Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 1
174. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 27. JÚLÍ 2002 ÁTÖKIN fyrir botni Miðjarðarhafs undanfarin tvö ár hafa valdið því að mun fleiri palestínsk börn þjást af vannæringu en áður. Ef marka má bráðabirgðaniðurstöður rannsókn- ar, sem Þróunarstofnun Bandaríkj- anna hefur látið gera, þjást nú 30% allra palestínskra barna undir sex ára aldri af viðvarandi vannæringu en sambærileg tala var 7% fyrir tveimur árum síðan, áður en allt fór í bál og brand í samskiptum Ísraela og Palestínumanna. Niðurstöður rannsóknarinnar verða kunngjörðar 5. ágúst nk. en bráðabirgðaniðurstöðurnar valda ísraelskum stjórnvöldum nokkrum áhyggjum enda hefur Bandaríkja- stjórn þrýst á um það að Ísraelar gerðu íbúum á heimastjórnarsvæð- um Palestínumanna kleift að lifa eðlilegu lífi. Hyggst Shimon Peres, utanríkisráðherra Ísraels, ræða málið við Ariel Sharon, forsætisráð- herra. „Hann [Peres] vill snúa þessari þróun við, ekki aðeins af pólitískum ástæðum, heldur einnig af siðferði- legum ástæðum,“ sagði Yoram Dori, talsmaður ráðherrans. „Hann hefur miklar áhyggjur af stöðunni.“ Undanfarin tvö ár hafa Palestínu- menn ekki getað farið frjálsir ferða sinna um heimastjórnarsvæðin eða til Ísraels og margir hafa ekki getað sótt vinnu. Þá hafa Ísraelar hætt að greiða palestínsku heimastjórninni þá tolla og skatta sem henni ber. Ísraelar hafa sagt þessar aðgerðir nauðsynlegar til að bregðast við hryðjuverkavánni frá palestínskum öfgamönnum en allt hefur þetta hins vegar haft afar slæm áhrif á aðbún- að palestínskra fjölskyldna, tæki- færi þeirra til að afla sér tekna og færa björg í bú. Fjórir landnemar myrtir Fjórir ísraelskir landnemar voru skotnir til bana í tveimur árásum suður af borginni Hebron á Vest- urbakkanum um miðjan dag í gær. Að sögn talsmanna ísraelska hersins sátu palestínskir byssumenn fyrir tveimur bílum er voru á ferð í land- nemabyggðum gyðinga. Í öðrum bílnum myrtu þeir þriggja manna fjölskyldu, þ.m.t. lítið barn, en í hin- um bílnum lést einn karlmaður. Nokkrir til viðbótar særðust. Al-Aqsa hreyfingin lýsti ábyrgð á árásunum á hendur sér. Þær koma í kjölfar sprengjuárásar ísraelska hersins á Gaza-borg á mánudag en þar fórust fimmtán, m.a. níu börn, auk Salahs Shehada, leiðtoga hins vopnaða arms Hamas-samtakanna. Fyrr í gær hafði ísraelski herinn haldið áfram hernaðaraðgerðum á Gaza-svæðinu, sprengt upp meintar flugskeytaverksmiðjur og lagt bækistöðvar palestínsku lögregl- unnar í rúst. Einn Palestínumaður lést eftir skotbardaga við ísraelska hermenn í Qalqilya á Vesturbakk- anum. Ný skýrsla Þróunarstofnunar Bandaríkjanna um aðstæður Palestínumanna Þriðjungur barna þjáist af viðvarandi vannæringu Jerúsalem. AP. okkur bara erfiðara fyrir,“ sagði Jose Manuel Durao Barroso, for- sætisráðherra Portúgals, í gær. Ef refsiaðgerðirnar ganga eftir gætu Portúgalar þurft að greiða um 270 milljónir evra í sektir, eða um 22 milljarða íslenskra króna, auk þess sem styrkir frá ESB yrðu skornir niður. Portúgal er ekki eina evru-ríkið sem á í vandræðum með fjárlög sín, þótt öðrum ríkjum hafi tekist að halda sig innan þriggja prósenta marksins. Þýskaland slapp naum- lega við áminningu í fyrra og rík- isstjórnir Frakklands, Þýskalands og Ítalíu hafa allar gefið út viðvar- anir um yfirvofandi fjárlagahalla sem gæti farið út fyrir lögleg mörk. RÍKISSTJÓRN Portúgals á yfir höfði sér refsiaðgerðir af hálfu Evr- ópusambandsins (ESB) eftir að hún tilkynnti að fjárlagahalli á síðasta ári hefði numið 4,1% af þjóðarfram- leiðslu. Er Portúgal því fyrsta ríkið á evrusvæðinu sem fer fram úr þriggja prósenta markinu, sem ákveðið var við stofnun evrunnar, en brot á þeirri reglu geta varðað sektum. Framkvæmdastjórn ESB hefur ákveðið að hefja refsiferlið, sem tek- ið getur marga mánuði eða ár, en margir stjórnmálaskýrendur