Morgunblaðið - 17.09.2002, Side 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 37
22 ÖKUMENN voru
teknir fyrir hraðakstur
um helgina, 6 vegna
gruns um ölvunarakst-
ur og 11 fyrir að aka gegn rauðu
ljósi. Þá gekk næturlífið í mið-
borginni vel fyrir sig þótt anna-
samt hafi verið hjá lögreglu.
Seinnipart sunnudags var til-
kynnt um bifreið sem ekið var gá-
leysislega, reykspólaði og skrens-
aði þannig að afturendi bílsins fór
upp á gangstétt þar sem börn voru
á gangi. Því miður sáu sjónarvott-
ar ekki númer bifreiðarinnar en
lögreglan hefur lýsingu á henni.
Nokkuð var um innbrot og
þjófnaði um helgina, einkum í bif-
reiðar. Um hálfsjöleytið á laug-
ardagsmorgun kom öryggisvörður
að þar sem maður hafði brotist inn
í bifreið í austurborginni. Lenti
hann í átökum við manninn og hélt
manninum í tökum þar til lögregla
kom á staðinn. Engu var stolið í
það skiptið. Skömmu síðar var til-
kynnt um að brotist hefði verið inn
á heimili í miðborginni og íbúarnir
vaknað við að maður stóð við rúm-
gaflinn hjá þeim. Höfðu þau verið
að lofta út og gleymt að loka svala-
dyrum. Maðurinn hafði á brott
með sér tvö seðlaveski, bankabók
og lyklana að bifreið þeirra. Málið
er í rannsókn.
Það má teljast mildi að ekki fór
illa er kviknaði í út frá kerti að-
faranótt laugardagsins í húsi í
austurborginni. Húsráðendur
höfðu farið að sofa um miðnætti og
gleymt að slökkva á kerti í stof-
unni. Er þau vöknuðu á laugar-
dagsmorgun var íbúðin, sem er á
tveimur hæðum, öll í sóti, kerta-
stjakinn brunninn, veggur sviðinn
og mynd skemmd. Farið var með
þrjú börn á slysadeild til skoðunar.
Miðborgarlífið gekk vel fyrir sig
þó annasamt hafi verið hjá lög-
reglu, og þá sérstaklega aðfara-
nótt laugardags. Áfengi var hellt
niður hjá þeim fáu ungmennum
sem voru í miðbænum undir 18 ára
aldri.
29 útköll vegna hávaða
Nokkur útköll voru vegna ölv-
unar á almannafæri eða alls 37
þessa helgi og hávaðaútköllin 29.
Á laugardag var lögregla beðin að
fjarlægja ölvaðan mann við hús í
miðborginni. Hann hafði elt konu
heim til hennar og reyndi með
barefli að komast inn í húsið.
Heimilisfólkið kannaðist ekkert við
þennan mann sem var færður á
lögreglustöð og vistaður.
Á sunnudag var tilkynnt um
fjóra pilta sem hlupu yfir flug-
braut á Reykjavíkurflugvelli. Sem
betur fer varð ekki slys og sást til
þeirra fara yfir í Skerjafjörð. Mik-
ilvægt er að fólk átti sig á að mikil
hætta er fólgin í því að fara gang-
andi yfir flugbraut og er slíkt al-
gjörlega óleyfilegt.
Úr dagbók lögreglunnar 13. til 16. september
Nokkuð um inn-
brot um helgina
Sjálfræði barna
í leikskóla
SESSELJA Hauksdóttir leikskóla-
kennari heldur fyrirlestur á vegum
Rannsóknarstofnunar KHÍ næst-
komandi miðvikudag, 18. september,
kl. 16:15.
Fyrirlesturinn verður haldinn í sal
2 í nýbyggingu Kennaraháskóla Ís-
lands við Stakkahlíð og er öllum op-
inn.
Fyrirlesturinn byggist á meistara-
prófsverkefni Sesselju. Þar er fjallað
um hvernig starfsaðferðir, sem örva
sjálfræði barna í leikskóla, geta
stuðlað að sterkari einstaklingum og
um leið gert leikskólastarfið viðráð-
anlegra og ánægjulegra.
