Morgunblaðið - 27.12.2002, Page 12

Morgunblaðið - 27.12.2002, Page 12
FRÉTTIR 12 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ BÓKIN Brauðréttir Hagkaupa sem skrifuð er af bakaranum Jóa Fel hefur selst í um 25 þús- und eintökum. Brauðréttir Hagkaupa kom út í byrjun nóv- ember og hafa því náð inn á fjórða hvert heimili á tveimur mánuðum. Kökubók Jóa Fel og Hagkaupa sem kom út fyrir sex árum selst enn vel og er nú komin í um 40 þúsund eintök. „Kannanir sýna að mat- reiðsluþættir eru að verða eitt vinsælasta sjónvarpsefnið víða um heim, svo ekki sé minnst á aukna umfjöllun tímarita og dagblaða um matargerð. Vin- sælir erlendir sjónvarpskokkar hafa nýverið gefið út bækur sem hafa selst vel og nægir þar að nefna Jamie Oliver og Nig- ellu Lawson,“ segir í tilkynn- ingu Hagkaupa. Brauðréttir Hagkaupa í 25 þúsund eintök BRETAR bjóða Íslendinga vel- komna í Alþjóðahvalveiðiráðið en hafa mótmælt fyrirvara Ís- lands við hvalveiðibann Al- þjóðahvalveiðiráðsins. J.R. Cowan, fulltrúi Breta í Alþjóðahvalveiðiráðinu, segir í bréfi til ráðsins að hann hafi boðað mótmæli við fyrirvara Ís- lands á fundinum í Cambridge í Englandi 14. október sl. og geri það nú formlega með því að senda bréf frá breska utanrík- isráðuneytinu til bandaríska ut- anríkisráðuneytisins, sem er vörsluaðili stofnsamnings ráðs- ins. Bretar mótmæla fyrirvara Íslands BROTIST var inn í garðyrkju- stöðina Hlíðarhaga í Hvera- gerði aðfaranótt laugardags og þaðan stolið 21 ljósalampa. Þeir sem þar voru á ferðinni brutu rúðu til að komast inn og höfðu á brott með sér ellefu 400 vatta lampa og tíu 800 vatta lampa. Í nóvember var lögreglunni á Selfossi tilkynnt um tug inn- brota í gróðrarstöðvar þar sem lömpum var stolið, tveimur til tíu í hvert skipti. 21 lampa stolið úr gróðrarstöð 15 VITNI hafa gefið skýrslu fyrir Héraðsdómi Reykjaness í máli efnahagsbrotadeildar rík- islögreglustjóra gegn tæplega fertugum bílasala. Hann er sakaður um að hafa skotið um 5,7 milljónum undan skatti á árunum 1995–1996. Fyrirtæki mannsins flutti inn bíla frá Þýskalandi. Dóms í málinu er að vænta í janúar. 15 vitni í skatt- svikamáli SAMKVÆMT tölum sem Hagstofan birti rétt fyrir jól um mannfjöldaþró- un á landinu hefur fólki fækkað milli ára víða í dreifbýlinu og á nokkrum þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni. Meðal þéttbýlisstaðanna eru Blönduós, Siglufjörður og Seyðis- fjörður, þar sem íbúum fækkaði frá árinu 2001 um ríflega 3 prósent á hverjum stað. Af samtölum við bæj- arstjóra á þessum stöðum má ráða að þenslan svonefnda á höfuðborg- arsvæðinu hefur haft sitt að segja í fólksfækkuninni og misgott atvinnu- ástand. Bæjarstjórarnir eru þó bjartsýnir á að komandi ár verði gæfuríkt og á Seyðisfirði eru t.d. bundnar vonir við að fyrirhugaðar stóriðjuframkvæmdir stöðvi fólks- flóttann. Jaðarbyggðir verða verst úti Guðmundur Guðlaugsson, bæjar- stjóri á Siglufirði, segir að „þenslan fyrir sunnan“ sé meginskýringin á fækkun íbúa þar í bæ, einkum fram- an af ári. Ekki sé atvinnuleysi um að kenna heldur virðist fólk hafa viljað róa á önnur mið. Hinn 1. desember 2001 voru 1.508 íbúar skráðir til heimilis á Siglufirði en voru alls 1.456 1. desember síðastliðinn. Sé horft lengra aftur í tímann hefur Siglfirð- ingum fækkað um 16,5% á tíu árum en 1. des. árið 1992 voru 1.744 manns skráðir til heimilis