Morgunblaðið - 12.09.2002, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2002 47
DAGBÓK
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Feneyjar
Austurríki
Budapest
frá kr. 59.950
1.-6. október
Heimsferðir bjóða nýstárlega
ferð um heimsþekktar menningarborgir og náttúrutöfra Ítalíu, Austurríkis og
Ungverjalands undir leiðsögn þaulkunnugs fararstjóra. Frá Veronu á Ítalíu för-
um við til hinnar einstöku borgar Feneyja þar sem við eyðum degi og kvöldi og
síðan er ekið um stórkostlegt landslag
Alpanna til Graz í Austurríki og áfram
um Ungverjaland og endað í sjálfri
Budapest, perlunni á bökkum Dónár.
Stutt, hnitmiðuð og fræðandi ferð um
fegurstu borgir Evrópu og einstaklega
fagurt landsvæði. Gist er á góðum 3-4
stjörnu hótelum.
Aðeins 40 sæti í þessa einstöku ferð
Verð kr. 59.950
M.v. 2 í herbergi.
Aukagjald fyrir einbýli: 9.800 kr.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, 5 gisti-
nætur á góðum 3-4* hótelum með morgun-
mat, rútuferðir eins og í áætlun, sigling í
Feneyjum, skattar og íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið: Forfallagjald kr. 1.800
(valkvætt) og allur aðgangseyrir.
Völ á framlengingu í Budapest.
1. okt. Flogið síðdegis í beinu leiguflugi
Heimsferða til Verona á Ítalíu og lent þar
um kl. 21 að staðartíma. Ekið beint til
Lido til Jesolo, skammt frá Feneyjum þar
sem gist er fyrstu 2 næturnar. Um 2ja
tíma akstur.
2. okt. Að morgni er farið til Feneyja og
deginum varið þar. Einstök borg með
síkjunum, gondólunum, ótrúlegum bygg-
ingum, sögu, listaverkum, kristal og ólýs-
anlegri stemmningu á þröngum götum og
torgum. Gist í Lido de Jesolo, gegnt Fen-
eyjum.
3. okt. Ekið áfram um Ítalíu og upp til
Austurríkis, um undurfagurt landslag og
framhjá borgum eins og Udine og Klag-
enfurt og til Graz í Austurríki. Kvöldmat-
ur og gisting í nágrenni við Graz.
4. okt. Ekið áfram um Austurríki og yfir
landamærin til Ungverjalands og komið
síðdegis til höfuðborgarinnar Budapest.
Staldrað við á völdum fallegum stöðum
og gisting í borginni í 2 nætur.
5. okt. Boðið upp á kynnisferð um Buda-
pest fyrir hádegi og frjáls dagur að öðru
leyti.
6. okt. Flogið heim frá Budapest í beinu
leiguflugi Heimsferða kl. 12.00 á hádegi
og lent kl. 14.30 að íslenskum tíma.
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Nýjar vörur
daglega
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
4RA HERBERGJA
LAUFRIMI - 4 HERB. ÍBÚÐ
Til sölu björt og falleg íbúð með
sérinngangi 3. svefnherbergi. Falleg
beykiinnrétting í eldhúsi. Suðursvalir.
Verð 12, 5 millj.
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Hlutavelta STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert með góðan húmor, ert
djarfur og tekur þeim áskor-
unum sem lífið hefur upp á
að bjóða. Gættu þess samt
að sýna fyrirhyggju.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er allt í lagi að vilja deila
árangri sínum með öðrum.
Gættu þess þó að þú gangir
ekki of langt og þar með á
eigin hlut.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert sérstaklega hrífandi
og háttvís sem vekur áhuga
hjá öðrum. Hikaðu ekki við
að tala við yfirmann þinn eða
einhvern sem er í forsvari.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú kannt að meta fegurð
þegar þú sérð hana, en þú
getur líka notað hana til þess
að bæta andlega líðan þína.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert kappsamur og kraft-
mikill í dag. Þú hefur þörf
fyrir að tala við aðra og það
laðar að þér ólíklegasta fólk.
Það vilja allir hlusta á þig.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér finnst þú verða að telja
einhvern á þitt mál í dag.
