Morgunblaðið - 20.06.2002, Page 30

Morgunblaðið - 20.06.2002, Page 30
LISTIR 30 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á 17. júní var karnival- stemning á Hverf- isgötunni, dans og tónlist úr öllum heimshornum, m.a. bongótrommuleikur og afródans. Í sjónarrönd við Ingólf stendur Alþjóðahúsið og þar er nýjasta kaffihúsið í bænum, Café Culture, á matseðlinum þennan þjóðhátíð- ardag voru m.a. réttir frá Suð- vestur-Afríku. Þjóðhátíðardagurinn með ítalskt kaffi í bolla, framandi mat í disk, konur í afródans í augum, bongótrommur í eyrum, og loks íslenska fánann í höndum, ásamt list annarra þjóða á veggjum. Fyrir ári var spurt á málþingi: „Þjóðhátíð hverra?“ og sagnfræð- ingur spurði: „Gleymast einhverjir hópar á þess- um degi? Eru einhverjir útilok- aðir frá fögnuðinum og þjóðlífinu yfirleitt?“ Og sagði: „Íslendingar eru að breytast, mynd þeirra er að breytast, og nýir hópar inn- flytjenda geta auðgað hugmynd- ina um þjóðernið, þess vegna þurfum við að spyrja hvort eitt- hvað hindri aðgang aðfluttra að þjóðerninu, hvort þeim séu settar einhverjar skorður uppruna, lit- arháttar, trúarbragða, málhreims eða einhvers annars.“ (Guðfríður Lilja Grétarsdóttir. Mbl. 16/6 ’01). Spurningunni „Þjóðhátíð hverra?“ var varpað fram á ell- eftu stundu, því miklar umræður spunnust í samfélaginu í kjölfar fregna af átökum unglingahópa í miðborg Reykjavíkur að kvöldi þjóðhátíðardagsins. Sú stað- reynd, að unglingar af asísku bergi brotnir lentu í útistöðum við önnur ungmenni, varð til þess að fólk spurði hvort fordómar gegn útlendingum birtust nú í ofbeldi? Það gerist afar sjaldan, þótt at- hyglin verði mikil. Kynþátta- fordómar birtast aftur á móti í flestum tilfellum á dulinn og lúmskan hátt (e. every day rac- ism), sem mun erfiðara er að vinna gegn. Hér eru nokkur dæmi: „„Þetta fólk er bara svo ólíkt okkur að það getur aldrei að- lagast“, „ég hef ekkert á móti þessu fólki, en mér finnst bara að það eigi að vera heima hjá sér“, eða „ég hef ekkert á móti þeim í sjálfu sér, ég vil bara halda Ís- lendingum „hreinum“.“ (Dæmi Guðrúnar Pétursdóttur. Mbl. 8/6 ’01). Alþjóðahús er sjálfstæð stofn- un, en Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes og Reykjavíkurdeild Rauða Kross Íslands leggja fram fé til rekstr- ar. Alþjóðahúsið var sett á fót eft- ir að Miðstöð Nýbúa lokaði. Á þjóðhátíðardaginn kom mikilvægi staðsetningarinnar í ljós. Það var í kvikunni og starfsmenn og gest- ir tóku þátt í gleðinni, og lögðu fram sinn skerf. Húsið stendur við Hverfisgötu og er númer 18. Það er hátt og skemmtilegt að sjá og gluggar þess eru stórir og geta gestir á Café Culture verið sýnilegir og séð margt sjálfir. Magnús Th. S. Blöndahl teiknaði og byggði húsið árið 1906 fyrir Gest Einarsson frá Hæli og Pétur Brynjólfsson ljós- myndara. Fyrsta hæðin ilmar, enda markmið Alþjóðahúss fyrst og fremst að vera vettvangur fjöl- menningarlegs samfélags á Ís- landi þar sem virk samskipti milli þeirra sem eru af erlendum upp- runa og þeirra sem eru af íslensk- um uppruna, eiga sér stað. Mark- miðið er að menningarhópar standi jafnfætis, beri gagnkvæma virðingu hver fyrir öðrum, og vinni saman að uppbyggingu hins fjölmenningarlega samfélags. Í Alþjóðahúsinu á að vinna gegn fordómum í samfélaginu með margvíslegri fræðslu, kynn- ingu á ólíkri menningu, menning- arviðburðum og með því að skapa sameiginlegan vettvang inn- fæddra og aðfluttra íbúa landsins (www.ahus.is). Nákvæmlega þetta var upp á teningnum í Alþjóðahúsinu á þjóðhátíðardaginn, og þar var ekki þögn heldur umræða. Stað- setningin vinnur gegn þögninni sem talað var um á þjóðhátíð- armálþinginu 2001: „Þögnin er eitt sterkasta vopn kynþátta- fordóma, því þögn jafngildir sam- þykki.