Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 40
UMRÆÐAN 40 LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ SAMKVÆMT yfir- lýsingum „álrisans“ Alcoa hefur þeim ver- ið neitað um leyfi til byggingar álvera um allan heim, þar á með- al í Víetnam, Indlandi og Brasilíu. Það er að- eins ein ríkisstjórn í heiminum sem hefur, samkvæmt þeirra frá- sögn, tekið þeim fagn- andi – sem er ríkis- stjórn Íslands. Þess ber að geta, að fyrir alllöngu var mikil um- fjöllun um væntanlega byggingu álvers Alcoa á Keilisnesi, en ekkert varð úr þeirri framkvæmd þar, þeir drógu væntanlegar áætlanir til baka í mikilli óþökk þáverandi ríkisstjórnar Íslands. Þeir hafa því kannast við sendimenn íslensku ríkisstjórnarinnar og vitað hvers eðlis þeir eru. Álframleiðsla byggist á notkun óhemju raforku og hún þarf að vera ódýr. Svo virðist sem Lands- virkjun – fyrirtæki í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar – geti „með góðum hagnaði“ (fullyrðing Frið- riks Sophussonar) boðið Alcoa það verð, sem fyrirtækið sættir sig við. Ekkert er látið uppi um verð raf- orkunnar. Verðið verður mjög sér- stakt, fyrst báðir aðilar setjast að samningaborðinu um væntanlegt álver á Reyðarfirði. Báðir aðilar hljóta að hafa mikinn hagnað af orkukaupum og orku- sölu. Hingað til hefur Landsvirkjun selt raf- orku til álvera á und- irverði og verðið er nú miðað við heimsmark- aðsverð á áli á hverj- um tíma. Eins og nú hagar til fer álverð lækkandi og á eftir að snarlækka, þegar rússneskar álverk- smiðjur taka að fylla markaðinn. Hvað verður þá um arðsemi virkjunar sem er ein- göngu reist fyrir ál- verksmiðju á Reyðar- firði? Skuldir Landsvirkjunar eru nú miklar og skuldir ríkisins vegna Landsvirkjunar eru gríðarlegar og að auki verða skuldbindingar ríkis og Reykjavíkurborgar aðeins mældar í hundruðum milljarða. En til þess að Landsvirkjun geti áfram stundað sóðaskapinn á há- lendi Íslands og haft fjárhagslegan ábata af fyrir allt virkjanagengið um ófyrirsjáanlega framtíð, þarf að hafa sem mest fjármagn út úr skattborgurum þessa lands. Til þess að svo megi verða, verður að nást fullkomin samkvæmni í stefnumörkun ríkisstjórnar og Landsvirkjunar og þurfa hags- munir ríkisstjórnarflokkanna og virkjanagengis Landsvirkjunar að fara saman. Náin tengsl stjórnvalda eða stjórnmálaflokka með aðild að rík- isstjórn við vafasöm hagsmunafyr- irtæki eru í öllum siðuðum löndum talin mjög svo hæpin. Nafnið á slíkri samþættingu hagsmuna er „mafía“. Eftirlitsstofnanir Evrópu- ríkja fylgjast mjög grannt með þess háttar tilburðum. Landsvirkjun hefur, með sam- þykki ríkisstjórnarinnar, lokkað hingað álfyrirtæki með undirboð- um á raforku. Arðurinn af áliðnaði hér á landi er vitaskuld eign þeirra sem eiga og reka fyrirtækin. Sama gildir um arðinn af þeirri gömlu selstöðuverslun og af t.d. selstöðu- álfyrirtækinu í Straumsvík. Að fjalla um stóraukningu tekna í þjóðarbúið af sölu áls, eins og fel- umeistarar ríkisins láta liggja að í arðsemisútreikningum sínum, er ekkert annað en tilraun til að rugla og villa um fyrir landsmönnum – ömurlegir lygatilburðir. En það sem verra er eru eft- irfarandi staðreyndir: Ríkisstjórn Íslands, ásamt Landsvirkjun, telst til verstu um- hverfissóða á Vesturlöndum – og þótt samanburðurinn næði til landa í Asíu og Suður-Ameríku. Myndun drullupolls norðan Vatnajökuls og eyðilegging sér- staks gróðurlendis markar viðvar- andi stefnu stjórnvalda og virkj- anagengisins. Það er því meira en eðlilegt að þessir aðilar taki fagnandi „álr- isanum“ Alcoa, sem Brasilíumenn telja umhverfisníðinga eftir sóða- brölt þeirra á Amazon-svæðinu. Góð samstaða þessara aðila