Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 53 DAGBÓK LJÓÐABROT MORGUNKVEÐJA Vaknar dagur með vorgyðju í fangi, víðfaðma ægir hjá dreymandi strönd. Velta sér öldur í vaggandi þangi, vogurinn logar við sjónarrönd. Iðar fleytan, við festar bundin, friðlaus, er hvelfist voðin þönd – lyftist brjóst, en fjötur um fót minn er bundinn; svo fljúgðu þá, hugur, á norðursundin. Sigurður Sigurðsson MISMIKIL vinna liggur að baki hverju stigi sem skilar sér í plúsdálkinn – stundum er eins og „imp- arnir“ hrannist fyrirhafn- arlaust upp, en oft þarf að hafa mikið fyrir hlutunum. Eins og hér: Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ ÁK6 ♥ DG8 ♦ 10763 ♣763 Vestur Austur ♠ G2 ♠ 1098 ♥ K1076543 ♥ Á92 ♦ 92 ♦ 84 ♣ÁG ♣KD542 Suður ♠ D7543 ♥ -- ♦ ÁKDG5 ♣1098 Spilið kom upp í leik Ís- lands og Úkraínu í 34. um- ferð EM. Í lokaða salnum voru Karl Sigurhjartarson og Snorri Karlsson í AV gegn Volkov og Evseev: Vestur Norður Austur Suður Snorri Volkov Karl Evseev -- -- Pass 1 spaði 3 hjörtu 3 spaðar 4 lauf * 4 spaðar Pass Pass Pass Karl var tilbúinn til að berjast í fjögur hjörtu, en notaði tækifærið til að benda á útspil með því koma við í fjórum laufum. Sú sögn var lykillinn að góðri vörn feðganna. Snorri kom út með laufás og spilaði svo gosanum, sem Karl yfirdrap og tók þriðja laufslaginn. Snorri gaf talningu í hjartalitnum og Karl vissi þá að suður var blankur í hjarta, svo þar var ekkert að hafa. Hann spilaði því enn laufi út í þrefalda eyðu og Snorri stakk með gosa. Spaðatían varð þar með slagur og spilið fór einn niður. Í opna salnum brá Stein- ar Jónsson á leik: Vestur Norður Austur Suður Nemtsev Steinar Mykhay- lenko Stefán -- -- Pass 1 spaði 3 hjörtu 3 grönd! Pass Pass Pass Sagnir fóru eins af stað – Stefán Jóhannsson vakti á einum spaða og Nemtsev stökk í þrjú hjörtu. Steinar taldi litlu hjónin í hjarta verðlítil í spaðasamningi og skaut á þrjú grönd. Austur kom út með hjartaás og Steinar henti SPAÐA úr borði. Austur spilaði hjarta áfram og aft- ur henti Steinar spaða. Spaðaafköstin svæfðu vest- ur og hann leyfði Steinari að eiga slaginn á hjarta- gosa. Steinar lagði þá upp. Vel að verki staðið á báðum borðum og 10 IMP- ar til Íslands. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 27. júlí, er sjötugur Stefán Gunnar Stefánsson, Hraunbæ 178, Reykjavík. Stefán og eigin- kona hans, Erla Þórodds- dóttir, verða með heitt á könnunni í dag í sumarbú- staðnum Fitjahlíð 63a, Skorradal, Borgarfirði. 50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 27. júlí, er fimmtugur Páll Guðfinn- ur Guðmundsson, neta- gerðarmaður, Sæbóli 18, Grundarfirði. Af því tilefni munu Páll og eiginkona hans, Guðbjörg Hringsdótt- ir, halda upp á daginn með fjölskyldum og vinum á „Góðri stund í Grundar- firði“. RICO, sem er heimavinn- andi húsmóðir af japönskum ættum, óskar eftir íslensk- um pennavini. Rico Cook, P.O. Box 191108, Atlanta, GA. 31119-1108, U.S.A. MARCHAL óskar eftir íslenskum pennavinum. Marchal Dany, 6 rue Thiavcourt, 54200 Lucey, France. ANDRÉ, sem er kristinn fjölskyldufaðir, óskar eftir pennavinum á Íslandi. André Bernier, P.O. Box 638, Chesterland, OH. 44026, U.S.A. Netfang: fox8weather@yahoo.com Pennavinir 