Morgunblaðið - 04.01.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐRÆÐUR ÁN SKILYRÐA
Norður-Kóreumenn sögðust í gær
vilja viðræður án skilyrða og griða-
sáttmála við Bandaríkjamenn til að
leysa deiluna um kjarnavopnatil-
raunir kommúnistastjórnar Kim
Jong-ils. Kínverjar saka Banda-
ríkjamenn um óbilgirni og hvetja þá
og N-Kóreumenn til að sýna „heil-
brigða skynsemi“.
Eftirsótt viðbótarlán
Íbúðalánasjóður reiknar með að
þriðja hvert lán til íbúðakaupa sem
afgreitt verður á þessu ári verði svo-
kallað viðbótarlán, en það þýðir að
sjóðurinn lánar 90% kaupverðsins. Í
fyrra voru afgreidd 2.592 viðbótar-
lán að fjárhæð 4.836 milljónir króna.
Það er fjölgun um 48%, en árið 2001
voru afgreidd 1.747 lán.
Þrýst á leiðtoga
Tyrkneskir ráðamenn leggja nú
fast að leiðtoga Tyrkja á Kýpur að
fallast á sameiningu eyjunnar og
hann hefur sætt vaxandi gagnrýni
meðal Kýpur-Tyrkja, sem óttast að
andstaða hans við sameiningu verði
til þess að aðeins Kýpur-Grikkir fái
aðild að Evrópusambandinu.
Kassi féll af himnum
Kolbrúnu Sveinsdóttur, bónda á
Hvammi í Landsveit, brá heldur bet-
ur í brún þegar kassi datt niður af
himnum ofan um miðjan dag í gær
og lenti skammt frá henni. Féll hann
niður svona sex metra frá þeim stað
þar sem hún stóð. Um var að ræða
ósonmælingartæki sem sleppt hafði
verið frá veðurstöðinni á Keflavík-
urflugvelli.
Fjórðungur kyrrsetufólk
Vitneskja um hollustu hreyfingar
dugir ekki til að fólk drífi sig af stað
og byrji að stunda líkamsrækt. Þetta
eru niðurstöður íslenskrar rann-
sóknar, sem kynnt var á Vís-
indaráðstefnu Háskóla Íslands í
gær. Rúmur fjórðungur í könnun,
eða 26% svarenda, var kyrrsetufólk
eða stundaði aðeins hæga og rólega
hreyfingu.
Lífeyrisskuldir aukast
Vaxandi lífslíkur Íslendinga munu
auka heildarskuldbindingar lífeyr-
issjóða um nálægt 2% að meðaltali
við uppgjör nú um áramótin, en þá
taka gildi nýjar líkindatöflur um lífs-
líkur Íslendinga.
L a u g a r d a g u r
4.
j a n ú a r ˜ 2 0 0 3
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 30
Viðskipti 12/13 Minningar 32/37
Erlent 16/18 Kirkjustarf 37/41
Höfuðborgin 19 Staksteinar 38
Akureyri 20 Myndasögur 40
Suðurnes 21 Bréf 40
Árborg 21 Dagbók 42/43
Landið 22 Leikhús 44
Listir 24/25 Fólk 44/49
Neytendur 22 Bíó 47/49
Heilsa 23 Ljósvakamiðlar 50
Forystugrein 26 Veður 51
* * *
OPNUN deildar fyrir heilabilaða á
Landakotsspítala Landspítala –
háskólasjúkrahúss verður frestað
um óákveðinn tíma, en til stóð að
opna hana á ný 6. janúar, að sögn
Jóhannesar Gunnarssonar, lækn-
ingaforstjóra LSH.
Í sumar sem leið var heilabilun-
ardeild lokað tímabundið, þar sem
rekstrarfé vantaði, og sjúklingar
með heilabilun fluttir á aðrar deild-
ir Landakotsspítala, en áform voru
uppi um að hún yrði aftur opnuð nú
um áramótin. Elín Margrét Hall-
grímsdóttir hjúkrunarfræðingur
segir í grein í Morgunblaðinu í gær
að deildin verði ekki opnuð á ný um
þessi áramót „heldur verði húð-
deild, sem hefur verið á Vífilsstöð-
um, flutt í það húsnæði,“ segir hún.
Jóhannes Gunnarsson segir að í
endurskipulagningu sé búið að
koma öllum deildum fyrir nema
þessari húðsjúkdómadeild. „Þegar
tekin var ákvörðun um það að fara í
endurnýjun á Vífilsstöðum þá
þurftum við að flytja þessa húð-
deild með nokkurri skyndingu og
koma henni einhvers staðar fyrir,
þó ekki væri nema til bráðabirgða.“
Jóhannes segir að þegar nýi
barnaspítali Hringsins verði tekinn
í notkun á næstunni losni annað
rými og þar skapist möguleikar
fyrir húðdeildina, annaðhvort í
Fossvogi eða við Hringbraut.