og full- komin samtvinnun, um að eyði- leggja „mestu ósnortnu víðerni Evrópu“ eru að þeirra mati mjög arðsöm og skynsamleg, en í augum siðaðra manna ógeðsleg. „En ein- hvers staðar verður vondur að vera“ og þá helst með sínum lík- um. „Einhvers staðar verður vondur að vera“ Siglaugur Brynleifsson Álframleiðsla Ríkisstjórn Íslands, ásamt Landsvirkjun, segir Siglaugur Bryn- leifsson, telst til verstu umhverfissóða á Vest- urlöndum – og þótt sam- anburðurinn næði til landa í Asíu og Suður-Ameríku. Höfundur er rithöfundur. Nýjar línur á nýjum stað undirfataverslun Síðumúla 3-5 UNDIRRITAÐUR, sem er einn fimm stofnfjáreigenda sem standa að yfirtökuboði Búnaðarbankans í SPRON, vill gera öðrum stofnfjár- eigendum nokkra grein fyrir máli sínu. Stjórn SPRON hefur takmark- að aðgang okkar að lista yfir stofn- fjáreigendur og því kýs ég að birta opið bréf mitt til stofnfjáreigenda í Morgunblaðinu. Upphaf afskipta minna af yfirtökutilboði Upphaf þess af minni hálfu var að Pétur Blöndal hringdi í mig eitt sunnudagskvöld fyrir nokkrum vik- um. Hann spurði mig hvort mér væri kunnugt um hlutafjárvæðingu SPRON og skýrði fyrir mér hvernig ganga ætti á rétt stofnfjáreigenda. Kvaðst ég eiga aðeins einn hlut og skipti það mig litlu máli. Hann tjáði mér að margir stofnfjáreigendur, einkum launafólk, hefðu verulega hagsmuni af því að hlutafjárvæðing- in næði ekki fram að ganga, þar sem arður af hlut þeirra yrði rýrari og hlutur þeirra í kjölfarið verðlítill. Margir stofnfjáreigendur væru starfsmenn SPRON eða væru með lánaviðskipti sín í SPRON og vildu ekki ganga í berhögg við stjórnend- ur SPRON og hvort ég vildi taka þátt í því að tryggja það að sannvirði fengist fyrir hluti stofnfjáreigenda. Ég tjáði honum að ef svo væri væri ég tilbúinn að leggja mitt lóð á vog- arskálarnar til að styðja gott mál- efni. Á fundi í Búnaðarbankanum hf. daginn eftir var svo gengið frá samningnum. Búnaðarbankinn hf. átti frumkvæðið að því að bjóða okk- ur þóknun í formi gengismunar, sem væri eðlilegt í slíkum viðskiptum. Það var ákveðið að þóknunin yrði birt í samningnum og aðgerðir okk- ar væru gerðar fyrir opnum tjöld- um. Viðbrögð stjórnenda SPRON Viðbrögð stjórnenda SPRON voru með ólíkindum og var boðuðum fundi stofnfjáreigenda aflýst. Einnig var ólöglega hindrað aðgengi okkar að skrá um stofnfjáreigendur og þegar þeir voru dæmdir í undirrétti til að veita okkur aðgang að skránni áfrýjaði stjórn SPRON til Hæstaréttar, sem getur komið í veg fyrir að við fáum skrána fyrir boð- aðan fund hinn 12. ágúst. Hver getur verið skýr- ingin á þessum við- brögðum? Skyldi það ekki vera, að miklir hagsmunir einhverra væru í húfi? Svo háttar til að á aðalfundum SPRON, í gegnum árin, hafa margir stofnfjáreig- endur sýnt félaginu lít- inn áhuga. Aðalfundir hafa verið átakalitlir og stjórnin fengið sínu framgengt enda ekki mikið í húfi fyrir hvern stofn- fjáreiganda. Hvað skyldi hafa valdið ofangreindum viðbrögðum stjórn- enda SPRON? Það er búið að stofna hlutafélagið og þann sjóð, sem átti að fara með u.þ.b. 90% atkvæða- magns hins nýja félags. Stjórnar- menn SPRON höfðu skipað sjálfa sig til setu í stjórn hins nýja félags og sjóðsins, sem á að veita fé til líkn- ar- og menningarmála. Í ljós hefur komið að stjórnendur SPRON hafa hingað til aðeins veitt lítið brot af því fé til líknar- og menningarmála, sem sjóðnum er ætlað í samningi okkar við Búnaðarbankann. Skyldi það hafa verið ætlunin að tryggja völd og áhrif ákveðinna aðila og ef til vill sameina SPRON Kaupþingi banka hf. á síðari stigum? Lögin um hluta- fjárvæðingu sparisjóðanna virðast sniðin til þess að stjórnendur sjóð- anna geti