Morgunblaðið - 20.06.2002, Side 20
LANDIÐ
20 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SKÓLASTARF í Grunnskólanum á
Egilsstöðum og Eiðum hefur runn-
ið sitt skeið á enda á þessu vori.
Síðustu skólavikuna unnu nemend-
ur að eigin hugmyndum um heima-
byggð sína og holla hreyfingu.
Um 200 krökkum í 3.-9. bekk var
skipt í fimm hópa: Fjölmiðlahópur
sendi frá sér fjögur fréttablöð undir
nafninu Súrkáls-skrækur og fjöll-
uðu þau um þemavikuna. Einnig sá
hópurinn um að senda inn fréttir og
ljósmyndir á heimasíðu Egilsstaða-
skóla. Tónlistarhópur bjó til ný
hljóðfæri, æfði söng og hlustaði á
reikistjörnumúsík. Í leiklistarhópn-
um voru æfð leikritin Valtýr á
grænni treyju og hið frumsamda
Rauðhetta og rappararnir fjórir.
Listaverkahópur og leiktækjahópur
unnu svo listaverk og leiktæki sem
flest voru sett upp í Lómatjarn-
argarðinum, lystigarði Egilsstaða-
búa.
Á föstudag var haldin uppskeru-
hátíð, þar sem krakkarnir fluttu
tónlist sína, leikverk og sýndu leik-
tæki, auk fjölbreyttra og afar frum-
legra listaverka í garðinum, en þau
munu standa í allt sumar, heima-
mönnum og ferðamönnum til ynd-
isauka og vangaveltna.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Marsbúar – Cha cha cha er eitt nýrra útilistaverka sem sett hafa verið
upp í lystigarði Egilsstaðabúa. Höfundar kalla sig Fífurnar og segja að
langt úti í himingeimnum búi verur sem líkist hænum og geri sér hreiður.
Ný útilistaverk í
Lómatjarnargarði
Egilsstaðir
Í NÝAFSTÖÐNUM bæjarstjórnar-
kosningum í Snæfellsbæ hélt meiri-
hlutastjórn sjálfstæðismanna velli
en nýtt afl, Bæjarmálasamtök Snæ-
fellsbæjar, bauð fram á móti þeim.
Bæjarmálasamtökin fengu þrjá full-
trúa kjörna og koma tveir þeirra nú í
fyrsta sinn að bæjarstjórnarmálum.
Annar þeirra er Gunnar Örn Gunn-
arsson í Ólafsvík og hinn Kristján
Þórðarson bóndi á Ölkeldu í Stað-
arsveit.
Bóndi í bæjarstjórn
Kristján er fyrsti íbúi Staðarsveit-
ar sem tekur sæti í bæjarstjórn
Snæfellsbæjar og segir þátttöku
sína í bæjarstjórnarmálum hafa bor-
ið tiltölulega brátt að. „Boðað var til
stofnfundar Bæjarmálasamtakanna
hinn 15. apríl og ég fór á hann. Þeir
sem stóðu að stofnfundinum orðuðu
framboð við mig og eftir að hafa
kannað hversu mikils stuðnings ég
mátti vænta úr sveitinni í kringum
mig sló ég til. Ég er fyrsti bóndinn í
bæjarstjórn Snæfellsbæjar og mun
huga að málefnum þeirra sem
stunda landbúnað og búa í dreifbýl-
inu, enda nauðsynlegt að þeir eigi
sér málsvara, þótt ég starfi auðvitað
í bæjarstjórn sem fulltrúi fyrir alla
íbúa Snæfellsbæjar,“ segir Kristján.
Kristján hefur starfað ötullega að
félagsmálum í sinni sveit en segir að
það séu auðvitað mörg ný mál sem
hann þurfi að sökkva sér niður í til að
kynnast hinum ýmsu flötum á
stjórnsýslu bæjarins. Undirbúning-
ur fyrir væntanleg bæjarstjórnar-
störf bætast ofan á annatíma í bú-
störfunum því þeir Kristján og
bróðir hans Svavar sem búa fé-
lagsbúi á Ölkeldu ætla að byggja við
fjósið hjá sér í sumar. Íþrótta- og
skólamál eru ofarlega á baugi í huga
Kristjáns enda telur hann að Lýsu-
hólsskóli sé lífæð sveitanna. Íþrótta-
áhuginn tengist starfsemi Ung-
mennafélags Staðarsveitar en
Kristján hefur setið í stjórn þess í 20
ár, þar af formaður sl. 10 ár. Hann er
einnig mikill söngmaður og er í
kirkjukór Staðastaðarkirkju auk
þess að vera sóknarnefndarformað-
ur.
Ný atvinnutækifæri
Eiginkona Kristjáns, Astrid
Gundersen frá Noregi, var að flétta
körfur úr trágreinum þegar frétta-
ritara bar að, en körfurnar ætlar hún
ásamt þremur dætrum þeirra hjóna
að selja á Færeyskum dögum í
Ólafsvík í byrjun júlí. Kristján segir
brosandi að þótt hún sé svo dugleg
við að flétta körfur að trén hjá þeim
nái aldrei að vaxa mjög hátt sé henn-
ar heimaiðnaður ekki grunnur að
sterkri atvinnugrein. Hann telur að
leggja þurfi áherslu á uppbyggingu
atvinnutækifæra í dreifbýli Snæ-
fellsbæjar ekki síður en norðan við
Fróðárheiði þar sem þéttbýlið er.
Kristján segir að það megi gera ann-
aðhvort með þátttöku þeirra sem þar
búa eða annarra sem tilbúnir væru
til að flytja á svæðið. „Svo virðist
sem fólk laðist að þéttbýliskjörnum,
en þó eru sífellt fleiri og fleiri sem
vilja búa í dreifbýlinu jafnvel þótt
þeir sæki vinnu á þéttbýlisstað. Best
er auðvitað að skapa ný atvinnutæki-
færi hér í sveitinni og efla þannig
mannlífið.“
Þótt Kristján reikni með að hafa
nóg að gera við bústörfin og und-
irbúning fyrir þátttöku í bæjar-
stjórnarmálum í sumar gerir hann
samt ráð fyrir að taka sér einhvern
tíma til að stunda golf sem er nýjasta
áhugamál hans en stutt er á næsta
golfvöll sem er á Görðum í Staðar-
sveit.
Bóndi og bæjarfulltrúi
Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann
Kristján Þórðarson á Ölkeldu ásamt eiginkonu sinni, Astrid Gundersen.
Hellnar
MAGNÚS Emanúelsson lætur
ekki fótbrot aftra sér frá því að
stunda áhugamál sitt, heldur
hoppaði á einum fæti með hækjur
sér til stuðnings og hélt til veiða í
Vatnsholti í Staðarsveit. Vel bar í
veiði hjá Magnúsi, fékk hann 12
sjóbirtinga á aðeins 2 tímum. Að
sögn Magnúsar voru þeir 2 til 7
pund að þyngd. Magnús var að
vonum ánægður með feng dags-
ins.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Þraut-
seigur
veiðimaður
Ólafsvík