Morgunblaðið - 17.09.2002, Síða 39
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 39
Siglingagetraun - CARNIVAL
Í tilefni af komu hins glæsilega skips CARNVIVAL LEGEND til Reykjavíkur
efnir umboðið Heimsklúbbur Ingólfs-Príma til getraunar, sem þú getur svarað
með því að kynna þér það nýjasta í siglingum og unnið til veglegra verðlauna:
SIGLING fyrir 2 í KARÍBAHAFI - frítt!
Spurningar:
1) Hvað hefur Carnival mörg skip í siglingum? Svar:
2) Frá hvaða höfn sigla flestir farþegar Heimsklúbbsins? Svar:
3) Hvað er innifalið í siglingunni? Svar:
4) Hvar er gist á undan og eftir siglingu? Svar:
5) Hvaða viðkomustaðir eru hjá Carnival Pride á vesturleið um Karíbahaf?
Svar:
6) Hvað er lægsta verðið í 12 daga ferðum Heimsklúbbsins til Flórída með siglingu innifalinni?
Svar:
7) Hvað hefur Heimsklúbburinn lengi haft umboð Carnival? Svar: ár.
8) Hverjir eru augljósustu kostir þess að velja siglingu í Karíbahafi með Carnival? Svar:
Fyllið út: Nafn: Kt.
Heimilisfang: Póstfang:
Merkt: Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA,
GETRAUN, Pósthólf 140, 121 Reykjavík
(fyrir 22. sept.) Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
STÓRVINNINGUR Í BOÐI
Ókeypis sigling í Karíbahafið á einu nýjasta og glæsilegasta skemmtiskipi heims.
Dregið verður úr öllum réttum svörum 30. september.
UM þessar mundir er verið að
hleypa af stokkunum fjölbreyttu
vetrarstarfi Bessastaðasóknar.
Myndaður hefur verið rammi um
helgihaldið til vors og er það jafnan
auglýst í kirkjustarfsdálki Morg-
unblaðsins á laugardögum, auk
þess kynningarefnis sem dreift er á
hvert heimili.
Eins og áður hefur komið fram
hófst sunnudagaskólinn sunnudag-
inn 15. september en hann verður í
vetur kl. 11.00 hvern sunnudag í sal
Álftanesskóla. Rúta ekur hringinn
fyrir og eftir sunnudagaskólann, en
hann verður eins og áður í umsjón
okkar ágætu leiðtoga, Kristjönu og
Ásgeirs Páls.
Foreldramorgnarnir byrjuðu á
ný 4. september sl. en þeir eru
haldnir í Haukshúsum á hverjum
miðvikudagsmorgni frá kl. 10.00–
12.00. Þar koma foreldrar ungra
barna saman með börnin og spjalla
yfir kaffi- eða kakóbolla og kynnast
nýju fólki. Reynt er að hafa fjöl-
breytta dagskrá með fræðslu,
markaðsdegi, föndri og fleiru, en
spil og leikföng eru á staðnum fyrir
börnin. Hafa þessar samverur
mælst vel fyrir og verið fjölsóttar.
Miðvikudagur er sannarlega
dagur kirkjunnar í Haukshúsum en
frá kl. 13.00–16.00 er þar opið hús
fyrir eldri borgara í samstarfi við
Félag eldri borgara á Álftanesi.
Fyrsta opna húsið verður 18. sept-
ember. Á opnu húsi er einnig fjöl-
breytt dagskrá, sem þegar hefur
verið skipulögð til jóla og mun
dreift til allra sem málið varðar,
þótt öllum sé velkomið að kíkja í
heimsókn. Auður og Lindi sjá eins
og áður um aksturinn en Gréta
Konráðsdóttir sér um miðviku-
dagana ásamt Nönnu Guðrúnu
djákna.
Eldri borgurum í Bessastaðasókn
er einnig boðið upp á að taka þátt í
föstudagsskemmtunum í Kirkju-
hvoli í Garðabæ 11. október og 22.
nóvember þar sem dansað verður
og sungið.
Þriðjudaginn 17. september hefst
tíu til tólf ára starf. Fundir þessa
hóps verða hvern þriðjudag kl.
17.30–18.30 í stofu 104 í Álftanes-
skóla og fundarefnin fjölmörg þar
sem skemmtun og sköpunargleði
ráða ríkjum. Rúta ekur þátttak-
endum heim að loknum samver-
unum. Umsjónarmenn TTT-
starfsins verða Sveinn Ólafsson og
Gréta Konráðsdóttir.
