Morgunblaðið - 12.09.2002, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sannsöguleg stórmynd framleidd af Sigurjóni
Sighvatssyni. Ingvar Sigurðsson
fer á kostum í magnaðri mynd sem þú mátt
ekki missa af!
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12 ára.
Kvikmyndir .com
Sýnd kl. 6.
- www.borgarbio.is -
Kynþokkafyllsti spæjari
allra tíma er mættur aftur!
Fyndari en nokkru sinni fyrr
DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Frumsýning
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
„Besta mynd ársins til þessa“
1/2HÖJ Kvikmyndir.com
„Ein besta mynd þessa árs.
Fullkomlega ómissandi.“
SV Mbl
HK DV
Radíó X
Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 6 og 8.
Yfir 27.000 MANNS
„meistaraverk sem
lengi mun lifa“
ÓHT Rás 2
i
l i li
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Yfir 20.000 MANNS
The Sweetest Thing
Sexý og Single i l
HL Mbl
Sýnd kl. 5, 8, 10 og 11. B. i. 14.
Sannsöguleg
stórmynd
framleidd af
Sigurjóni
Sighvatssyni.
Ingvar
Sigurðsson fer á
kostum í
magnaðri mynd
sem þú mátt
ekki missa af!
miðaverð aðeins 350 kr!
STUTTMYND
HJ Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 5, 8 og 11. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 4 og 4.30.
kl. 6.30 og 9.30.
Kvikmyndir .com
Sýnd með íslensku tali.
Sýnd kl. 4 og 6. með íslensku tali.
DV
RÆDDU málin er fjór-tánda kvikmynd PedrosAlmodóvars – annál-aðasta kvikmyndagerðar-
manns Spánar. Myndin fylgir eftir
hans farsælustu mynd til þessa
Todo sobre mi madre, sem hlaut
ekki einasta Óskarsverðlaun sem
besta erlenda myndin, heldur einn-
ig Evrópsku kvikmyndaverðlaunin
og dómnefndarverðlaun í Cannes,
svo einungis fáeinar vegtyllur séu
nefndar. Þetta er saga um vinskap
tveggja manna, saga um einsemd
og bældar tilfinningar, minni sem
Almodóvar hefur áður fengist við
með eftirtektarverðum árangri.
Annar þessara manna er leikinn
af Javier nokkrum Cámara, lítt
þekktum leikara utan Spánar en
stórstjörnu heima fyrir. Cámara
þessi verður viðstaddur frumsýn-
ingu myndarinnar hérlendis. Sýn-
ingin markar upphaf Spænskrar
kvikmyndahátíðar sem fram fer
dagana 12.–22. september þar sem
að auki verða sýndar 15 aðrar
spænskar myndir eða myndir á
spænskri tungu, auk nokkurra
stuttmynda, en dagskrá hátíðarinn-
ar er kynnt nánar á menningarsíð-
um Morgunblaðsins í dag á bls. 24
og næstu daga.
Þráir kuldann
Í samtali við Morgunblaðið
stuttu fyrir Íslandsförina sagðist
Cámara afar spenntur, hann hefði
alltaf langað að sækja landið heim,
„eins og trúlega alla aðra sem ekki
hefðu þegar gert það.“ Cámara
segir að líkt og öðrum Spánverjum
detti sér í hug einhvers konar
framandi paradís er hann hugsar
til Íslands. „Björk, eldfjöllin og
jöklarnir. Þetta er eitthvað svo ein-
staklega framandi samsetning.“
Svo segist Cámara mikið fyrir
kulda gefinn. „Maður verður nátt-
úrlega þreyttur á þessari enda-
lausu hitamollu hér á Spáni. Ég
veit fátt betra en að anda að mér
fersku og svölu útsjávarloftinu og
hlakka til að geta gert það á Ís-
landi.“
Cámara segist ætla að dveljast á
Íslandi í 4 daga og hyggst nýta tím-
ann vel til þess að kynnast landi og
þjóð. „Ég veit ekki hvernig best er
að gera það. Vonandi er einhver
sem á eftir að sýna mér það.“
Spænsk sjónvarpsstjarna
Áður en hinn 35 ára gamli Cám-
ara birtist í Almodóvar-mynd var
hann fyrst og fremst þekktur með-
al spönsku þjóðarinnar sem sjón-
varpsstjarna og þá sérstaklega fyr-
ir hlutverk sitt í þáttunum Sjö líf.
Hann hefur þó leikið í sjö kvik-
myndum utan Ræðum málin og ut-
an Spánar eru þeirra þekktastar
hinar ærslafullu myndir um löggu-
dólginn Torrente þar sem Cámara
lék „vin“ hans Rafi.
Cámara segir aðalhlutverk í
mynd eftir Almodóvar þó sitt lang-
stærsta tækifæri og að hann fyllist
stolti að hafa tekið þátt í og getað
kynnt svo merkilegt listaverk fyrir
öðrum þjóðum. „Þetta er ekki að-
eins besta mynd sem ég hef komið
að heldur lærði ég svo mikið af
henni og vinnubrögðum Almodóv-
ars.“
Cámara segir það draum allra
leikara á Spáni að fá að vinna með
Almodóvar. „Almodóvar er snilling-
ur. Ég veit ekki hvernig það er
annars staðar en á Spáni er hann
álitinn snillingur. Það er því ekkert
smámál að vera boðið aðalhlutverk-
ið. Hann gæti náttúrlega fengið
hvern sem væri, hvort sem það
væri Leonardo DiCaprio eða ein-
hver Spánverji.“
Cámara segist því ekki hafa
hugsað sig um tvisvar þegar kallið
kom frá Almodóvar. „Það er ekki
hægt að segja nei við Almodóvar.
Ég þekkti hann ekki fyrir en hann
er svo opinn og gefandi að eftir
stutt samtal fannst mér eins og við
værum gamli vinir. Hann er sífellt
að koma manni á óvart og ég get
með sanni sagt að myndin hafi
breytt lífi mínu til frambúðar. Ekki
beint sem leikari heldur hefur það
breytt viðhorfi annarra til mín og
einnig viðhorfi mínu til kvikmynda-
gerðarinnar, sem mér þykir miklu
göfugra listform eftir að hafa unnið
með svo færu fólki.“
Pússar neglur og saumar út
Cámara hefur hlotið mikið lof
fyrir túlkun sína á hjúkrunarfræð-
ingnum bælda Benigno en í hóg-
værð sinni segir hann frammistöðu
leikara alltaf háða því efni sem hon-
um er fært í hendur: „Þetta er afar
vel skrifað hlutverk. Benigno er
margbrotin persóna, indæll maður
en engan veginn fölskvalaus og til-
finningarnar hefur hann einhverra
hluta vegna ákveðið að hefta inni.“
Segja mætti að Benigno sé í nán-
um tengslum við mjúku kenndirn-
ar. Hann er snyrtifræðingur hinn
besti, pússar neglur, snyrtir hár og
saumar út í frístundum. Almadóvar
hefur haft á orði hversu Cámara
var þjált að tileinka sér þessa göf-
ugu iðju og ekki nóg með það held-
ur hafi verið einkar trúverðugur í
hlutverki hjúkrunarfræðingsins.
„Já, ég er græðari hinn besti,“
segir Cámara og kímir. „Ef það
amar eitthvað að þér þá skal ég
kíkja á bágtið þegar ég kem.“
Að öllu gríni slepptu segist Cám-
ara hafa þurft að ganga í gegnum
fjögurra mánaða strangt námskeið
fyrir gerð myndarinnar í hjúkrun,
snyrtifræðum ýmiss konar og út-
saumi. Af því hafi hann haft bæði
gagn og þónokkurt gaman.
Cámara segist vissulega hafa náð
góðu sambandi við sínar mýkri
hliðar við að túlka Benigno en hann
segist þó ekki síst hafa lært af hon-
um hversu mikil dyggð felst í því að
vera víðsýnn. „Benigno er opinn
fyrir öllu sem lífið hefur upp á að
bjóða. Hann hefur svo mikið að
gefa, vináttu og ást. Hann er
hömlulaus en um leið á hann erfitt
með að tjá allar þessar tilfinningar
þegar mikið liggur við.“
Almodóvar
opnar dyr
Varðandi framtíðina segist Cám-
ara þegar hafa fundið fyrir því að
þátttakan í Almodóvar-mynd hafi
opnað fyrir sér margar dyr sem áð-
ur voru lokaðar. „Mig óraði ekki
fyrir hversu áhrifamikill Almodóv-
ar væri. Ég fæ mun fleiri atvinnu-
tilboð nú og ekki bara á Spáni held-
ur einnig að utan, t.d. frá Ítalíu og
Frakklandi. Svo er ég allt í einu
farinn að tala við blaðamenn á Ís-
landi. Nokkuð sem ég hafði aldrei
gert áður,“ segir þessi léttlyndi
spænski leikari að lokum og hlær
við.
„Almodóvar
er snillingur“
Í kvöld hefst í Regnboganum spænsk kvik-
myndahátíð með frumsýningu nýjustu
myndar Pedros Almodóvars, Hable con
ella, eða Ræddu málin. Skarphéðinn
Guðmundsson ræddi af því tilefni málin við
aðalleikara myndarinnar Javier Cámara en
hann verður viðstaddur opnunarsýninguna.
Leikarinn Javier Cámara verður viðstaddur sýningu opnunarmyndar Spænskrar kvikmyndahátíðar í kvöld
Farinn að ræða málin við íslenska blaðamenn: Javier Cámara, aðalleikari Almodóvar-myndarinnar Ræddu málin.
skarpi@mbl.is
Kyssir Óskar: Pedro Almodóvar er einn allra farsælasti kvikmynda-
gerðarmaður Spánar fyrr og síðar.
Reuters