Morgunblaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. BJÖRGUNARSVEITARMENN frá Höfn í Hornafirði fundu bandaríska ferðamanninn Cameron Smith sem hélt til í tjaldi sínu við Grímsvötn á Vatnajökli laust eftir klukkan níu í gærmorgun. Smith hafði verið veður- tepptur við Grímsvötn í þrjá daga og ákvað þá að biðja um að verða sóttur en hann var þó aldrei talinn í hættu enda ágætlega útbú- inn. Þetta er þriðja tilraun Smiths til þess að fara einn yfir Vatnajökul að vetri sem mis- heppnast. Fenntur á kaf Smith lagði af stað fótgang- andi frá Jökul- heimum og upp á Vatnajökul 18. desember. Ætlaði hann á gönguskíðum austur yfir og koma niður Lambatungna- jökul. Cameron Smith sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki hafa verið hræddur þarna á jöklinum enda alvanur fjallamaður og vanur að hírast við þröngan kost á fjöllum. Óneitanlega hafi hann verið orðinn uggandi þegar hann sá að hann var fenntur á kaf á jöklinum. Smith er prófessor í fornleifafræði við háskólann í Portland í Oregon. Hann segist áður hafa dvalið á fjöllum yfir jól en næstu jólum muni hann örugglega verja með fjölskyldu sinni. 38 manns á 17 tækjum Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Höfn í Hornafirði, Hvols- velli, Hellu og Árborg voru kallaðar út til þess að sækja manninn. Samtals fóru sjö jeppar, tveir snjóbílar og átta vélsleðar með samtals 38 björgunarsveitarmenn af stað til að leita að honum. Ákveðið var að senda björgunarsveitir úr tveimur áttum, þ.e. frá Höfn í Hornafirði og síðan Árborg, Hellu og Hvolsvelli, í örygg- isskyni ef eitthvað skyldi koma upp á hjá öðrum hvorum hópnum. Fastur á Vatnajökli yfir jólin Cameron Smith er ákveðinn í að vera í faðmi fjölskyldunnar um næstu jól Cameron Smith nýkom- inn af Vatnajökli. KAJAKRÓÐUR þykir mörgum áhugaverð íþrótt og mátti sjá þennan kappa leggja að landi við Álftanes í gær eftir róður frá Hafnarfirði og út fyrir nesið. Kajak er ekki heppilegur til út- hafssiglinga en því skemmtilegra er að róa í stillunni nálægt landi og skoða lífið í fjörunni. Þótt róið sé á kyrrum sjó þurfa kajakræðarar að kunna ýmislegt fyrir sér og vita hvernig bregð- ast á við ef eitthvað bregður útaf. Og varla er þessi hreyfing óholl /4 Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Kajakróður við Álftanes VIÐSKIPTI með hlutabréf í Kauphöll Íslands fyrstu ellefu mánuði ársins námu 294,7 millj- örðum króna. Það er 115% meiri velta en á öllu síðasta ári þegar hlutabréf að andvirði um 137 millj- arðar króna skiptu um hendur. Ef miðað er við fyrstu ellefu mánuði ársins er hlutfallsleg aukning um 145%. Úrvalsvísitala hlutabréfa, ICEX-15, hefur hækkað um 14,8% frá síðustu áramótum, var 1.330,4 stig er viðskiptum lauk á Þorláks- messu, samanborið við 1.159 stig í ársbyrjun. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir það at- hyglisvert hve úrvalsvísitalan hafi styrkst á árinu og viðskiptin verið lífleg, ekki síst í ljósi þróunar mála í kauphöllum annarra vestrænna ríkja. Þar hafi hlutabréfavísitölur nær alls staðar lækkað á sama tíma, sumar allverulega, eða um allt að 20–40% milli ára. „Þróun hlutabréfamarkaðar hér á landi á árinu hefur því verið mun hagstæðari en annars staðar. reksturinn vera í góðu jafnvægi. Þannig hafi ytri skilyrði eins og í sjávarútvegi verið einkar hagstæð á árinu. Á sama tíma sé meiri óvissa í rekstri fyrirtækja austan Atlantshafs og vestan, þó aðallega í Bandaríkjunum. Þar sé einnig mikill halli á ríkisfjármálum og mikill viðskiptahalli. Á Íslandi sé komið jafnvægi á báðum þessum mikilvægu sviðum. „Þetta rennir stoðum undir að við séum komnir lengra í aðlögun að hagsveiflunni heldur en til dæmis Bandaríkja- menn. Verð fyrir sjávarafurðir hefur verið gott og rekstur sam- göngufyrirtækja hefur gengið vel. Einna helst hafa fyrirtæki í þekk- ingariðnaði orðið fyrir barðinu á þróun mála á alþjóðamarkaði,“ segir Þórður. Heildarvelta verðbréfaviðskipta í Kauphöll Íslands stefnir í að verða um 1.200 milljarðar króna á þessu ári, að sögn Þórðar, en allt síðasta ár var veltan um 750 millj- arðar króna. Aukningin milli ára nemur 60%. Íslandi verið hagfelldari en víðast hvar annars staðar,“ segir Þórður og bætir við að bjartsýnin tengist meðal annars