Morgunblaðið - 17.09.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.09.2002, Blaðsíða 1
STJÓRNVÖLD í Pakistan hafa framselt fimm meinta liðsmenn al- Qaeda-hryðjuverkasamtakanna til Bandaríkjanna. Mennirnir voru fluttir með flugvél frá Pakistan í gær en meðal þeirra var Ramzi Binalshibh, einn skipuleggjenda hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september í fyrra. Ekki liggur fyrir hvert farið var með mennina. Þýsk stjórnvöld höfðu lýst áhuga á að fá Binalshibh framseld- an en Otto Schily innanríkisráð- herra tilkynnti í gær að framsals- krafa Bandaríkjastjórnar fengi að ganga fyrir. Fagnaði John Ash- croft, dómsmálaráðherra Banda- ríkjanna, þessari ákvörðun í gær en það hefði getað skapað nokkra lagaóvissu ef Binalshibh hefði fyrst verið sendur til Þýskalands, enda er lagt bann við því í aðildarríkjum Evrópusambandsins að framselja þá menn til Bandaríkjanna, sem hugsanlega eiga dauðarefsingu yf- ir höfði sér. Al-Qaeda-liðar til Bandaríkjanna Karachi, Brussel. AFP, AP. arandstaðan í Úkraínu sakar Kútsjma um að hafa látið myrða Gongadze. Um er að ræða einar fjöl- mennustu mótmælaaðgerðir sem efnt hefur verið til í Úkraínu á þeim tólf árum, sem liðin eru síðan landið sagði skilið við Sovétríkin sálugu. Eftir því var tekið að Víktor Júsh- enkó, fyrrum forsætisráðherra, lýsti yfir stuðningi við mótmælendur á sunnudag. Þá vakti athygli að allar sjónvarpsútsendingar í landinu lágu niðri þar til skömmu áður en mót- mælin hófust. TUGIR þúsunda manna tóku í gær þátt í mótmælum sem efnt var til víðs vegar um Úkraínu gegn ríkjandi valdhöfum í landinu. Hróp- uð voru slagorð gegn forsetanum, Leoníd Kútsjma, farið var fram á af- sögn hans og að boðað yrði til nýrra kosninga. Má á myndinni sjá mót- mælendur í höfuðborginni Kíev en þar komu um 20.000 manns saman. Boðað var til mótmælanna til að minnast þess að í gær voru liðin tvö ár frá því að blaðamaðurinn Heorhiy Gongadze hvarf sporlaust en stjórn- Krefjast afsagnar Úkraínuforseta AP 217. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 17. SEPTEMBER 2002 ÍRAKSSTJÓRN hefur fallizt skil- yrðislaust á að vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna haldi aftur til Íraks. Greindi Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri SÞ frá þessu í gær- kvöld. „Ég get staðfest, að mér hefur bor- izt bréf frá íröskum stjórnvöldum, þar sem þau tilkynna þá ákvörðun sína að heimila vopnaeftirlitsmönn- um að halda áfram verki sínu, án skil- yrða,“ sagði hann. Írakar hefðu enn- fremur fallizt á að „hefja tafarlaust viðræður um framkvæmdaatriði varðandi endurkomu eftirlitsmann- anna.“ Nærri því fjögur ár eru nú lið- in síðan síðasti vopnaeftirlitsmaður- inn yfirgaf Bagdad. Annan sagði að ræða sem George W. Bush Bandaríkjaforseti hélt á allsherjarþingi SÞ í New York í síð- ustu viku hefði hreyft umtalsvert við alþjóðasamfélaginu. „Nærri því hver einasti ræðumaður á allsherjar- þinginu skoraði á Írak að fallast á endurkomu vopna- eftirlitsmanna,“ sagði Annan. Bush skoraði í ræðunni á SÞ að beita öllum þeim áhrifamætti sem samtökin byggju yfir til að þvinga Íraka til að hlíta öllum þeim sam- þykktum sem SÞ hefur gefið út varð- andi Írak frá því Íraksher hernam Kúveit árið 1990, einkum og sér í lagi kröfunni um að Írakar losi sig við öll gereyðingarvopn sem þeir réðu yfir. „Það eru góðar fréttir,“ sagði íraski utanríkisráðherrann Naji Sabri rétt áður en Annan tilkynnti um innihald bréfsins sem Sabri af- henti. Sabri lét ekki hafa neitt annað eftir sér og yfirgaf höfuðstöðvar SÞ. Stjórnarherrarnir í Bagdad höfðu setið á rökstólum um orðalag bréfs- ins í heilan sólarhring áður en það var afhent. Sabri og Amr Moussa, forseti Arababandalagsins, áttu fund með Annan í gærkvöl þar sem bréfið frá Íraksstjórn var afhent. „Nú mun ég leggja bréfið