Morgunblaðið - 27.07.2002, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 27.07.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ SJÓSLYSANEFND telur að ástæður þess að Una í Garði GK 100 fórst við rækjuveiðar í Skaga- fjarðardýpi 17. júlí í fyrra, hafi verið þær að netalúga á stjórn- borða var opin auk þess sem opið var frá milliþilfari inn í stakka- geymslu en þaðan átti sjórinn greiða leið inn í íbúðarrými. Tveir skipverjar fórust en fjórir björg- uðust naumlega, þ. á m. ungur sonur stýrimannsins. Í áliti nefndarinnar segir m.a. að þegar skipinu var snúið á stjórn- borða hafi sjór náð að gutla inn um lúguna og inn á milliþilfarið með stigvaxandi áhrifum þar til flæði inn um lúguna varð stöðugt. Sjór- inn átti þaðan greiða leið niður í íbúðarrými í afturskipinu en talið er að það hafi fyllst af sjó á um hálfri mínútu sem leiddi til þess að skipið sökk á skömmum tíma. Við rannsókn kom m.a. fram að algengt hafi verið að hafa netalúg- una opna á rækjuveiðum á sumrin til að bæta loftræstingu í skipinu. Lúgan hafi oft verið opin í mun verri veðrum en var í síðustu sjó- ferðinni og oftsinnis hafi verið snú- ið á stjórnborða með lúguna opna. Engin regla var á því hvort lúgan ætti að vera opin eða lokuð og var það háð mati vakthafandi skip- stjórnarmanns. Dyr frá milliþilfari aftur í stakkageymslu á stjórn- borðsgangi voru opnar og þaðan var opið inn á íbúðargang. Þegar stýrimaðurinn varð var við að sjór flæddi inn í skipið vakti hann skip- stjórann og fór síðan rakleiðis nið- ur í vistarverur skipverja til að gera þeim viðvart. Greip hann með sér ungan son sinn og vélstjórinn fylgdi fast í kjölfarið. Tveir skip- verjar voru í skutklefa en þeir náðu ekki að komast upp úr káet- unni að því að talið er. Að sögn skipstjórans var ekki neyðarbjalla í brúnni eins og skylt er í skipum af þessari stærð. Nefndin áréttar að öryggi skips og þar með áhafnar sé stefnt í hættu með opnum lúgum til sjós, þar sem fyllsta öryggis er ekki gætt, og þær opnar án þess að þjóna tilgangi við veiðar skips. Þá telur hún að tryggja eigi full- komna lokun milli vinnurýmis og íbúðarýmis eins og reglur gera ráð fyrir. Fullnægjandi vatnsþétt lok- un auki lekastöðugleika, seinki því að skip og sökkvi og tryggi þar með betur undankomuleiðir fyrir áhöfn. Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að talsverðar breytingar voru gerðar á Unu í Garði í pólskri skipasmíðastöð árið 2000. Segir í skýrslunni að samþykkt stöðug- leikagögn hafi fyrst komið um borð um ári eftir breytingu og að í íslenskri þýðingu gagna um hvað beri að varast hafi verið verulegur agnúi á vissum lykilatriðum í leið- beiningum til skipstjórnarmanna s.s. varðandi vatnsþétta lokun skips til sjós. Reglum verði fylgt eftir Meðal tillagna í öryggisátt er bent á mikilvægi þess að vatnsþétt hólfun skips sé ávallt í lagi og vatnsþétt lokun sé tryggð í rekstri skips. Nauðsynlegt sé að því sé fylgt strangt eftir að um borð séu samþykktar teikningar af örygg- isbúnaði og bent er á að að eftir breytingar á skipum verði ekki gefin út haffærisskírteini fyrr en samþykkt stöðugleikagögn liggi fyrir, enda séu þau hluti af skips- skjölum sem skipstjórnarmenn eiga að kynna sér. Þá ítrekar nefndin fyrri ábendingar um að Siglingastofnun Íslands fylgi því eftir að björgunaræfingar séu haldnar í samræmi við reglugerðir. Þá bendir nefndin á að fylgt verði eftir reglum um að fullnægjandi