Morgunblaðið - 11.10.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Skotar sigurstranglegri að mati
Arnars Gunnlaugssonar / C4
Auðun Helgason losnar
frá Lokeren í Belgíu / C1
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Hin mörgu hlutverk hanskanna/B1
Matargerð af íslenskum meiði/B2
Hönnun í hávegum/B4
Norð-enska?/B6
Menn í svörtu/B7
Auðlesið efni/B8
Sérblöð í dag
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
braut ekki gegn jafnréttislögum
þegar Jóhann R. Benediktsson var
skipaður sýslumaður á Keflavíkur-
flugvelli að mati meirihluta Hæsta-
réttar. Þar með sneri rétturinn við
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem
hafði dæmt ríkið til að greiða Kol-
brúnu Sævarsdóttur 2,3 milljónir í
skaðabætur.
Tveir af fimm dómurum Hæsta-
réttar töldu að Kolbrún hefði verið
a.m.k. jafnhæf Jóhanni til að gegna
starfinu og taldi að með hliðsjón af
því að aðeins ein kona var í hópi 27
sýslumanna á þessum tíma, hafi
ráðuneytinu borið að skipa Kol-
brúnu sýslumann. Kolbrún sótti um
embætti sýslumanns ásamt sex öðr-
um körlum en utanríkisráðherra
skipaði Jóhann í embættið 1. apríl
árið 1999. Kærunefnd jafnréttis-
mála komst að sömu niðurstöðu og
minnihluti Hæstaréttar, þ.e. að Kol-
brún væri a.m.k. jafnhæf í emb-
ættið. Þegar ekki náðust sáttir
stefndi Kolbrún ríkinu til greiðslu
skaðabóta. Byggði hún kröfuna að-
allega á því að hún hefði að baki
mun meiri menntun og fjölþættari
starfsreynslu en Jóhann.
Reynsla vó þyngra
en menntun
Af hálfu ráðuneytisins var bent á
sérstöðu embættisins á Keflavíkur-
flugvelli sem fælist m.a. í miklum
samskiptum við varnarliðið auk
þess sem sýslumaður þyrfti að hafa
yfirumsjón með framkvæmd
Schengen-samningsins. Reynsla Jó-
hanns af samningaviðræðum um
Schengen-samninginn og áralangt
starf í utanríkisþjónustunni gerðu
hann hæfari til starfsins. Meirihluti
Hæstaréttar féllst á að færð hefðu
verið gild rök fyrir sérstöðu emb-
ættisins sem hlyti að skipta miklu
máli við skipan sýslumanns. Drjúg
reynsla hans í alþjóðasamskiptum
var talin til þess fallin að treysta
hæfni hans til að takast á við meg-
inviðfangsefni embættisins. Þegar
allt var virt var talið réttmætt að
starfsreynsla Jóhanns vægi þyngra
en Kolbrúnar.
Málskostnaður var felldur niður.
Meirihlutann skipuðu Haraldur
Henrysson, Garðar Gíslason og Pét-
ur Kr. Hafstein en Gunnlaugur
Claessen hæstaréttardómari og
Björn Þ. Guðmundsson prófessor
skiluðu sératkvæði. Skarphéðinn
Thorlacius hrl. flutti málið fyrir rík-
ið en Gylfi Thorlacius hrl. var lög-
maður Kolbrúnar.
Ekki brotið gegn lögum
með skipun sýslumanns
ÞRJÁTÍU manna hópur grunn-
skólabarna í 9. bekk Langholtsskóla,
sem tepptist í Húsadal í Þórsmörk í
gær vegna vatnavaxta í Krossá,
braust út úr einangruninni í gær-
kvöld þegar sjatnaði í ánni. Þegar til
stóð að fara heim í gær var Krossá
orðin ófær og komst hópurinn því
hvergi.
Að sögn Guðbjargar Jóhannsdótt-
ur, skálavarðar í Þórsmörk, gekk
ökuferðin yfir ána vel. Úrhelli var í
Þórsmörk í fyrrinótt en rétt fyrir há-
degi í gær stytti upp.
Þegar Guðbjörg reyndi að fara yf-
ir Krossá í gærmorgun á vörubíl
varð hún frá að hverfa þar sem braut
upp á framrúðuna sem er í tæplega
tveggja metra hæð.
Einangrun
9. bekkinga
rofin í
Þórsmörk
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur-
kjördæmi samþykkti í gærkvöld
tillögu stjórnar um uppstillingu við
val á frambjóðendum á lista fyrir
komandi alþingiskosningar. Jafn-
framt var kjörnefnd falið að skila
sínum tillögum um skipan á listann
30. nóvember nk.
Fram fór leynileg atkvæða-
greiðsla á fundinum um tillöguna
og var hún samþykkt með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða, að
sögn Ásgerðar Halldórsdóttur, for-
manns stjórnar kjördæmisráðsins.
Hún segir að helstu rök stjórn-
arinnar fyrir tillögunni um upp-
stillingu á framboðslistann hafi
byggst á því að kjördæmið hafi
minnkað.
Ekki hafi bæst nýir þingmenn
eða ráðherrar í hópinn og tveir
þingmenn, Kristján Pálsson og
Árni Ragnar Árnason, gefi kost á
sér í Suðurkjördæminu.
