Morgunblaðið - 20.06.2002, Side 18

Morgunblaðið - 20.06.2002, Side 18
SUÐURNES 18 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Einkaumboð Spúnasett Stangveiðisett hannað fyrir íslenskar aðstæður Fæst í öllum helstu sport- og veiðivöruverslunum landsins og Bensínstöðvum Esso um land allt Grænar sökkur Rotari Fyrir silungsveiði Flugusett 10 63 A / T A K T ÍK 1 9. 6´ 02 ÞEIR eru sjálfsagt ekki margir verkamennirnir sem geta státað af því að hafa unnið hjá sama vinnu- veitanda í hálfa öld, en það hefur Karl Geirsson, vinnuvélastjóri hjá Reykjanesbæ, afrekað. Hann byrj- aði sem unglingur í unglingavinnu Keflavíkurhrepps í júní 1952 og það starf sem hann hefur innt af hendi allar götur síðan hjá Áhaldahúsi bæjarins hefur verið hans skóli. „Það er öryggið sem hefur haldið mér hér.“ sagði Karl í samtali við Morgunblaðið. „Mér hefur líka allt- af líkað vel hér.“ Eins og svo margra ungra drengja var æðsti draumur Karls að fá að keyra stór tæki. Hann hafði ekki verið lengi í unglingavinnunni þegar hann var látinn keyra jarð- ýtu, þótt hann hefði ekki aldur til. „Sigtryggur lögreglustjóri sagði að það væri í lagi, því hún væri alltaf úti í móa.“ Nokkrum árum seinna, eða 1960, kom fyrsti veghefillinn í hreppinn og hann er það tæki sem Karl hefur hvað lengst unnið við. „Á milli 1960 og 70 voru bara mal- arvegir hér og tveir heflar, svo við höfðum stundum varla við að slétta vegina. Göturnar voru líka lélegar.“ Eins og gefur að skilja öðlaðist Karl mikla reynslu á veghefilinn. Í gegnum tíðina hefur hann jafnvel farið á milli byggðarlaga til þess að rétta af fyrir verktaka og gerir jafn- vel enn. „Það er bara gott að komast á aðra staði til að vinna, það er til- breyting í því. Annars hefur þetta breyst svo mikið, tækjunum í dag er jafnvel stýrt með gervihnattabúnaði en því hef ég aldrei kynnst. Þetta er allt bara í hausnum á mér.“ Í dag eru fáar götur ómalbikaðar svo þörfin fyrir vegheflana er minni en áður. Einhverjar götur eru þó enn með malarslitlagi og auðvitað spretta upp ný hverfi með götum sem þarf að malbika. Þar sem Karl stígur nú sjaldnar upp í veghefilinn en áður grípur hann oftar í skrúf- járnið og önnur verkfæri. Nú er tími sláttuvélanna runninn upp. „Já, það er nóg að gera í sláttuvélaviðgerð- unum núna, enda mikið álag á þeim öllum.“ – Hefur aldrei hvarflað að þér, Karl, að skipta um vinnu? „Jú, jú, auðvitað hugsaði ég um það, en ég tók öryggið framyfir. Ég fylgdist mikið með ýmsum verktök- um og strákunum sem voru að vinna hjá þeim og margir þeirra voru reknir heim. Ég kaus frekar þessa föstu vinnu.“ – Hvað er nú skemmtilegast? „Æi, ég veit það ekki. Mér finnst þetta allt ágætt, á meðan ekki er verið að argast í mér,“ sagði Karl að lokum og er þar með rokinn, enda verkefnin næg á verkstæðinu, 400 starfsmenn vinnuskólans á fullu í fegrun bæjarins og samstarfsmað- urinn í sumarfríi. Tekur öryggið fram yfir nýjungagirnina Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Karl Geirsson stígur upp í veghefilinn í áhaldahúsi bæjarins, en hann er tækið sem hann þekkir hvað best eftir að hafa stjórnað því í áratugi. Keflavík ÓLAFUR Örn Ólafsson við- skiptafræðingur sem búsettur er í Kanada verður næsti bæjarstjóri Grindavíkur. Verður væntanlega ákveðið formlega að ráða hann á fyrsta fundi nýs bæjarráðs og tekur hann til starfa í haust. Fyrsti fundur ný- kjörinnar bæjar- stjórnar Grindavík- ur var haldinn í gærkvöldi og var þar kjörið í nefndir og ráð. Í samræmi við málefnasamning Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var Hörður Guðbrands- son, efsti maður S-lista, kosinn forseti bæjarstjórnar og Ómar Jónsson, efsti maður D-lista, for- maður bæjarráðs. Meðal ann- arra embætta má nefna að Hörður tekur sæti Grindvíkinga í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Ómar situr áfram í stjórn Hitaveitu Suð- urnesja hf. sem fulltrúi bæjar- ins. Til starfa