Morgunblaðið - 20.06.2002, Síða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 37
Fallinn er frá um
aldur fram okkar
vinnufélagi og vinur
Einar S. Leifsson.
Einar hóf störf hjá
Flugfélaginu Atlanta
hf. árið 1997 og
seinna hjá Suðurflugi á Keflavík-
urflugvelli og sinnti hann störfum
flugumsjónarmanns fyrir bæði fyr-
irtækin erlendis og hér á landi allt
fram á síðasta dag. Hann var vel
liðinn og átti mjög auðvelt með að
umgangast samstarfsfólk sitt og
minnumst við hjálpsemi hans,
þægilegs viðmóts og brosins sem
mætti okkur ávallt. Við kveðjum
nú hinsta sinni vinnufélaga okkar
með ljóðmælum Jónasar Hall-
grímssonar:
Vel sé þér, vinur,
þótt vikirðu skjótt
Frónbúum frá
í fegri heima.
Ljós var leið þín
og lífsfögnuður,
æðra, eilífan
þú öðlast nú.
Við vottum fjölskyldu Einars
okkar dýpstu samúð.
F.h. starfsfólks Flugfélagsins
Atlanta hf.
Hafþór Hafsteinsson.
Kveðja frá Suðurflugi
Hver dagur í okkar fyrirtæki
hefur verið áskorun, með ný verk-
efni til að vinna og takast á við.
Einar Leifsson kom til Suðurflugs
þegar fyrirtækið fékk leyfi til að
afgreiða ferjuflugvélar á Keflavík-
urflugvelli í ársbyrjun 1999. Hann
var þá einnig starfsmaður Atlanta
á Keflavíkurflugvelli. Markaðs-
svæði okkar er heimurinn og þar
kom reynsla hans í ljós ásamt
þjónustulund og hans góðu hæfi-
leikum að ná til fólks.
Í þessu sem og öðru sem hann
tók sér fyrir hendur, setti hann sig
inn í málin þannig að allir hlutir
voru ljósir frá honum til viðskipta-
vinanna. Það var unun að sjá
hvernig hann með framkomu sinni
náði að laða að fyrirtækinu við-
skiptavini og byggja upp traust frá
grunni og víst er að Suðurflug á
eftir að njóta þessara verka hans
um ókomin ár. Á þessum liðnu ár-
um var ekki spurt um klukku eða
lengd vaktar. Hann kláraði verk-
efnið og var ekki rólegur fyrr en
allt var klárað og afgreitt eins og
lofað var.
Hann lokaði sínu ferðaplani 6.
júní og við vitum að hann er búinn
að opna nýtt á nýjum stað. Það var
hann búinn að ræða við okkur og
hann hafði trú á framhaldið, þegar
að því kæmi. Eftir sitjum við og
söknum, ekki bara einstaks vinnu-
félaga, heldur vinar sem tilbúinn
var hvernig sem á stóð, að hjálpa
og leggja öðrum lið í hverju sem
var.
Aðstandendum öllum sendum
við samúðarkveðjur.
F.h. stjórnar og starfsmanna,
Sigurður Valur Ásbjarn-
arson, Davíð Jóhannsson.
Það er ekki langur spölur eftir
Hafnargötunni í Keflavík frá
Vatnsnesvegi að Faxabraut. Á ár-
unum fyrir 1960 og fram yfir 1970
var á þessu svæði stór hópur
barna og unglinga. Þarna þróaðist
vinátta manna á millum, sem hefur
haldist fram á þennan dag. Aðal-
áhugamálin voru íþróttir og tónlist
og snerust leikir okkar um það. Í
þessum hóp voru fræknir fótbolta-
EINAR SIGURBJÖRN
LEIFSSON
✝ Einar SigurbjörnLeifsson fæddist
í Keflavík 24. maí
1953. Hann varð
bráðkvaddur á heim-
ili sínu 6. júní síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Kefla-
víkurkirkju 19. júní.
menn sem náðu alla
leið í landsliðið. Má
þar nefna bræðurna
Magnús og Gísla
Torfasyni, Guðna
Kjartansson og Karl
Hermannsson. Þarna
voru einnig liðtækir
tónlistarmenn eins og
Siguróli Geirsson og
Guðmundur Her-
mannsson, svo dæmi
séu tekin. Við strák-
arnir bárum mikla
virðingu fyrir fót-
boltahetjunum. Þá var
einnig í hverfinu sér-
stakur höfðingi, Gunni Kalli. Hann
var töffarinn sem var í siglingum
og nutum við í ríkum mæli þess,
þegar hann kom heim og gaf okk-
ur ómælt útlent sælgæti sem ekki
var á hvers manns borði á þeim
tíma. Inn í þetta samfélag komum
við bræðurnir þegar við flytjum að
Hafnargötu 68 árið 1956. Fljótlega
eftir komu okkar kynnumst við
Einari Leifssyni sem var á svip-
uðum aldri og við. Einar var fljót-
lega greinilegt foringjaefni. Hann
var mjög öruggur og kunni vel að
koma fyrir sig orði. Ekki spillti að
á heimili foreldra hans var alltaf
pláss fyrir okkur strákana jafnvel
þó að við værum ekki alltaf stilltir.
Þetta er hér rifjað upp í dag
þegar við minnumst Einars Leifs-
sonar sem allt of ungur var kall-
aður á brott frá okkur.
Hann er sá þriðji í þessum hóp
sem kallaður er burt langt um ald-
ur fram. Fyrr eru farnir höfðing-
inn Gunni Kalli og tónskáldið Sig-
uróli.
