Morgunblaðið - 20.06.2002, Page 38

Morgunblaðið - 20.06.2002, Page 38
LANDIÐ 38 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ sem er einmitt núna. Ég þori ekki að fullyrða að túlipanar vaxi í öllum görðum, en óneitanlega eru þeir fjöl- margir garðarnir, sem skarta túlip- önum einmitt þessa dagana. En það eru ekki bara einkagarðar. Hér í Reykjavík gleðja túlipanabreiður með- fram Miklubrautinni augu þreyttra bíl- stjóra og aksturspirr- ingurinn hlýtur að minnka til muna með- an silast er áfram í langri lest. Það væri athugandi að gróður- setja meira af túlipön- um í Grafarvoginum, ekki bara á umferðar- eyjunum, sem eru margar hverjar mjög fjölbreyttar og falleg- ar í því hverfi. Þetta átti nú ekki að verða um- ferðarpistill, svo best er að snúa sér beint að blómi dagsins, túlipananum. Einhvern veginn finnst manni ósjálf- rátt að það séu rauðir túlipanar og gular páskaliljur og þar með basta, en málið er alls ekki svona einfalt. Bæði blómlitur og lögun túlipana er ótrúlega fjölbreyttur. Litirnir spanna nær allt litrófið frá hvítu yfir í blásvart, það er helst að hreinan bláan túlipanalit vantar, en ég skal hreint ekki þvertaka fyrir að einhver sé ekki búinn að búa til bláan túlip- ana. Þessir túlipanar, sem við þekkj- um hvað best, eru nefnilega leikföng garðyrkjumanna. Um aldir og jafn- vel árþúsundir hafa þeir leikið sér með að finna nýjar litasamsetningar, sem skipta orðið hundruðum, og nýja blómlögun. Þó er enn til dálítið af villitúlipön- um, það er hreinum tegundum, sem líkjast forfeðrum sínum að nær öllu leyti. Hversu margar tegundir villitúlipana eru til er dálítið á reiki, en það er varla ofmælt að telja þær á bilinu 30–50. Nýjasta tegundin í „safninu“ mínu er fjólutúlipani, T. pulchella, sem hefur reyndar nokkr- ar undirtegundir. Segja má að fjólu- túlipaninn sé dæmigerður villitúlip- ani, upprunninn í Litlu-Asíu, eins og flestir villitúlipanar, þótt nokkrir komi frá fjallahéruðum S-Evrópu og jafnvel allt austur frá Himalaja. Fjólutúlipani hefur mjög mjó lauf- blöð, sem sitja í hvirfingu niður við jörð, en vaxa ekki upp eftir leggnum, eins og hjá garðatúlipönum. Blöðin eru grágræn á lit, með dálítið rauð- leitri slikju og blómleggurinn stutt- ur, 10–15 cm. Undirtegundirnar eru dálítið mismunandi á litinn, t.d. er T. pulchella var. humilis ljósfjólublár, en var. violacea er dökkpurpura- rauður og blómin nær skállaga. Mið- að við nafnið er þetta afbrigði hinn eini sanni fjólutúlipani. Fjólu- túlipaninn hefur þennan fallega purpurarauða lit að utanverðu, en þegar sólin skín opnar hann blómið móti sólu og þá sjást gulur blóm- botninn og dökkir fræflarnir vel. Ég var svo heppin að detta niður á fjólu- túlipanann af algerri tilviljun og vissi ekkert hvernig hann myndi reynast hér. En nú hefur hann blómstrað í tvö vor og greinilega náð að fjölga laukunum, þannig að ég mæli hik- laust með honum sem kærkominni viðbót við aðra villitúlipana, sem þrífast hér með ágætum, svo sem T. tarda, sveip- eða stjörnutúlipana, sem er nú á haustlaukalista G.