Morgunblaðið - 20.06.2002, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
HINN 5. júlí næstkomandiverður hátíð á Sólheim-um í Grímsnesi. Þámunu íbúar staðarins og
gestir þeirra minnast með virðingu
og þakklæti stúlkunnar sem fæddist
þennan dag fyrir hundrað árum síð-
an, stofnaði Sólheima í þágu um-
komulausra barna tuttugu og átta
ára gömul, varð brautryðjandi í
þjálfun og umönnun þroskaheftra
og frumherji í lífrænni ræktun hér á
landi. Ennfremur tók hún í fóstur
börn frá erfiðum heim-
ilum og kom þeim til
manns. Sesselja Sig-
mundsdóttir var án
nokkurs vafa ein af
merkustu konum Ís-
landssögunnar. Ég hef
áður sagt að vel mætti
hugsa sér konur sem
sómdu sér við hlið
hennar en enga sem
væri henni fremri og
vil árétta það hér.
I
Sesselja Sigmunds-
dóttir var í eðli sínu og
athöfnum hugsjóna-
manneskja og langt á
undan samtíð sinni. Hún sætti um
árabil ofsóknum af hálfu opinberra
aðila sem ekki eiga sér hliðstæðu á
okkar tímum en hún hélt sínu striki
því hún trúði á það sem hún var að
gera. Ráðamönnum og barnavernd-
arráði þótti með ólíkindum að hún
skyldi telja sig þess umkomna að
leggja sjálfstætt mat á hvað skjól-
stæðingum hennar til margra ára
væri fyrir bestu eftir að henni hafði
verið gert ljóst að það stangaðist á
við hið opinbera gildismat þess
tíma. Ekkert raskaði ró þessarar
konu sem tók ekki mark á öðru en
því sem reynslan staðfesti. Hún bar
mikla persónu, var framúrskarandi
stjórnandi og framkvæmdamaður
en jafnframt hlý og umhyggjusöm
manneskja. Upphrópanir vandlæt-
ara sem skildu ekki hvað hún var að
gera hreyfðu ekki við henni. Öll fjöl-
skylda hennar stóð með henni og
kom til starfa á Sólheimum þegar
illa gekk og átti sinn þátt í að rekst-
ur heimilisins stöðvaðist ekki með
öllu á stríðsárunum þegar hvergi
var hægt að fá starfsfólk. Hlutur
föður hennar, Sigmundar Sveins-
sonar, var ærinn og skylt að hann
gleymist ekki.
Aðferðir Sesselju við ræktun öðl-
uðust með tímanum viðurkenningu
og einnig sú skoðun hennar að
hættulaust væri fyrir venjuleg börn
að umgangast þroskahefta. Hún
naut virðingar á efri árum og friður
ríkti um heimilið. Skömmu áður en
hún féll frá árið 1974 var hún ein-
hverju sinni á tröppum timburhúss-
ins á góðviðrisdegi með einum af
velunnurum Sólheima, tónlistar-
manni sem kom og liðsinnti henni
hvenær sem eftir því var kallað.
Milli þeirra var traust og vinátta og
höfðu þau verið að ræða fram-
kvæmdir á staðnum. Hann hafði lát-
ið í ljósi áhyggjur af heilsufari henn-
ar en hún taldi sig vita að hún myndi
lifa nægilega lengi til að ljúka til-
teknum verkefnum. Sem þau
standa þarna saman nýkomin úr
umræðum um eilífðina spyr hann
hvernig hún sjái Sólheima fyrir sér
í framtíðinni. Á erfitt með að
ímynda sér staðinn þegar hennar
nýtur ekki lengur við. Um stund er
hún þögul og lítur yfir umhverfið:
– Kannski mörg lítil hús út um
allt, segir hún svo – með fjórum
vistmönnum og starfsmanni í
hverju húsi og einnig húsum fyrir
velunnara Sólheima
sem vilja búa hér í ell-
inni.“
Þegar hann vill
ræða þetta frekar,
víkur hún talinu að
öðru en segist í öðru
samtali sjá Sólheima-
húsið fyrir sér líkt og
menntasetur í göml-
um íslenskum stíl
með smáhýsi allt í
kring og hana dreymi
um að á Sólheimum
rísi lífræn landbúnað-
ar- og garðyrkjustöð.