Þetta gerir þig óvenju ræð-
inn og viljugan til að koma
fram á opinberum vettvangi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Forðastu allar fjárfestingar í
dag og gerðu nákvæmar
áætlanir sem þú svo ferð eft-
ir. Mundu að græddur er
geymdur eyrir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Af einhverjum ástæðum
verður þér lítið úr verki
þessa dagana. Ekki láta reka
á reiðanum, heldur taktu þig
saman í andlitinu og láttu
verkin tala.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú átt í hörðum tilfinninga-
legum átökum og mátt því
ekki við miklu. Reyndu að
finna þér skjól meðan þú
meltir málin og finnur þínar
lausnir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er hverjum manni nauð-
synlegt að losna við og við
undan oki hversdagsins.
Lyftu þér upp og fáðu þér
orkuforða til framtíðarinnar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Leyndarmál um þér náinn
koma þér á óvart. Vertu
maður til þess að halda því
hjá þér og láttu viðkomandi
um að gera hreint fyrir sín-
um dyrum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Allt hefur sinn tíma svo þú
skalt ekki beita þrýstingi.
Efnisleg gæði eru líka nauð-
synleg svo gefðu þér tíma til
að afla þeirra.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur ferðast víða og
margt hefur komið við sögu.
Gefðu þér nú tíma til að setja
reynslu þína niður á blað og
miðlaðu henni til annarra.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
HEIMSÁDEILA
Þessi öld er undarlig,
allir góðir menn um sig
ugga mega að mestu;
illir taka yfirráð,
að því hef ég um stundir gáð
að þeim er fylgt í flestu.
Fer ég með efnið undarlegt:
Ef þér girnizt nokkuð frekt
manna fylgi að fanga,
þá skal hann ekki óttast guð
og ekki stunda hans heilög boð,
heldur rækja hið ranga.
Þingheimurinn þýtur upp,
þegar hann sér Belzebub
dýrkaður er af einum,
aðhyllast og elska hann,
einnig verja, hver sem kann,
bæði í ljósi og leynum.
– – –
Stefán Ólafsson
Þessar ungu blómarósir á Djúpavogi söfnuðu kr. 6.420 til
styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Silja Dögg Stef-
ánsdóttir, Dagný Rut Hjartardóttir og Ólöf Rún Stef-
ánsdóttir.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Þessir duglegu krakkar héldu hlutaveltu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu rúmlega 1.600 kr. sem þau færðu
Rauða kross deildinni á Hvolsvelli. Þau heita Sara Hansen,
Guðrún Ósk Guðmundsdóttir, Elín Björk Sigurjónsdóttir,
Aron Guðmundsson, Aron Hansen og Vignir Sigurjónsson.
Þess má geta að þetta eru þrenn systkin.
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rf3 d6
4. Bc4 e6 5. O-O Rd7 6. Rc3
a6 7. a4 b6 8. Bf4 Bb7 9.
Dd2 h6 10. h3 g5 11. Bh2
Re7 12. h4 Rg6 13. h5 Re7
14. d5 e5 15. Re1 f5 16. exf5
Rf6 17. f3 Rxf5 18. Re4 O-O
19. c3 Kh8 20. Hd1 De8 21.
Bb3 Re7 22. Rxf6
Hxf6 23. g4 c6 24.
c4 cxd5 25. cxd5
Hc8 26. Rg2 Df7
27. Dd3 Hf8 28.
Re3 De8 29. Bc2
Kg8 30. Bxe5
dxe5 31. Dh7+
Kf7 32. d6 Hh8
Staðan kom
upp á franska
meistaramótinu
sem lauk fyrir
skömmu í Val
d’Isère. Almira
Skripchenko-
Lautier (2497)
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
hafði hvítt gegn Laurent
Fressinet (2619). 33. Bb3+!
Bd5 33...Rd5 gekk ekki upp
vegna 34. De4. Í framhald-
inu verður svartur mát á
kostulegan máta. 34. Rxd5!
Hxh7 35. Rxf6+ Kxf6 36.
d7! Dd8 37. Hd6#!. Hreyf-
ilseinvígið, keppni Stefáns
Kristjánssonar og Tomasar
Orals hefst í dag í Þjóð-
arbókhlöðunni.