Gefa kost á sér áfram
Aðrir þingmenn kjördæmisins
eru Árni Mathiesen, Gunnar Birg-
isson, Sigríður Anna Þórðardóttir
og Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir og gefa þau öll kost á sér áfram.
,,Fyrir eru fjórir efstu þingmenn
okkar, sem allir eru mjög sterkir
og vinsælir í kjördæminu, og gefa
þeir allir kost á sér áfram. Menn
eru mjög sáttir við þá röð sem þau
skipa í dag og vildu frekar með
uppstillingu styrkja þann hóp sem
kemur í sætin þar fyrir aftan,“
sagði hún.
Samþykkt
að stilla
upp á fram-
boðslista
Kjördæmisráð
Sjálfstæðisflokksins í
Suðvesturkjördæmi
ÁHAFNIR á þyrlum Landhelg-
isgæslunnar eru þessa dagana við
æfingar í notkun nætursjónauka
sem taka á í notkun í næsta mán-
uði. Setja þurfti búnað á þyrlurnar
með sérstakri lýsingu svo hægt
yrði að nota sjónaukana í nætur-
flugi og er breytingunum nú lokið.
Skoskur þyrluflugmaður, Peter
Rainey, hefur annast þjálfun
þyrlusveitarinnar í notkun sjón-
aukanna undanfarna daga og er
gert ráð fyrir að henni ljúki um
næstu mánaðamót. Þá fara áhafn-
irnar til Frakklands til æfinga í
flughermi. Að því búnu verða næt-
ursjónaukarnir teknir í notkun.
Sigurður Ásgeirsson, þyrlu-
flugmaður hjá Landhelgisgæsl-
unni, segir notkun sjónaukanna
mikla framför og hafa stóraukið
öryggi í för með sér en mikilvægt
sé að þjálfa sig vel í notkun
þeirra.
Í gærkvöldi voru áhafnir þyrlu-
sveitarinnar að þjálfa sig í notkun
sjónaukanna í flugskýli Landhelg-
isgæslunnar en æfingin fólst í að
hjóla á reiðhjóli í kringum keilur í
svartamyrkri undir leiðsögn Pet-
ers Rainey. Hafa þeir einnig próf-
að sjónaukana við æfingar utan-
húss eftir að myrkur er skollið á.
Fyrsta kennsluflugið með sjónauk-
ana verður farið á þyrlu Land-
helgisgæslunnar í dag.
Hér leiðbeinir Peter Rainey
þjálfari Sverri Erlingssyni flug-
virkja í gærkvöldi.
Æfa notkun nætursjónauka
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HVALIR í tuga- ef ekki hundr-
aðatali á Halamiðum út af Vest-
fjörðum hafa undanfarna daga
verið að gæða sér á smáfiski á
skyndilokuðu svæði Hafrann-
sóknastofnunar.
Varðskip var fyrir skömmu á
Halamiðum, en á svæðinu voru
átta togarar við þorsk- og ýsuveið-
ar. Við mælingar varðskipsmanna
kom í ljós hátt hlutfall smáþorsks
í aflanum. Höfðu þeir samband við
fiskifræðing á vakt hjá Hafrann-
sóknastofnun og var í framhaldi af
því tekin ákvörðun um skyndilok-
un svæðisins. Gildir lokunin í viku
og verður þróun mála könnuð í
framhaldi af því.
Frá þessu er greint í frétt á vef-
síðu Landhelgisgæslunnar og
kemur þar fram að skipstjórar á
svæðinu voru nokkuð óhressir
með lokunina og töldu hana
óþarfa þar sem mikil hreyfing
væri á fiskinum.
Skilaboð til hvalanna
,,Var haft á orði að einhver
þyrfti að koma þessum skila-
boðum til hvalanna sem þarna
vaða um sjóinn í tuga- ef ekki
hundraðatali en á svæðinu er mik-
ill fjöldi hnúfubaka, höfrunga og
hnísa sem hafa greinilega komist í
girnilegt æti. Hnúfubakur er ein-
mitt þekktur fyrir að synda undir
dreifðar smáfiskatorfur og reka
þær saman með loftbólum og fylla
síðan ginið á leiðinni upp úr sjón-
um,“ segir í fréttinni.
Hvalir gæða sér á
smáfiski á lokuðu
svæði á Halamiðum
IVAN Sokolov er efstur á Mjólk-
urskákmótinu á Hótel Selfossi eftir
þrjár umferðir. Hann vann tékk-
neska stórmeistarann Hracek með
svörtu í gærkvöld og hefur þar
með unnið allar skákir sínar til
þessa.
Næstir koma Predrag Nikolic,
sem í gærkvöld gerði jafntefli við
Tomas Oral, og hinn ungi Luke
McShane, sem vann Stefán Krist-
jánsson. Helgi Ólafsson hefur tvo
vinninga en hann gerði í gærkvöld
jafntefli við Braga Þorfinnsson. Þá
gerðu Hannes Hlífar Stefánsson
og Pavel Tregubov jafntefli eftir
langa og stranga baráttu. Fjórða
umferð mótsins verður tefld í dag.
Sokolov
efstur
Helgi sigraði/52
♦ ♦ ♦