Sesselja skrifaði
aldrei greinar í dag-
blöð, talaði ekki á
fundum né hafði sig í frammi á ann-
an hátt. Henni fannst að verkin
ættu að segja það sem segja þyrfti.
Engu skipti hvað sagt væri meðan
það væru orðin ein.Væri henni
sýndur sómi, leit hún á það sem við-
urkenningu til heimilisins og íbúa
Sólheima og gladdist yfir því en
mesta virðingin fannst henni þó fel-
ast í að fá að vera í friði. Fá að
starfa óáreitt og njóta þannig
trausts til þess sem hún var að
gera. Hún lifði og starfaði á Sól-
heimum en þáði aldrei formlega
laun, átti mér vitanlega ekki annað
en það sem var í litla herberginu
hennar og þurfti ekki meir.
II
Það hlýtur að teljast nokkurt um-
hugsunarefni hversu hljótt er um
minningu Sesselju Sigmundsdótt-
ur, líf hennar og störf. Íslensk
skólabörn kunna glögg skil á ýms-
um mætum Íslendingum sem settu
svip á samtíð sína en höfðu ekkert
sér til ágætis sem þolir samanburð
við hennar lífsstarf. Það er einnig
kaldhæðnislegt að þegar fyrir dyr-
um stendur að heiðra minningu
þessarar konu sem taldi sér mestan
sóma sýndan með virðingu við Sól-
heima, það sem þar fer fram og þá
sem þar búa, þá skuli allt í einu
verða reimt aftur á þessum stað og
draugur sem allir töldu löngu búið
að kveða niður reynist eiga sér
framhaldslíf. Og nú er það stjórn-
arformaðurinn sem spjótin beinast
að.
Þegar litið er yfir Sólheima í dag
er ljóst að draumar Sesselju og
framtíðarsýn eru orðin að veruleika
og öll stefnumótun og framkvæmd-
ir á staðnum vitna um trúnað við
lífsviðhorf hennar og virðingu fyrir
þeim arfi sem hún skildi eftir.
Naumast er um það deilt að þetta
er fyrst og fremst verk stjórnar
Sólheima undir forystu
Sveinbjarnarsonar. Hann
gert það sem hún taldi mes
– látið verkin tala. Engin
slíku verki nema hann
myndaríkari og úrræðab
gengur og gerist og starf
sjón.
Fyrir nokkrum dögum á
við dóttur Sesselju, Hólm
mundsdóttur, sem ólst up
heimum og var lengst a
hönd móður sinnar. Í s
kom fram að hún er sömu s
og vildi gjarna að það kæ
hvers staðar fram:
„Þorpið sem móður
dreymdi um er að verða
heimum og öll starfsemi
bygging þar endurspegla
virðingu fyrir lífsskoðun
sagði hún. „Þetta er stórko
rek og þetta er verk Pétu
bjarnarsonar. Án hans atbe
öðruvísi umhorfs á Sólh
dag, hvað sem hver segi
mín lagði alltaf áherslu á
urinn birtist í því sem hann
hvorki í því sem hann seg
sem sagt væri um hann og
að horfa yfir brestina og s
sem gert væri.
– Við höfum öll kosti
Fríða mín, sagði hún oft – e
tala.“
III
Stofnandi Sólheima,
Sigmundsdóttir, ólst upp
stöðum í Þingvallasveit í
samhentri fjölskyldu, e
barna Sigmundar Sve
bónda þar og konu hans K
Símonardóttur. Hún var b
dugmikil og og umhyggju
yngri systkini sín. Sérsta
band var milli hennar og d
heimilinu sem tóku á rá
henni þegar þau sáu hana á
Hún var félagslynd en fór
förum og bar djúpa virðin
náttúrunni og öllu sem lif
hún kynntist kenningum
Steiner um lífræna ræktu
hauga og að betri árangu
með því að sá á réttum tím
jörðin væri tilbúin, þá rím
fullkomlega við hennar eig
ingu og reynslu. Sama má
um kenningar hans í he
málum og uppeldis- og s
um, sem hún leggur til gru
í starfinu á Sólheimum en
íslenskum aðstæðum o
brjóstviti. Sesselja varð
kennisetningaþræll í þeim
að hún gengi blint á hönd
um stefnum eða skoðunu
vegna tók hún ekki heldur
íslenskum embættimönnu
sem það voru læknar, pre
Verkin
tala
Með hliðsjón af sögu Sólheima og því
einstæða starfi sem þar fer fram, segir
Jónína Michaelsdóttir, finnst mér ekki
ósanngjarnt að ætlast til þess að þetta
mál sé leyst með siðuðum hætti við
fundarborð en ekki í fjölmiðlum.
