Morgunblaðið - 17.09.2002, Síða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 21
EDMUND Stoiber, kanslaraefni
kristilegu flokkanna í Þýskalandi,
þarf á næstu sex dögum að endur-
heimta frumkvæðið frá andstæðingi
sínum, Gerhard Schröder kanslara,
ætli hann að sigra í kosningunum,
sem fram fara í Þýskalandi á sunnu-
dag. Á kosningafundi í Bonn í gær
mátti greina áherslurnar, sem hann
hyggst nota á endasprettinum. Megn-
ið af ræðunni snerist um utanríkismál
og bar þar hæst harða gagnrýni á
málflutning Schröders varðandi Írak.
Um leið sagði hann að bregðast þyrfti
við innflytjendavandanum. „Ég vil
ekki lengur láta mér nægja að þjálfa
félagslið,“ sagði Stoiber, sem í níu ár
hefur verið forsætisráðherra Bæjara-
lands. „Ég vil þjálfa landsliðið.“
Stoiber kom fram á Markaðstorgi
fyrir framan ráðhúsið í Bonn. Nokkur
þúsund stuðningsmenn stóðu fremst-
ir og héldu á lofti spjöldum með áletr-
unum á borð við „Stoiber fyrir kansl-
ara“ og „Schröder =Münchhausen“.
Yfir mitt torgið hafði verið komið fyr-
ir girðingu og fyrir aftan hana stóðu
andstæðingar kanslaraefnis hægri-
manna. Á spjöldum þeirra og borðum
fékk kanslarinn kaldar kveðjur. Víða
mátti sjá áletranir eins og „Stöðvið
Stoiber“ og „Ekkert stríð í Írak“.
Þegar Stoiber steig á sviðið gerðu
andstæðingar hans hróp að honum og
þær sjötíu mínútur, sem hann talaði,
reyndu þeir að drekkja orðum hans
með því að blístra og baula.
Stoiber hóf ræðu sína á því að rifja
upp að hér í Bonn hefði Konrad Ade-
nauer, kanslari eftirstríðsáranna,
unnið það afrek að koma Þýskalandi í
hóp ríkja á borð við Frakkland, Bret-
land, Benelux-löndin og Norðurlönd
og þessu hefði verið fylgt eftir á
næstu áratugum þegar Þýskaland
hefði skapað sér sess í samfélagi þjóð-
anna þvert ofan í það, sem búast hefði
mátt við í stríðslok. Nú væri áratuga-
vinnu hins vegar stefnt í hættu með
málflutningi Gerhards Schröders
kanslara í málefnum Íraks.
„Kanslarinn rekur sína pólitík á
markaðstorgunum og er að einangra
þýsku þjóðina,“ sagði hann. „Það má
ekki gerast. Áratugavinna er í húfi.
Sá sem segir að stríð sé fyrir höndum
og aðeins hann geti komið í veg fyrir
stríð lýgur að fólkinu.“
Schröder hefur lagst gegn innrás í
Írak og verið mjög afdráttarlaus í af-
stöðu sinni. Þessi stefna á greinilega
hljómgrunn meðal Þjóðverja og virð-
ist málflutningur hans eiga þátt í fylg-
isaukningu flokksins í þessum mán-
uði. Stoiber sagði að Þjóðverjar hefðu
ekki verið jafneinangraðir og nú frá
árinu 1949 og kenndi einleik kansl-
arans á alþjóðlegum vettvangi um.
Allir vissu að þýski herinn væri ekki
innrásarher og væri ekki fær um að
vera það, en hann gæti aðstoðað við
að koma á pólitískum friði.
Málefni innflytjenda
til umræðu
Kristilegir demókratar hafa til
þessa forðast að ræða innflytjenda-
mál, meðal annars vegna þess að þeir
hafa viljað koma í veg fyrir að and-
stæðingar Stoibers kenni hann við
öfgar, en fyrir helgi sneru þeir við
blaðinu þegar þeir sögðu að herða
þyrfti innflytjendalöggjöfina og voru
þegar gagnrýndir af sósíaldemókröt-
um. Í viðtali við vikuritið Der Spiegel í
gærmorgun sagði Schröder að þessi
málflutningur bæri örvæntingu vitni
og gæti stefnt innra friði landsins í
hættu.
Stoiber vísaði slíkri gagnrýni á bug
á fundinum í gær og sagði að Þýska-
land ætti nóg með fjórar milljónir at-
vinnulausra samkvæmt opinberum
tölum og tvær milljónir til viðbótar,
sem ekki væru skráðar. Hann talaði
um að nú stæði yfir stækkunarferli
Evrópusambandsins og við myndu
bætast 100 milljónir manna úr austri.
