Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 26
ERLENT 26 LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MARGIR frammámenn í viðskipta- lífinu, fjárfestar og fjármálasérfræð- ingar í Bandaríkjunum hafa fagnað nýjum lögum um hert viðurlög við bókhaldssvikum og fleiri ráðstafanir til að vekja aftur traust almennings á bandarískum fyrirtækjum. Lögin eru yfirgripsmikil og leiða til mestu breytinga á reglum um endurskoðun fyrirtækja frá krepp- unni miklu eftir verðhrunið í kaup- höllinni í New York 1929. „Samþykkt þingsins um umbætur á endurskoðun fyrirtækja er sigur fyrir bandaríska fjárfesta og laun- þega,“ sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti. „Ég hlakka til að staðfesta þessar mikilvægu umbæt- ur.“ Margir fjármálasérfræðingar telja að lögin séu nógu ströng til að knýja stjórnendur fyrirtækja til að hætta að veita fjárfestum rangar upplýsingar um fjárhag þeirra. Þeir vara hins vegar við því að gengi hlutabréfa kunni að lækka næstu vikurnar þar sem líklegt er að strangari reglur og hert eftirlit yf- irvalda verði til þess að fleiri fyr- irtæki verði staðin að svikum og vafasömum reikningskilum. „Það mun líða nokkur tími þar til markaðurinn réttir úr kútnum,“ sagði Robert Litan, forstöðumaður efnahagsdeildar Brookings Institu- tion, rannsóknastofnunar í Wash- ington. „Fjárfestar hafa misst trúna á öllu reikningsskilakerfinu og laga- setning nægir ekki til að ráða bót á því.“ Forstjórar ábyrgist að reikningsskilin séu rétt Báðar deildir þingsins samþykktu lögin í fyrradag eftir að leiðtogar þeirra náðu málamiðlunarsamkomu- lagi um frumvarp sem öldungadeild- in, þar sem demókratar eru með meirihluta, samþykkti einróma í vik- unni sem leið. Repúblikanar í full- trúadeildinni féllust á flest af ströng- ustu ákvæðum frumvarpsins. Lögin voru samþykkt einróma í öldungadeildinni og með 423 at- kvæðum gegn þremur í fulltrúa- deildinni þar sem repúblikanar eru í meirihluta. Lögin kveða á um hert viðurlög við bókhaldssvikum og eyðingu bók- haldsgagna. Samkvæmt lögunum á að stofna óháða nefnd sem á að hafa eftirlit með endurskoðendum og fær vald til að refsa þeim. Endurskoð- unarfyrirtækjum verður einnig bannað að veita fyrirtækjum, sem þau endurskoða, ráðgjafarþjónustu á flestum sviðum sem tengjast ekki beint reikningsskilum. Þá verður forstjórum og aðalfjár- málastjórum gert að ábyrgjast að reikningsskil fyrirtækja þeirra séu rétt. Leggi þeir blessun sína yfir reikningsskil með upplýsingum, sem gefa ranga mynd af fjárhag fyrir- tækjanna, verður hægt að dæma þá í allt að tuttugu ára fangelsi. Fyrirtækjum verður bannað að veita stjórnendum þeirra lán og fjár- málaeftirlitinu var falið að setja nýj- ar reglur um störf greiningarsér- fræðinga til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. Í lögunum segir einnig að lög- fræðingum, sem starfa fyrir fyrir- tækin, beri skylda til þess að gera yf- irvöldum viðvart fái þeir vísbendingar um bókhaldssvik eða önnur brot. Repúblikanar gáfu eftir Fulltrúar bandarískra fyrirtækja höfðu beitt sér gegn ýmsum af ströngustu ákvæðum frumvarps demókrata í öldungadeildinni og stutt mildari tillögur repúblikana í fulltrúadeildinni. Repúblikanarnir gáfu hins vegar eftir og ákváðu að sýna kjósendum að þeir vildu taka hart á bókhaldssvikunum af ótta við að þeim yrði refsað í þingkosning- unum í nóvember. Eitt af því fáa sem fulltrúar þrýstihópsins náðu fram var að orða- lagi ákvæðisins um refsiábyrgð for- stjóra var breytt. Í lögunum segir að hægt sé að dæma forstjóra í fangelsi leggi þeir blessun sína yfir villandi upplýsingar í ársreikningum „af ásettu ráði og vísvitandi“. Í frum- varpi demókrata í öldungadeildinni voru notuð orðin „á glæfralegan hátt og vitandi vits“ og talið er að það orðalag hefði auðveldað saksóknir á hendur forstjórum vegna bókhaldss- vika. John C. Coffee, lagaprófessor við Columbia háskóla, kvaðst telja að hörðu viðurlögin í lögunum hefðu takmarkaða þýðingu fyrir aðra en þingmenn sem vildu sefa kjósendur á kosningaári. „Flest af því sem við vitum um hvítflibbaglæpi bendir til þess að líkurnar á að þeir komist upp hafi meiri fyrirbyggjandi áhrif en refsingin.