haft öll ráð í hendi sér, enda samin af nefnd sem sparisjóðs- stjóri SPRON og framkvæmdastjóri Samtaka sparisjóðanna sátu í. Hverjir skyldu hafa öll völd í hendi sér? Þess má geta að sparisjóðs- stjórinn er stjórnarformaður Kaup- þing banka hf. Hann hefur ítrekað fullyrt að við fimmmenningarnir stuðlum að lögbrotum, þótt sá fyr- irsláttur hafi goldið afhroð við úr- skurð fjármálaeftirlitsins um að stofnfjáreigendum væri heimilt að selja stofnfé sitt á hærra gengi en uppreiknuðu stofnfé. Í rauninni kemur það stjórnendum SPRON ekkert við á hvaða verði stofnfé er selt. Stjórnin skal ein- göngu samþykkja hvort hinn nýi eig- andi sé tækur í félag- ið. Hitt er svo annað mál að SPRON er ekki heimilt að leysa til sín stofnfé á hærra verði en uppreiknuðu verði stofnfjár og stofnfjáreigandi get- ur krafist slíkrar inn- lausnar. Engu að síð- ur er enn verið að reyna að blekkja fólk um að hér sé verið að stuðla að lögbrotum. Full- yrt er að hagsmunir SPRON og stofnfjáreigenda fari ekki saman. Að sjálfsögðu hefur stjórninni ætíð bor- ið að gera hag sparisjóðsins sem mestan og fer það saman við hag stofnfjáreigenda. Fjölmiðlafár og framkoma þingmanna Upp hefur hafist mikið fjölmiðla- fár og ýmsir aðilar, sem málinu eru lítt viðkomandi, hafa farið mikinn í fjölmiðlum og erum við fimmmenn- ingar ásakaðir fyrir vera harðsvír- aðir fjárplógsmenn, sem einungis séu að þessu peninganna vegna. Ég vil benda á að SPRON var stofnað af reykvískum athafna- mönnum, einkum iðnaðarmönnum. Faðir minn, sem var meðal fyrstu ábyrgðarmanna SPRON, sagði mér að í skjóli ofríkis dreifbýlisþing- manna, sem höfðu þá eins og nú meirihluta á Alþingi, hafi stjórnvöld fyrirskipað bönkunum að lána ekki til húsbygginga í Reykjavík. Var þá brugðið á það ráð að stofna SPRON svo að Reykvíkingar hefðu innláns- stofnun, sem endurlánaði fé þeirra til reykvískrar atvinnustarfsemi. Að hans sögn breyttist afstaða ríkis- bankanna með tilkomu sjálfstæðra bankastofnana. Norðurmýrin og stór hluti Hlíðanna voru svo byggð fyrir lánsfé frá SPRON. Það er eitt af grundvallaratriðum lýðræðisins og mannréttindahug- mynda að allir séu jafnir að lögum. Svo er ekki á Íslandi hvað varðar kosningarétt. Íslendingum er mis- munað eftir búsetu og gildir einu hvort mismununin byggist á kyn- ferði, litarhætti eða búsetu. Völd á Alþingi endurspegla þessi mannrétt- indabrot. Ýmsir þingmenn hafa lýst því yfir að þeir víli ekki fyrir sér að ganga í berhögg við stjórnarskrána til að hindra að stofnfjáreigendur fái markaðsvirði fyrir hlut sinn. Einnig eru afskipti viðskiptaráðherra, sem er yfirmaður Fjármálaeftirlitsins, óviðeigandi. Skyldu þeir sjálfir hafa einhverra hagsmuna að gæta? Stofnfjáreigendur ráða ferð Er verið reyna að draga málið fram að haustþingi til að hægt sé drepa því á dreif? Staðreyndin er sú, að enn sem komið er ræður meiri- hluti stofnfjáreigenda ferð. Því er mikilvægt að stofnfjáreigendur geri upp hug sinn á boðuðum fundi og tryggi að sjóðurinn hafi stjórn er gætir hagsmuna þeirra og SPRON fremur en hagsmuna og valda stjórnenda SPRON. Vantrauststillaga Undirritaður mun leggja fyrir boðaðan fund stofnfjáreigenda hinn 12. ágúst tillögu um vantraust á nú- verandi stjórn og um kosningu nýrr- ar stjórnar. Bréf til stofnfjár- eigenda SPRON Sveinn Valfells Vantraust Undirritaður mun leggja fyrir boðaðan fund stofnfjáreigenda hinn 12. ágúst tillögu um vantraust á núver- andi stjórn og um kosn- ingu nýrrar stjórnar, segir Sveinn Valfells, í bréfi til stofnfjár- eigenda SPRON. Höfundur er viðskiptafræðingur, iðnrekandi og stofnfjárfestir í SPRON.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.