SÆNSK sveit, skipuð þeim
Fredin, Lindkvist, Ström-
berg og Nyström, stóð sig
vel í keppninni um Rosen-
blumbikarinn og komst í
fjögurra liða úrslit, en tapaði
þá fyrir ítölsku Lavazza-
sveitinni. Meðal mótherja
Svíanna á fyrri stigum voru
ríkjandi heimsmeistarar í
sveit Rose Meltzer. Fredin
og félagar unnu þá viðureign
með 2ja IMPa mun, 128–
126. Hér er spil frá leiknum:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♠ G3
♥ ÁKD105432
♦ 52
♣9
Vestur Austur
♠ K8 ♠ Á97542
♥ 87 ♥ G9
♦ KD7 ♦ G10984
♣876532 ♣--
Suður
♠ D106
♥ 6
♦ Á63
♣ÁKDG104
Í opna salnum mættu
Fredin og Lindkvist gömlu
Power-Precision meisturun-
um, Sontag og Weichsel:
Vestur Norður Austur Suður
Lindkvist Weichsel Fredin Sontag
-- -- -- 1 lauf *
Pass 4 lauf ** 4 spaðar 5 hjörtu
Pass Pass Dobl Pass
Pass Pass
Laufið er sterkt og stökk
Weichsels í fjögur lauf sýnir
átta slaga hönd með renn-
andi hjartalit. Margir nota
opnun á fjórum laufum og
tíglum til að sýna slík spil
með hjarta eða spaða, og
það kemur vel út að nota
sagnvenjuna líka til að svara
sterku laufi.
Fredin er mikill baráttu-
jaxl og hvergi smeykur í
sögnum. Hann stingur sér
inn á fjórum spöðum og
doblar síðan fimm hjörtu!
Lindkvist vissi af samheng-
inu að makker átti lítinn há-
spilastyrk og tæplega mikið
í trompi, svo doblið hlaut að
vera beiðni um sérstakt
útspil. Rétt ályktað, og
Lindkvist spilaði út háu
laufi, vongóður um að makk-
er myndi trompa. Það runnu
þó á Lindkvist tvær grímur
þegar blindur kom upp með
einspil í laufi. En ekki lengi
– Fredin trompaði og spilaði
síðan spaðaás og spaða á
kóng vesturs. Spilið var nú
komið niður, en Lindkvist
tryggði vörninni einn slag í
viðbót með því að spila nú
tígli. Weichsel drap og
reyndi spaðadrottningu, en
Lindkvist trompaði og vörn-
in fékk slag á tígul í lokin:
500 í AV. Svíar unnu þó að-
eins 9 IMPa á spilinu, því á
hinu borðinu fóru Ström-
berg og Nyström í sex
grönd, einn niður.
E.S. Skyldi Weichsel ekki
vera sjálfum sér gramur að
breyta ekki í fimm grönd?
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 20. júlí sl. í Viðeyjar-
kirkju af sr. Írisi Kristjáns-
dóttur þau Ragnheiður
Magnúsdóttir og Mario Roig
Balaque. Heimili þeirra er
að: Passeig de la Merla 14,
08190 Valldoreix, Barcelona.
Árnað heilla
FRÉTTIR
HELGINA 13.–15. september verð-
ur haldin hin árlega 12 spora ráð-
stefna á vegum Áhugamannafélags-
ins Bata og verður hún að þessu
sinni í Súlnasal Hótel Sögu.
Líkt og á síðasta ári koma þrír
fyrirlesarar frá Bandaríkjunum á
ráðstefnuna en þau heita Clancy I.,
Mary M. og Cliff R. Clancy I. er
einn kunnasti fyrirlesari AA-sam-
takanna og hefur hann haldið fyr-
irlestra og námskeið um allan heim.
Hann er að auki einn stofnenda
Pacific Group-deildarinnar í Kali-
forníu sem er fjölmennasta AA-
deild heims.
Miðaverð á ráðstefnuna er kr.
3.500.
Tólf spora ráðstefna
um næstu helgi
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111