Morgunblaðið - 20.06.2002, Qupperneq 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!! "
#
$
%
&
'() *+,-,.
Hunang
föstudag
og laugardag
!"#$ %" "& ' """"(")" "*"+ ) %", "+-
#$ "" " "./01) 2))&" "3%4"1 $%& ' % +")"5) 4 ++"*"%
+" " 6"7$ "8 9"7$ 9": &9"5;* ")"5"*"5$9"3 * "< 9"=
)"*"3%( 9" "5( ">"%")"7#
(
(
) **' +
,- +.+
/ !! +
<) ?%%
@%
"7)0
@%
@%
7"3& A"31)0
31 B 1
5;%
C)"<
2 ")
?"2
A "=)&D
EEE"C)0 "1
? )"A)1
7
8/
" %
5)4
:
" %
" %
@%
< "5)
="<D
%
FD
#
G) /14
#1"?%%"31)0
? 1;&" 5
:1
.)HI" .)HI"3)
7
#1".".
= "3/
AJ
=) " %"+"
)
8"0"":"2)%
3)4 A"#)"#1"=KL"M
EEE"C)0 "1
3)" )%"#1"F"2)
"5))
") " 8 "N"K"O1)
P"P"P/)
5) "C)
B "L "#1"%
.)HI"
N":
Q '"
5 )
#1"O4 "7
3)
G
3&)
3)
.)HI
.)HI
?5O
G
3)
3)
"2
G
3)
:)"C/)
3)
G
F
3)
G
5
?&&1
G
F
.)HI
?5O
?5O
R "$
G
3)
HVERNIG sem á það er
litið er hér á ferðinni
sannkallað gullkorn.
Nýja platan Untouch-
ables kostaði Korn-liða
gullklump og annan, ku
ein sú dýrasta í framleiðslu sem gerð hefur ver-
ið. En þeim virðist ekki ætlað að fara á haus-
inn því platan er nú rifin út úr plötubúðum um
heim allan og er á góðri leið með að landa
hverri gullplötunni á fætur annarri. Og hér á
landi hrifsar Korn gullið af Eminem sem verður
að sætta sig við silfrið að þessu sinni. Glöggir
telja sig greina visst afturhvarf á Untouchables
til brautryðjendaverkanna Korn og Follow the
Leader bæði í anda og efni. Stóriðjurokk í anda
Fugazi og Ministry hefur verið nefnt til sög-
unnar í þeim efnum og Davis þykir jafnvel enn
dýpra sokkinn í angist og veruleikaflótta.
Dæmi þó hver fyrir sig sjálfur.
Gullkorn!
ÞEIR eru á leiðinni, alltaf á
leiðinni, skosku piltarnir í
Travis. Sveitin heldur tón-
leika í Laugardalshöllinni
4. júlí, dyggilega studd
hinni íslensku Leaves,
uppstilling sem eflaust
virkar girnileg á tónlistaráhugamenn landsins.
Af öðrum smærri uppákomum Travis á næst-
unni er það að frétta að sveitin verður í aðal-
hlutverki á Hróarskelduhítíðinni í Danmörku
um næstu mánaðamót og á V2002 hátíðinni
bresku síðar í sumar.
Þriðja plata sveitarinnar, The Invisible Band,
kom út á síðasta ári og seldist býsna vel, líkt
og forverinn, hin lífseiga The Man Who, en nú í
ljósi tónleikanna í Höllinni virðist The Invisible
Band ætla að öðlast nýja lífdaga, sem vonlegt
er, og má einnig búast við söluaukningu á fyrri
plötunum tveimur.
Á leiðinni!
