Morgunblaðið - 27.12.2002, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 21
skilja að þessar hraunmyndanir
séu óbætanlegar. Mörg dæmi séu
um að hraunstrá og fleiri hraun-
myndanir hafi verið hreinsuð út úr
frægum hellum, t.d. Surtshelli og
Víðgelmi í Hallmundarhrauni.
Fólk álíti sig hafa rétt til að fjar-
lægja þetta úr hellinum til að geta
notið þess heima í stofu eða úti í
garði. Af þeim sökum hefur Hella-
rannsóknarfélagið ákveðið að gefa
ekki upp staðsetningu hellisins.
Leita fleiri hella
Að sögn Ómars Smára hefur
FERLIR leitað að og skoðað
nokkra þjóðsagnakennda hella á
Reykjanesi, s.s. Bálkahelli, Arn-
grímshelli, Krýsuvíkurhelli, Sæng-
urkonuhelli og útilegumannahelli
norðan Selsvalla. Og enn er leitað
að fleirum þjóðsagnakenndum
hellum á Reykjanesi. Má þar nefna
Breiðabáshelli við Herdísarvík, en
hann er sagður ná frá sjó upp í mitt
Mosaskarð í Herdísarvíkurfjalli.
úr lofti hellisins. Hraunstráin eru
30-40 sentimetra löng og mjó eins
og blýantur. Þau eru afar viðkvæm
og brotna við minnstu snertingu.
„Stráin myndast þegar hraunið er
nýhætt að renna og er byrjað að
kólna og kristallast. Þegar hraunið
rennur er það um 1.000°C heitt en
þegar kólnun hefst hefur aðeins
hluti þess kristallast. Á ákveðnu
hitabili myndast gríðarlega mikill
vökvaþrýstingur í hrauninu og sá
hluti sem ekki hefur kristallast
spýtist út og til verða hraunstrá.
Þetta gerist einu sinni og aldrei
aftur,“ segir hann.
Á hellisgólfinu eru dropasteinar
og víða má sjá svonefndar hraun-
rósir sem myndast þegar gas leitar
upp úr hrauni sem er að storkna.
Séð að ofan, líkjast þessi fyrirbæri
helst útsprungnum rósum og
draga nafn sitt af því. „Þetta er
mjög, mjög flott,“ segir Jakob.
Hann segir að á hinn bóginn sé
það svo að margir virðist ekki
hellinn hefði hún brotið þetta allt
saman.“
Viðkvæmustu hraunmynd-
anirnar eru svonefnd hraunstrá
sem hanga í tugþúsundatali niður
dist í ára-
um sem
hefur
þarna
t ofan í
ari“ í gömlum fjárhelli á Reykjanesi
Ljósmynd/Guðmundur Þorsteinssonhanga niður úr lofti hellisins og fyrir neðan eru dropasteinar og hraunrósir.
Ljósmynd/ÓSÁhálfur metri á hæð.
HVER verður staða Ís-lands í breyttri Evr-ópu, þegar aðildarríkiEvrópusambandsins
verða orðin 25 og þau jafnvel bú-
in að setja sér stjórnarskrá, eins
og stefnir í að hvort
tveggja verði orðin
raunin á árinu
2004? Hver verður
þróunin í Noregi?
Eigum við að bíða
með ákvarðanir
varðandi framtíðar-
tengsl okkar við
Evrópusambandið
unz aðstæður krefj-
ast þess að við tök-
um þær í snatri?
Þetta voru meðal
spurninga sem
Gunnar Snorri
Gunnarsson, ráðu-
neytisstjóri í utan-
ríkisráðuneytinu,
bar fram í lok erindis um stækk-
un Evrópusambandsins og áhrif
hennar á EES-samninginn, sem
hann flutti á aðalfundi Íslands-
deildar Alþjóðaverzlunarráðsins
á Hótel Sögu. Erindið flutti hann
sem staðgengill Halldórs Ás-
grímssonar utanríkisráðherra.