telja þó ólíklegt að til refsiaðgerða komi. „Það væri fáránlegt ef við þyrftum að sæta efnahagslegum refsingum meðan við erum að leiðrétta ástand- ið, þar sem slíkar refsingar gerðu Portúgalar í ónáð hjá ESB Brussel. AP, AFP. TVEIR íbúar við Shibushi-flóann í Suðvestur-Japan horfa á björg- unarbát sem skolað hafði á land eftir að 36 tonna flutningaskip frá Panama, Ventureran, brotnaði í tvennt í hvirfilbylnum Fengshen, sem gekk yfir á þessu svæði í gær. Fjórir af nítján skipverjum Vent- ureran fórust í óveðrinu, að sögn fulltrúa landhelgisgæslunnar jap- önsku, en áhöfnin var frá Filipps- eyjum og Indlandi. Á myndinni má sjá skipshlutana tvo og er stefni Ventureran til hægri. Nokk- ur olía lak frá skipinu og er rann- sókn í bígerð á því hvort hætta sé á umhverfisskaða af þeim sökum. Reuters Brotnaði í spón við Japans- strendur EISTNESKT útgáfufyrirtæki hefur gefið út plötu þar sem hljómsveit, sem sérhæfir sig í miðaldatónlist, flytur valin lög rokkhljómsveitarinnar Black Sabbath. „Þegar maður fjar- lægir þennan mikla hávaða hljóma mörg Sabbath-lög eins og hrein 14. aldar tónlist,“ sagði Mihker Raud upptöku- stjóri. Tólf lög eru á hljómplötunni, sem nefnist Sabbatum, og hljóma þau sem sálmatónlist flutt við messu í Sixtínsku kap- ellunni í Róm. Þá hefur text- unum verið snúið á latínu og heitir lagið „Wheels of Confu- sion“ nú „Rotae Confusionis“ og „War Pigs“ heitir nú „Verr- es Militares“. Raud kveðst hafa verið aðdá- andi Black Sabbath frá því á áttunda áratugnum þegar frægðarsól söngvarans Ozzies Osbournes reis sem hæst en honum skaut nýverið upp á stjörnuhimininn að nýju með þátttöku sinni í þætti á MTV- tónlistarstöðinni. Raud sagði liðsmenn kvint- ettsins Rondellus hafa verið „afar áhugasama“ er hann léð máls á því að þeir hljóðrituðu plötuna. Hann fór þó ekki fram á að þeir tækju nein þeirra fjöl- mörgu laga Sabbath, þar sem vísað er til kölska sjálfs. Hon- um hefði fundist of mikið að biðja tónlistarmennina um að syngja „ég heiti Lúsífer, taktu í hönd mína“, en þau orð er að finna í einu laga Sabbath. Um 1.200 eintök hafa selst af plötunni, flest á Netinu, frá því hún kom út í mars. „En mark- aðurinn telur eitt hundrað þús- und manns: bæði aðdáendur Sabbath og klassískrar tónlist- ar,“ segir Raud. Syngja Black Sabbath- lög á latínu Tallinn. AP. IRQA er fimm ára gömul og býr í þorpinu Abbakhel, nálægt borg- inni Mianwali í Punjab-héraði í Pakistan. Allt þar til í gær vissi hún ekki betur en að hún væri um það bil að fara að ganga í hjónaband með manni af óvina- ætt. Átti Irqa að vera hluti bóta sem fjölskylda hennar skyldi greiða hinni ættinni. Hæstiréttur Pakistans greip hins vegar inn í málið í gær og fyrirskipaði rannsókn á sam- komulagi milli tveggja ætta í Mianwali um að átta stúlkur af annarri ættinni giftust mönnum á aldrinum 55–77 ára af hinni ætt- inni. Minnir mest á mansal Tildrög málsins eru þau að fjórir menn af ætt Irqu voru árið 1989 fundnir sekir um að hafa myrt tvo menn af annarri ætt. Voru fjórmenningarnir dæmdir til dauða. Íslamskar reglur, sem eru í gildi víða í Pakistan, mæla hins vegar fyrir um að dæmdir glæpamenn geti fengið frelsi ef samkomulag tekst við fjölskyldu fórnarlambanna um bætur. Op- inberlega skulu það vera fjár- munir en algengt er að samið sé um að stúlkur eins og Irqa verði eiginkonur manna af hinni ætt- inni. Segja talsmenn mannrétt- indasamtaka að þetta fyrir- komulag minni mest á mansal. Málið hefur vakið mikið upp- nám í Pakistan en það kemur í kjölfar frétta af því að ættflokka- ráð í Punjab hefði fyrirskipað hópnauðgun á ungri konu og átti þannig að refsa bróður konunnar fyrir að hafa brotið gegn annarri ætt í héraðinu. Réttarhöld í því máli hófust einmitt í gær. Reuters Skipti- mynt í ættflokka- deilum í Pakistan Abbakhel. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.