Morgunblaðið - 12.09.2002, Page 1

Morgunblaðið - 12.09.2002, Page 1
213. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 12. SEPTEMBER 2002 „DAGUR harms og trega, dagur bænar og samkenndar,“ sagði George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, er hann minntist þeirra, sem létu lífið í árásum hryðjuverkamanna fyrir ári. Voru minningarathafnir um þá haldn- ar um heim allan í gær en í Bandaríkj- unum hófust þær með athöfn við rúst- ir tvíburaturnanna, World Trade Center. Lagðist þögn yfir alla borgina á þeirri stundu er rétt ár var liðið frá því fyrri flugvélinni var flogið á annan turninn. Athöfnin í New York hófst með því, að slökkviliðs- og lögreglumenn, sem misstu hundruð félaga sinna í árás- inni, gengu til hennar fylktu liði úr öll- um fimm hverfum borgarinnar undir tregafullum tónum sekkjapípunnar. George Pataki, ríkisstjóri í New York, las upp úr Gettysburgarávarpi Abrahams Lincolns og Rudolph Giul- iani, fyrrverandi borgarstjóri, sem gat sér mikið orð á þessum örlagaríku dögum, hóf síðan lesturinn á nöfnum allra þeirra, sem létu lífið í árás hryðjuverkamannanna á World Trade Center, 2.801 manns. Alls tóku um 200 manns þátt í upplestrinum. Áttu margir um sárt að binda er nöfn ástvina þeirra voru lesin upp. Ávarp við Frelsisstyttuna Bush forseti tók þátt í athöfn og þagnarstund við Hvíta húsið í Wash- ington og hélt þaðan til Pentagon, bandaríska varnarmálaráðuneytisins. 184 menn létu lífið er hryðjuverka- mennirnir flugu þriðju flugvélinni á bygginguna. Var forsetinn einnig við- staddur athöfn í Pennsylvaníu þar sem hann vottaði farþegum og áhöfn fjórðu flugvélarinnar virðingu sína en talið er, að þeir hafi ráðist gegn flug- ræningjunum áður en vélin hrapaði. Bush lagði í gærkvöld blómsveig við rústir World Trade Center í New York og tók þátt í athöfn þar sem tendraður var eilífur eldur til minn- ingar um hina látnu. Síðar og í nótt að ísl. tíma ætlaði hann að flytja ávarp við Frelsisstyttuna. Í útdrætti úr því, sem birtur var í gær, talar Bush um þetta erfiða ár, um sorg þeirra, sem eiga um sárt að binda, og býr þjóð sína undir næsta stig í stríðinu gegn hryðjuverkamönnum. Óbugaðir í erfiðleikunum Mikil sorg og söknuður einkenndu gærdaginn í Bandaríkjunum en minningarstundir voru um landið allt, meðal annars í kirkjum og skólum, og Bandaríkjamenn erlendis fjölmenntu til athafna, sem þar voru haldnar. Þrátt fyrir sorgina lögðu íbúar í New York áherslu á, að þeir væru enn óbugaðir. Sumir nefndu þó, að ver- öldin þeirra hefði breyst. Þeir gengju niður götu og vissu með sjálfum sér, að allt gæti gerst. Óttinn byggi enn í brjósti þeirra. Aðrir sögðust hafa kviðið þessum degi, ekki vegna ótta við nýjar árásir, heldur vegna hinna sáru minninga um skelfileg ódæðis- verkin fyrir ári. Fólk um allan heim sýndi í gær samstöðu sína með Bandaríkjamönn- um með þagnarstund og minningar- athöfnum og samúðarkveðjur bárust þeim hvaðanæva. Reuters George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, drúpir höfði við minningarathöfn, sem fram fór við Pentagon, banda- ríska varnarmálaráðuneytið, í Washington. Þaðan hélt hann til minningarathafna í Pennsylvaníu og New York. Fórnarlamba hryðjuverkanna í Bandaríkjunum fyrir ári minnst um allan heim Söknuður en mikil sam- kennd á erfiðri stund New York, Washington. AP, AFP.  