Þá er sóknarbörnum Bessa-
staðasóknar einnig boðið að taka
þátt í „Tólf spora námskeiði“ sem
haldið verður í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli í Garðabæ undir leið-
sögn Margrétar Eggertsdóttur.
Tólf spora vinnan hefst með opnum
kynningarfundi í Kirkjuhvoli
mánudaginn 23. september kl.
19.00, en fundirnir verða á mánu-
dögum kl. 19.00–21.00.
Í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
er nú einnig hægt að fá ferming-
armyndir síðasta vors, en þær kosta
kr. 2.500 stykkið.
Fermingarstarfið hefst með
haustnámskeiði í Vatnaskógi en
innritun til fermingar fór fram 5.
september.
Sóknarbörnin eru hvött til að
taka þátt í og efla starf kirkjunnar,
en viðtalstíma presta og djákna er
að finna í símaskránni undir Bessa-
staðakirkja.
Prestar Garðaprestakalls.
Bænanámskeið í
Laugarneskirkju
HVERT þriðjudagskvöld yfir vetr-
armánuðina kemur hópur fólks
saman kl. 20:00 innum dyr á aust-
urgafli Laugarneskirkju, sest í
kringum stórt borð í litlum gömlum
sal undir kirkjuskipinu og spjallar
um tilgang lífsins og trúna á Jesú
Krist. Við köllum það fullorð-
insfræðsluna. Aðgangseyrir er eng-
inn, þátttökuskilyrði eru heldur
engin og hver kemur á sínum for-
sendum.
Sum okkar trúa stíft önnur eru
allsendis óviss, en við eigum það
sameiginlegt að okkur langar öll að
læra betur á lífið og grunar í það
minnsta að sitthvað megi læra af
Biblíunni og bæninni. Oftast er það
sóknarpresturinn Bjarni Karlsson
sem flytur tölu og stýrir umræðum,
stundum einhver úr hópnum eða þá
utanaðkomandi fræðimaður. Flest
okkar taka til máls í umræðum en
það eru líka mörg sem bara hlusta
og njóta. Núna erum við að skoða
bænina. Það er gaman og allt fólk
er velkomið með okkur.
Að stundinni lokinni, kl. 21:00,
tekur við samvera uppi í kirkjunni
sem heitir upp á grín Þriðjudagur
með Þorvaldi af því að þar leiðir
hann Þorvaldur Halldórsson söng-
inn, þar er líka beðið saman og lesið
úr Guðs orði, en eftir á er boðið
fram til fyrirbæna í umsjá bæna-
hóps kirkjunnar. Margt fólk kemur
annaðhvort í fullorðinsfræðsluna
eða Þriðjudag með Þorvaldi, en
önnur eru með allan tímann.
Kíktu við í Laugarneskirkju.
Sérþjónusta kirkj-
unnar í forgrunni
„GESTUR var ég og þér hýstuð
mig, nakinn og þér klædduð mig,
sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fang-
elsi var ég og þér komuð til mín.“
Þjónusta kirkjunnar stendur öll-
um til boða burt séð frá aðstæðum
og ásigkomulagi. Til að mæta þörf-
um þeirra sem af einhverjum
ástæðum geta ekki notið þjónustu
sóknarkirkjunnar, sinna prestar í
svokallaðri sérþjónustu ein-
staklingum sem vegna tímabund-
inna eða varanlegra aðstæðna eiga
ekki aðgang að hefðbundinni
kirkjulegri þjónustu. Í þeim hópi
eru m.a. aldraðir á stofnunum, fatl-
aðir, innflytjendur, heyrnarlausir
og fólk í fangelsi eða á sjúkrahúsi.
Á þessu ári eru 20 ár síðan prest-
ar í sérþjónustu stofnuðu með sér
félagsskap sem nefnist Samverjinn
eftir hinum nafnlausa góðgerð-
armanni sem líknaði náunga sínum
í neyð hans.
Af þessu tilefni heldur Samverj-
inn – félag sérþjónustupresta opinn
fund í safnaðarheimili Grens-
áskirkju miðvikudaginn 18. sept-
ember kl. 17.15–19. Þar munu ýms-
ir sérþjónustuprestar segja frá
starfsvettvangi sínum. Sjúkra-
húsprestur talar um ábyrgð sam-
félagsins á hinum sjúku og prestur
innflytjenda segir frá því hvernig
er að ná fótfestu í nýju landi. Þá
verður sagt frá þjónustu kirkj-
unnar við aldraða og fatlaða.
