Morgunblaðið - 17.09.2002, Page 19
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 19
ERLENT
NÝVERIÐ var opnuð í Vest-
mannaeyjum fyrsta Volare-
verslunin í heiminum. Volare sel-
ur húð-, hár- og heilsuvörur unnar
úr kælipressaðri Aloe vera-plöntu.
Þessar vörur eru einungis seldar í
heimasölu um land allt, en að sögn
Guðmundu Hjörleifsdóttur, sem
flytur vörurnar inn, nýtur hún
þeirrar sérstöðu að búa í Eyjum
og taldi sig því geta kynnt vörurn-
ar sérstaklega með þessum hætti.
Hún segir að Volare bjóði jafn-
framt upp á heimakynningar í
Eyjum.
Að sögn Guðmundu hafa Vol-
are-vörurnar verið notaðar gegn
psoriasis, exemi og öðrum húð-
vandamálum. Vörurnar hafa verið
til sölu á Íslandi í fimm ár. Eig-
endur Volare á Íslandi ákváðu í
tilefni af opnun verslunarinnar að
láta 1% af ársveltu fyrirtækisins
renna til Umhyggju, félags lang-
veikra barna á Íslandi, í desember
en veltan á síðasta ári var um það
bil 25 milljónir, að þeirra sögn.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Eigendur og sölukonur á opnunardegi fyrstu Volare-verslunarinnar í heiminum í Vestmannaeyjum.
Fyrsta Volare-verslunin í heiminum
EFNT hefur verið til keppni meðal
danskra skólabarna í 1. til 7. bekk um
besta rapplagið. Efni lagsins skal
vera ávextir og grænmeti og mega 2
til 10 leggja hönd á plóg við gerð
hvers lags. Skilafrestur er 4. nóvem-
ber og má telja lagasmíðina með
heimavinnu vetrarins, að því er segir
á heimasíðu dönsku neytendastofn-
unarinnar, www.fi.dk.
Sigurvegarar keppninnar fá fram-
lag sitt útgefið á geisladiski auk þess
sem þekktur dönsk söngkona mætir í
bekk vinningshafa. Þá verður fjöldi
vinninga úr ávöxtum og grænmeti,
segir ennfremur.
„Tilgangur keppninnar er að fá
börn og unglinga til þess að gæða sér
á ávöxtum og grænmeti dagsdaglega.
Fjöldi barna borðar of mikið af sæt-
og feitmeti, ekki síst seinnipartinn,
sem leiðir til sífellt fleiri offituvanda-
mála,“ segir neytendastofnunin.
Boðað er til samkeppninnar af op-
inberu átaki heilbrigðisyfirvalda,
stofnana og samtaka, „sex á dag“,
sem hefur að markmiði að auka
ávaxta- og grænmetisneyslu Dana,
helst upp í 600 g á dag.
Því má bæta við að Manneldisráð
Íslands hvetur Íslendinga til þess að
borða „fimm á dag“ af grænmeti,
ávöxtum og kartöflum, eins og segir á
heimasíðu samtakanna, www.man-
neldi.is.
Rappkeppni í
nafni hollustunnar
Söngkonan Mukupa er meðal
þeirra sem sæti eiga í dómnefnd
vegna keppninnar.
FLÍKUR sem verja líkamann gegn
rafsegulbylgjum farsíma og hrinda
frá sér vætu eru væntanlegar á
markað hjá fataframleiðandanum
Levi Strauss. Á vefsíðu Lundúna-
blaðsins Evening Standard, thisis-
london.co.uk, segir að um sé að ræða
buxur í Dockers-fatalínu Levi’s og
verða þær með farsímavasa fóðruð-
um með sérstöku efni, sem ekki
hleypir slíkum bylgjum í gegnum
sig.
Gert er ráð fyrir því að buxurnar
verði í verslunum á næsta ári.
Geislavarnarbuxurnar eru ætlað-
ar táningum og fólki í kringum tví-
tugt og er ráð fyrir gert að þær muni
kosta tæpar 14.000 krónur, segir
netútgáfan ennfremur.
Dropar og rennur af
Auk geislavarnarvasans munu
buxurnar verða úr tilteknu efni sem
kennt er við „Clean fabric system“
og hrindir frá sér vætu. Til þessa
hafa gallabuxur auðveldlega drukkið
í sig vökva og verið mun lengur að
þorna en flíkur úr léttari efnum.
