Morgunblaðið - 20.06.2002, Síða 17

Morgunblaðið - 20.06.2002, Síða 17
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 17 Á MORGUN, föstudag, mun stærsta vöruflutningaskip sem komið hefur til Akureyrar losa og lesta vörur hjá Eimskip við Oddeyrarbryggju. Um er að ræða Goðafoss en Goðafoss ásamt systurskipinu Dettifossi eru stærstu skip Eimskips og jafnframt stærstu skip í íslenska kaupskipa- flotanum í siglingum til og frá land- inu. Goðafoss er 166 metra langur og 14.664 brúttólestir að stærð, lestun- argetan er um 1.500 gámaeiningar og gefur aðalvél skipsins frá sér rúm 20 þúsund hestöfl. Í samanburði við strandferðaskip félagsins, Mánafoss, þá er Goðafoss rúmlega þrisvar sinn- um stærra skip og er 26 metrum lengra en Oddeyrarbryggja. Þar sem á Akureyri er eina haffæra höfnin á Norðurlandi fyrir svo stórt skip, þá verður vöru frá nágranna- höfnum keyrt í veg fyrir skipið til Akureyrar. Goðafoss siglir frá Ak- ureyri áleiðis til Evrópuhafna. Ástæða komu Goðafoss til Akur- eyrar er vegna tilfærslna skipa í áætlanakerfi félagsins þar sem Mánafoss er á leið vestur um haf í stað skips sem varð fyrir vélarbilun nýverið, segir í fréttatilkynningu frá Hafnasamlagi Norðlendinga. Goðafoss losar og lestar vörur á Akureyri Stærsta vöruflutn- ingaskip landsins FERÐAFÉLAGIÐ Hörgur og Ungmennasamband Eyjafjarðar efna til sameiginlegrar gönguferð- ar á föstudagskvöld á Staðarhnjúk á Möðruvallafjalli. Ferðin gæti tekið 3–4 tíma og er allbratt upp síðasta spölinn. Ferðafélagið Hörgur hefur verið með árlega sólstöðugöngu á Stað- arhnjúk síðustu 10 árin, en nú er Staðarhnjúkur eitt af 14 fjöllum landsins sem Ungmennafélags- hreyfingin hefur valið í átakinu „Fjölskyldan á fjallið“. Á tindinum er gestabók, og þeir sem rita nafn sitt í hana í sumar eru komnir í pott sem Ungmennasamband Ís- lands dregur úr vinningshafa í haust. Menn eru því hvattir til að leggja leið sína á hnjúkinn í sumar og rita nafn sitt í gestabókina. Gönguferðin á föstudaginn hefst kl. 20 við Möðruvelli 3 í Hörgárdal og væri rétt fyrir þátttakendur að hafa með sér svolítinn nestisbita til að njóta á tindinum. Sólstöðu- ganga á Staðarhnjúk AKUREYRARBÆR gerði könnun á atvinnuástandi skólafólks, 17 ára og eldra, þ.e. hversu margt væri enn án sumarvinnu. Alls skráðu sig 88 ungmenni án atvinnu, eða um helm- ingi fleiri en í sambærilegri könnun á síðasta ári. Fyrirhugað er að leysa vanda þessara ungmenna að einhverju leyti með tilboði um 6 vikna vinnu hjá bænum en málið á þó eftir að fara fyrir bæjarráð. Karl Jörundsson, starfsmannastjóri Akureyrarbæjar, sagði að menn hefðu fljótlega orðið varir við aukna ásókn í sumarstörf hjá bænum, sem aftur endurspeglaði almennt atvinnuástand í bæjarfélag- inu. Um 90 ung- menni án sumarvinnu NORMANDALE kirkjukórinn frá Edina í Minneapolis í Bandaríkj- unum heldur tónleika í Akureyr- arkirkju föstudagskvöldið 21. júní kl. 20. Rík hefð er fyrir tónlistarflutn- ingi í Normandale kirkjunni, en hún hefur á að skipa tveimur kirkjukórum, blásarakvintett og bjöllukór. Auk þess að flytja hefð- bundin messusöng flytur kórinn sálma og kirkjutónlist frá ýmsum tímabilum. Í Íslandsferð sinni flytur kórinn tónlist sem spannar kirkju- árið, frá aðventu til hvítasunnu. Fluttir verða sálmar eftir þekkta ameríska höfunda, þar á meðal kunna sálma sem endurspegla þjóð- laga- og trúarhefð Bandaríkjanna í sálmasöng. Stjórnandi kórsins er David Clarke og hefur hann gegnt stöðu tónlistarstjóra lútersku Norman- dale kirkjunnar frá árinu 1984. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Tónleikar Normandale kirkjukórsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.