“ Þögnin er úti, og ástæða til að ræða betur um ósýnilegu fordómanna. Fjölmiðlar eru meðal þeirra sem eiga ekki að þegja í upplýs- inga- og skoðanaflóðinu um inn- flytjendur, þeir þurfa að greina og varpa skýru ljósi á málið. Samt held ég að það sé betra að þegja heldur en að nálgast málin óhugs- að. Blaðamaður þarf að undirbúa sig vel, hann þarf að þekkja að- ferðina til að falla ekki sjálfur í pytt fordómanna. Vinnan gegn fordómum mun að einhverju leyti fara fram í fjölmiðlum, því sam- félagið allt er ábyrgt, og nefna má að einstaklingar með erlent rík- isfang með lögheimili á Íslandi eru nú um tíu þúsund. Bakslagið verður harðara og erfiðara ef fjölmiðlar hafa illa bú- ið sig undir breytta sjálfsmynd þjóðarinnar. Þetta er ekki létt- vægt. Þjóðin þarf að gera allt sem hægt er að gera til að koma í veg fyrir ofbeldisfulla árekstra á milli mismunandi hópa. Meginverk- efnið og það erfiðasta er að vinna bug á duldu fordómunum, og þá þarf umræður á heimilum, í skól- um, í fjölmiðlum og á vinnustöð- um og einhver sameiginleg verk- efni milli hópanna til að skapa samkennd. Reyndar er þetta starf löngu byrjað og hafa ýmsar stofnanir og skólar unnið gott starf, t.d. Fé- lagsþjónusta Reykjavíkur og ýmsir góðir skólar á öllum stig- um. Ef til vill verður nýja Al- þjóðahúsið til þess að endurnýj- aður kraftur færist í verkefnið, þögnin hverfi og umræðan verði linnulaus. En á sömu stundu og umræðan hikar eða hættir skjót- ast fordómarnir aftur fram úr skúmaskotunum. Að minnsta kosti geta allir fengið sér kaffi í Alþjóðahúsinu, aðra drykki eða rétti og freistað þess að láta menningar mætast, og kanna hvað gerist. Alþjóðleg þjóðhátíð Þjóðhátíðardagurinn með ítalskt kaffi í bolla, framandi mat í disk, konur í afró- dans í augum, bongótrommur í eyrum, og loks íslenska fánann í höndum, ásamt list annarra þjóða á veggjum. VIÐHORF Eftir Gunnar Hersvein guhe@mbl.is TÓNLISTARSKÓLANUM í Reykjavík var slitið í Háteigskirkju í 72. sinn á dögunum. Þetta vor útskrif- uðust nemendur úr tónmenntakenn- aradeild skólans í síðasta sinn. Tón- menntakennaradeildin var stofnuð árið 1959 og hefur hún lagt allmikinn skerf til tónmenntar í landinu þennan tíma, en alls hafa 210 tónmennta- kennarar verið útskrifaðir frá deild- inni frá því að hún var stofnuð. Á næstu árum mun slíkt nám flytjast yf- ir í tónlistardeild Listaháskóla Ís- lands (LHÍ). Tónlistarskólinn á eftir að útskrifa aðra tónlistarkennara, þ.e. hljóðfæra- og söngkennara, næstu tvö árin, en 3–4 ára nám við tónlist- ardeild LHÍ byggist upp á sama tíma. Að þessu sinni brautskráðust 18 nemendur frá skólanum með 20 loka- próf, en tveir nemendur lauku tvenns konar prófum. Sjö nemendur luku tónmenntakennaraprófi, fjórir nem- endur blásarakennaraprófi, tveir strengjakennaraprófi, fjórir píanó- kennaraprófi, tveir burtfararprófi og einn einleikaraprófi. Verkfall tónlistarskólakennara setti svip sinn á haustönn skólans, en til að bæta upp kennslutap nemenda voru sum árleg próf felld niður og lögð áhersla á kennslu í staðinn og einnig var kennt lengur á vorönn en áður hefur tíðkast. Vegna verkfalls var ekki eins mikið um heimsóknir erlendra tónlistar- manna til námskeiðahalds. Samt héldu blástursleikarar frá Noregi stutt námskeið fyrir blásaradeild og Próf. Shoshana Rudiakov frá Tónlist- arháskólanum í Stuttgart hélt nám- skeið fyrir píanónemendur og kenn- ara. Atli Heimir Sveinsson tónskáld hélt fyrirlestra með tóndæmum um tvo lærimeistara sína, þá Bernd Alois Zimmermann og Karlheinz Stock- hausen. Einnig hélt Tryggvi Bald- vinsson tónskáld fyrirlestur um eigin tónsmíðar með tóndæmum. Þá hélt Eiríkur Stephensen skóla- stjóri og trompetleikari fyrirlestur um tónlistarkennslu á landsbyggð- inni. Að áhrifum verkfallsins frátöldum var tónleikahald með mesta móti, en samtals vorur haldnir 36 tónleikar innan skóla og utan. Opinberir tón- leikar utan skóla voru 20 talsins, en 16 tónleikar innan skólaveggja, samtals 36 tónleikar. Verðlaun Listasjóðs Tónlistarskól- ans í Reykjavík fyrir frábæran árang- ur í námi, þ.e. ágætiseinkunn úr með- altali allra námsgreina, hlaut að þessu sinni einn nemandi, Þórarinn Már Baldursson víóluleikari, en hann lauk tvenns konar prófum, burtfararprófi og strengjakennaraprófi. Nemendafélag Tónlistarskólans í Reykjavík og nemendur í skólanum gáfu bókasafni skólans óvænta gjöf, geisladiska og bækur að andvirði tæplega 70 þúsund krónur. 