“ Frammámenn í bandarísku við- skiptalífi höfðu efasemdir um ströngustu ákvæðin en flestir þeirra sögðu eftir samþykkt laganna að þau væru nauðsynleg til að binda enda á verðfallið í kauphöllunum. „Þetta eru kröftug lög og þegar þau öðlast gildi að fullu verða þau ekki aðeins fyrirtækjunum til góðs heldur einnig almennum fjárfestum,“ sagði John J. Castellani, forseti Business Roundtable, samtaka bandarískra kaupsýslumanna. Martin Regiala, varaforseti bandaríska verslunarráðsins, sagði að ráðið hefði enn efasemdir um að svo ströng lög væru nauðsynleg þótt það viðurkenndi að leggja þyrfti áherslu á að auka traust fjárfesta á hlutabréfamörkuðunum. Lögfræðingar óánægðir Lögfræðingar voru andvígir ákvæðinu um að þeim bæri að skýra yfirvöldum frá hugsanlegum brotum fyrirtækja og sögðu það „grafa und- an trúnaðarsambandi lögfræðinga og skjólstæðinga þeirra“. „Þetta ákvæði er einber vitleysa,“ sagði Ro- bert E. Hirshon, forseti samtaka bandarískra lögmanna. Aðrir sögðu að lögin væru ekki fullnægjandi. Nokkrir fjármálsér- fræðingar gagnrýndu þingið fyrir að skylda ekki fyrirtæki til að bókfæra sem gjöld hlutabréf sem stjórnend- um eru boðin á mjög hagstæðum kjörum. Aðeins þrír repúblikanar greiddu atkvæði gegn lögunum. Einn þeirra, Mac Collins, sagði að lögin ykju kostnað fyrirtækja og þar með lík- urnar á því að þau færðu starfsemi sína til annarra landa. Phil Gramm, repúblikani í öld- ungadeildinni, kvaðst óttast að lögin leiddu til „holskeflu ástæðulausra málsókna“. Gramm lagðist í fyrstu gegn ströngustu ákvæðunum en greiddi atkvæði með lögunum. „Að- stæðurnar eru svo erfiðar að nánast hvað sem er hefði getað náð fram að ganga á þinginu,“ sagði hann. Embættismenn Evrópusam- bandsins eru einnig óánægðir með lögin vegna þess að evrópsk fyrir- tæki og endurskoðendur þeirra þurfa að lúta valdi nýju eftirlits- nefndarinnar ef þau eru skráð á bandarískum hlutabréfamarkaði. Bandaríkjaþing samþykkir yfirgripsmikil lög um reikningsskil fyrirtækja Bókhaldssvik varða allt að tuttugu ára fangelsi Mestu breytingar á reglum um end- urskoðun fyr- irtækja frá kreppunni miklu Washington. The Washington Post, AP, AFP. AP Frá vinstri: Tom Daschle, leiðtogi demókrata í öldungadeild Banda- ríkjaþings, en þeir eru þar í meirihluta, Trent Lott, leiðtogi repúplikana í öldungadeildinni, og Dennis Hastert, forseti fulltrúadeildarinnar. ’ Aðstæðurnar erusvo erfiðar að nánast hvað sem er hefði getað náð fram að ganga á þinginu. ‘ DÓMSTÓLL í Jakarta í Indónesíu dæmdi í gær Tommy Suharto, son Suhartos, fyrrver- andi forseta Indónesíu, í 15 ára fangelsi fyrir morð og ólögleg- an vopnaburð. Komst dómstóll- inn að þeirri niðurstöðu að Suh- arto hefði staðið á baki við morðið á indónesískum hæsta- réttardómara fyrir nákvæm- lega ári síðan. Mennirnir tveir, sem frömdu morðið, voru dæmdir í lífstíðarfangelsi í maí en saksóknarar kröfðust væg- ari dóms yfir Suharto, m.a. á þeirri forsendu að hann ætti fyrir ungum börnum að sjá. Í dómsniðurstöðunni sagði að sannað þætti að Hutomo Mandala Putra, eins og Tommy heitir réttu nafni, væri sekur um öll ákæruatriðin, þar á með- al að reyna að flýja undan rétt- vísinni en hann fór huldu höfði mánuðum saman. Kom fram að Tommy Suharto hefði greitt leigumorðingjunum jafnvirði um einnar milljónar króna fyrir að myrða dómarann sem skömmu