Talsmaður Dockers-línunnar sem
rætt er við segir að með hinni nýju
tækni skilji vökvi sem hellist á efnið
sig í litla dropa sem renni umsvifa-
laust af flíkinni, hvort sem um er að
ræða þunnfljótandi vökva eða þykk-
ar sósur. Auk þess sem heitir drykk-
ir sem hellast kunni á flíkina brenni
ekki hörund viðkomandi.
Vonast er til að þessi nýbreytni
auki fatasölu í Bretlandi og segir
blaðið að síðustu að eldri uppfinn-
ingar í sama tilgangi séu fatnaður
með innbyggðu útvarpi, örgjörvum
fyrir birgðatalningu, rakakremi og
tískuföt með lyktarefnum.
Föt með símavasa
sem ekki blotna
Buxur með vasa gegn rafsegul-
bylgjum sem hrinda frá sér.
NÝR Panduro-
föndurlisti er
kominn sam-
kvæmt tilkynn-
ingu frá B. Magn-
ússyni í Garðabæ.
„Í listanum má
finna allt til fönd-
urgerðar, nýjar
hugmyndir og
efni til þess að útbúa skemmtilega
hluti, hvort sem er fyrir sælgætis-
eða skartgripagerð, málningu,
postulín, tau, tré, jóla- eða páska-
skraut.“
Panduro-
föndurlistinn
kominn
NÝTT
„Árangur“
fyrir konur
B. Magnússon
vekur athygli á
nýrri vörulínu
frá framleiðand-
anum EAS sem
heitir „Results“,
eða árangur, og
er ætluð konum.
Í tilkynningu frá
fyrirtækinu seg-
ir að um sé að
ræða fyrstu bætiefnalínuna sem
þróuð er af konum, fyrir konur og
með þeirra sérþarfir í huga. „Re-
sults-vörurnar eru í handhægum
pakkningum og ríkar af trefjum,
kalki og sojaprótíni og sameina
næringu og hentugleika,“ segir
ennfremur.
Dagur vatnsins
í Svartsengi
DAGUR vatnsins verður haldinn í
Svartsengi hinn 7. október, sam-
kvæmt frétt á heimasíðu Holl-
ustuverndar ríkisins, hollver.is.
Meðal annars verður fjallað um-
umhverfismerkið bláfánann, kaf-
ara sem hreinsa hafnir, vatna-
tilskipun ESB, flokkun og vöktun
vatna á höfuðborgarsvæðinu,
náttúrulega mengun og verndun
vatnsbóla, gerlafræðilegt ástand
neysluvatns, tæringu og ryðmynd-
un neysluvatnslögnum, útflutning
á vatni í fortíð og framtíð og nátt-
úrulegt baðvatn á Íslandi.
Sjá dagskrá og tímasetningu á
heimasíðu Hollustuverndar.
AÐEINS eitt breskt fyrirtæki af
hverjum fimm vill að Bretar taki upp
evruna á þessu kjörtímabili. Kemur
það fram í skoðanakönnun, sem evru-
andstæðingar í Bretlandi létu gera,
og birt var í gær. Þá voru 10 ár liðin
frá því breska stjórnin neyddist til að
hætta þátttöku í gengissamstarfi
Evrópusambandsríkjanna, ERM.
Niðurstöður könnunarinnar eru
þær, að 66% stjórnenda vilja halda
sterlingspundinu en 31% vill taka upp
evruna. Ef könnunin er skoðuð nánar
kemur í ljós, að 20% vilja taka upp
evruna á þessu kjörtímabili, 12% síð-
ar og 39% hallast að því að hafa pund-
ið áfram en halda þó öllum möguleik-
um opnum. 29% vilja ekki evruna,
hvorki fyrr né síðar.
Evruandstæðingar segja, að upp-
taka hennar myndi gera Breta ber-
skjaldaða fyrir „martröðinni frá
1992“ eða „Svarta miðvikudeginum“.
Þá var ástandið í breskum efnahags-
málum slæmt, atvinnuleysið mjög
mikið, og ljóst, að þörf var á vaxta-
lækkun til að örva efnahagslífið. Það
stangaðist hins vegar á við hagsmuni
Þjóðverja á þessum tíma. Þeir voru
þá að njóta ávaxtanna af sameiningu
þýsku ríkjanna og þurftu á aðhaldi í
peningamálum að halda til að draga
úr verðbólgu.
Í þessari stöðu gerðu spákaup-
menn atlögu að pundinu með þeim af-
leiðingum, að stjórnin hækkaði vexti
hvað eftir annað og þeir voru komnir í
15% 16. september 1992 þegar hún
ákvað að segja skilið við ERM.