BRITNEY Spears er sívinsæl
hér á Stormskeri og hafa plöt-
ur hennar þrjár allar selst með
miklum ágætum hérlendis. En
það eru ekki alltaf jólin hjá
stóru stjörnunum. Undanfarið
hefur Britney sleikt sár sín eftir
sambandsslitin við Justin
Timberlake og í ofanálag hefur
hún nú verið þjófkennd. Tónlistarmennirnir
Michael Cottrill og Lawrence Wnukowski halda
því nefnilega fram að tvö lög á plötu hennar
Oops! ... I Did it Again séu byggð á laginu
„What You See Is What You Get“, sem þeir
segjast hafa sent henni árið 1999 en fengið
synjun. Cottrill og Wnukowski segja lögin
„What U See (Is What U Get)“ og „Can’t Make
You Love Me,“ klárlega byggð á lagi sínu. Á
plötunni Oops! ... I Did it Again eru lögin hins
vegar sögð eftir nokkra lagasmiði á vegum
sænska útgáfufyrirtækisins Cheiron Studios.
Þjófótt?
ENGUM sögum hefur farið
af því hvort David Bowie sé
að lýsa yfir trúarskoðun
sinni með því að nefna nýj-
ustu plötu sína Heathen. Í
það minnsta hefur hann
aldrei talist til guðræknari
manna.
Á Heathen nýtur Bowie aðstoðar gamla upp-
tökustjórans síns Tonys Viscontis, þess sama
og stjórnaði upptökum á plötum Bowies á átt-
unda áratugnum, þ.á.m. meistaraverkunum
The Man Who Sold The World, Hunky Dory og
The Rise and Fall of Ziggy Stardust and The
Spiders From Mars. Ekki má heldur gleyma rík-
um þætti Viscontis í gerð Berlínar-þrennu
Bowie. Síðasta platan sem Visconti stýrði fyrir
Bowie á undan Heathen var svo Scary Monst-
ers (and Super Creeps) en sumir gagnrýnendur
telja sig greina ákveðinn samhljóm milli hennar
og Heathen.
Visconti!
WILCO telst
ásamt Ryan
Adams, Lambchop,
Whiskeytown og
Bonnie Prince
Billy til framvarða
sveitarokksenunnar sem farið hefur
svo mikinn upp á síðkastið. Til að
greina Wilco frá ofannefndum lista-
mönnum, og að þeim ólöstuðum, þá
hefur tónlistarsköpun hennar um
margt verið ívið tilraunakenndari,
óútreiknanlegri. En þeirri greiningu
eru eflaust einhverjir gegnheilir
sveitarokkarar ósammála.
En það má þó samt auðveldlega
greina þessi sérkenni Wilco á nýju
plötunni, Yankee Hotel Foxtrot,
sem telst vera fjórða plata sveitar-
innaref frá eru taldar Mermaid
Avenue-plöturnar tvær sem hún
gerði í slagtogi við Billy Bragg og
innhélt lög byggð á gömlum Woody
Guthrie-ljóðum.
Og það var trúlega vegna óút-
reiknanleikans sem útgáfufyrirtæki
Wilco, Warner-risinn, hreinlega
treysti sér ekki til að gefa út um-
rædda plötu í þessari mynd, fór
fram á að hún yrði gerð aðgengilegri
og fékk að sjálfsögðu synjun. Til
allrar hamingju!
Það hefði nefnilega ekkert mátt
fara öðruvísi á þessari snilldarskífu.
Rætur sveitarokksins eru orðnar
fjarlægari og ennþá erfiðara að
draga tónlist Wilco í dilka, eitthvað
sveita, eitthvað bítla, eitthvað fram-
úrstefnu, eitthvað öðruvísi. Eitt er
víst að hún er alltaf áhugaverð, alltaf
djörf og leitandi. Tilraunakennd og
tormelt á köflum en um leiðblátt
áfram og næsta útvarpsvæn. Sam-
setning sem kallar vissulega á þol-
inmæði en sé hún veitt þá uppsker
maður einhverja ánægjulegustu tón-
listarupplifun ársins, það sem af er.
Tónlist
Við viljum
Wilco!