Kostir og gallar
Í erindinu fór Gunnar Snorri,
sem um árabil var sendiherra Ís-
lands hjá Evrópuambandinu, yfir
það hverju innganga tíu ríkja um
austan- og sunnanverða álfuna í
ESB muni breyta fyrir íslenzka
hagsmuni. Sagði hann að frá ís-
lenzkum bæjardyrum séð fælust
bæði kostir og gallar í þessu
ferli. Pólitískur stuðningur Ís-
lands við stefnu umsóknarríkj-
anna í Mið- og Austur-Evrópu
inn í ESB hefur að sögn Gunnars
verið afdráttarlaus frá upphafi,
einkum að því er varðar Eystra-
saltslöndin þrjú. Það séu þó fáein
atriði sem valdi vissum áhyggj-
um í tengslum við þessa sögulegu
stækkun ESB til austurs.
Sem EFTA-ríki hefur Ísland
haft fríverzlunarsamninga við
ríkin sem nú eru á leiðinni inn í
ESB. Í þessum samningum var
kveðið á um tollfrelsi í viðskipt-
um með sjávarafurðir, en þessir
samningar falla úr gildi við inn-
göngu landanna í ESB. Gert hef-
ur verið ráð fyrir að nýju ESB-
ríkin gerist samtímis aðilar að
EES-samningnum, og að sögn
Gunnars Snorra opnast með
þeirri stækkun innri markaðarins
ýmis tækifæri fyrir nánari efna-
hagsleg tengsl Íslands við þessi
lönd. Einn gallinn sé þó sá, að
óhagstæðari ákvæði EES-samn-
ingsins um markaðsaðgang fyrir
sjávarafurðir taki við af gömlu
fríverzlunarsamningunum.
Um aðlögun EES-samningsins
að stækkun ESB þarf þó að
semja, og eins og komið hefur
fram í fréttum að undanförnu
hefur ESB hug á því að bera í
þessu samhengi fram ýmsar
kröfur á hendur Íslandi og hinum
EFTA-ríkjunum í EES (Noregi
og Liechtenstein). Snúa þær
einkum að því að fá EFTA-ríkin
til að taka ríkari þátt í að axla
fjárhagslegar byrðar Vestur-
Evrópuríkja af því að taka hin fá-
tæku fyrrverandi austantjalds-
lönd inn í sínar raðir. Þá hefur
kröfu Íslendinga og Norðmanna
um að tollkvótar komi í staðinn
fyrir markaðsaðganginn sem tap-
ast í nýju aðildarríkjunum verið
svarað með því að krefjast að-
gangs að fjárfestingum í íslenzk-
um og norskum sjáv-
arútvegi.
Hörð samn-
ingarimma
Formlegar samn-
ingaviðræður á milli
fulltrúa EFTA-land-
anna og ESB hefjast
hinn 9. janúar og
þeim þyrfti að ljúka
fyrir 15. apríl, þegar
aðildarsamningarnir
við tilvonandi nýju
ESB-ríkin verða lög-
formlega undirritaðir.
Til að af stækkun
EES geti orðið um
leið og stækkun ESB
tekur gildi þurfa samningarnir
um aðild nýju ESB-ríkjanna að
EES-samningnum að vera sam-
ferða ESB-aðildarsamningunum
sjálfum í gegnum fullgildingar-
ferlið; það knýr á um að sam-
komulag um aðlögun EES-samn-
ingsins að stækkun ESB liggi
tímanlega fyrir.
Sagðist Gunnar Snorri bjart-
sýnn á að það markmið næðist,
en spáði því að hörð samninga-
rimma stæði fyrir dyrum. Hann
sagði ljóst að áhugi innan ESB á
EES-samningnum færi stöðugt
minnkandi. Eftir stækkun ESB
úr 15 í 25 aðildarríki mætti enn-
fremur búast við því að vanþekk-
ing þar á bæ um samninginn yk-
ist enn frá því sem nú er.