30 ára júbílant, Selma Guðmundsdóttir, píanóleikari og forseti Wagnerfélags- ins á Íslandi, færði skólanum bókar- gjöf um Richard Wagner og 25 ára júbílantar gáfu skólanum forláta skrifstofustól. Þess má geta að fyrr á vorönn hafði Félag tónlistarskóla- kennara gefið skólanum andvirði vandaðs píanóstóls í tilefni 70 ára af- mælis skólans árið 2000. Að lokum gáfu þeir nemendur sem nú útskrif- uðust frá skólanum gjafabréf frá versluninni 12 tónum að andvirði 31 þúsund krónur. Tónlistarskólanum í Reykjavík slitið í 72. sinn Átján nemendur braut- skráðir að þessu sinni Nemendur sem brautskráðust frá Tónlistarskólanum í Reykjavík nú í vor ásamt skólastjóra, Halldóri Haraldssyni. VIÐURKENNING úr Listasjóði Guðmundu Kristinsdóttur fyrir árið 2002 var afhent á Kirkjubæjar- klaustri sunnudaginn 16. júní sl., en þann dag var opnuð sýning á verk- um úr Errósafni í Kirkjubæjarstofu. Viðurkenningin var afhent við opn- un sýningarinnar, sem haldin er í tilefni 100 ára afmælis móður Erró, Soffíu Kristinsdóttur, en afkom- endur hennar komu saman á Kirkjubæjarklaustri af því tilefni. Erró afhenti viðurkenninguna ásamt ungri frænku sinni, Ólöfu Benediktsdóttur, en hana hlaut að þessu sinni listakonan Sara Björns- dóttir. Þetta er í fimmta sinn sem viðurkenningin er veitt úr sjóðnum en með henni fylgir fjárstyrkur að upphæð 300 þúsund krónur. Sara er fædd árið 1962. Hún sett- ist í Myndlista- og handíðaskólann haustið 1991 og útskrifaðist úr fjöl- tæknideild skólans árið 1995. Eftir það hélt hún til Englands, þar sem hún stundaði framhaldsnám við Chelsea College of Art and Design í London 1996-97. Sara hélt sína fyrstu einkasýn- ingu á Mokkakaffi sumarið 1995. Frá þeim tíma hefur hún haldið fimm einkasýningar og tekið þátt í á þriðja tug samsýninga, bæði hér á landi og erlendis, m.a. á Norður- löndunum, í Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og í Venezuela, þar sem hún tók þátt í alþjóðlegri sýningu á síðasta ári. Sara hlaut styrk úr Myndlistarsjóði Pennans árið 2001, hefur dvalið á gestavinnustofu í Finnlandi og hefur hlotið ferða- styrki menntamálaráðuneytisins í tvígang. Segja má að helsta einkenni á myndlist Söru síðustu ár hafi verið notkun gjörninga og myndbands ásamt þeim efnivið sem þjónar hug- myndum verkanna hverju sinni. Verkin fjalla oftar en ekki um átök milli andstæðna eða andstæðar hlið- ar sama viðfangsefnis. Einnig hefur hún unnið mikið út frá stað og stund, og glímir þannig við ólík um- hverfi og staði í framsetningu verka sinna og gjörninga til að draga fram hina ósýnilegu fegurð í umhverfinu sem gerir lífið betra og áhugaverð- ara. Segja má að fólk, samskipti þess og mannlífið almennt séu hrá- efni þeirrar listar, sem Sara Björns- dóttir hefur kosið að fást við. Listasjóður Guðmundu S. Krist- insdóttur frá Miðengi er stofnaður í tilefni af gjöf Errós á andvirði íbúð- ar að Freyjugötu 34, er Guðmunda móðursystir hans hafði arfleitt hann að. Markmið Listasjóðsins er að styrkja listakonur með því að veita árlega sérstakt framlag til við- urkenningar og eflingar á list- sköpun kvenna. Sjóðurinn er sjálfs- eignarstofnun í vörslu borgarsjóðs Reykjavíkur en umsjón með sjóðn- um hafa Reykjavíkurborg og Erró- safn. Stjórn sjóðsins skipa for- stöðumenn Listasafns Reykjavíkur, Listasafnsins á Akureyri og Lista- safns Íslands. Forstöðumaður Lista- safns Reykjavíkur er formaður sjóðsstjórnar. Úthlutað úr Listasjóði Guðmundu Kristinsdóttur Sara Björnsdóttir hlýtur viðurkenninguna í ár Morgunblaðið/Eiður Björn Ingólfsson Erró, Ólöf Benediktsdóttir og Sara Björnsdóttir að afhend- ingu lokinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.