Hann benti á að nú væri staðan sú að
600 þúsund innflytjendur kæmu ár-
lega til landsins, en það jafnaðist á við
borg á stærð við Dortmund og sagði
að þau vandamál, sem Þýskaland
þyrfti nú að glíma við, væru landinu
nánast ofviða. „Ég mun aldrei sætta
mig við að þýskur vinnumarkaður
verði opnaður fyrir allan heiminn,“
sagði hann.
Mikið hefur verið rætt um það að
Schröder hafi haft betur en Stoiber í
seinni sjónvarpskappræðunum, sem
þeir háðu fyrir rúmri viku. Stoiber
telur greinilega að hann sé borinn
saman við Schröder á yfirborðslegum
forsendum og í ræðu sinni í gær hafði
hann á orði að í símatíma hefði kona
ein hringt og sagst ekki ætla að kjósa
hann vegna þess hvað hann hefði ver-
ið með ljótt bindi.
„Það er endalaust hægt að tala um
það hvor sé í glæsilegri jakkafötum
eða hvor sé betur klipptur eða hvor sé
betri leikari,“ sagði hann. „En kosn-
ingarnar snúast ekki um það heldur
hvor geti tekið til hendinni.“
Meðbyr stjórnarandstöðunnar
virðist horfinn. Kristilegu flokkarnir,
CDU og CSU, hafa samkvæmt skoð-
anakönnunum haft forskot á sósíal-
demókrata síðan í upphafi árs, en nú
virðist dæmið hafa snúist við og sósí-
aldemókratar hafa siglt fram úr þeim.
Samkvæmt skoðanakönnun Infrat-
est, sem birtist í vikuritinu Der Spieg-
el í gærmorgun og tekin var dagana 9.
til 12. september njóta sósíaldemó-
kratar nú 38,5% fylgis, en CDU/CSU
36% fylgis. Græningjar, sem eru í
stjórn með sósíaldemókrötum, eru
með 8% fylgi, en frjálsir demókratar,
sem yrðu samstarfsaðilar kristilegu
flokkanna í stjórn, eru með 8,5% fylgi.
PDS, flokkur sósíalista, sem nýtur
mests fylgis í austurhluta Þýska-
lands, fengi 4,7%, sem myndi ekki
duga flokknum til að ná á þing, en til
þess þarf minnst 5% fylgi. Gangi þessi
spá eftir myndi stjórn sósíaldemó-
krata og græningja halda velli. Hins
vegar eru sex dagar til kosninga og á
þeim tíma getur ýmislegt gerst, eins
og fylgissveiflur undanfarinna vikna
hér í Þýskalandi hafa sýnt.
Þýskur vinnumark-
aður ekki opnaður
fyrir allan heiminn
Edmund Stoiber setur
innflytjendamál á odd-
inn á lokaspretti kosn-
ingabaráttunnar í
Þýskalandi. Karl Blön-
dal fylgdist með kosn-
ingafundi hans í gær.
Bonn. Morgunblaðið.
AP
Edmund Stoiber talar á kosningafundi Kristilegra demókrata í Bonn.
’ Ég vil ekki lengurláta mér nægja að
þjálfa félagslið. ‘
STJÓRNARANDSTAÐAN í Make-
dóníu vann stórsigur í þingkosning-
um sem haldnar voru í landinu á
sunnudag. Fullyrti Branko Crven-
kovski, leiðtogi jafnaðarmanna, í
gær að flokkur hans hefði unnið
hreinan meirihluta, en þá var búið að
telja um 98% atkvæðanna. Crven-
kovski er þó skylt að bjóða fulltrúum
albanska minnihlutans í landinu að-
ild að stjórn þess.
Crvenkovski, sem var forsætis-
ráðherra í Makedóníu á árunum
1992–1998, sagði í gær að flokkur
hans, SDSM, hefði fengið 61 þing-
mann kjörinn en 120 fulltrúar eiga
sæti á þjóðþinginu. Hafði Ljubco
Georgievski, leiðtogi slavneskra
þjóðernissinna (DPMNE), þegar
viðurkennt ósigur sinn en hann hef-
ur verið forsætisráðherra undanfar-
in ár. DPMNE hafði 43 þingmenn
fyrir en SDSM ekki nema 27. Kosn-
ingarnar fóru tiltölulega vel fram og
fögnuðu vestrænir erindrekar því,
en bardagar brutust út í apríl í fyrra
milli albanskra skæruliða, sem
kröfðust aukinna réttinda albanska
minnihlutans, og stjórnarhers lands-
ins. Átökin stóðu í um sjö mánuði og
kostuðu um 140 manns lífið en brot-
hættur friður komst á fyrir tilstilli
vestrænna stjórnarerindreka.
Stjórnarandstaðan vann
stórsigur í Makedóníu
Skopje. AFP.