Morgunblaðið - 17.09.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI
14 ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www.islandia.is/~heilsuhorn
Fyrir augun
Öflugt bætiefni
Ath.: 24 mg í hverjum belg
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
Til sölu eða leigu
Njarðarnes 14
Nýtt verslunar/iðnaðarhúsnæði.
Stærð um 900 m². (Góð staðsetning í nýju hverfi.)
Dalsbraut 1
Verslunar/iðnaðarhúsnæði.
Grunnflötur 750 m² + kjallari 170 m²
(Mjög góð staðsetning við hliðina á Glerártorgi)
Upplýsingar í símum
461 1188 og 861 2823
SUÐURNES
NEMENDUR hafa aldrei verið
fleiri við Menntaskólann á Akureyri
og nú í vetur, en alls er 641 nemandi
skráður í skólann. Skólinn var settur
í 123. sinn í gær. Flestir eru nem-
endur í fyrsta bekk, 186 talsins, í öðr-
um bekk eru 168, 159 í þriðja bekk
og 128 í fjórða bekk. Stúlkur í skól-
anum er 370 eða 58% og piltar eru
271, eða 42%. Piltum hefur fækkað
um eitt prósent frá fyrra ári, en hafði
nokkuð fjölgað meðal nemenda skól-
ans tvö síðustu ár. Um tveggja ára-
tuga skeið hefur skiptingin milli pilta
og stúlkna í skólanum verið á þann
veg að stúlkur hafa verið um 60%
nemenda og piltar um 40%.
Tryggvi Gíslason skólameistari
greindi frá áformum sínum varðandi
sparnað í rekstri, en enn hefur
„þurft að leita leiða til að spara í
rekstri skólans vegna þess að ekki
fæst nægilegt rekstrarfé á fjárlögum
til þess að reka skólann í samræmi
við lög um framhaldsskóla og gild-
andi ákvæði námskrár“, eins og
skólameistari komst að orði í setn-
ingarræðu sinni.
Meðal þess sem gripið verður til í
því skyni að spara fé má nefna að
breytingar verða gerðar á fyrir-
komulagi ræstingar, þá verða hús
skólans, nema heimavist, lokuð um
helgar nema þegar sérstaklega
stendur á í félagslífi nemenda. Fá-
mennum bekkjum hefur verið slegið
saman, þannig að fleiri nemendur
eru nú í bekkjum en áður, að með-
altali um 25 nemendur í bekk.
Tryggvi sagði þessa ráðstöfun ef-
laust geta haft áhrif á árangur og
vellíðan nemenda og kennara, „en ég
tel rétt að gera þessa tilraun“, sagði
hann og benti á að fleira hefði áhrif á
námsárangur og vellíðan en fjöldi í
bekk.
Nemendur hvattir
til að ganga í skólann
Bygging nýrra nemendagarða
stendur nú yfir á lóð skólans en þeir
verða teknir í notkun fullbúnir að ári.
Margs konar óhagræði fylgir hinum
miklu framkvæmdum og munu nem-
endur fyrst um sinn feta sig eftir
trébrú milli heimavistar og skóla-
húsa.
Vegna framkvæmdanna verða
færri bílastæði við skólann nú fyrsta
kastið, þeim fækkar um 50 alls.
Beindi Tryggvi því þeim tilmælum
til nemenda og kennara að koma
ekki á bíl í skólann nema brýna nauð-
syn beri til. Hollt væri að ganga og
sjálfur myndi hann sýna gott for-
dæmi og ganga í skólann. Um ára-
mót fjölgar bílastæðum að nýju og
verða þá um 200 stæði fyrir nem-
endur.
Aldrei fleiri nemendur en nú í MA
Sparað í rekstri með
því að fjölga í bekkjum
VEÐURKLÚBBURINN á Dalbæ í
Dalvík fékk afhenta í gær full-
komna tölvu að gjöf frá Bún-
aðarbanka Íslands og OLÍS. Edda
Svavarsdóttir, markaðsstjóri Bún-
aðarbankans, afhenti hana við
stutta athöfn á Dalbæ.
Tölvan er í beinu sambandi við
veðurstöð sem staðsett er á þaki
Dalbæjar.
Veðurstöðin mælir t.d. vind,
loftþrýsting og hita og safnar
þessum upplýsingum saman og
heldur utan um þær. Þá verður
mikið hagræði að geta nýtt hana
við heimasíðu klúbbsins.
Veðurklúbburinn var stofnaður
árið 1995 og á þessum tíma hefur
orðspor hans vaxið. Klúbbfélagar
eru heimilismenn á Dalbæ. Þeir
koma reglulega saman og ræða
málin og glugga í ýmis gögn. Víst
er að þessi tölva mun koma að
góðum notum fyrir klúbbfélaga
og auðvelda þeim samskipti við
þá fjölmörgu sem reglulega fylgj-
ast með veðurspá þeirra.
Morgunblaðið/Guðmundur Ingi
Edda Svavarsdóttir, markaðsstjóri Búnaðarbankans, afhenti tölvuna.
Veðurklúbburinn
fékk tölvu
Dalvíkurbyggð
ÚTSKRIFTARNEMAR Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja gróð-
ursettu tré á skógræktarsvæðinu
við Rósaselsvötn í Keflavík á dög-
unum. Er þetta táknræn athöfn
sem orðin er að hefð í skólastarf-
inu. Gróðursett er eitt tré fyrir
hvern nemanda sem á að útskrif-
ast. Með tímanum verður þarna
góður skógur sem minnir nem-
endur á þennan áfanga í lífi
þeirra.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Útskriftarnemar
gróðursetja
Keflavík
NÝ sjálfsafgreiðslustöð Orkunnar á
Njarðvíkurfitjum selur bensín og
dísilolíu á sérstöku opnunartilboði.
Bensínið er líklega það ódýrasta sem
hægt er að fá á landinu um þessar
mundir. Sjálfsafgreiðslustöð ÓB í
Njarðvík jafnaði verðið í gær en þá
lækkaði Orkan sig um tíu aura lítr-
ann til viðbótar.
Bensínstöð Skeljungs á Fitjum í
Njarðvík, við hliðina Hagkaupum,
hefur verið breytt í sjálfsafgreiðslu-
stöð undir merkjum Bensínorkunn-
ar ehf. Nýja stöðin, sem er áttunda
bensínstöð Orkunnar og sú fyrsta á
Suðurnesjum, var opnuð formlega
síðastliðinn laugardag.
Bensínið hefur verið selt á 89,90
krónur lítrinn á sérstöku opnunartil-
boði og dísilolía á 39,90. Til saman-
burðar má geta þess að almennt verð
á öðrum stöðvum Orkunnar er nú
93,30 kr. lítrinn og 42,80 á dísilolíu. Í
gær jafnaði hin sjálfsafgreiðslustöð-
in á staðnum, ÓB í Njarðvík, verðið á
bensíninu og í framhaldi af því lækk-
aði Orkan lítrann um tíu aura síðdeg-
is. Bensínverðið var þá komið niður
89,80 kr. lítrinn. Gunnar Skaptason,
framkvæmdastjóri Bensínorkunnar,
sagði að fyrirtækið myndi standa við
slagorð sitt um ódýrasta bensínið
hvað sem á gengi. Hann sagði að fyr-
irhugað væri að hafa þetta opnunar-
tilboð eitthvað fram eftir vikunni en
þróun þess réðist þó af markaðnum.
Mikið að gera
Guðmundur Ingvarsson rekur
áfram söluskála tengdan bensínstöð-
inni. Hann vekur athygli á að áfram
sé boðið þar upp á olíur og rúðu-
vökva og hægt að komst á þvottaplan
og í ryksugu. Þjónustan við bíleig-
endur sé því meiri þarna en á flest-
um öðrum sjálfsafgreiðslustöðvum
Orkunnar.
Segir Guðmundur að mikið hafi
verið að gera í bensíninu um helgina,
langar biðraðir þegar mest var um
að vera. Það hafi verið farið að hægj-
ast um í gær.
Ný sjálfsafgreiðslustöð á Fitjum
Ódýrasta bens-
ínið á landinu
Njarðvík
BÆJARSTJÓRN Grindavíkur
hefur ákveðið að óska eftir við-
ræðum við heilbrigðisráðuneytið
um heilbrigðismál í sveitarfé-
laginu. Kannaðir verði möguleikar
á að Grindavík verði tilraunasveit-
arfélag í rekstri heilsugæslunnar.
Í samstarfssamningi núverandi
meirihluta Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks í bæjarstjórn Grinda-
víkur er fjallað sérstaklega um
heilbrigðismálin. Á þeim grund-
velli fluttu og samþykktu bæjar-
fulltrúar meirihlutaflokkanna til-
lögu um að óskað yrði eftir
viðræðum við heilbrigðisráðuneyt-
ið um núverandi ástand og fram-
tíðarfyrirkomulag heilbrigðismála
á staðnum. Í samþykktinni felst
einnig að kannaðir verði mögu-
leikar á því að Grindavíkurbær
gerist tilraunasveitarfélag í rekstri
heilsugæslunnar.
Fulltrúi Framsóknarflokksins
greiddi atkvæði gegn tillögunni í
bæjarráði en bæjarfulltrúar
flokksins sátu hjá þegar hún var
samþykkt í bæjarstjórn.
Vilja ræða heilbrigð-
ismál við ráðuneyti
Grindavík
BÆJARSTJÓRN Grindavíkur hef-
ur samþykkt að óska eftir því við fé-
lagsmálaraðherra að aflétt verði
kaupskyldu og forkaupsrétti bæjar-
ins á félagslegum eignaríbúðum.
Tillagan var samþykkt af fulltrú-
um meirihluta Samfylkingar og
Sjálfstæðisflokks í kjölfar tillögu
þessa efnis sem samþykkt var í hús-
næðisnefnd Grindavíkurbæjar.
Fulltrúar Framsóknarflokks
greiddu atkvæði á móti tillögunni
enda felldu fulltrúar meirihlutans til-
lögu þeirra um að fresta afgreiðslu
málsins og nota tímann til að láta
meta kostnað af framkvæmd hennar.
Aflétta
kaupskyldu
Grindavík