Sesselja skilgreinir hugtakið sjálf-
ræði út frá kenningum Piagets og út-
færslu Kamii og DeVries í leikskóla-
starfi. Fjallað er um rannsóknir sem
sýna fram á mikilvægi þess að ýta
undir sjálfræði í uppeldi barna og
hvernig leikskólakennarar geta gert
það í starfi sínu.
Lýst er eigindlegri rannsókn í
tveimur íslenskum leikskólum.
Vetrarstarf
Lífssýnar kynnt
MIÐVIKUDAGINN 18. september
kl. 20:30 verður haldinn kynningar-
fundur á starfi Lífssýnarskólans í vet-
ur. Fundurinn verður haldinn í húsa-
kynnum skólans í Bolholti 4, 4. hæð.
Allir eru velkomnir. Kennsla hefst
miðvikudaginn 2. október kl. 20:30 og
kennt verður vikulega. „Lífssýn –
samtök til sjálfsþekkingar var stofn-
uð um 1980 og reglulegt skólahald
hefur farið fram síðan 1982. Starf
skólans er að mestu byggt upp á fyr-
irlestrum þar sem Erla Stefánsdóttir
sjáandi fjallar m.a. um innri gerð
mannsins. Auk fyrirlestra fær hver
nemandi m.a. teikningar af tilfinn-
inga-, hugar- og innsæisbliki sínu.
Einnig verða rifjaðar upp myndir úr
fyrri lífum,“ segir í fréttatilkynningu.
Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar
eru félagsfundir haldnir þar sem
gestafyrirlesarar eru fengnir til að
flytja erindi um málefni sem snerta
okkur öll.
FÉLAGSSTARF
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélags Strandasýslu verður haldinn sunnudaginn
22. september kl. 20.00 á Vitabraut 3 á Hólmavík.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Að fundi loknum verður haldinn aðalfundur fulltrúaráðsins.
Stjórnin.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
ÚU T B O Ð
Skúlatún 6 — viðbygging
Útboð nr. 13122
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Fasteigna
ríkissjóðs, óskar eftir tilboðum í að byggja tvær
hæðir ofan á húsið í Skúlatúni 6 og byggja yfir
hluta svala á 4. hæð á Skúlagötu 57.
Nánar um Skúlatún 6: Samhliða því að byggja
ofan á skal einnig bæta utan á útveggi Skúlatúns
steyptum böndum lárétt og lóðrétt til samræmis
við núverandi aðliggjandi fjögurra hæða hús,
stækka gluggagöt einnig til samræmingar og
setja nýja glugga. Steypa skal plötu yfir 2. og
3. hæðina ásamt útveggjum.
Timburþak og álkerfi verður að mestu í útveggj-
um og hluta þaks 4. hæðar í Skúlatúni og á
Skúlagötu. Múra skal húsið að utan sem nemur
breytingum og mála. Rífa þak af Skúlatúni og
saga vegg á lóðarmörkum.
Helstu magntölur:
Rífa þak 150 m²
Burðarvirki:
Veggjamót 170 m²
Plötur 306 m²
Stál K 10;12;16 5.800 kg
Steypa S250 102 m³
Þakdúkur 185 m²
Múrsögun 200 m
Vettvangsskoðun verður haldin þriðjudaginn
24. september kl. 13.00 að viðstöddum fulltrúa
verkkaupa.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 6.000
hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum 1. októ-
ber kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
TILKYNNINGAR
Jóga sem lífsstíll
á 21. öldinni
1. Að stunda andlegt líferni
— fyrirlestur — 2 tímar
í kvöld kl. 20.10 á Grand Hóteli.
Hluti af 14 vikna námskeiði. Hægt er að kaupa
sig inn á stakan fyrirlestur á kr. 2.200.
Jóga hjá Guðjóni Bergmann.
Nánari upplýsingar á www.gbergmann.is
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag Íslands,
stofnað 1918,
Garðastræti 8, Reykjavík
Lára Halla Snæfells miðill hef-
ur tekið til starfa á ný. Þeir sem
eru á biðlista, vinsamlega hafið
samband.
Upplýsingar og bókanir eru í
síma 551 8130. Einnig er hægt
að senda fax, s. 561 8130, eða á
netfang srfi@isholf.is . Opnunar-
tími skrifstofu í Garðastræti 8 er
9—13 mánudaga til fimmtudaga
og 9—15 föstudaga.