áður hafði dæmt hann til fangelsisvistar fyrir spill- ingu. Voru færðar sönnur á að skammbyssan sem notuð var til að myrða dómarann var í eigu Tommys. Sakborningurinn var ekki viðstaddur þegar dómararnir lásu dóminn upp. Sögðu lög- menn Suhartos hann veikan og óskuðu eftir því að dómsupp- kvaðningu yrði frestað. Þegar dómarar féllust ekki á það stormuðu lögmennirnir út úr réttarsalnum. Prófsteinn á umbætur Litið var á réttarhöldin sem prófstein á það hvort indónes- ískum stjórnvöldum hefði tek- ist að koma á umbótum í rétt- arkerfi landsins eftir að Suharto forseti fór frá völdum en spilling þótti allsráðandi á 32 ára löngum valdatíma hans. Tommy ríkti yfir viðskiptaveldi sem metið var á um 70 millj- arða króna en hann og aðrir úr fjölskyldu Suhartos voru al- mennt taldir ósnertanlegir. Suharto eldri, sem er 82 ára gamall, hefur vegna heilsuleys- is komist hjá því að verða ákærður fyrir spillingu. Tommy Suharto dæmdur í 15 ára fangelsi Jakarta. AFP. BANDARÍSK stjórnvöld sögðust í gær fagna þeirri yfirlýsingu Norður- Kóreskra yfirvalda að þau myndu bjóða sendimann Bandaríkjanna vel- kominn til landsins, en sögðu þó ekki ljóst hvort slíkur maður yrði sendur. Til stóð að bandarísk stjórnvöld sendu mann til N-Kóreu, en hætt var við áformin eftir að herskipum frá kóresku ríkjunum tveimur laust saman í Gulahafi í síðasta mánuði. Bandaríkjamenn segja þessa síðustu yfirlýsingu stjórnvalda í Pyongyang vera í samræmi við þá sem þau gáfu út á miðvikudag þar sem þau sögðust sjá eftir sjóorrustunni við Suður- Kóreu og settu fram tillögu þess efn- is að háttsettir embættismenn í ná- grannaríkjunum tveimur tækju upp viðræður á ný. Utanríkisráðherrar ríkjanna tveggja, Colin Powell og Paek Nam- Sun, munu sitja ráðstefnu um öryggi í Asíu í Brúnei, sem haldin verður þann 30. þessa mánaðar, en ekki er ljóst hvort þeir muni hittast þar. Þá skýrðu stjórnvöld í Suður-Kór- eu frá því í gær að þau hefðu af því fregnir að Norður-kóresk stjórnvöld væru að gera stórfelldar breytingar á efnahagskerfi landsins. Sérstakur ráðgjafi forseta Suður-Kóreu, Lim Dong-Won, segir Norður-Kóreu- menn vera að snúa baki við óhag- kvæmu, miðstýrðu hagkerfinu, sem við lýði hefur verið undanfarin 40 ár, og færa sig meira í átt að markaðs- hagkerfi í anda þeirra breytinga sem Kínverjar hafa gert á sínu hagkerfi undanfarin tuttugu ár. „Í stuttu máli miða breytingarnar að því að end- urnýja hagkerfið án þess að það stofni sósíalísku stjórnkerfinu í hættu,“ segir Lim. Að sögn Lims var ákvörðun um breytingarnar tekin eftir að leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-Il, fór í heimsókn til Kína og Rússlands á síðasta ári. Meðal helstu breytinga er að reyndir kaupsýslumenn taki við stjórnartaumum ríkisfyrirtækja af flokksgæðingunum sem nú stjórna þeim, skömmtun á mat verði hætt og laun verkafólks verði árangurs- tengd. Reynt verður að venja lands- menn af ríkisstyrkjum og aðstoð ým- iss konar og munu þeir þurfa að greiða fyrir matvæli og aðrar nauð- synjar með peningum. Suður-kór- eskir ferðamenn, sem heimsótt hafa nágrannaríkið í norðri nýlega, segja laun verkamanna í Norður-Kóreu munu hækka allt að fimmtíufalt frá því sem nú er. „Norður-Kóreumenn hafa lýst breytingunum sem efnahagslegri byltingu,“ segir Kim Chang-Soo hjá Kóreska sátta- og samvinnuráðinu. „Þeir segja að héðan í frá muni þeir sem leggja harðar að sér njóta ávaxta erfiðis síns, en leggja þó áherslu á það að ríkið, en ekki mark- aðurinn, muni ákveða allt verð.“ N-Kóreumenn vilja taka á móti bandarískum sendimanni Seoul. AP, AFP. Reuters Sérlegur sendimaður S-Kóreuforseta, Lim Dong-Won (annar frá vinstri), ásamt leiðtoga N-Kóreu, Kim Jong-Il (fyrir miðju).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.