„Þetta er biðleikur sem við höfðum
hugsað okkur að leika,“ segir hann
um flutning húðdeildar á Landa-
kot, „en þetta er í endurskoðun og
það hefur aldrei verið sagt að þetta
sé einhver varanleg ráðstöfun.“
Um 20 sjúklingar með heilabilun
bíða eftir að komast inn á umrædda
deild. Að sögn Jóhannesar er ekki
hægt að segja til um hvenær hún
verður opnuð aftur, en það fari eftir
því hvort rekstrarfé fáist.
„Ætli það sé ekki eitthvað skárra
að loka svona deild heldur en
bráðadeildunum,“ segir hann
spurður hvers vegna ástandið bitni
frekar á sjúklingum með heilabilun
en öðrum. „Við erum með fólk af
öðrum deildum úti um alla ganga
og það er ekki svo auðvelt að loka
þeim.“
Opnun deildar fyrir
heilabilaða frestað
ELÍN Magn-
úsdóttir, íbúi á
Dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyri,
er elsti núlifandi
Íslendingurinn,
rúmlega 107 ára
gömul, fædd 4.
nóvember 1895.
Nú um áramótin
voru sjö Íslend-
ingar á lífi, allt
konur, sem fæddir
eru fyrir aldamótin 1900, samkvæmt
yfirliti frá Hagstofu Íslands. Alls eru
26 Íslendingar, víðs vegar af landinu,
100 ára eða eldri en í þeim hópi eru
fjórir karlar.
Málfríður Jónsdóttir í Reykjavík er
næstelsti Íslendingurinn en hún varð
106 ára 29. ágúst sl. Guðfinna Ein-
arsdóttir, Reykjavík, og Sólveig Páls-
dóttir, Svínafelli 2, Víðihlíð, Öræfum,
náðu 105 ára aldri á síðasta ári, Guð-
finna hinn 2. febrúar og Sólveig hinn
20. ágúst.
Lovísa Bjargmundsdóttir í Reykja-
vík varð 104 ára 28. ágúst 2002, Guð-
rún Björnsdóttir á Dalvík varð 103
ára á aðfangadag og Jóna Guðmunds-
dóttir á Sauðárkróki náði þeim áfanga
29. desember sl. Fjórir núlifandi Ís-
lendingar eru fæddir árið 1900, tveir
karlar og tvær konur; Jóhanna Jóns-
dóttir á Akureyri hinn 12. febrúar,
Ágúst Benediktsson í Hafnarfirði 11.
ágúst, Guðmundur Daðason, Garðabæ,
13. nóvember og Sigurbjörg Þorvarð-
ardóttir, Neskaupstað, 14. desember.
Sjö núlifandi Íslendingar eru fæddir
árið 1901; Guðmunda Guðmundsdóttir,
Reykjavík, hinn 5. mars, Stefán Sig-
urðsson, Hveragerði, 14. mars, Þor-
gerður Einarsdóttir, Vík í Mýrdal, 28.
mars, Jónína Heiðar, Reykjavík, 18.
apríl, Jónína Jónsdóttir, Reykjavík, 19.
júlí, Katrín Andrésdóttir, Reykjavík,
21. ágúst og Steinn Guðni Hólm, Ak-
ureyri, 1. desember.
Þá eru átta núlifandi Íslendingar
fæddir árið 1902 og náðu því 100 ára
markinu á síðasta ári; Fríður Sig-
urjónsdóttir, Reykjavík, 13. janúar,
Þórunn Þorgeirsdóttir, Reykjavík, 6.
mars, Kristín Guðmundsdóttir, Hafn-
arfirði, 11. maí, Þorbjörg Björnsdóttir,
Reykjavík, 17. júní, Rósmunda Pálína
Friðriksdóttir, Kópavogi, 13. sept-
ember, Guðrún E. Norðdal, Reykjavík,
23. september, Gunnþórunn Helga
Jónsdóttir, Reykjavík, 27. september
og Margrét Sigurðardóttir, Hafn-
arfirði, 7. október.
26 Íslend-
ingar
100 ára
eða eldri
Elín Magnúsdóttir
BÍLAR þurfa mikla umönnun eins og bíleigendur
þekkja bæði í þrifum og viðhaldi. Flestir sjá sjálf-
sagt sjálfir um að halda bíl sínum hreinum svona
dags daglega og snudda kringum hann eftir því sem
þörf krefur og getan leyfir. En stundum er alveg
nauðsynlegt að fá einhvern annan í verkið og þá er
nóg úrval af bón- og þvottastöðvum þar sem vaskir
starfsmenn eru reiðubúnir að taka til hendinni.
Morgunblaðið/Golli
Áramótahreingerning
25 ÁRA karlmaður var í gær
dæmdur í tveggja ára fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir al-
varleg kynferðisbrot gegn systur
sinni sem var 9–11 ára gömul þeg-
ar brotin áttu sér stað. Taldi dóm-
urinn sannað, gegn neitun manns-
ins, að hann hefði m.a. nokkrum
sinnum haft samræði við stúlkuna
á þessu tímabili. Hann var auk þess
dæmdur til að greiða systur sinni
1,2 milljónir króna í miskabætur.