í bænum. „Mér sýnist að jaðarbyggðir í landinu, þær sem langt eru frá hringveginum, hafi orðið hvað verst úti í mannfjöldaþróun, og Siglufjörð- ur er ein þeirra byggða. Fólk hefur verið að sækja meira í þensluna á suðvesturhorninu. Margt af því fólki hefur haft hér atvinnu. Að vísu hefur atvinnulíf hjá okkur verið einhæft en upp á síðkastið hafa ný fyrirtæki ver- ið að komast á legg og margt verið í gangi. Við erum eðlilega ósátt við þessa fólksfækkun en kunnum ekki aðrar skýringar á henni en þessa. Byggðastefnan í landinu hefur brugðist og grípa þarf til mun rót- tækari aðgerða en gert hefur verið, m.a. þeirra að breyta skattkerfinu til að jafna aðstöðumun fólks og fyrir- tækja á landinu. Ný byggðastefna er í mótun og vonandi skilar hún ein- hverju,“ segir Guðmundur. Hann bindur vonir við að göng milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar dragi úr eða stöðvi þessa þróun. Göngin skapi marga möguleika fyrir utanvert Eyjafjarðarsvæðið og jafn- vel alveg inn fjörðinn með samein- ingu allra sveitarfélaganna. Guð- mundur telur góðan vilja vera fyrir slíkri sameiningu á Siglufirði og jafn- vel víðar, t.d. á Ólafsfirði og Dalvík. Mikil hreyfing á Blönduósi Blönduósingum hefur fækkað um rúm 18% undanfarinn áratug. Í des- ember 1992 voru 1.142 skráðir á Blönduósi samkvæmt þjóðskrá en voru 933 hinn 1. desember sl. Á einu ári fækkaði íbúum sveitarfélagsins um 3,3%. Jóna Fanney Friðriksdótt- ir bæjarstjóri segir þessa þróun vera áhyggjuefni, ekki bara á Blönduósi heldur landsbyggðinni allri. Blöndu- ós sé þannig staðsettur að mikil hreyfing eigi sér stað á íbúum til og frá sveitarfélaginu. Hún bendir á að a.m.k. átta íbúar verði kærðir inn í þjóðskrána og þetta hafi töluverð áhrif á allan prósentureikning. Þá sé verið að tala um 2,5% fólksfækkun milli ára. „Staða atvinnumála hefur verið viðkvæm á árinu en hins vegar feng- um við afskaplega góða jólagjöf frá sjávarútvegsráðuneytinu með byggðakvótanum, sem við vonum að verði lyftistöng fyrir atvinnulífið. Kvótinn þýðir nokkur störf í bæinn og hverju starfi fylgir kannski ein fjölskylda. Atvinnulífið skiptir sköp- um og við erum að fara í mikla vinnu við stefnumörkun, sem við ætlum að fylgja eftir af krafti. Möguleikar eru framundan og við ætlum að nýta okkur þá,“ segir Jóna Fanney. Vonir bundnar við stóriðju Seyðfirðingum fækkaði um rúm 3% frá síðasta ári er íbúafjöldinn fór úr 773 í 749 manns. Tryggvi Harð- arson bæjarstjóri er bjartsýnn á að fyrirhugaðar stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi komi einnig til með að hafa áhrif á Seyðisfirði þó að sveitar- félagið sé ekki mitt í hringiðu þeirra framkvæmda. Þörf verði á margs konar þjónustu sem Austfirðir í heild sinni muni bregðast við. Tryggvi bendir á að fólksflótti hafi verið af landsbyggðinni undanfarin ár og Seyðisfjörður skeri sig þar ekki úr. Hann segist vera bjartsýnn á að þetta muni snúast við hvað sitt bæj- arfélag snerti. „Ég tel að við munum njóta þeirra framkvæmda sem fyrirhugaðar eru við virkjun og álver á Austurlandi. Flutningar á fólki eru alltaf tilfall- andi, þó að einhverjir séu að flytja þá erum við einnig að fá nýtt fólk í bæ- inn. Fábreytni í atvinnulífi er hvað erfiðust, það er örðugt að útvega mörg ný störf á einu bretti. Hér stendur fiskvinnsla traustum fótum og við höfum margs konar þjónustu í kringum ferjuna Norrænu, sem við bindum vonir við að auka enn meir með tilkomu nýrrar og stærri ferju. Ég er bjartsýnn á að hér eigi fólki eftir að fjölga á ný,“ segir Tryggvi og bendir á að fleiri byggingarlóðir séu að komast í gagnið. Fyrirspurnir um lóðir séu vísbending um betri tíma. Fólksfækkun á nokkrum stærri stöðum, eins og Blönduósi, Siglufirði og Seyðisfirði Þenslan „fyrir sunnan“ dregur til sín fólkið &.