Ár liðið/22 GEORGE W. Bush Bandaríkja- forseti hét því í gær að sigur myndi vinnast í „fyrsta mikla bardaganum á nýrri öld“ er hann fór fyrir lönd- um sínum við minningarathafnir um þá er létu lífið í hryðjuverk- unum 11. september í fyrra. „Morð á saklausu fólki verða ekki útskýrð, þeim verður einungis mætt með þolgæði,“ sagði forsetinn fyrir framan Pentagon, byggingu varn- armálaráðuneytisins í Washington. Bush var til skiptis sorgmæddur og ögrandi. „Í dag vottar þjóðin þeim virðingu sína,“ sagði hann um þá 184 er létu lífið í Pentagon og þá tæplega 3.000 er létust í New York og Pennsylvaníu. „Hér og í Penn- sylvaníu og New York heiðrum við nafn hvers og eins, líf hvers og eins.“ En um leið, sagði forsetinn, „ítrekum við það fyrirheit okkar að sigra í stríðinu“. Hryðjuverkin fyrir ári hefðu hrundið af stað „fyrsta mikla bardaganum á nýrri öld. Óvinirnir eru staðfastir og úrræða- góðir en þeir verða stöðvaðir“. Í grein sem Bush skrifaði í The New York Times í gær sagði hann, að hryðjuverkin hefðu ýtt Banda- ríkjamönnum út í styrjöld. „Þau af- hjúpuðu grimmd óvina okkar, sýndu fram á alvarlegar ógnir við land okkar og drógu fram staðfestu og háttprýði þjóðar okkar.“ At- burðirnir hefðu einnig dregið skýrt fram í dagsljósið hlutverk Banda- ríkjanna í heiminum. Í miðjum harmleiknum hefðu einnig skapast góð tækifæri. „Við verðum að búa yfir visku og hugrekki til að grípa þessi tækifæri. Stærsta tækifærið, sem Bandaríkjamönnum gefst, er að skapa í heiminum valdajafnvægi er stuðlar að frelsi fólks.“ „Mesta ógn sem hægt er að hugsa sér“ Bandaríkjastjórn ítrekaði einnig í gær að hún væri staðráðin í að eyða þeirra ógn er stafaði af meintri gereyðingarvopnasmíð Íraka. „Virk gereyðingarvopn í höndum hryðjuverkasamtaka eða blóðþyrsts einræðisherra, eða sam- bands beggja, eru mesta ógn sem hægt er að hugsa sér,“ sagði Dick Cheney varaforseti. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ákvað í gær, að neðri deild þingsins yrði kölluð saman til eins dags fundar í þarnæstu viku til að ræða Íraksmálið. Blair hefur lýst eindregnum stuðningi við þá af- stöðu Bush að nauðsynlegt sé að hrekja Saddam Hussein Íraks- forseta frá völdum. Í sjónvarpsviðtali sem sent var út í gær rifjaði Bush upp það sem hann hugsaði fyrst eftir að honum var til- kynnt um hryðjuverkin í fyrra. „Ég man að ég sat hérna [um borð í for- setavélinni] og hugsaði um afleið- ingar þess sem gerst hafði, og gerði mér grein fyrir því að þetta væri ögurstund í sögu Bandaríkjanna. Ég þurfti engin lögfræðiálit. Ég þurfti enga ráðgjöf. Ég vissi að við værum komin í stríð.“ „Óvinirnir verða stöðvaðir“ Washington, London. AP, AFP. LÍTIL stúlka, ættingi eins þeirra, sem fórust með farþegaþotunni frá Unit- ed Airlines, virðir fyrir sér minningarskjöld. Var honum komið fyrir við bæinn Shanksville í Pennsylvaníu, þar sem flugvélin hrapaði til jarð- ar, en talið er, að farþeg- arnir hafi snúist gegn flugræningjunum og komið þannig í veg fyrir ætlunarverk þeirra. Ástvinar minnst AP

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.