fyrirhuguðum stór- iðjuframkvæmdum á Austurlandi. Heildarvelta um 1.200 milljarðar Hann segir að þegar horft sé til helstu kennitalna hjá fyrirtækjum á hlutabréfamarkaði þá virðist Sömuleiðis hefur árið verið hag- fellt fyrir kauphallarviðskipti al- mennt. Meginástæðan er annars vegar sú að hér á Íslandi ríkir meiri bjartsýni um að það versta sé yfirstaðið í efnahagsmálum og hins vegar að fyrirtækin hafa verið að skila ágætum árangri á árinu. Þetta hefur gefið tilefni til já- kvæðrar þróunar vísitölunnar. Í raun hefur þróun efnahagsmála á Viðskipti með hlutabréf í Kauphöll Íslands orðin 115% meiri en á öllu síðasta ári Hagfelldari þróun en víð- ast hvar annars staðar &34$ &3$$ &#4$ &#$$ &&4$ &&$$      5    *  5  (   #0  3& &''26&$$$    7   !  "! #$ HEILDARFJÖLDI farþega um Keflavíkurflugvöll fyrstu ellefu mán- uði ársins var 1.157.440, samkvæmt upplýsingum frá Flugmálastjórn á vellinum. Þetta er 11% fækkun frá sama tíma í fyrra er heildarfjöldinn var 1.298.806. Útlit er fyrir að svip- aður fjöldi farþega fari um völlinn í þessum mánuði og í fyrra, eða um 60 þúsund. Þrátt fyrir fækkun farþega hefur sala Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar hf. haldist nokkurn veginn í horfinu en veltan fyrstu ellefu mánuði ársins var 3,3% minni en í fyrra. Inni í þeim tölum er ekki velta verslana á brottfararsvæði, m.a. Íslensks mark- aðar, veitingasölunnar, Saga Boutiq- ue og fleiri aðila, en velta þeirra dróst saman um tæp 8%. Höskuldur Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar, bendir á að fækkun far- þega um 11% segi ekki alla söguna. Máli skipti hvaða farþegar séu skoð- aðir og hvernig tekist hafi að selja þeim vörur og þjónustu í flugstöðinni. Höskuldur bendir á að mun færri svo- nefndir skiptifarþegar hafi farið um Leifsstöð á árinu, eða 226 þúsund nú miðað við um 314 þúsund í fyrra, fækkunin fyrstu ellefu mánuðina nemi 28%. Á sama tíma hafi farþegum sem komi beint til Íslands, eða fari héðan til útlanda, fækkað um 5%. Það séu þeir farþegar sem skipti mestu fyrir tekjustreymi í flugstöðinni. Frá janúar til nóvember komu ríflega 466 þúsund flugfarþegar til landsins og héðan flugu ríflega 463 þúsund manns. Á fyrstu ellefu mánuðunum 2001 lentu tæplega 493 þúsund far- þegar á Keflavíkurflugvelli og þaðan fóru 491 þúsund manns. 8% meiri sala á hvern farþega Tekjur fríhafnarverslunar Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar hf. námu, að sögn Höskuldar, 3,3 milljörðum króna fyrstu ellefu mánuðina saman- borið við 3,4 milljarða í fyrra. Hös- kuldur segist vera ágætlega sáttur við þessa útkomu. Mestu skipti að sala á hvern farþega hafi aukist milli ára, eða um 8,3%. Hann segir skýringarn- ar annars vegar aukið markaðs- og kynningarstarf og hins vegar breytta samsetningu farþega um flugvöllinn. Farþegum um Keflavíkurflugvöll hefur fækkað um 11% Veltan 3,3–8% minni ferðamennirnir virðast margir ekki hafa vitað af því að hér er veðrið líkt og á vordegi um þessar mund- ir,“ segir Ingibjörg. Hún segir að starfsmenn Upplýsingamiðstöðv- arinnar hafi bent ferðamönnunum á það sem í boði er, sem er heldur fátæklegra en þeir bjuggust margir hverjir við. „Ég myndi segja að af- greiðslutími veitingahúsa og safna komi þeim mest á óvart en söfn eru hér lokuð frá Þorláksmessu og til 2. janúar. Þetta er nokkuð sem þeir eiga alls ekki að venjast og áttu margir hverjir ekki von á.“ Ingibjörg segir að samkvæmt upplýsingum Flugleiða dvelji um 400 erlendir ferðamenn í borginni yfir hátíðirnar. FJÖLDI erlendra ferðamanna hef- ur leitað til Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í Reykjavík að undan- förnu með fyrirspurnir um afþrey- ingu og afgreiðslutíma veitinga- húsa yfir hátíðirnar. Að sögn Ingibjargar Hallbjörnsdóttur, for- stöðukonu Upplýsingamiðstöðv- arinnar, komu 180 ferðamenn í miðstöðina á Þorláksmessu og voru margir vonsviknir yfir að aðgangur að veitingahúsum, söfnum og ann- arri afþreyingu er af skornum skammti frá aðfangadegi og fram á kvöld annars í jólum. „Íslendingar hafa verið að mark- aðssetja vetrarferðamennsku í rík- um mæli undanfarin ár, en sökum veðráttunnar er lítið í boði núna og Undrast lokanir yfir hátíðirnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.