$$ &/$$ &0$$ &#$$ &$$$ .$$ /$$ 0$$ #$$ $     1'# 1'2 1$& 1$#          Guðmundur Guðlaugsson Jóna Fanney Friðriksdóttir Tryggvi Harðarson KNATTSPYRNUDEILD KR hefur flutt inn og selt flugelda um árabil og velunnarar félagsins höfðu í nógu að snúast í gær. „Þetta er sjálfboðastarf KR-inga og það eru ansi margir reiðubúnir að aðstoða við þetta. Við erum að ganga frá síðustu heildsölupönt- ununum í dag þannig að menn geti komið á morgun og náð í vörurnar sínar,“ segir Lúðvík Georgsson, flugeldaforingi og framkvæmda- stjóri KR-Flugelda ehf. „Það er knattspyrnudeildin sem rekur flugeldasöluna og ágóðinn fer í unglingastarfið og til kvenna- deildarinnar en ekki til KR-Sport. Þetta er mjög mikilvæg fjáröfl- unarleið fyrir deildina og hjálpar okkur til þess að halda úti öflugu uppeldisstarfi.“ Lúðvík segir KR-Flugelda ehf., sem er í eigu knattspyrnudeild- arinnar og nokkurra velunnara fé- lagsins, vera stærsta innflutnings- fyrirtæki flugelda á landinu ásamt Landsbjörgu. „Við seljum til fjöl- margra íþróttafélaga og fé- lagasamtaka víða um landið. Við verðum sjálfir bara með einn út- sölustað í ár, hérna í KR-heim- ilinu.“ Lúðvík segir bróðurpart flugeldanna koma frá Kína en auk þess flytji félagið inn flugelda frá stærstu flugeldaverksmiðjunni í Þýskalandi. Morgunblaðið/Þorkell Það var í nógu að snúast á annan í jólum hjá KR-ingunum Georgi Haralds- syni, Lúðvík Georgssyni og Birgi Guðjónssyni. Ágóði af flugeldasölu í unglingastarfið UPP úr hádegi á aðfangadag voru félagarnir Magnús B. Jóns- son og Trausti Eyjólfsson að skreyta sáluhliðið í Hvanneyr- arkirkjugarði. Þetta var í 30. sinn sem þeir önnuðust það verk, sem þeir hafa gert á hverjum að- fangadegi síðan 1973. Veðrið þennan dag hefur ver- ið misjafnt eins og árin eru orðin mörg, en aldrei fyrr hafa þeir fengið eins gott veður og í ár, það var 8 stiga hiti og garðurinn hvanngrænn eins myndin sýnir. Hliðið glæsilegt að verki loknu. Sáluhliðið skreytt í 30. sinn Skorradal. Morgunblaðið. TVEIR íslenskir prestar voru með jólamessu 4. sunnudag í aðventu í Minnesota í Bandaríkjunum. Prest- arnir Þór Hauksson sóknarprestur í Árbæjarkirkju og Jón Ragnarsson sóknarprestur í Hveragerðiskirkju, báðir í námsleyfi vestra, leiddu messuna. Guðfræðingarnir Vigfús Bjarni Albertsson og Eygló Bjarna- dóttir tóku sömuleiðis þátt í fram- kvæmd messunnar. „Ekki var laust við að tár hefði sést á hvarmi sumra kirkjugesta þegar sungnir voru klassískir jóla- sálmar á ástkæra ylhýra málinu sem ekki höfðu verið sungnir í áratugi í jólamessu vestra,“ segir séra Þór Hauksson. „Eða eins og ein fullorðin kona sagði eftir messuna: „Mér fannst ég vera komin heim í Dóm- kirkjuna.“ Eitt er víst að allir sem komu og tóku þátt í messunni fóru með ís- lensk jól í huga út í kalt loftið. Ann- ars hefur verið frekar hlýr vetur. Lítið snjóað. Íslensk jólamessa í Minnesota STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.