loftræsting geti verið um vistar- verur áhafnar við öll skilyrði. Sjóslysanefnd hefur skilað skýrslu um Unu í Garði sem fórst í fyrrasumar Sjórinn átti greiða leið inn um opnar dyr Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Una í Garði var á rækjuveiðum í Skagafjarðardýpi þegar skipið fórst. FORSTJÓRI Norðurljósa, Sigurður G. Guðjónsson, var kvaddur í yfirheyrslu hjá auðgunarbrotadeild Lögregl- unnar í Reykjavík í gærmorg- un, þar sem hann var yfir- heyrður um það hvernig hann hefði komist yfir gögn úr Bún- aðarbankanum, sem fólu með- al annars í sér upplýsingar um skuldastöðu Norðurljósa við Búnaðarbankann, ásamt drög- um að yfirlýsingu Fjölmiðla- félagsins ehf., hóps fjárfesta, sem hugði á yfirtöku á á Norð- urljósum. Búnaðarbankinn hafði farið fram á það við lögreglu að framkvæmd yrði opinber rannsókn á því hvernig gögnin komust úr bankanum í hendur forstjóra Norðurljósa. Sigurður sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann hefði neitað að upplýsa það hver hefði látið honum ofan- greind gögn í té. „Ég lét hins vegar bóka í skýrslur eftir mér, að það gæti aldrei verið trúnaðarmál bankans, leyni- samningar sem miðuðu að því að eyðileggja eignir annarra,“ sagði Sigurður. Var yfir- heyrður af lög- reglu Forstjóri Norðurljósa JÓNÍNA Berg Vesturlandsgoði mun gegna stöðu allsherjargoða þar til Ásatrúarfélagið hefur boðað til auka- allsherjarþings þar sem frávikning allsherjargoða skal tekin fyrir. Segir Björn Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, að æskilegt sé að boðað verði til þingsins eins fljótt og unnt er. Tveir óskuðu eftir því hjá ráðuneyt- inu að fá viðurkenningu sem allsherj- argoðar, Jónína Berg Vesturlands- goði og Jörmundur Ingi, sem var vikið úr embættinu. Ráðuneytið hefur nú svarað erindum Jörmundar Inga og Jónasar Þ. Sigurðssonar lögsögu- manns, varðandi ágreining sem risinn er í félaginu sem einkum beindist að því hvaða lög séu í gildi hjá félaginu og um ákvörðun Lögréttu um brott- vikningu allsherjargoða. Segir í svari ráðuneytisins að þrátt fyrir að margvísleg gögn hafi verið lögð fram, svo sem fundargerðarbæk- ur, bréf, fréttabréf, myndbandsspóla og fleira, verði ekki til fulls ráðið af þeim hver séu gild lög Ásatrúar- félagsins. Af fyrirliggjandi gögnum verði heldur ekki ráðið eftir hvaða lagaákvæðum hafi verið farið í fram- kvæmd, né hvernig staðið hafi verið að lagabreytingu. Aukaallsherjarþing verði haldið svo fljótt sem auðið er „Ráðuneytið átelur þetta ástand og telur brýnt að því verði komið til rétts vegar svo skjótt sem verða má,“ segir í svari ráðuneytisins. Í fyrirliggjandi lagatextum sé hvarvetna gert ráð fyr- ir að allsherjarþing Ásatrúarfélagsins fari með æðsta vald. Einnig sé gert ráð fyrir aukaallsherjarþingi ef Lög- rétta ákveður að vísa allsherjargoða úr embætti. Svo virðist sem slíkt aukaallsherjarþing hafi ekki verið kallað saman samkvæmt þeim reglum sem settar hafa verið, þar með talið að gætt hafi verið reglna um „nægan fyrirvara“. „Ráðuneytið telur því að boða beri til slíks aukaþings með réttum hætti og taka þar fyrir frávikningu allsherjargoða. Slíku þingi ber að hafa í heiðri almennar reglur um andmælarétt þess sem vik- ið hefur verið úr stöðu,“ segir þar ennfremur. Telur ráðuneytið mjög æskilegt að á slíku þingi liggi til umræðu frum- varp að félagslögum sem síðar verði tekið til endanlegrar umræðu og af- greiðslu á reglulegu