Allir eru velkomnir.
Vetrarstarf
Bessastaða-
sóknar
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl.
10–14 í neðri safnaðarsal. Byrjað á kaffi-
sopa og kl. 10.30 er boðið upp á skemmti-
göngu um Laugardalinn eða upplestur úr
góðum bókum fyrir þá sem ekki treysta sér
í gönguna. Bæna- og fyrirbænastund kl.
12. Fólk sem býr eða starfar í sókninni er
hvatt til að koma og eiga kyrrðarstund í
önnum dagsins. Fyrirbænum má koma til
starfsfólks kirkjunnar. Að lokinni bæna-
stund gefst þátttakendum kostur á léttum
hádegisverði. Opinn 12-spora-fundur í
kvöld kl. 19.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður að
samverustund lokinni.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Laugarneskirkja. Bænanámskeið kl. 20.
Þriðja samvera fullorðinsfræðslu Laugar-
neskirkju á nýju starfsári. Næstu þriðju-
daga mun sr. Bjarni Karlsson ræða um
bænina. Ókeypis þátttaka, gott samfélag.
Gengið inn um dyr á austurgafli kirkjunnar.
Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörð-
arstund þar sem Þorvaldur Halldórsson
leiðir sönginn við undirleik Gunnars Gunn-
arssonar en sóknarprestur flytur guðs orð
og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í
umsjá Margrétar Scheving sálgæsluþjóns
og hennar samstarfsfólks. (Sjá síðu 650 í
Textavarpi.)
Neskirkja. Fermingarfræðsla kl. 15. Upp-
haf vetrarnámskeiðs. Skráning í síma
511-1560. Litli kórinn – kór eldri borgara
kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. All-
ir velkomnir. Foreldramorgnar miðvikudag
kl. 10-12. Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg
Lárusdóttir.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnað-
arheimilinu kl. 10–12. Hittumst, kynn-
umst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum
má koma til sóknarprests í viðtalstímum
hans. Æskulýðsstarf á vegum KFUM&K og
kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. KFUM&KFUK í Digranes-
kirkju fyrir 10–12 ára krakka kl. 17–
18.15. Fræðslusalur opinn fyrir leiki frá
16.30. Unglingakór Digraneskirkju kl. 17–
19. Kynningarkvöld fyrir Alfa–námskeið í
kirkjunni kl. 20. Allir velkomnir.
Fella- og Hólakirkja. Foreldrastund í safn-
aðarheimili á þriðjudagsmorgunn kl. 10–
12 í umsjón Lilju G. Hallgrímsdóttur
djákna. Kaffi og notalegheit þar sem
heimavinnandi foreldrar hittast í góðu um-
hverfi kirkjunnar.
Grafarvogskirkja. Starf eldri borgara hefst
í dag með haustferð á Stokkseyri og Eyr-
arbakka. Lagt verður af stað frá Grafar-
vogskirkju kl. 11. Æskulýðsfélag fyrir ung-
linga í 8. bekk Rimaskóla kl. 20–22.
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10.
bekk í Grafarvogskirkju kl. 20–22.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er í
Hjallakirkju kl. 9.15–10.30. Umsjón Sig-
urjón Árni Eyjólfsson. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús
milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall. Æsku-
lýðsfundur fyrir 13 ára unglinga (ferming-
arbörn) kl. 20.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara
í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13–16.
Spilað og spjallað. Blöðin liggja frammi og
heitt á könnunni. Stutt ferð á vegum
starfsins einu sinni í mánuði í sumar. Allir
velkomnir.
Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára
börn í dag kl. 17.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7–9
ára börn kl. 16.30–18. Æskulýðsstarf 8.
og 9. bekkja kl. 20–22.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Hveragerðiskirkja. Foreldramorgnar
þriðjudagsmorgna kl. 10–11.30.
Borgarneskirkja. TTT tíu – tólf ára starf
alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í
kirkjunni sömu daga kl. 18.15–19.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl.
13.40.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Safnaðarstarf Fyrirlestur um
stríðshættu
MIÐVIKUDAGINN 18. september
kl. 17 heldur Elías Davíðsson fyrir-
lestur í Norræna húsinu sem nefnist:
Lögmæti yfirvofandi stríðs gegn Írak
í ljósi þjóðaréttar og sáttmála Sam-
einuðu þjóðanna. Aðgangur er ókeyp-
is. Eftir fyrirlesturinn verður tími til
almennra umræðna og fyrirspurna.