með haustinu Nýi meirihlutinn ákvað að endurnýja ekki ráðningarsamn- ing við Einar Njálsson sem verið hefur bæjarstjóri síðastliðin fjögur ár. Einar starfar þó út næsta mánuð samkvæmt ákvæð- um í gildandi ráðningarsamningi hans og Grindvíkurbæjar. Sam- kvæmt málefnasamningnum munu sjálfstæðismenn ráða nýj- um bæjarstjóra. Í samráði við samstarfsflokkinn hafa þeir ákveðið, að sögn Ómars Jónsson- ar, að kalla til starf- ans Ólaf Örn Ólafs- son, 44 ára viðskiptafræðing og fyrrverandi forstöðu- mann Eimskips í Kanada. Verður væntanlega gengið frá ráðningu hans á bæjarráðsfundi í næstu viku og kemur hann þá til starfa í haust. Ólafur Örn er fæddur á Akureyri. Hann er með próf frá Stýrimannaskól- anum í Vestmannaeyjum og út- skrifaður útgerðartæknir frá Tækniskóla Íslands og viðskipta- fræðingur frá Háskóla Íslands 1986. Hann starfaði sem sjómað- ur og að háskólanámi loknu sem viðskiptafræðingur hjá Löggilt- um endurskoðendum hf., Kerfi hf., Slippstöðinni hf. á Akureyri og Eimskipafélagi Íslands. Ólaf- ur Örn var forstöðumaður Eim- skips í Kanada frá 1996 og fram á síðasta ár og bjó þá á Ný- fundnalandi. Síðasta árið hefur hann verið aðstoðarfram- kvæmdastjóri hjá Jysk Linen’s Furniture Ltd. í Vancouver. Eiginkona Ólafs Arnar er Ása Ólafsdóttir viðskiptafræðingur og eiga þau fjögur börn. Ólafur Örn Ólafsson næsti bæjarstjóri Grindavík Ólafur Örn Ólafsson BÆJARSJÓÐUR Reykjanesbæjar mun auka hlutafé sitt í Skipasmíða- stöð Njarðvíkur hf. um tvær millj- ónir, ef aðrir stórir hluthafar gera það einnig. Einn bæjarfulltrúi minnihlutans telur hættu á að pen- ingarnir tapist. Stjórn Skipasmíðastöðvar Njarð- víkur hf. er að kanna það hvort stærri hluthafar eru reiðubúnir að auka hlut sinn og þá hversu mikið. Reykjanesbær er meðal hluthafa. Samþykkti bæjarráð að auka hlutafé sitt um tvær milljónir kr. svo framarlega sem markmið um 20 milljóna króna aukningu hluta- fjár náist og að skuldir félagsins við bæjarsjóð verði greiddar upp. Tillagan var samþykkt með at- kvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins, sem hafa hreinan meirihluta, og atkvæði Ólafs Thordersen, ann- ars fulltrúa Samfylkingarinnar, og hefur nú verið staðfest í bæjar- stjórn. Guðbrandur Einarsson, vara- fulltrúi Samfylkingarinnar í bæj- arráði, sat hjá við afgreiðslu máls- ins. Á fundi bæjarstjórnar í vikunni gerði hann grein fyrir hjásetu sinni með bókun. Þar kemur fram sú skoðun hans að það væri ekki í verkahring Reykjanesbæjar að standa í atvinnurekstri og vakin at- hygli á því að ákvörðun bæjarráðs væri fordæmisgefandi ef fyrirtæki innan sveitarfélagsins ættu að sitja við sama borð. „Það er ekkert sem bendir til þess að rekstrarumhverfi þessa fyrirtækis verði betra til framtíðar litið og því er veruleg hætta á því að hlutafé Reykjanes- bæjar tapist á komandi árum,“ seg- ir Guðbrandur meðal annars. Bæjarfulltrúi varar við að bærinn auki hlutafé sitt í skipasmíðastöð Telur hættu á að peningar tapist Reykjanesbær BÆJARSTJÓRN Reykjanesbæjar hefur samþykkt að þráðlaus net- tenging á bæjarskrifstofunum verði gerð aðgengileg fyrir blaða- menn sem fylgjast með fundum bæjarstjórnar þannig að þeir geti sent frá sér fréttir jafnóðum. Steinþór Jónsson, nýkjörinn bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, flutti tillöguna og var hún sam- þykkt samhljóða. Í greinargerð er það rifjað upp að rætt hafi verið um að koma á beinum útvarps- sendingum frá fundum bæjar- stjórnar. Með því að veita frétta- mönnum staðarblaða og annarra fjölmiðla aðstöðu til að senda beint fréttir á Netið megi segja að stigið sé fyrsta skrefið til að gera bæj- arstjórnarfundi enn aðgengilegri fyrir almenning en verið hafi. Þá er vakin athygli á því að umrædd tækni sé þegar fyrir hendi þar sem bæjarfulltrúar séu tengdir Netinu með þráðlausu sambandi. Beinar fréttasend- ingar af fundum Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.