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. Rf3 O-O 6. Be2 e5 7. Be3 exd4 8. Rxd4 He8 9. f3 c6 10. Bf2 d5 11. exd5 cxd5 12. O-O Rc6 13. c5 Rh5 14. Dd2 Be5 15. g3 Rg7 16. Hfd1 Be6 17. Rxe6 fxe6 18. f4 Bf6 19. Rb5 Hf8 20. Rd6 Hb8 21. Hac1 b6 22. Bb5 bxc5 23. Bxc6 Hxb2 24. De1 Dxd6 25. Bxc5 Dxc6 26. Bxf8 Da6 27. Bxg7 Kxg7 28. Hd2 Dxa2 Hvítur á leik 270702 Staðan kom upp á öðru bik- armóti FIDE sem lauk fyrir skömmu í Moskvu. Alexander Onischuk (2641) hafði hvítt gegn Rustam Kasimdzhanov (2674). 29. Dxe6! Bc3 29...Hxd2 gekk ekki upp vegna 30. Hc7+ og hvítur mátar. 30. Hxb2 Dxb2 31. Hd1 Bd4+ 32. Kh1 Db3 33. De2 Be3 34. Dd3 Dxd3 35. Hxd3 d4 36. Kg2 a5 37. Kf3 Kf6 38. Ke4 g5 39. Hb3 gxf4 40. gxf4 Bd2 41. Hb6+ Kf7 42. Hb7+ Kg8 43. f5 Bc3 44. Hd7 Bb4 45. Kxd4 a4 46. Kd5 a3 47. Ke6 Bc5 48. f6 og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake LJÓN Afmælisbörn dagsins: Þú ert vel gefinn og hefur sterkan persónuleika. Þú ert mannþekkjari og líkegur til að komast til áhrifa. Á komandi ári muntu fara að takast á við eitthvað nýtt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er líklegt að það verði kom- ið aftan að þér í samtölum í dag. Það er mikivægt að þú gerir þér grein fyrir því hvað er raun- verulegt og hvað er blekking. Naut (20. apríl - 20. maí)  Farðu varlega í samskiptum þínum við fjölskylduna í dag. Jafnvel þótt allir aðilar reyni að tala skýrt er hætt við misskiln- ingi. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Einhver ruglingur gæti sett mark sitt á daginn í dag. Sann- leikurinn er sá að þú ert ringl- aður af því þú ert óvenju við- kvæmur fyrir öllu sem fram fer í kringum þig. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Dagurinn hentar illa til ákvarð- anatöku varðandi fjármálin eða meiriháttar fjárútlát. Þú ert ekki viss um hvað þú vilt. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Gættu þess að skuldbinda þig ekki til neins vegna einhvers sem þú fréttir í dag. Það er hætt við að öll samtöl þín ein- kennist af ruglingi og óraun- sæjum væntingum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Ýmislegt gerir það að verkum að þú sérð hlutina ekki í skýru ljósi í dag. Þú ættir því að forð- ast að taka mikilvægar ákvarð- anir bæði í vinnu og í einkalífinu í dag. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Forðastu að fastsetja nokkuð með vinum þínum í dag. Þú átt eftir að komast að því að ekki er allt sem sýnist. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Farðu varlega í að ganga að til- boði yfirmanns eða yfirboðara í dag. Á þessari stundu virðist vera um gott tækifæri að ræða en seinna muntu sjá það í öðru ljósi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er hætt við að þú verðir svikinn eða prettaður í dag. Eina leiðin til að verjast því er að bíða átekta án þess að sam- þykkja nokkuð. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú ættir ekki að treysta loforð- um sem þér eru gefin í dag, sér- staklega ekki ef þau varða fjár- mál eða greiðslu skuldar við þig. Einhver reynir að láta hlut- ina líta betur út en þeir eru í raun og veru. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þó það virðist ótrúlegt þá ert næmur á hluti í dag sem þú ert alla jafna lokaður fyrir. Þetta ruglar þig í ríminu og því ætt- irðu að forðast mikilvægar ákvarðanir eða aðgerðir í dag. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Viðskiptavinir þínir og sam- starfsmenn eru heilir í því sem þeir eru að reyna að gera. Þú þarft samt að gera þér grein fyrir því að fólk fer oft inn á villigötur þar sem það sér yf- irleitt ekki heildarmyndina. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Haraldur Magnússon B.Sc. (hons) Osteopathy Hef nýlokið 4 ára námi við The British School of Osteopathy og hef hafið störf hjá heilsumiðstöðinni Heilsuhvoll. Osteopathy (hrygg- og liðskekkjufræði) er líkamsmeðhöndlunarkerfi sem greinir og meðhöndlar hina ýmsu líkamlegu verki gegnum vöðva og liðkerfi líkamans. Osteopathy meðhöndlar vöðva og liðvandamál svo sem bak og háls og axlarverki. Osteopathy á Íslandi Upplýsingar og tímapantanir í síma 846 3380Flókagata 65, Rvík, sími 511 1000heilsuhvoll@isl.is H e ilsuh vo ll „Vegna góðra undirtekta mun verðlaunamyndin MÁVAHLÁTUR verða sýnd í nokkra daga enn.“ Silfurstigatvímenningur í blönduðum flokki 10. ágúst Laugardaginn 10. ágúst næstkom- andi ætlar sumarbrids að halda paramót þar sem spilað verður um silfurstig. Spilarar eru beðnir um að taka þennan dag frá, það verður mikið fjör og lögð verður áhersla á að gera þennan laugardag sem skemmtilegastan. Spilaform, þátttökugjald, vinning- ar og fleira verður auglýst síðar, en gera má ráð fyrir að mótið verði spil- að frá kl. 13 til 18. Skráning er hafin hjá Matthíasi í síma 860-1003. Úrslit í sumarbrids Mánudagskvöldið 22. júlí mættu 22 pör til leiks og urðu þessi pör efst (miðl. 216): NS Erla Sigurjónsdóttir – Sigfús Þórðarson 263 Guðmundur Pálsson – Júlíus Snorrason .252 María Haraldsdóttir – Sævin Bjarnason .250 Arngunnur Jónsd.– Harpa Fold Ingólfs. 247 AV Jón Stefánsson – Magnús Sverrisson ......281 Ásmundur Páls. – Guðm. P. Arnars. ........278 Óskar Sigurðs. – Sigurður Steingríms. ...238 Alfreð Kristjáns. – Ragnar Örn Jóns. ......233 Þriðjudagskvöldið 23. júlí var aft- ur spilað á 11 borðum, nú urðu þessi pör hlutskörpust (miðl. 216): NS Svala Pálsdóttir – Randver Ragnarsson .251 Vilhjálmur Sig. jr. – Hermann Láruss. ...246 Þorsteinn Berg – Eðvarð Hallgrímsson ..243 Árni Hannesson – Oddur Hannesson ......235 AV Viðar Jónsson – Björn Friðriksson ..........239 Guðmundur Baldurs. – Guðb. Þórðar. .....238 Gunnar Þórðar. – Pétur Hartmanns. .......233 Sigfús Þórðarson – Guðlaugur Sveinsson 229 Guðrún Jörgensen – Ólöf Þorsteins. ........229 24. júlí var besta miðvikudags- kvöld sumarsins til þessa, alls 26 pör skráð til keppni. Spennan var mikil, sérstaklega varð keppnin jöfn í NS, þar sem aðeins 6 stig skildu að fyrsta og fimmta sætið! Efstu pör (miðl. 312): NS Unnar A. Guðm. – Helgi Samúels. ...........360 Friðrik Egilsson – Jóhann Sigfússon ......357 Halldór Svanbergs. – Kristinn Kristins. .355 Magnús Aspelund – Steingrímur Jónas. .354 Ásmundur Pálsson – Guðm. P. Arnarson 354 AV Páll Þór Bergs. – Guðlaugur Sveins. .......371 Óla S. Jónsdóttir – Kristján Blöndal ........343 Þröstur Ingimars. – Þórður Björns. ........339 Halldóra Magnúsd. – Bryndís Þorst.d. ...338 Fimmtudagskvöldinu 25. júlí stýrði