Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 2
Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isFylkir á toppinn eftir sigur á KA á Akureyri / B2 Dundee United vill fá Arnar Gunnlaugsson / B1 4 SÍÐUR16 SÍÐUR Sérblöð í dag Á LAUGARDÖGUM FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs- ingablaðið „Kan- arí“ frá Plúsferð- um. Blaðinu verður dreift um allt land. LÖGFRÆÐIDEILD Búnaðarbanka Íslands hefur sent Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki bréf þar sem þess er krafist að Guð- jón Ólafur Jónsson, formaður nefnd- arinnar, víki sæti úr henni og taki hvorki þátt í undirbúningi, meðferð né úrlausn þeirra mála sem varða Búnaðarbankann með hvaða hætti sem vera skal. Er vísað til þess að í grein á vefsíðu framsóknarmanna, hrifla.is, sem fjallað hafi verið um í fjölmiðlum, hafi Guðjón farið frjáls- legum orðum um skoðun sína á Bún- aðarbankanum en Guðjón er einnig formaður kjördæmissambands fram- sóknarmanna í Reykjavíkurkjör- dæmi suður. Í bréfi Búnaðarbankans segir að ummæli Guðjóns séu til þess fallin að draga úr óhlutdrægni hans í málefn- um sem varða bankann auk þess sem ummæli hans séu ósæmileg með hlið- sjón af samþykktum nefndarinnar. Guðjón Ólafur sé því vanhæfur í öllum málum sem snerti bankann. Engin mál tengd Búnaðar- bankanum hjá nefndinni Guðjón Ólafur segir að ekki sé gerð krafa um að hann víki sæti í tilteknu máli sem sé til afgreiðslu hjá nefnd- inni. Búnaðarbankinn sé því í raun að fara fram á að hann víki sæti í öllum málum sem kynnu að snerta bankann í framtíðinni. Guðjón Ólafur segir að á vef fram- sóknarmanna hafi hann tjáð sig um menn og málefni almennt í vikulegum pistlum í á annað ár og þá í eigin nafni og á eigin ábyrgð. Hann hafi verið for- maður nefndarinnar frá árinu 1999 og aldrei hafi verið gerðar athugasemdir við störf hans þar. „Það er áratuga hefð fyrir opinni og frjálsri þjóð- félagsumræðu hér á landi og ég hef tekið þátt í þeirri umræðu með skrif- um og öðrum hætti undanfarin ár og verið virkur þátttakandi í pólitískri umræðu. Það að ég taki þá ákvörðun að taka þátt í þeirri umræðu og stuðla að lýðræðislegri umræðu í landinu gerir mig ekki vanhæfan til þess að taka að mér trúnaðarstörf sem ég kann að vera beðinn um. Mér finnst áhyggjuefni ef stærstu fjármálafyrir- tæki landsins vilja takmarka eða hafa áhrif á opinbera umræðu með þessum hætti. Og ég held ég hafi ekkert sagt í þessu máli sem allur þorri almenn- ings hefur ekki hugsað.“ Guðjón Ólafur segir að búið hafi verið að boða til fundar í nefndinni í næstu viku og hann geri ráð fyrir að bréf Búnaðarbankans verði lagt þar fram og síðan tekin ákvörðun um með hvaða hætti því verði svarað. „Ég held að það efist enginn um hæfi mitt eða getu mína sem lögfræðingur til að fjalla fagmannlega um þau mál sem verið hafa til úrskurðar hjá nefnd- inni.“ Búnaðarbankinn og Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki Bankinn krefst þess að formaðurinn víki sæti HEITT vatn fannst á Eskifirði í maí síðastliðnum og hafa heimamenn haft mikinn áhuga á að reyna að nýta það sem fyrst. Umhverf- ishópur, sem starfar á vegum bæj- arins og Hraðfrystihúss Eski- fjarðar, hefur komið upp heitum potti, sem nýtur mikilla vinsælda hjá ungum sem öldnum. Einnig hef- ur potturinn verið notaður af ferða- mönnum sem eiga leið um Fjarða- byggð. Potturinn er nálægt golfvellinum, rétt innan bæjarins. Það er trú heimamanna að heita vatnið eigi eftir að stuðla að því að fólk setjist að í Fjarðabyggð. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Fjör í heita pottinum á Eskifirði BJÖRGUNARSKIPIÐ Gunnar Friðriksson frá Ísafirði dró tvo plast- báta, sem rekið hafði upp í fjöruna við Ytraskarð á Snæfjallaströnd, á flot síðdegis í gær. Enginn leki hafði kom- ið að bátunum en skrúfur beggja eru laskaðar. Í fréttatilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að björgunarskipið hafi dregið annan bátinn til hafnar en hinn hafi siglt fyr- ir eigin vélarafli. Áhafnir bátanna voru um borð í þeim en Gunnar Frið- riksson flutti farþega, sem voru 18 talsins, til hafnar á Ísafirði. Bátarnir höfðu verið skildir eftir við legufæri fyrir landi meðan báts- verjar brugðu sér í land í gönguferð. Þegar þeir komu til baka höfðu báðir bátarnir losnað og hafði þá rekið upp í land. Annar sat fastur í sandfjöru en hinn á klöppum skammt frá. Aldrei var nein hætta á ferðum. Tvo báta rak upp í fjöru SIGRÚN María Óskarsdóttir, átta ára stúlka sem slasaðist alvarlega í bílslysi á Jótlandi í byrjun mánaðar- ins, kom með sjúkraflugi til Akur- eyrar um hádegisbil í gær þar sem hún var lögð inn á barnadeild Fjórð- ungssjúkrahússins. Lovísa Jónsdóttir, móðir Sigrún- ar, segir Sigrúnu vera á góðum bata- vegi en að það eigi eftir að koma í ljós hvort hún hljóti einhvern varanlegan skaða af slysinu. Þá segir hún ekki ljóst hversu lengi Sigrún verði á sjúkrahúsinu þar sem hennar bíði ströng endurhæfing. Lovísa segir Sigrúnu ekki komna til fullrar meðvitundar en að hún vakni meira og meira með hverjum deginum. Þá segir hún óskaplega gott að vera komin heim. Komin heim til Akureyrar Stúlkan sem slasaðist í bílslysi á Jótlandi SAMVINNUNEFND miðhálendis hefur samþykkt breytingar á Svæð- isskipulagi Íslands til ársins 2015, á svæðinu norðan Vatnajökuls. Í nefndinni sitja fulltrúar allra kjör- dæma. Breytingarnar varða virkj- anaframkvæmdir og fleiri atriði, þar á meðal Kárahnjúkaveg. Einnig er leyfileg stærð Hálslóns færð úr 38 ferkílómetrum í 57 ferkílómetra. Eyjabakkar eru nú skilgreindir sem náttúruverndarsvæði, þar sem fallið hefur verið frá Fljótsdalsvirkjun samkvæmt eldra skipulagi. Skipu- lagsstofnun rannsakar hvort farið hafi verið að gildandi skipulags- og byggingarlögum, og sendir loks skipulagið til umhverfisráðherra. Þegar samþykki ráðherra liggur fyr- ir er hægt að veita framkvæmdaleyfi til vegaframkvæmda Landsvirkjunar sem auglýstar voru um síðustu helgi. Gunnþórunn Ingólfsdóttir, oddviti Fljótsdalshrepps, sagði að vegna þess að aðalskipulag Fljótsdals- hrepps lægi ekki fyrir fyrr en í haust hefði ekki verið hægt að samþykkja legu vegarins athugasemdalaust, og hefði þess vegna verið leitað álits Skipulagsstofnunar á Kárahnjúka- vegi. Niðurstöðu Skipulagsstofnunar að vænta á næstu dögum Ásdís Hlökk Theodórsdóttir að- stoðarskipulagsstjóri segir að Skipu- lagsstofnun muni fá svæðisskipulagið til umsagnar á næstu dögum og taka afstöðu til þess. Þar sem svæðis- skipulag miðhálendisins lá ekki fyrir fram að þessu taldi Skipulagsstofnun sér ekki stætt á að veita sveitar- stjórnum eystra meðmæli til fram- kvæmdaleyfis. Sú afstaða breytist nú þegar svæðisskipulagið hefur verið samþykkt. Aðspurð hvort útboð Landsvirkjunar á Kárahnjúkavegi hefði átt að bíða samþykktar skipu- lagsins svaraði Ásdís Hlökk að ekki væri einsdæmi að útboð væri auglýst áður en staðfest skipulag lægi fyrir. Svæðisskipulag hálendisins Leyfi fyrir Kárahnjúka- vegi væntanlegt TILKYNNT var til Héraðsdóms Reykjavíkur í gær, að Íslandsbanki færi fram á það við dóminn að fallið yrði frá málshöfðun bankans á hend- ur Norðurljósum vegna gjaldfallins 60 milljóna króna víxils. Tilgreint er í bréfi frá lögfræðiinnheimtu Íslands- banka að Norðurljós hafi samið um skuldina við Íslandsbanka. Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri Norðurljósa, sagðist vera mjög ánægður með þessa niðurstöðu og raunar allan gang mála hjá félaginu undanfarna tvo daga. Sigurður telur að félagið eigi raunhæfa möguleika á að ná samningum um skuldbreyting- ar, endurfjármögnun og sölu á eign- um sínum, þannig að rekstur þess geti risið undir skuldum. Íslandsbanki féll frá máls- höfðun ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.