Brotin áttu sér stað á heimili
systkinanna þar sem þau voru
bæði búsett, á árunum 1999–2000.
Foreldrar þeirra kusu að tjá sig
ekki við lögreglu þegar málið var
rannsakað og komu ekki fyrir dóm.
Maðurinn neitaði sök og kvaðst að-
eins hafa kysst systur sína og þukl-
að á henni utan klæða. Þetta hefði
gerst tvívegis en hann hefði þá ver-
ið þunglyndur og í fíkniefnaneyslu.
Taldi hann systur sína, sem er 12
árum yngri en hann, hafa átt frum-
kvæðið að þessu engu síður en
hann og bæri hún einnig ábyrgð á
því.
„Þegar haft er í huga hversu ung
stúlkan var og aldursmunur þeirra
systkina, þá þykir þessi framburð-
ur ákærða um meint frumkvæði
[stúlkunnar] vera óviðeigandi og
fráleitur,“ segir í dómi héraðs-
dóms.
Í framburði sálfræðings fyrir
dómi kom fram að maðurinn hafi
kannast við að hafa misnotað syst-
ur sína í tvö eða þrjú skipti og átti
þar við „snertingar, kossa og
munnmök“. Sálfræðingurinn bar
einnig að viðhorf mannsins til eigin
athafna og almennt til kynferðis-
legs ofbeldis væru mjög á skjön við
það sem eðlilegt gæti talist. Fyrir
dómi þvertók maðurinn fyrir að
hafa rætt um munnmök. Héraðs-
dómi þótti framburður hans ekki
trúverðugur.
Framburður stúlkunnar þótti á
hinn bóginn trúverðugur en hann
var studdur umsögn sálfræðings
sem hafði hana í meðferð. Bar sál-
fræðingurinn að stúlkan sýndi ým-
is merki um að hafa orðið fyrir kyn-
ferðisofbeldi og líklegt væri að
áhrif þess yrðu varanleg.
Ekkert afsakar brotin
Héraðsdómur segir að maðurinn
hafi verið í vímuefnaneyslu á því
tímabili sem brotin voru framin og
að hann eigi við ýmis vandamál að
etja, m.a. vegna eigin lífsreynslu en
hann sagði sálfræðingi frá því að
hann hefði sjálfur orðið fyrir kyn-
ferðislegu ofbeldi í æsku. Sjálfsmat
hans sé lágt og viðhorf til kynferð-
islegs ofbeldis ekki eðlilegt. Ekk-
ert af því afsaki þó brot hans. Um
sé að ræða endurtekið gróft ofbeld-
isbrot gagnvart barni þar sem beitt
var yfirburðum aldurs og brugðist
trausti.
Dómurinn segir að maðurinn sé
sakhæfur en ljóst sé með vísan til
greinargerðar sálfræðings að hann
þurfi að fá meðferð við hæfi. Dóm-
inum séu hins vegar settar skorður
með refsilögum að því er varðar
ákvörðun um hvernig refsingu
skuli háttað. Ekki þótti fært að
skilorðsbinda refsinguna. Við
ákvörðun refsingar var m.a. litið til
eldri brota auk þess sem maðurinn
var sakfelldur fyrir þjófnað.
Skipaður verjandi var Hilmar
Ingimundarsonar hrl. og réttar-
gæslumaður stúlkunnar var Stein-
unn Guðbjartsdóttir hdl. Sigríður
Jósefsdóttir saksóknari sótti málið
f.h. ríkissaksóknara. Hjördís Há-
konardóttir, ásamt meðdómendun-
um Guðjóni St. Marteinssyni og
Páli Þorsteinssyni, kváðu upp
dóminn.
Dæmdur fyrir alvar-
leg kynferðisbrot
gegn systur sinni
MÁNUDAGSÚTGÁFA Morgun-
blaðsins hefst næstkomandi mánu-
dag, 6. janúar. Afgreiðslutíma
áskriftardeildar hefur verið breytt
vegna þessa og verður framvegis á
þann veg að alla virka daga er deildin
opin kl. 6–18, á laugardögum er opið
kl. 6–19 og á sunnudögum er opið kl.
7–14.
Áskrifendur sem fá blaðið núna sex
daga vikunnar fá mánudagsblaðið til
viðbótar við útgáfuvikuna án þess að
áskriftarverð breytist. En þeir
áskrifendur sem einungis fá helgar-
blöðin til sín geta hringt í áskrift-
ardeildina í dag milli kl. 6 og 19 til að
fá Morgunblaðið til sín sjö daga vik-
unnar án viðbótargjalds út jan-
úarmánuð. Sími áskriftardeildar er
569 1122 og netfang askrift@mbl.is.
Auglýsingapantanir fyrir mánu-
dagsblað þurfa að berast auglýsinga-
deild fyrir kl. 16 á föstudögum, skil á
auglýsingum í vinnslu eru kl. 16 á
fimmtudögum og fyrir fullbúnar aug-
lýsingar er skilatíminn kl. 16 á föstu-
dögum. Sími auglýsingadeildar er
569 1111 og netfang augl@mbl.is.
Mánudagsblað