fyrir ör- yggisráðið og það verður að ákveða hvað næst skuli gera; og að sjálf- sögðu mun hr. Blix og hans lið verða reiðubúið að hefjast handa á ný,“ sagði Annan. Núverandi yfirmaður vopnaeftirlitsliðs SÞ heitir Hans Blix. Þakkar Arababandalaginu Annan neitaði að svara spurning- um fréttamanna, en tilkynnt var að skrifstofa framkvæmdastjórans væri að undirbúa birtingu bréfsins. Sagði Annan Arababandalagið hafa leikið lykilhlutverk við að telja Íraksstjórn á að láta undan. Þakkaði Annan Moussa fyrir „þrotlausa vinnu hans við að sannfæra Íraka um að heimila endurkomu eftirlitsmann- anna.“ Samkvæmt samþykktum öryggis- ráðs SÞ er ekki unnt að aflétta við- skiptaþvingunum og öðrum refsiað- gerðum sem ákveðnar voru gegn Írak eftir innrás Írakshers í Kúveit árið 1990 fyrr en vopnaeftirlitsmenn staðfesta að búið sé að eyða öllum gereyðingarvopnum í Írak. Síðustu eftirlitsmennirnir fóru frá Bagdad árið 1998 og strax í kjölfarið hófu brezkar og bandarískar orrustuþotur loftárásir á írösk hernaðarmannvirki í refsingarskyni. Alla tíð síðan hafa stjórnvöld í Bagdad neitað að verða við kröfum um að vopnaeftirlitsmenn fái að koma aftur inn í landið og ólíkt mat fastra meðlima öryggisráðsins - Bandaríkjanna, Bretlands, Frakk- lands, Rússlands og Kína – á því hvernig bregðast skyldi við hefur haldið aðgerðum alþjóðasamfélags- ins gagnvart Írak í pattstöðu. Framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna fært bréf frá stjórninni í Bagdad Írakar fallast á skilyrð- islaust vopnaeftirlit Sameinuðu þjóðunum. AFP, AP. Naji Sabri Sprengja banaði 11 í Grozní Moskvu. AFP. AÐ minnsta kosti ellefu manns biðu bana og tugir til viðbótar særðust alvarlega þegar sprengja sprakk nálægt útimarkaði í Grozní, höfuð- borg Tsjetsjníu, í gær. Þetta er eitt mannskæðasta sprengjutilræðið í Tsjetsjníu í langan tíma. Rússneskir fjölmiðlar sögðu tvö börn vera meðal hinna látnu. Var sprengjan svo öflug að lík fórnar- lamba köstuðust allt að fimmtán metra. Sprengjan sprakk er stræt- isvagn ók hjá jarðsprengju, sem tal- in er hafa verið fjarstýrð, en tsjetsj- neskir uppreisnarmenn nota gjarnan slíkar sprengjur. Fram kom í fréttum ORT-sjónvarpsstöðv- arinnar að sprengjan hefði sprungið skömmu eftir að tvær rússneskar liðsflutningabifreiðar höfðu ekið um sama svæði. Þykir líklegt að tilræð- inu hafi verið beint gegn þeim. Fórnarlömbin reyndust hins vegar flest óbreyttir borgarar sem leið áttu um svæðið. Skæruliðar sverja af sér alla ábyrgð „Það er enginn vafi á því að þeir sem frömdu þetta voðaverk voru tsjetsjneskir skæruliðar,“ sagði ónafngreindur talsmaður yfirvalda í Tsjetsjníu, sem hlynnt eru yfirráð- um Rússa í lýðveldinu. „Markmið þeirra er að valda glundroða í Grozní og Tsjetjsníu sem heild með grimmdarverkum sem þessu,“ sagði hann enn fremur. Tsjetsjnesku skæruliðarnir hafna hins vegar allri ábyrgð á ódæðinu og talsmaður Aslans Maskhadovs, leiðtoga þeirra, gaf í skyn að rússn- eski herinn hefði verið hér að verki í því augnamiði að skaða ímynd skæruliðanna meðal borgara í Grozní. 50 farast í rútuslysi í Argentínu Buenos Aires. AFP. AÐ MINNSTA kosti fimmtíu manns létu lífið, þar á meðal tíu börn, og um 25 manns slösuðust er fólksflutningabifreið steyptist niður í gil í norðurhluta Argentínu, í grennd við landamærin að Chile. Mun fólkið hafa verið á heimleið úr pílagrímaferð, samkvæmt því sem lögregla greindi frá í gær. „Búið er að staðfesta dauða 50 farþega, þar á meðal eru nokkur börn, en þetta eru enn bráðabirgða- tölur,“ sagði Luis Cordoba, lög- reglufulltrúi. Sagði hann yfir 70 manns hafa verið í rútubílnum er hann fór út af veginum í fjalllendi Cuesta del Totoral-héraðs í Norð- ur-Argentínu á sunnudagskvöld. Er talið hugsanlegt að hemlabilun hafi orsakað slysið. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.