Morgunblaðið - 20.06.2002, Qupperneq 33
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 33
SPURNING: Eru
samkynhneigðir hluti
af sköpun Guðs eða
eru þeir fráhvarf frá
henni? Til að leita
svara við þessari
spurningu ætla ég að
íhuga málið með tilliti
til kristinnar trúar. Ég
vil í þessu samhengi
nýta mér hugleiðingar
dr. Karl Barth sem er
einn áhrifamesti guð-
fræðingur 20. aldar-
innar. Ég játa það fyr-
irfram að ég dáist að
Barth og er oft sam-
mála röksemdafærsl-
um hans. Ég er hins
vegar ósammála ummælum hans
um samkynhneigð, sem hann dæmir
sjúka og synduga mótsögn við Guð.
Kyn og trú
Í kristinni trú liggur beint við að
skilgreina manneskju út frá tveimur
meginsjónarmiðum. Annars vegar
getum við hugsað okkur manneskju
sem „sett er í samband við Guð“ og
hins vegar „manneskju sem sett er í
samband við aðra manneskju“.
Hvað síðarnefnda atriðið varðar
mætti hugsa sér slíkt á þrjá mis-
munandi vegu á milli karls og konu:
a) samband á milli karls og konu
sem nánustu stuðningsmenn hvort
annars í lífinu, eða m.ö.o. „gagn-
kvæma hjálpara“ b) kynferðislegt
samband c) hjónaband. Karl Barth
leggur áherslu á að við eigum ekki
að ofmeta kynferðislegt samband
fólks eða hjónaband. Hvort mann-
eskja gifti sig eða ekki, eða hvort
hjón eignast barn eða ekki, getur
aldrei verið úrslitatriði þegar líf
fólks saman er metið að verðleikum.
Það mikilvægasta í sambandi karls
og konu er það að vera meðvitaður
um takmörk sín sem manneskja.
Með því einungis að skilja takmörk
sín getur sérhver manneskja með-
tekið eigin maka og hlotið farsæld
og blessun Guðs. Þannig er æðsti
hluti hjónabandsins einfaldlega það
„að lifa saman“.
Rök Barth eru skýr og ég er sam-
mála honum í þessum málum þegar
hér er komið við sögu. Nú fer hann
hins vegar að gefa sér ákveðna hluti
án þess að gera fyrir þeim sann-
færandi grein. Hann kemst t.d. að
þeirri niðurstöðu að kynjaskipting
og samkynhneigð sé flótti fólks frá
því að horfast í augu við tak-
markanir sínar. Hér finnst mér
rökstuðningur Barth bágborinn.
Hann fellur í sömu gryfju og ótal
margir fyrirrennarar hans: hans
eigið gildismat, tilfinning og hleypi-
dómar taka völdin og
frekari rökstuðningur
er látinn liggja á milli
hluta.
Mín spurning er ein-
föld: Hvers vegna geta
tveir karlmenn saman
eða tvær konur saman
ekki verið „gagn-
kvæmir hjálparar“ og
náð æðsta stigi sam-
bands einnar mann-
eskju við aðra? Þegar
betur er að gáð kemur
fram að Barth telur
nær ómögulegt að skil-
greina hvað sé „eðli“
karls eða konu. Það
sem við álítum „karl-
mennsku“ eða „kvenleika“ litast,
skv. Barth, fyrst og fremst af okkar
persónulegu skoðunum og tíðar-
anda hverju sinni. Hugmyndir okk-
ar um karla og konur eru því sí-
felldum breytingum háðar. Ef þetta
er rétt, hvers vegna verðum við að
leggja þá svona mikla áherslu á
skilin á milli karla og kvenna?
Þegar við notum hugtakið „gagn-
kvæmir hjálparar“ hugsum við
mörg fyrst og fremst um samband
karls og konu. Hugmyndin um karl
og konu sem gagnkvæma hjálpara
er að mínu mati bæði myndræn og
kynferðisleg. Hún er hins vegar
ekki guðfræðileg. Ef tilvera mann-
eskjunar er full takmarkana þá get-
um við ekki hugsað um manninn
eingöngu út frá líffræðilegu sjón-
arhorni, heldur verðum við að velta
fyrir okkur stöðu hans í guðfræði-
legu og heimspekilegu samhengi.
Hvers vegna þarf tiltekin mann-
eskja, sem bætir annarri manneskju
upp takmarkanir sínar og skort, að
vera af gagnstæðu kyni? Ég sé í
þessum æðsta skilningi á sambandi
einnar manneskju við aðra engin
rök fyrir því að viðurkenna ekki
samkynhneigð pör sem „gagn-
kvæma hjálpara“. Við skulum minn-
ast áminningar Karls Barth, jafnvel
þótt hann gleymi henni stundum
sjálfur, og ekki gera of mikið úr
kynferðislegum áherslum í sam-
skiptum kynjanna!