allsherjarþingi í haust. Þá er minnt á að miklu máli skipti að góð festa og regla ríki hjá fé- laginu varðandi fjármál félagsins, fé- lagatal, lagabreytingar og skráningu fundargerða, en verulegur misbrest- ur hafi verið á þessu. Jörmundur Ingi enn með vígsluréttindi Björn segir það ekki endilega nauð- synlegt að sami einstaklingur sé for- stöðumaður félagsins og vígslumaður þess. Jörmundur Ingi hafi ekki verið sviptur sínum vígsluréttindum, brott- vísunin taki ekki endanlega gildi fyrr en búið er að fjalla um það á aukaalls- herjarþingi. Vesturlandsgoði muni þó gegna embætti allsherjargoða þar til þingið kemur saman. Beðið verði með að veita Jónínu Berg vígsluleyfi þar til aukaallsherjarþing hafi endanlega tekið ákvörðun um hvort hún verði fullgildur allsherjargoði Ásatrúar- félagsins eða einhver annar. Óljóst hver eru gild lög Ása- trúarfélagsins Jónína Berg gegnir stöðu allsherj- argoða þar til þing kemur saman ÖLDUNGAMEISTARAMÓTI Ís- lands í golfi lýkur í dag en það hófst á fimmtudag. Á þriðja hundrað þátttakendur sækja mótið og eru bræðurnir Birgir og Jón Svan Sig- urðssynir meðal keppenda í flokki 70 ára og eldri. Birgir, sem búsettur er í Kanada, hefur ekki keppt á Ís- landi síðan 1952 en þá varð hann Ís- landsmeistari. Birgir segir að á þeim tíma hafi ekki margir verið byrjaðir að stunda golf á Íslandi. Hann telur að um sextíu manns hafi verið í Golf- klúbbi Akureyrar og um tvö hundr- uð manns hafi stundað íþróttina í Reykjavík. Aðspurður hvers vegna hann hafi byrjað að spila golf segir hann að hann byrjað að halda á golf- pokanum fyrir fjölskyldumeðlim þegar sá hinn sami lék golf og í framhaldi byrjað að spila sjálfur. Birgir, sem er rakarameistari, flutti til Kanada 1959 og hefur búið þar síðan. „Ég hef alltaf stundað golf en spilaði reyndar fremur lítið fyrstu 25 árin eftir að ég flutti út. Ég hef hins vegar spilað mikið á seinni árum,“ segir Birgir. Þá voru þrír golfvellir Að sögn hans langaði hann að taka þátt í öldungameistaramótinu hér á landi í tilefni þess að það eru fimmtíu ár síðan hann varð Íslands- meistari og segist hann ánægður yf- ir því að hafa fengið tækifæri til að spila hér eftir allan þennan tíma. „Það hafa orðið gríðarlegar breyt- ingar hér varðandi golfíþróttina. Þetta er allt annað núna heldur en var þá. Nú er aðstaðan til dæmis mun betri. Þá voru þrír golfvellir á landinu, í Reykjavík, á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Núna eru þeir held ég fimmtíu og fjórir, þannig að þetta hefur breyst geysilega mikið.“ Birgir segir að keppnin nú sé harðari heldur en hún var fyrir fimmtíu árum, það séu svo margir góðir spilarar þátttakendur. Flokk- arnir eru tveir, annars vegar 65-70 ára og 70 ára og eldri hins vegar. Bróðir Birgis, Jón Svan, forstjóri Svansprents, keppir einnig í flokki 70 ára og eldri og segir Birgir að þeir bræður hafi byrjað að stunda íþróttina á svipuðum tíma. Hann segir þá hittast oft til að spila golf. „Við höfum spilað mikið saman okk- ur til ánægju en tökum ekki mikið þátt í keppnum. Við höfum hist á Flórída mörgum sinnum og spilað í Taílandi og farið um allar jarðir. Þegar við förum eitthvað erum við alltaf í golfinu,“ bætir hann við. Morgunblaðið/Arnaldur Bræðurnir Birgir og Jón Svan Sigurðssynir. Keppti síðast árið 1952 og varð þá Íslandsmeistari Öldungameistaramóti Íslands í golfi lýkur í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.