Jónína
Michaelsdóttir
SÓLHEIMAR
AÐ HEIMSÓKN LOKINNI
Opinber heimsókn forseta Kínatil Íslands fyrir nokkrum dög-um og þeir atburðir, sem
tengdust henni, hafa vakið margar
spurningar en þó ekki sízt þá, hvort
við Íslendingar séum yfirleitt í stakk
búnir til að taka á móti opinberum
gestum, sem af einhverjum ástæðum
eru umdeildir og þess vegna líklegir
til að draga að sér mótmælendur.
Í því sambandi má líka spyrja,
hvort við höfum bolmagn til að standa
fyrir alþjóðlegum ráðstefnum, sem
eru til þess fallnar að draga að mót-
mælendur, sem oft eru atvinnumenn
á sínu sviði.
Þegar fyrir lá, að utanríkisráð-
herrafundur Atlantshafsbandalags-
ins yrði haldinn hér í maímánuði á
þessu ári höfðu stjórnvöld og þá ekki
sízt yfirstjórn lögreglunnar áhyggjur
af því, að mótmælendur mundu
flykkjast hingað til lands. Erlendis
hefur ítrekað komið til harkalegra
mótmæla undanfarið. Þegar leiðtogar
átta helstu iðnríkja heims komu sam-
an í Genúu á Ítalíu í júlí í fyrra fór ör-
yggisvarzla úr böndunum og lögregla
varð manni að bana og réðst á mót-
mælendur, sem sváfu í skólabygg-
ingu, með þeim afleiðingum að tugi
manna þurfti að leggja á sjúkrahús.
Ítalska lögreglan var harðlega gagn-
rýnd um alla Evrópu. Tíu milljarða
króna kostaði að halda fundinn í
Genúu. Í fyrravor kom til átaka milli
lögreglu og mótmælenda á fundi leið-
toga ríkja Ameríku í Quebec-borg í
Kanada. Kostnaður kanadískra
stjórnvalda af þeim fundi var sjö
milljarðar króna.
Ganga má út frá því sem vísu, að í
aðdraganda utanríkisráðherrafund-
arins hafi farið fram miklar umræður
innan stjórnkerfisins um hvað þyrfti
til í mannskap og búnaði til þess að
við gætum tryggt öryggi þeirra fjöl-
mörgu áhrifamanna, sem komu hing-
að til lands vegna ráðherrafundarins.
Ekki kom til mótmæla vegna utan-
ríkisráðherrafundarins en hins vegar
kynntumst við því hvað getur gerzt í
aðdraganda heimsóknar forseta Kína
og meðan á henni stóð.
Björn Bjarnason, alþingismaður og
fyrrum ráðherra, gerir þetta mál að
umtalsefni á heimasíðu sinni fyrir
nokkrum dögum og segir m.a.: „Við-
brögð íslenzkra stjórnvalda við Falun
Gong taka mið af því að mikill fjöldi
þessa fólks hér á landi kunni að skapa
óviðráðanleg öryggisvandamál og
auðveldast sé að bregðast við vand-
anum með því að halda erlendum mót-
mælendum í öðrum löndum. Hin leið-
in er að huga að innri öryggismálum
með nýjum hætti í samræmi við
breyttar aðstæður. Hef ég áður vakið
máls á nauðsyn þess og ætla ekki að
rekja sjónarmið mín um það efni að
þessu sinni en bendi til dæmis á grein,
sem ég skrifaði í Morgunblaðið í til-
efni af 50 ára afmæli varnarsamnings
Íslands og Bandaríkjanna í maí
2001.“
Þegar þingmaðurinn talar um
nauðsyn þess að huga að innra öryggi
með nýjum hætti á hann við þá hug-
mynd, sem hann setti fram m.a. í er-
indi á árinu 1995 um íslenzka
öryggissveit og ítrekaði í grein þeirri,
sem hann vísar til í Morgunblaðinu
fyrir rúmu ári.