Líf sem einstakt tækifæri
Annað atriði sem mér finnst mik-
ilvægt að benda á varðandi málefni
samkynhneigðra er einstakleiki
mannlífsins. Þetta er ekki oft rætt,
en er þó atriði sem Barth leggur
mikla áherslu á í mismunandi sam-
hengi. Mig langar til að tengja þess-
ar hugleiðingar við umræðuna um
samkynhneigð.
Líf okkar mannanna er ekki eilíft.
Líf okkar er takmarkað með fæð-
ingu (eða meðgöngu) og dauða. Þótt
við séum tengd við eilífðina í trú
okkar á Guð þýðir það ekki að við
getum lifað endalaust hér á jörðinni.
Við fáum líf sem einstakt tækifæri
og þar sjáum við okkar eigin tak-
mörk. Þetta er mjög mikilvæg
trúarleg hugmynd fyrir trúað fólk.
Guð leyfir okkur aðeins að lifa lífi
okkar með þessum takmörkunum
og býst við því að við svörum með
ákalli til hans. Þess vegna hefur
Guð skapað hjálpara fyrir sérhverja
mannveru og samband milli þessara
tveggja manneskja birtist sem ást.
Ef við tökum þennan einstakleika
lífsins alvarlega, hvernig getur það
þá verið rétt fyrir augum Guðs að
hafna ástinni aðeins af því að hún er
milli fólks af sama kyni? Ef við af-
neitum ást í lífi mannsins erum við
þá ekki í raun að afneita heildarlífi
hans og persónu? Eiga samkyn-
hneigðir að ljúka lífi sínu án þess að
þekkja gleði og hjartanlega blessun
fyrir ást sína?
Að þessu leyti ber kirkjan þunga
ábyrgð í málinu. Þótt lög og sam-
félagskerfi batni og mannréttindi
séu tryggari en áður, þýðir það ekki
að andleg þörf fólks sé uppfyllt. Svo
framarlega sem viðhorf kirkjunnar
til samkynhneigðra er á þá leið að
„við sýnum ykkur samúð, en þið er-
uð ekki í lagi“, hvetur það þjóðfé-
lagið til að halda áfram að aðskilja
samkynhneigða frá „venjulegu“
fólki.
Jesús sagði við Pétur: „Ég mun
fá þér lykla himnaríkis, og hvað sem
þú bindur á jörðu, mun bundið á
himnum, og hvað sem þú leysir á
jörðu, mun leyst á himnum“. Drott-
inn gefur kirkjunni þetta himneska
vald. Kirkjan á að nota lyklana með
tillitssemi til einstakleika lífsins.
Þetta er mikið álag fyrir okkur trú-
að fólk, en lykillinn er í höndum
okkar til þess annað hvort að opna
eða að loka. Við getum ekki falið
hann og gleymt honum því að tím-
inn er ekki eilífur fyrir okkur.
Að lokum finnst mér rétt að tjá
persónulegt álit mitt í þessum mál-
efnum skýrt: samvist samkyn-
hneigðra skal líta á sem hjónaband
og vera vígt hjá prestum, ef þess er
óskað.
Samkynhneigð
og sköpun Guðs
Toshiki
Toma
Samkynhneigð
Samvist samkyn-
hneigðra, segir
Toshiki Toma, skal líta
á sem hjónaband og
vera vígt hjá prestum,
ef þess er óskað.
Höfundur er prestur innflytjenda.
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Mikið úrval
af blússum
frá kr. 2.900
Sæktu um talhólf fyrir heimilissímann á fiínum
sí›um á siminn.is, í fljónustuveri Símans 800 7000
e›a í verslunum Símans um allt land.
Talhólf er símsvari heimilisins
Ef flú sækir um fyrir 12. ágúst 2002 gætir
flú unni› fer› fyrir tvo til útlanda.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
N
M
0
6
6
2
2
/
si
a.
is
Panta›u talhólf fyrir 12. ágúst
Ertu a› fara í frí?
Ekki missa af símtölum, fá›u flér talhólf.
Kynntu flér máli› á innkápu
símaskrárinnar e›a á siminn.is
Verð frá
kr. 181.000.-
SLÁTTUTRAKTORAR
12,5 hp - 17 hp
FYRIR GARÐEIGENDUR SEM VILJA GÓÐ VERKFÆRI
SLÁTTUORF
ÞAR SEM GÓÐU GARÐVERKFÆRIN FÁST
31 cc
Létt og lipur.
Fyrir sumarbústaðinn og heimilið.
Öflugt hörkuorf
fyrir alvöru sláttumenn.
Sú mest selda.
3,5 hp - 6 hp
SLÁTTUORF GARÐSLÁTTUVÉAR
Verð
aðeins
kr.13.900.-
Verð frá
kr.17.500.-
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka, Glæsibæjarhreppi - Sími 461-1070
STÓRA THAILANDSFERÐ
Frábær ferð 16. okt. Lægsta verð.
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA
UNDRA-THAILANDSFERÐ
18. sept. Sími 56 20 400 - Tækifæri
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA