Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 43
Föstudaginn 21. júní ver Að- alheiður Guð- mundsdóttir, cand. mag. í ís- lenskum bók- menntum, rit- gerð sína Úlfhams saga. Andmælendur eru dr. Jürg Glauser, pró- fessor í Zürich, og dr. Svanhild- ur Óskarsdóttir, fræðimaður á Stofnun Árna Magnússonar. Vil- hjálmur Árnason, forseti heim- spekideildar, stjórnar athöfn- inni. Í frétt frá Háskólanum segir: „Úlfhams saga segir frá Hálf- dani vargstakki Gautakonungi og Úlfhami syni hans og átök- um þeirra feðga við menn og vættir. Hún er dæmi um bók- menntaverk sem á sér enga varðveitta frumgerð en birtist í ýmsum myndum: í rímnaflokki frá miðöldum, sem líklega á rætur að rekja til glataðrar sögu í lausu máli, og í þremur harla ólíkum lausamálsgerðum, frá 17., 18. og 19. öld, sem eiga beint eða óbeint rætur að rekja til rímnanna. Allar þessar gerðir eru prentaðar í útgáf- unni, textarnir stafrétt eftir elstu handritum með orðamun annarra handrita neðanmáls. Í inngangi er lýsing handrita og rannsókn á sambandi gerðanna, en meginefni hans er rannsókn á sögunni. Þar eru leidd rök að því að hin glataða frumsaga hafi verið fornaldarsaga, og eru helstu þættir hennar teknir til umfjöllunar. Rækileg rannsókn er á helstu minnum sögunnar, svo sem stjúpu- og álagaminni og varúlfsminni sem gegna miklu hlutverki og eru hér sett í samhengi við íslenskar og aðrar evrópskar miðaldasögur. Þá er rækileg úttekt á hlið- stæðum í öðrum íslenskum fornsögum. Þótt þeir Varg- stakkur og Úlfhamur séu aðal- persónur má kalla að konur skapi þeim örlög, ýmist með ill- um álögum og göldrum eða heillaráðum og góðum göldrum sem leysa kappana úr hinum mestu nauðum. Útgáfa þessi og rannsókn er sérstæð fyrir það að hún sýnir hvernig ákveðin saga lifir gegnum aldir en er löguð að ólíkum aðstæðum og frásagnaraðferðum. Aðalheiður Guðmundsdóttir, f. 1965, lauk BA-prófi í íslensku frá Háskóla Íslands 1989 og cand. mag.-prófi í íslenskum bókmenntum frá sama skóla 1993. Hún er stundakennari í þjóðfræði við Háskóla Íslands, en hefur auk þess unnið að ýms- um verkefnum, að mestu með aðstöðu á Stofnun Árna Magn- ússonar. Hún hefur birt greinar um miðaldabókmenntir og þjóð- fræði í fagtímaritum. Aðalheiður á þrjú börn; Krist- ínu Lovísu (f. 1988) og Jónas Orra (f. 1992) af fyrra hjóna- bandi og Ólaf Dofra (f. 2001) með eiginmanni sínum Guðvarði Má Gunnlaugssyni handrita- fræðingi. Doktorsvörnin fer fram í Lögbergi föstudaginn 21. júní kl. 14.00.“ Doktorsvörn við Háskóla Íslands – Úlfhams saga Aðalheiður Guðmundsdóttir FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 43 „ÞAÐ er ríkisvaldinu til háborinn- ar skammar að öryrkjar og lág- tekjufólk þurfi að standa í bið- röðum hjá Mæðrastyrksnefnd og Hjálparstofnun kirkjunnar í jafn ríku þjóðfélagi og Ísland er,“ segir í ályktun Sjálfsbjargar landssam- band fatlaðra um kjaramál á 31. þingi þess sem haldið var 7. til 9. júní. Í ályktuninni er skorað á rík- isstjórn og Alþingi að breyta al- mannatryggingalögunum þannig að örorkubætur verði 80% af meðal- launum verkamanns, en árið 2001 námu þau 166.000 krónum, segir í ályktuninni. Sjálfsbjörg bendir á að fyrir þremur árum hafi Alþingi breytt lögum um fæðingarorlof þannig að nú sé orlofið 80% af þeim launum sem viðkomandi hafði fyrir töku orlofsins. Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins er áætlað að greiðslur vegna þessa aukist úr 1.638 millj- ónum króna á árinu 2000 í 5.334 milljónir á árinu 2003. Því telur Sjálfsbjörg það gefa auga leið að ef vilji er fyrir hendi sé skortur á fjármagni ekki vandamálið til að standa straum af kostnaði við þess- ar breytingar. Þá segir í ályktun Sjálfsbjargar að með slíkri leiðréttingu verði al- mannatryggingakerfið gegnsætt og stórfé muni sparast þar sem ekki þurfi lengur dýrt og flókið tölvu- kerfi til að reikna út og halda utan um slík réttindi og sé því fé betur varið til að greiða fólki betri laun. Í ályktuninni segir einnig að fyr- ir liggi að hluti ríkissjóðs í lífeyr- isgreiðslum fari minnkandi vegna aukinnar hlutdeildar lífeyrissjóða og áætla megi að eftir 12 til 15 ár verði kostnaður ríkissjóðs mun lægri en í dag og því ætti ekki að hafa mikil áhrif á rekstur hans þó aukin útgjöld yrðu á þessu sviði. Reglum um bifreiðakaupa- styrki hreyfihamlaðra verði breytt Þá var lögð fram á þinginu ályktun um bifreiðamál hreyfi- hamlaðra þar sem skorað er á heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra að breyta þegar í stað reglum og reglugerð um bifreiðakaupastyrki hreyfihamlaðra. Bifreiðar hreyfi- hamlaðra séu hjálpartæki sem þeir noti til sjálfstæðrar búsetu og þátt- töku í athöfnum samfélagsins, og gerir Landsbjörg þá kröfu að nú- verandi reglum, sem mismuna hreyfihömluðum einstaklingum hvað varðar búsetu, hjúskapar- stöðu og tekjur, verði breytt. Einnig var á þingi Landsbjargar samþykkt ályktun þar sem því er beint til sveitarfélaga á landinu að þau tryggi fötluðum ferðaþjónustu sem fullnægi þörfum hvers og eins. Ekki sé ásættanlegt að stór hópur fatlaðra búi við takmarkaðan ferða- fjölda og geti ekki pantað ferðir samdægurs. Góð ferðaþjónusta efli þjóðfélagsþátttöku fatlaðra. Ályktanir 31. þings Sjálfsbjargar Örorkubætur nemi 80% af meðallaun- um verkamanns ERLA Stefánsdóttir sjáandi verður með Jónsmessuferð um álfabyggðir Hafnarfjarðar föstudaginn 21. júní kl. 22.30 frá Upplýsingamiðstöð Hafnarfjarðar. Farið verður með rútu á þá staði sem mesta kraftinn gefa og sumarsólstöðum fagnað. Samkvæmt gamalli íslenskri þjóðtrú verða óskasteinar virkir á Jónsmessunótt. Um miðnæturbil verður dansað í kringum óska- stundina. Fjöldi sæta er takmarkaður og því er nauðsynlegt að bóka sig í ferðina hjá Upplýsingamiðstöð Hafnarfjarðar, Vesturgötu 8, sam- kvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu. Jónsmessu- ferð um álfa- byggðir Hafn- arfjarðar FJÓRÐA skógarganga sumarsins, í röð gangna á vegum skógræktar- félaganna í fræðslusamstarfi þeirra við Búnaðarbanka Íslands, verður fimmtudagskvöldið 20. júní. Skógar- göngurnar eru skipulagðar í sam- vinnu við Ferðafélag Íslands og eru ókeypis og öllum opnar. Þessi skóg- arganga er í umsjá Skógræktar- félags Kjósarhrepps. Þátttakendur mæti eigi síðar en kl. 20.00 við félagsheimilið Fé- lagsgarð í Kjós, sem er við þjóðveg- inn sunnan Laxár. Þaðan verður haldið að skógræktargirðingunni í Vindáshlíð og gengið um skóginn undir leiðsögn staðkunnugra. Gang- an tekur um klukkustund og er við allra hæfi. Fjórða skógar- gangan í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.