Hugleiðingar Björns Bjarnasonar
af þessu tilefni eru dæmi um, að
ábyrgir aðilar velta því fyrir sér hvert
bolmagn okkar Íslendinga er í þess-
um efnum og hvernig við skuli bregð-
ast.
Auðvitað getum við sagt sem svo:
Hvers vegna eigum við að bjóða heim
umdeildum gestum, sem geta kallað á
fjöldaheimsóknir mótmælenda utan
úr heimi? Hvers vegna eigum við að
taka að okkur alþjóðlegar ráðstefnur,
sem geta haft sömu áhrif?
Ef við komumst að þeirri niður-
stöðu að við getum ekki boðið slíku
fólki í opinberar heimsóknir eða tekið
að okkur að halda slíka fundi og ráð-
stefnur erum við um leið að taka
ákvörðun um að sinna alþjóðlegu
samstarfi ekki nema að mjög tak-
mörkuðu leyti. Ólíklegt er að meiri-
hluti þjóðarinnar teldi það viðunandi
kost.
Ef það er rétt metið hlýtur sú
spurning að verða áleitin, hvort við
verðum að gera ráðstafanir til þess að
geta tekizt á við þau vandamál, sem
upp kunna að koma af þessu tagi. Þar
með er ekki sagt að við eigum að
ganga eins langt og Björn Bjarnason
leggur til, að koma upp íslenzkum ör-
yggissveitum en hugsanlega er nauð-
synlegt að ganga lengra en við höfum
nú þegar gert.
Annar þáttur þessa máls, sem hef-
ur komið töluvert til umræðu manna á
meðal, er ekki síður þýðingarmikill en
hann snýr að kynningu gagnvart al-
menningi á þeim vandamálum, sem
við er að etja. Í þeim efnum hefði
margt mátt betur fara.
Þar má í fyrsta lagi nefna hina upp-
haflegu kynningu, sem hefði þurft að
vera formlegri og ákveðnari. Í öðru
lagi er ljóst að þeir, sem bera hina
pólitísku ábyrgð, hljóta alltaf að vera
í fyrirsvari í málum sem þessum, þótt
athyglisvert verði að telja, hvað ein-
stakir embættismenn stóðu sig vel í
röksemdafærslu fyrir ákvörðunum
stjórnvalda við erfiðar aðstæður. Í
þriðja lagi má aldrei gleyma því, að
engum stafar hætta af hinu talaða
orði, þótt nálægð einstaklinga, að
ekki sé talað um fjölda einstaklinga,
við umdeilda opinbera gesti geti
skapað alvarlegt hættuástand.
Af þessu tiltekna máli eigum við
fyrst og fremst að læra. Það hefur
aldrei áður gerzt, a.m.k. ekki í þess-
um mæli, að mótmælendur fjölmenni
til Íslands. Eftir þessa atburði hljót-
um við að líta svo á, að það geti gerzt
aftur og verðum þá að vera betur und-
ir það búin að takast á við vandann.
Íslenzk yfirvöld hafa þurft að tak-
ast á við óeirðir hér innanlands og er
þá átt við atburðina á Austurvelli 30.
marz 1949, þegar beita þurfti táragasi
til þess að dreifa mannfjölda, sem
ráðizt hafði að þinghúsinu og hugðist
trufla störf löglega kjörins Alþingis.
Vonandi kemur aldrei til slíkra at-
burða aftur á Íslandi.
Þau ráðuneyti og stofnanir, sem að
þessu máli komu, hljóta að bera sam-
an bækur sínar um það, sem betur má
fara ef og þegar til slíkra atburða
kemur á nýjan leik.