Ólík sögutúlkun
Norman Lamont, fyrrverandi fjár-
málaráðherra Íhaldsflokksins, segir,
að þetta sýni nauðsyn þess að vera
með sjálfstæðan gjaldmiðil en flokks-
bróðir hans, fyrrverandi fjármálaráð-
herra og Evrópusinninn Kenneth
Clarke, segir, að þessu sé öfugt farið.
„Með því að taka upp evruna kæm-
um við alveg í veg fyrir nýjan „Svart-
an miðvikudag“. Megintilgangur
hennar er einmitt að binda enda á
gjaldeyrisviðskipti milli Evrópuríkj-
anna.“
Skoðanakönnun í Bretlandi
Aðeins 20%
fyrirtækja
vilja evru
London, AFP.
FULLYRT er, að rottueitur hafi
valdið mikilli matareitrun í Kína,
en hún hefur valdið dauða tuga
manna. Meira en 300 manns veikt-
ust og sumir alvarlega. Verið er að
kanna hvort eitrað var fyrir fólkinu
vitandi vits.
„Við getum ekki útilokað, að
eitrinu hafi verið blandað saman
við matinn af ráðnum hug,“ sagði
Zhou Qing, talsmaður héraðs-
stjórnarinnar í Jiangsu, en eitrunin
kom upp í bænum Tangshan síðast-
liðinn laugardag. Í fréttablaði kín-
verskra heilbrigðisyfirvalda sagði,
að rottueitrið í matnum hefði verið
óvenjulega öflugt. Skýrt hefur ver-
ið frá því, að 41 maður hafi látist af
völdum eitursins, en dagblaðið
Ming Pao í Hong Kong sagði, að
meira 100 menn hefðu látið lífið.
Allt fólkið hafði fengið sér árbít á
skyndibitastað í Tangshan, djúp-
steiktar sesamkökur og hrísgrjóna-
bollur, og sumir höfðu ekki borðað
nema nokkra bita þegar þeir fóru
að kasta upp blóði og hnigu niður.
Var einkum um að ræða námsmenn
og verkamenn á leið til vinnu.
Keppinautur að verki?
Eigandi skyndibitastaðarins er í
yfirheyrslum hjá lögreglu og hefur
staðnum hans og fimm eða sex öðr-
um slíkum stöðum verið lokað.
Geta íbúar í Tangshan sér til, að
hugsanlega hafi einhver keppinaut-
ur skyndibitastaðarins verið að
verki.
Matareitranir eru ekki óalgeng-
ar í Kína og ósjaldan hefur verið
um hreina eiturbyrlun að ræða.
Grunur um
eiturbyrlun
Peking. AP, AFP.
Rottueitur í mat kostaði tugi lífið í Kína
FULLTRÚI kínverskra stjórnvalda í
Tíbet hefur átt fund með talsmanni
Dalai Lama, hins útlæga leiðtoga Tíb-
eta. Var skýrt frá því í gær.
Leg Qog, forseti tíbesku héraðs-
stjórnarinnar, sagði á fundi með
fréttamönnum í Tíbet, að hann hefði
rætt við Lodi Gyaltsen Gyari, sér-
stakan sendimann Dalai Lama í
Bandaríkjunum, í klukkustund á
sunnudag. Kvaðst hann hafa upplýst
Gyari um ástand mála í Tíbet, meðal
annars um efnahagsþróunina, og
hefði Gyari, sem ekki hefur komið
landsins í hálfa öld, fundist mikið til
koma. Breska útvarpið, BBC, greindi
frá því að hermt væri að möguleg
heimsókn Dalai Lama til Tíbets hefði
og verið rædd á fundinum en sú fregn
fékkst ekki staðfest.
Hefur þessi fundur glætt vonir um,
að kínversk stjórnvöld taki upp við-
ræður við Dalai Lama en þær hafa
engar verið frá 1993. Hafa þau sakað
hann um að reyna að „kljúfa Kína“ og
hafa sérstaklega amast við honum
eftir að hann fékk friðarverðlaun
Nóbels 1989.
Gyari er í fjögurra manna tíbeskri
sendinefnd, sem hefur verið falið að
reyna að koma á viðræðum við kín-
versk stjórnvöld. Var hún skipuð í
kjölfar ýmissa teikna um nokkra
stefnubreytingu í Peking.
Stefnubreyting í Kína
Rætt við fulltrúa
Dalai Lama
Peking. AFP.