick
H. Stein, Ciril Michau og túlkur.
Minnismerki um franska sjó-
menn afhjúpað á Patreksfirði