Ég ætla mér ekki að fjalla um
lífshlaup Einars Leifssonar í smá-
atriðum. Hann fór sannarlega ekki
alltaf troðnar slóðir. Ungur fór
hann að vinna við útgerð og fisk-
vinnslu, í langan tíma vann hann
að þeim málum og öðlaðist mikla
þekkingu.
Reyndar lágu leiðir okkur sam-
an í þeim málum og var oft spjall-
að um þessi mál er okkar fundum
bar saman. Síðar á lífsleiðinni
vann hann að flugi, bæði hér
heima og erlendis, og vegnaði þar
vel.
Enn er kallið komið. Fyrir okk-
ur sem eftir sitjum er skýr minn-
ing um skemmtilegan og mynd-
arlegan ungan mann, sem var
góður og viðkvæmur vinur. Hug-
myndir hans voru á stundum
sveimkenndar, en hugmyndaflugið
mikið.
Ég vil fyrir hönd okkar bræðr-
anna Björns og Agnars Kristins-
sona færa foreldrum, systkinum og
börnum Einars okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Í okkar huga er
sterk minning um góðan dreng.
Jón Kr. Kristinsson.
Þegar harmafregnin barst mér
um andlát Einars æskufélaga míns
varð ég orðlaus. Við Einar vorum
vinir og nágrannar á Baldursgöt-
unni í Keflavík öll barna- og ung-
lingsárin. Þó svo að við Einar
hefðum verið miklir félagar í æsku
lágu leiðir okkar ekki saman fram
á fullorðinsárin. En þegar við rák-
umst hvor á annan á förnum vegi
voru ávallt miklir fagnaðarfundir,
nánast eins og að hitta bróður
sinn. Oft var farið í djúpar upprifj-
anir á atburðum löngu liðinna
tíma. Þegar horft er yfir farinn
veg og góður félagi kvaddur, hell-
ast yfir mann margar góðar og
skemmtilegar minningar.
Einars verður helst minnst fyrir
það hversu einlægur hann var,
glaðlyndur í fasi og mikill foringi.
Hann var skarpur og hafði ríka
réttlætiskennd. Ég man að jafn-
aldrar okkar litu alltaf upp til Ein-
ars. Hann var fjallmyndarlegur,
auk þess sem hann náði góðum ár-
angri í hverju sem hann tók sér
fyrir hendur. Hvort sem það var á
sviði athafna eða íþrótta, þá skilaði
hann ávallt góðu verki.
Á þessari erfiðu stundu votta ég
fjölskyldu Einars og aðstandend-
um mína dýpstu samúð.
Minningin um góðan dreng mun
lifa.
Hjálmtýr R. Baldursson.
Einar Leifsson er látinn, hann
lést á heimili sínu 6. júní sl. Frétt-
in kom eins og þruma úr heiðskíru
lofti. Hann Einar, sem geislaði af
hamingu og var ástfanginn út að
eyrum af Berglindi og lífið blasti
við, er látinn. Þetta gat bara ekki
verið satt. En svona getur lífið
verið ósanngjarnt.
Það eru bara átta ár liðin frá því
ég hitti hann Einar fyrst en ein-
hvern veginn finnst mér þó að árin
séu miklu, miklu fleiri. Ég og Ein-
ar vorum engir æskuvinir, við sótt-
um ekki fjölskylduboð eða afmæli
hjá hvor öðrum. Ég kann ekki að
skýra það almennilega en á ein-
hvern undarlegan hátt urðum við
perluvinir. Það var ekki hægt ann-
að en að kunna vel við hann Einar.
Hann var lítillátur og glaður með
allt sem hann hafði og átti. Leitaði
ekki eftir vegsemd eða mannafor-
ráðum. Hann gerði allt sem hann
gat til að gleðja aðra. Ég hefði
ekki viljað hafa hann neitt öðru-
vísi. Svona var hann Einar sem ég
þekkti og það er það sem skipti
mig máli. Blíðari mann hef ég ekki
hitt. Margar kaffistundirnar átti
ég með Einari og Krissa hjá Suð-
urflugi þar sem Einar starfaði síð-
ustu 6 árin. Sonur minn, nú 6 ára,
var yfirleitt með og undantekning-
arlaust tók Einar hann undir sinn
verndarvæng og lék við hann. Við
feðgarnir munum sakna Einars.
Núna er Einar farinn og eftir
sitja ástvinirnir. Ykkur öllum votta
ég samúð mína. Þið voruð honum
allt, fyrir ykkur lifði hann lífinu lif-
andi. Guð blessi ykkur öll.
Friðjón.
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
+3$<*
3$<
>F
?")86DE
?(
& !
"+
040
+
@
4
0
A
!
+ A+
!3# #+?(
!"3# ( 1 (
38 3:
( B? -( /*
'
3=55,:
'? -& 0
# "
(
+
#
$ ! &&
9" "# 8-B;(
- #
& &
( &*
)
4(
4A
!
(
+ (
!
:
,+$
9% (
0?F
+ 7-(
+
+?$*(
"%+?#
+? "+?( ;#
)&"+?( !)&#
!+?# 3 #1")(
#!+?# 8 +?(
&00&( &00&*
@
4
A
!
+ A+ (
= '?#'"*
: #!"0##
+?(*
$))
=
(
7 !
?0+
B;# *
@
4
0
A
!
+ A
+ (
!
+
= '? 7"
)- G
/ -! *
=
* 0
!"#
#!* # 5" $* "(
* ( +)* (
' ( 5/1 "#
& &
( &*