Í., T. urumiensis, eða dvergtúlipana, og dalatúlipana eða T. turkestanica. Þessir þrír hafa allir mjó blöð eins og fjólutúlipaninn og eru svipaðir á hæð. Ekki má ljúka svo rabbi um villitúlipana að ekki sé minnst á að kaupmannatúlipani tilheyrir þessum hópi, þótt hann sé með breiðari blöð. Sameiginlegt fyrir þá villitúlipana, sem hér hafa verið ræktaðir, er að þeir blómstra fyrr og eru lágvaxnari en garðatúlipanar og þannig má lengja túlipanatímabilið verulega. TÍMABILIN í garðinum eru fjöl- mörg, það eru ekki bara þau sem við notum venjulega, vor, sumar, haust og vetur, ekki aldeilis. Nú er tímabil smálaukanna að mestu liðið, en tímabil annarra lauka gengið í garð, tímabil túlip- ananna. Svo tekur við tími snemmblómstr- andi fjölæringa, svo sem steinbrjóta og fjölmargra smá- plantna, þá taka við bóndarósirnar og aðr- ir fjölæringar, sem blómstra um mitt sumar. Ekki má gleyma risunum í garðinum eins og skjaldmeyjarblóm- um, bláfífli og stokk- rós, sem eru heldur seinna á ferðinni, eða þá sjálfum rósunum. Og loks koma haustblómin, svo sem hosta og haustlilja svo eitthvað sé nefnt. Og öll þessi tímabil tengja svo sumar- blómin. En það var tímabil túlipananna, Fjólutúlipani – T. pulchella var. violacea. Villitúlipanar – fjólutúlipani S.Hj. VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r 473. þáttur EFTIR ágæta byrjun og oft á tíðum góða spilamennsku á Evrópumótinu í brids mættu Íslendingar ofjörlum sínum í 9. umferð í gær: ítalska liðinu í banastuði á sýningartöflunni. Þessar þjóðir voru þá í 1. og 2. sæti á mótinu en úrslit leiksins urðu 25:5 fyrir Ítala, 21:70 í imp-stigum, og við það fóru Ís- lendingar niður í 6. sæti með 161 stig. Ítalir styrktu stöðu sína í efsta sæti, höfðu 196 stig. Norðmenn voru í 2. sæti með 178 stig, Spánverjar höfðu 168 stig, Búlgarar og Frakkar 162, Hollendingar 159, Ísraelsmenn 155, Tékkar 154 og Rússar 153. Ítalir stilltu sterkustu pörum sín- um upp gegn Íslandi, þeim Lorenzo Lauria og Alfredo Versace annars vegar og Norberto Bocchi og Giorgio Duboin hins vegar. Þetta hafa verið sterkustu pör Evrópu allan síðasta áratug og sú reynsla skilaði mörgum stigum gegn Íslendingum í gær sem gerðu sig seka um ónákvæmni í nokkrum spilum og var jafnan refsað harðlega. Að auki virtust Ítalirnir stundum sjá öll spilin: Norður ♠ ÁD64 ♥ 543 ♦ ÁG1074 ♣6 Vestur Austur ♠ 10873 ♠ KG2 ♥ ÁK10876 ♥ G9 ♦ D8 ♦ 43 ♣10 ♣KG9872 Suður ♠ 95 ♥ D2 ♦ K965 ♣ÁD543 Við annað borðið sátu Steinar Jónsson og Stefán Jóhannsson í NS gegn Bocchi og Duboin. Stefán opn- aði á 1 laufi með suðurspilin, Bocchi í vestur sagði 1 hjarta og Steinar dobl- aði til úttektar. Stefán sagði 2 lauf, Bocchi sagði 2 hjörtu og það varð lokasamningurinn. Á endanum fékk sagnhafi 9 slagi og Ítalir 140. Við hitt borðið sátu Þröstur Ingi- marsson og Bjarni Einarsson AV gegn Lauria og Versace. Vestur Norður Austur Suður Þröstur Lauria Bjarni Versace 1 lauf 1 hjarta dobl pass 1 grand pass 3 grönd// Hefði Þröstur hitt á að taka hjarta- ás og kóng hefði sagan ekki orðið lengri en hann spilaði eðlilega út hjartaáttunni. Versace fékk slaginn á drottninguna heima og tók síðan fimm tígulslagi. Þröstur í vestur henti fyrst laufatíunni og síðan tveimur spöðum og Bjarni í austur henti þremur laufum. Versace hefur án efa lesið hjartalengdina rétt, fyrst austur henti ekki einu hjarta, og því átti Þröstur nú eftir tvö svört spil. Vers- ace byrjaði á að taka spaðaás, ef Þröstur skyldi eiga kónginn stakan eftir, og svínaði síðan laufadrottning- unni. 9 slagir, 400 til Ítala og 11 stig. Versace kann einnig að hafa reiknað með því að Þröstur hefði e.t.v. byrjað á ÁK í hjarta ef hann hefði átt laufa- kónginn og þar með nokkuð örugga innkomu. Íslenska liðið náði aðeins að rétta hlut sinn í þessu spili: Norður gefur, AV á hættu. Norður ♠ KDG106 ♥ 6 ♦ K8 ♣Á10984 Vestur Austur ♠ 9754 ♠ 82 ♥ 109842 ♥ K7 ♦ G94 ♦ ÁD7653 ♣G ♣D53 Suður ♠ Á3 ♥ ÁDG53 ♦ 102 ♣K762 Þeir Þröstur og Bjarni sögðu eðli- lega á spilið við annað borðið þar sem þeir sátu NS. Þröstur í norður byrjaði á 1 spaða, Bjarni sagði 2 hjörtu og Þröstur 3 lauf. Eftir nokkrar slemmuþreifingar endaði Þröstur í 5 laufum og fékk 12 slagi eftir að austur spilaði út tígulás, 420 til Íslands. Við hitt borðið opnaði Bocchi einn- ig á spaða og Duboin krafði í geim með 2 hjörtum. Bocchi sagði þá 2 spaða og Duboin 2 grönd. Bocchi sagði nú 3 lauf og Duboin lauk sögn- um með 3 gröndum í suður; býsna sérkennilegur lokasamningur þegar horft er á öll spilin. Stefán í vestur hugsaði nokkuð um útspilið en valdi loks tígulfjarkann. Hefði Duboin látið lítið í blindum var tígulliturinn stíflaður en sagnhafi sá ekki öll spilin og stakk því upp tíg- ulkóng. Nú var eftirleikurinn auð- veldur fyrir Stefán og Steinar, sem tóku fyrstu sex slagina á tígul, 100 til Íslands og 11 stig. Ítalir reyndust of- jarlar Íslendinga BRIDS Evrópumótið í brids er haldið í Salsomag- giore á Ítalíu dagana 16.–29. júní. Ísland tekur þátt í opnum flokki og kvenna- flokki. Heimasíða mótsins er http:// www.eurobridge.org Guðm. Sv. Hermannsson ÞAÐ er ekki algengt að hitta fyrir mælingaflokk sem eingöngu er skip- aður þremur ungum konum. Mæl- ingavinna hefur gegnum tíðina verið eitt af þessum karlavígjum sem oftar en ekki hafa skartað einni og einni konu upp á punt. Þær Eva Björk Björnsdóttir, Rak- el Jónsdóttir og Hjördís Lára Hreinsdóttir skipa mælingaflokk hjá Vegagerðinni sem er að vinna að því að ná utan um landshæðarkerfið með því að hæðarmæla fasta punkta með- fram öllum hringveginum. Þær stöllur voru að hæðarmæla við Gilsá á Jökuldal á dögunum en nú standa yfir mælingar á hringvegin- um um Möðrudals- og Mývatns- öræfi. Að sögn Jóns Helgasonar hjá Vegagerð ríkisins er þetta sam- starfsverkefni Vegagerðarinnar, Landmælinga Íslands og Lands- virkjunar sem miðar að því að búa til hæðarkerfi sem nýtist öllum og get- ur verið grunnur að því að vita hæð á öllum framkvæmdum í landinu: „Þurfum að hengja hæðarkerfið á meðalsjó“. Þetta samstarfsverkefni byrjaði með endurmælingu á öllu hnitakerfi í landinu árið 1993 þegar farið var að GPS-mæla kerfið, en mælingar Vegagerðarinnar hafa staðið frá 1995 með hringveginum. Þegar hringnum er lokið verður mælt yfir hálendið og á Vestfirði og Snæfells- nes til dæmis. Jón sagði það langt komið að mæla með hringveginum og verður klárað á næsta ári. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Eva Björk Björnsdóttir, Rakel Jónsdóttir og Hjördís Lára Hreinsdóttir skipa mælingaflokk hjá Vegagerðinni sem er að vinna að því að hæð- armæla fasta punkta með hringveginum. Það er hluti af landshæð- arkerfi, sem nýtast mun við allar framkvæmdir í landinu. Mæla fasta punkta meðfram hringveginum Norður-Hérað NEMENDUR í Grundaskóla á Akranesi hafa notið þess á und- anförnum vikum að vera að mestu útivið í kennslustundum. Margt hefur verið í boði fyrir börnin, gróðursetning, óvissuferðir, hjól- reiðaferðir og „HM“-leikar skól- ans. Það er margt sem þarf að at- huga á vorin og meðal þess eru reiðhjólin. Pétur Elíasson lög- reglumaður brá sér í óvissuferð með börnum úr skólanum og „tók út“ reiðfáka þeirra og benti þeim á hvað mætti laga. Elísa Svala Elvarsdóttir og Sigríður Indriða- dóttir kennari fengu góð ráð hjá lögreglumanninum. Morgunblaðið/Sig. Elvar Með löggu í óvissuferð Akranes

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.