Ljósbrá Baldursdóttir, 22 pör tóku þátt í skemmtilegri keppni þar sem þessir spilarar urðu efstir (miðl. 216): NS Sigurður Steingr.s. – Óskar Sigurðs. .......242 Hafþór Kristjáns. – Guðlaugur Bessas. ..240 Guðlaugur Sveinss. – Sveinn R. Eiríkss. .235 Einar Guðmunds. – Garðar Garðars. .......230 AV Sigfús Þórðarson – Gísli Þórarinsson ......258 Ómar Olgeirs. – Hermann Friðriks. ........257 María Haraldsdóttir – Sævin Bjarnason .248 Jón Stefánsson – Baldur Bjartmarsson ..241 Júlíleikur sumarbrids er á loka- sprettinum, reglurnar eru þessar: Stigahæsti spilari júlímánaðar, stigahæsta konan í júlí, auk 2ja spil- ara af þeim sem mæta tíu sinnum eða oftar í júlí fá glæsileg verðlaun. Staðan í júlíleiknum er þessi, eftir fyrrgreind spilakvöld: 1. Vilhjálmur Sigurðsson jr. ......................197 2. Sigfús Þórðarson ...................................152 3. Guðlaugur Sveinsson .............................139 4. Sigurður Steingrímsson ........................136 5. Halldór Svanbergsson ...........................115 6. Óskar Sigurðsson ...................................113 7. Gísli Steingrímsson ................................103 8. Baldur Bjartmarsson ..............................99 Staðan hjá konunum: 1. Erla Sigurjónsdóttir ................................75 2. Harpa Fold Ingólfsdóttir ........................74 3. María Haraldsdóttir ................................65 4. Arngunnur Jónsdóttir .............................35 5.–7. Inga Lára Guðmundsdóttir ...............33 5.–7. Unnur Sveinsdóttir .............................33 5.–7. Svala Pálsdóttir ...................................33 8. Beverly Nelson ........................................32 Allar nauðsynlegar upplýsingar um sumarbrids, lokastöðu spila- kvölda, bronsstigastöðu og fram- vindu t.d. júlíleiksins má finna á heimasíðu Bridssambands Íslands, www.bridge.is. Í sumarbrids er spilað alla virka daga kl. 19 í Síðumúla 37. Keppn- isstjóri aðstoðar við að mynda pör, mæti spilarar stakir. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Glæsibæ, mánud. 15. júlí 2002. 20 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N–S: Gunnar Helgason – Arnar Guðmundss. ..277 Elín Jónsdóttir – Soffía Theódórsdóttir ..249 Alfreð Kristjáns. – Ragnar Ö. Jónsson ....239 Árangur A–V: Magnús Oddsson – Magnús Halldórsson 243 Eysteinn Einarss. – Guðlaugur Sveinss. .240 Halla Ólafsd. – Þórhildur Magnúsd..........235 Tvímenningskeppni spiluð mánud. 22. júlí. 18 pör. Meðalskor 216. Árangur N–S: Halldór Magnúss. – Bergur Þorvaldss. ...297 Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson ..233 Alda Hansen – Jón Lárusson ...................231 Árangur A–V: Magnús Oddsson – Magnús Halldórsson 283 Alfreð Kristjánsson – Ragnar Ö. Jónss. ..267 Ásta Erlingsdóttir – Sigurður Pálsson ....235 85 ÁRA og 50 ÁRA af-mæli. Í dag, laugar- daginn 27. júlí, er 85 ára Pétur Þorsteinsson, Ár- skógum 17, Egilsstöðum. Eiginkona hans er Aðal- björg Guðmundsdóttir. Í dag verður dóttir hans, Að- albjörg Rut Pétursdóttir, Garðastræti 9, Reykjavík, fimmtug. Þau eru að heiman í dag. Þumalína engu lík, örugg og traust Skólavörðustíg 41, s. 551 2136
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.