Wilco
Yankee Hotel Foxtrot
Nonesuch
Erfið meðganga þessarar fjórðu plötu
hinnar bandarísku Wilco kostaði sveitina
bæði liðsmenn og plötusamninginn. Var
það þess virði? Skarphéðinn Guðmundsson
Lykillög: „Radio Cure“, „Jesus,
Etc.“, „Ashes of American Flags“.
„OFANÍ vatnstankinn með þig!
Umm…þetta er svo þægilegt. Það
er eins og það sé verið að nudda á
mér tóneyrað með ofurmjúkri
sápu, sem gefur af sér róandi ang-
an. Þægilegur höfgi svífur yfir
mig…“
Sveimtónlistin,
það sem á ensku
er kallað ambient,
er búið að vera
tískufyrirbrigði í
dægurtónlist um
langt skeið. Raf/
danstónlistin hefur fóstrað eigið af-
brigði um tíma, og ætli það hafi
ekki verið bresku æringjarnir í
Orb sem hafi stimplað þetta inn í
hausinn á raftónlistarhlustendum
upp úr 1990 með góðri hjálp frá
landa sínum Richard D. James,
betur þekktur sem Aphex Twin.
Íslendingar hafa að sjálfsögðu
ekki farið varhluta af þessu. Fram-
an af bar þó ekki mikið á útgáfu en
allt breyttist þegar Þórhallur
Skúlason og kátir kappar hans í
Thule tóku sig til og spenntu upp
myndarlega regnhlíf til að skýla
öllum þessum íslensku raftónlist-
armönnum. Þeir gátu því loks
skriðið út úr holunum, en margir
þeirra voru farnir að skjóta rótum í
herberginu sínu, springandi úr
sköpunargleði, með kjöltutölvurnar
í … ja … kjöltunni.
Thule rekur undirmerki sem
sinna hinum ólíku tónlistarstefnum.
Uni:Form er eitt þeirra og þar er
lenskan sveimtónlist. Og fyrir
stuttu kom þessi diskur út, vold-
ugur pakki þar sem safnað er sam-
an sveim-vænum lögum frá ýmsum
listamönnum og frá ýmsum tímum.
Tilfinningin sem umlykur mann
þegar maður rennir diskunum í
gegn stendur ekki fjarri texta-
brotinu sem fyrir kemur í upphafi
þessa dóms. Tilfinning sem rís þeg-
ar gott sveim er í gangi þannig að
samsetningin hér gengur vel upp.
Sum lög smá poppuð, sum lög
svolítið súr en rauði þráðurinn er
mjúkt, þægilegt og vel skrifað
sveim. Ummm… músí mús…
Hápunktar: Ilo („Tif“), Ruxpin
(„Flying“ og „First Contact“),
Trabant („Superman (Worm is
green remix)“), Worm is green
(„Sour muzik“), Biogen („Afloat“),
Pyro Technix („Timeline“), Kanada
(„Nitro (múm remix)“) og Ozy
(„Alltaf eins“).
Hér er á ferðinni glæsileg útgáfa
sem er fagmannlega unnin á allan
hátt og ætti að hugnast lærðum
sem leikum. Plata sem á vænt-
anlega eftir að bera hróður ís-
lenskrar raftónlistar samtímans
víðar.
Tónlist
Umlykj-
andi,
þyngdar-
laust sveim
Ýmsir
42 more things to do in zero
gravity/part one
Uni:Form/Thule
42 more things to do in zero gravity/part
one er tvöfaldur sveimsafndiskur með
listamönnum sem allir tengjast, á einn
eða annan hátt, íslenska útgáfufyrirtæk-
inu Thule. Lög eiga múm, Einoma, Frank
Murder und E.V.A., Ilo, Sensorama, Volk,
Underground Family, Krilli, Ruxpin, Thor,
Trabant, Worm is green, Rhythm of snow,
Biogen, Pyro Technix, Kanada, Ozy og
Joli Bjorn. Endurhljóðblandanir eiga Trab-
ant, Worm is green og múm.
Arnar Eggert Thoroddsen
FASTEIGNIR
mbl.is