Í stækkuðu Evrópusambandi
er fyrirsjáanlegt að Ísland og hin
EFTA-ríkin í EES munu þurfa
að leggja mun meira á sig til að
koma sjónarmiðum sínum á
framfæri við þá sem ákvarðan-
irnar taka innan ESB; ná þurfi
eyrum ráðamanna í 25 höfuð-
borgum í stað 15 til þessa. Sagði
Gunnar Snorri þó ekki ástæðu til
að taka alvarlega tal um að ESB
vilji segja EES-samningnum
upp.
En ráðuneytisstjórinn bar í lok
erindisins upp áleitnar spurning-
ar, sem Íslendingar þyrftu að
taka afstöðu til.
Hvernig yrðu tækifærin í hinni
breyttu Evrópu bezt nýtt? Hver
verður staða Íslands í hinu
stækkaða Evrópska efnahags-
svæði, með samtals yfir 450 millj-
ónir íbúa (þar af innan við fimm í
„EFTA-stoðinni“)? Brýnt væri að
fylgjast vel með því sem Norð-
menn ætluðu sér í þessu breytta
umhverfi; fari svo að Norðmenn
semji um aðild að ESB yrði ekki
lengur grundvöllur fyrir rekstri
EES-samningsins.
„Eigum við að bíða með að
taka ákvarðanir unz aðstæður
krefjast þess að við tökum þær í
snatri? Eða eigum við að byggja
þær á yfirveguðu mati og víð-
tækri umræðu?“ spurði Gunnar
Snorri í orðastað utanríkisráð-
herra, og bætti við að þjóðin
þyrfti að vera viðbúin því að
bregðast við hröðum breytingum
á okkar nánasta umhverfi í al-
þjóðasamfélaginu.
Nauðsynlegt að
Íslendingar
haldi vöku sinni
Í erindi á fundi Íslandsdeildar Alþjóðaverzl-
unarráðsins sagði Gunnar Snorri Gunnarsson,
ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, að mikið
væri í húfi fyrir Íslendinga að fylgjast vel með
þeim breytingum sem ESB er að ganga í gegnum.
Auðunn Arnórsson hlýddi á erindið.
Gunnar S. Gunnarsson
auar@mbl.is
SÖFN og garðar sem veita upplýsingar um gestafjölda voru
101 talsins árið 2000 samkvæmt tölum Hagstofunnar. Sögu-
minjasöfn voru 63, listasöfn 14, náttúrugripasöfn 18 og
fiska- og dýrasöfn og grasagarðar 6 talsins.
Aðsókn að söfnum er mun meiri hér á landi en meðal ann-
arra Norðurlandaþjóða sem hlutfall af íbúafjölda, sam-
kvæmt tölum Hagstofunnar. Alls komu 1.055.082 gestir, inn-
lendir og erlendir, í íslensk söfn á árinu 2000 eða sem svarar
nánast til fjórfalds fjölda íslensku þjóðarinnar.
Sambærilegar aðsóknartölur að söfnum á Norðurlöndum
eru 188 á hverja 100 íbúa í Danmörku, 189 í Noregi, 185 í
Svíþjóð og 94 af hverjum 100 íbúum í Finnlandi.