„Í fyrirlestrinum mun Elías gera
grein fyrir þeim meginreglum þjóða-
réttar sem fjalla um beitingu hervalds
gegn fullveldi ríkja. Farið verður yfir
eðli, hlutverk, skipan, skyldur og störf
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
varðandi varðveislu heimsfriðar,
þ.m.t. valdsvið ráðsins til að heimila
aðgerðir gegn aðildarríkjum. Rök-
semdir sem notaðar eru til að réttlæta
stríð gegn Írak verða þá skoðaðar í
ljósi þessara réttarreglna,“ segir m.a.
í fréttatilkynningu.
Morgunverðar-
fundur um húsleit
VERSLUNARRÁÐ Íslands boðar
til fundar miðvikudaginn 18. septem-
ber, kl. 8–9 á Grand hóteli Reykjavík
um húsleit hjá fyrirtækjum.
Frummælendur á fundinum eru
Eiríkur Tómasson, prófessor við
lagadeild Háskóla Íslands, Skúli
Eggert Þórðarson skattrannsóknar-
stjóri og Gunnar Sturluson hæsta-
réttarlögmaður. Fundurinn er öllum
opinn en æskilegt er að menn skrái
sig fyrirfram á skrifstofu ráðsins.
Námskeið í
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst fimmtudaginn
19. september. Kennsludagar verða
fjórir og það telst vera 16 kennslu-
stundir. Námskeiðið verður haldið í
Fákafeni 11, 2. hæð.
Að námskeiði loknu fá nemendur
skírteini sem hægt er að fá metið í
ýmsum skólum. Önnur námskeið
sem eru haldin hjá Reykjavíkur-
deildinni eru um sálræna skyndi-
hjálp, slys á börnum og það hvernig
á að taka á móti þyrlu á slysstað.
Námskeið í
hugleiðslu
ÓKEYPIS kynningarnámskeið í
hugleiðslu og indverskri heimspeki
verður haldið á vegum heilsubúðar-
innar Góð heilsa gulli betri, Njáls-
götu 1, og í Tónskóla Sigursveins við
Gerðuberg.
Námskeiðin verða haldin fimmtu-
daginn 19. september kl. 20–22,
föstudaginn 20. september kl. 20–22,
laugardaginn 21. september kl. 15–
17 og sunnudaginn 22. september kl.
19–21.
FRÉTTIR
Reiðubúin
til forystu
BRYNDÍS Hlöðversdóttir, alþingis-
maður og formaður þingflokks Sam-
fylkingarinnar, hefur opnað heima-
síðu á slóðinni http://www.bryndis.is.
Í fyrsta pistli sínum lýsir Bryndís
sig reiðubúna til að leiða annað
Reykjavíkurkjördæmanna og segir
m.a.:
„Það líður senn að því að Samfylk-
ingin í Reykjavík velji frambjóðend-
ur á lista fyrir kosningarnar í vor.
Ég mun bjóða fram mína krafta til að
leiða lista Samfylkingarinnar í öðru
tveggja kjördæmanna í Reykjavík.
Ég hef setið á Alþingi í sjö ár og síð-
asta rúma árið hef ég verið þing-
flokksformaður Samfylkingarinnar.
Ég er reiðubúin til að axla þá ábyrgð
sem leiðtogahlutverki í kjördæmi
fylgir og hlakka til að takast á við
þau verkefni sem framundan eru.“
LEIÐRÉTT
Þrír selja ferðir með
Carnival Legend
Í grein um skemmtiferðaskipið
Carnival Legend, sem birtist í Morg-
unblaðinu síðastliðinn laugardag,
láðist að geta þess að söluaðilar
Carnival Cruise Line hér á landi eru
þrír. Auk Príma – Heimsklúbbs Ing-
ólfs selja ferðaskrifstofurnar Terra
Nova-Sól og Úrval-Útsýn ferðir með
skipinu.
Aðalfundur VG
í Reykjavík
AÐALFUNDUR Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs í Reykja-
vík verður haldinn miðvikudaginn
18. september nk. Fundurinn verð-
ur í Norræna húsinu og hefst kl. 20.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfund-
arstörf, m.a. lagabreytingar og
stjórnarkjör. Nýir félagar eru vel-
komnir.