SRFÍ.
KENNSLA
■ www.nudd.is
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. Ob. 1 Petrus 1839178
F.1.
Vilt þú vita eitthvað um
sjálfan þig?
Hvaðan þú kemur?
Hvert þú ferð?
Hvar er endirinn?
Hvert er hlutverk þitt í lífinu?
Á hvaða leið ert þú og hver
er leiðbeinandi þinn?
Kynningarfundur um Lífssýnar-
skólann verður haldinn í Bolholti
4, 4. hæð miðvikudaginn
18. september kl. 20:30.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FASTEIGNIR
mbl.is
FRÉTTIR
mbl.is
SAMHJÁLP kvenna, hópur til
stuðnings konum sem greinast með
brjóstakrabbamein, verður með opið
hús í Skógarhlíð 8 í Reykjavík, húsi
Krabbameinsfélagsins, í dag, þriðju-
dag, kl. 20.
Svandís Sigurðardóttir, lektor við
sjúkraþjálfunarskor læknadeildar
Háskóla Íslands, flytur erindi:
„Hvaða gildi hefur reglubundin
hreyfing fyrir konur?“
Nanna Guðný Sigurðardóttir og
Rósa Mjöll Ragnarsdóttir sjúkra-
þjálfarar kynna verkefni sitt: „Áhrif
endurhæfingar á starfræna göngu-
getu og heilsutengd lífsgæði kvenna
sem greinst hafa með brjósta-
krabbamein.“
Opið hús hjá
Samhjálp kvenna
NÁMSKEIÐ í sjálfsstyrkingu eru
nú að hefjast á vegum Sálfræðistöðv-
arinnar, Þórsgötu 24. Markmið nám-
skeiðsins er að auka sjálfsstyrk ein-
staklinga bæði í einkalífi og starfi og
byggist á viðurkenndum sálfræðileg-
um aðferðum sem hafa reynst vel til
að efla sjálfsstyrk fólks.
Meðal efnis sem tekið er fyrir er
persónuleg framkoma og greining á
eigin jákvæðum og neikvæðum hlið-
um, ásamt því hvernig byggja megi
upp góð samskipti, minnka ágrein-
ing og deilumál. Áhersla er lögð á
sjálfsstyrk, sveigjanleika og öryggi í
samskiptum þannig að þátttakandi
finni að hann ráði vel við samskipti
hvort sem álag er lítið eða mikið.
Höfundar námskeiðs og leiðbein-
endur eru sálfræðingarnir Álfheiður
Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
Námskeið í
sjálfsstyrkingu
HAPPDRÆTTI Hjartaverndar,
sem haldið er einu sinni á ári, er nú
komið á fulla ferð. Í tilkynningu frá
Happdrætti Hjartaverndar segir að
Rannsóknarstöð Hjartaverndar hafi
verið við störf í yfir 30 ár. Eina
skipulagða fjáröflunin er árlegt
happdrætti.
Hjartavernd nýtur góðs af velvilja
einstaklinga og fyrirtækja í landinu í
happdrættinu. Vinningarnir eru ým-
iss konar, t.d. utanlandsferðir, golf-
ferðir og skemmtisiglingar, og er
heildarverðmæti vinninganna um 15
milljónir. Happdrættismiðarnir eru
sendir hvert á land sem er, innheimt
er með gíróseðli eða krítarkortum.
Hægt er að útvega sér miða með
tölvupósti á netfanginu happ-
@hjarta.is
Happdrætti
Hjartaverndar hafið
JÓNA Ingibjörg Jónsdóttir hefur
opnað eigin stofu í Kjörgarði, Lauga-
vegi 59, 3. hæð, fyrir einstaklinga og
pör þar sem boðið er upp á kynlífs-
ráðgjöf. Jóna Ingibjörg er lærður
hjúkrunar- og kynfræðingur frá Há-
skóla Íslands og Pennsylvaníu-há-
skóla í Bandaríkjunum. Ennfremur
hefur hún lokið viðbótarnámi í sál-
fræðimeðferð frá Grábræðrastofn-
uninni í Danmörku.
Veitir kynlífsráðgjöf