Fjöldi safna og gesta þeirra
ta um 200 milljónum í annars konar styrki til
fnaheimsins sem segir okkur að fjárþörf hans
um 250 milljónir.“ Jóhann telur eðlilegra að
ir fjármunir sem veittir eru í beinum styrkj-
m til safna sem falla undir skilgreiningu safna-
ganna væru færðir undir safnasjóð. „Eins og
álin standa núna er orðið mjög erfitt að halda
an um hver fjárþörf safnaheimsins er. Um-
knir til safnasjóðs hafa numið um 150–200
lljónum króna árlega, umsóknir til Alþingis
u hugsanlega um 300 milljónir, þannig að
ildarfjárþörfin eða óskir safnanna er mun
eiri en sú upphæð sem safnasjóður hefur til
hlutunar.“
Jóhann segir verklagsreglur sem settar voru
am í safnalögum skýrar og því ekki ástæða til
endurskoða lögin. „Það vantar hins vegar
mræmi í því hvernig Alþingi veitir styrki og
rfti það að endurskoða sína starfshætti í sam-
mi við safnalögin. Það var eitt af markmiðum
ganna að Alþingi myndi leggja af einstakar
hlutanir og þeim yrði safnað saman undir
tt safnasjóðs. Þetta er mjög erfitt fyrir söfn
m vilja fara að safnalögum, þau sækja um
yrk í safnasjóðinn en hefðu hugsanlega geta
ngið meira úthlutað hefðu þau sótt um styrk
int til Alþingis í gegnum t.d. þingmann síns
ördæmis eins og stundum er raunin. Það er
ki nógu mikið tillit tekið til safnasjóðsins og
mir vantreysta honum orðið. Mér finnst mjög
kilvægt að endurskoða úthlutanir til safna.
ð er mikilvægt að safnamenn og Alþingi ræði
m hvaða verklagsreglur eiga að gilda um
yrki til safnanna, á að senda sömu styrkbeiðn-
a til Alþingis og til safnasjóðs? Þetta þarf að
ra mjög skýrt, annað setur starfsemi safna í
pnám. Alþingi er farið að vinna gegn mark-
ðum laganna sem er að tryggja fjárhagsleg-
grundvöll safnanna, þegar verið er að út-
uta eftir erfiðu og óskilgreindu tvöföldu kerfi.
ð er óhagstætt fyrir alla,“ segir Jóhann.
ll endurskoða úthlutanir styrkja til safna í landinu
viðgengst
SAMKVÆMT safnalögum sem samþykkt voru í maí á síðasta ári er safn
„stofnun, opin almenningi, sem hefur það hlutverk að safna heimildum um
manninn, sögu hans, umhverfi og náttúru landsins, standa vörð um þær,
rannsaka, miðla upplýsingum og hafa þær til sýnis svo þær megi nýtast til
rannsókna, fræðslu og skemmtunar“. Einnig eru skilgreind höfuðsöfn sem
eru í eigu íslenska ríkisins og eru „miðstöð safnastarfsemi hvert á sínu verk-
sviði“. Höfuðsöfnin eru Þjóðminjasafn, Listasafn Íslands og Náttúruminja-
safn Íslands.
Öll söfn sem falla undir skilgreiningu safnalaga sem söfn mega sækja um
verkefnastyrki úr safnasjóði en til að geta sótt um rekstarstyrki þarf safn að
uppfylla eftirtalin skilyrði:
1. Safnið skal hafa sjálfstæðan fjárhag og vera stjórnað af forstöðumanni í
a.m.k. hálfu starfi.
2. Safnið skal starfa eftir stofnskrá sem hlotið hefur staðfestingu safnaráðs
og skal starfa eftir stefnu sem endurskoðuð er á fjögurra ára fresti.
3. Safnið skal rekið óaðfinnanlega að mati safnaráðs og fjárhagsgrundvöll-
ur þess skal vera tryggður.
Safnið skal vera opið almenningi daglega á auglýstum tíma, a.m.k. þrjá
mánuði á ári.
5. Safnið skal bjóða upp á safnfræðslu eftir því sem við verður komið.
6. Safnið skal skrá safngripi eftir viðurkenndu skráningarkerfi.
7. Safnið skal fylgja viðurkenndum alþjóðlegum siðareglum safna.
Höfuðsöfn og önnur söfn sem rekin eru af ríkinu geta ekki notið styrkja úr
safnasjóði.
Samtals sóttu 63 aðilar um styrki úr safnasjóði vegna ársins 2002. 56 fengu
styrk, samtals um 52 milljónir. 24 hlutu rekstrarstyrki og 52 verkefnastyrki.
Hvað er safn?