Morgunblaðið - 04.01.2003, Page 19

Morgunblaðið - 04.01.2003, Page 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 19 úar sl. Að sögn Inger Dahl, flokksstjóra hjá Hjálpræð- ishernum, var á þriðja tug barna og fullorðinna á skemmtuninni. Dansað var í kringum jólatré og boðið upp á kökur, kaffi og gos. HJÁLPRÆÐISHERINN efndi til árlegs nýársfagnaðar fyrir börn og fjölskyldur þeirra fimmtudaginn 2. jan- Nýársfagnaður fyrir börn Reykjavík Morgunblaðið/Þorkell GERT er ráð fyrir að heildartekjur bæjarsjóðs Seltjarnarnesbæjar og stofnana hans verði um 1.234 m.kr. samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2003 og rekstrargjöld án fjárfestinga 1.079 m.kr. Rekstrarafgangur er því áætlaður 154 m.kr. eða tæp 13 pró- sent af tekjum. Fjárhagsáætlun var samþykkt samhljóða við seinni umræðu á fundi bæjarstjórnar í desember. Ekki er gert ráð fyrir hækkun opinberra gjalda og gengið út frá að önnur þjónustugjöld haldist óbreytt. Meðal annars er áætlað að veita 664 m.kr. í fræðslumál, 171 m.kr. í æskulýðs- og íþróttamál, 164 m.kr. í skipulags- og umhverfismál og al- mannavarnir, 73 m.kr. í félagsþjón- ustu og 30 m.kr. í menningarmál. Ráðgert er að greiða 27 m.kr. í af- borganir af langtímalánum og að heildarskuldir bæjarins verði 295 milljónir í árslok 2003. Endurbætur á Mýrarhúsaskóla Í tilkynningu frá Seltjarnarnesbæ kemur fram að undirbúningi að byggingu hjúkrunarheimilis verði haldið áfram og lokið verði að mestu við endurbætur á Valhúsaskóla. Á vordögum hefjast umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir á húsnæði Mýrarhúsaskóla. Þá er verið að kanna þörf á að reisa viðbyggingu við skólann og byggingu nýs leik- skóla. Einnig er ráðgert að flytja bæjarbókasafn Seltjarnarness í rýmra húsnæði á Eiðistorgi og lag- færa þak Eiðistorgs. Gert ráð fyr- ir 154 m.kr. rekstraraf- gangi Seltjarnarnes Fjárhagsáætlun fyrir 2003 samþykkt ÞRETTÁNDAGLEÐI verður hald- in í Grafarvoginum nk. mánudags- kvöld og hefst hún með blysför frá vélamiðstöð Reykjavíkurborgar við Gylfaflöt kl. 19.30. Gengið verður að brennusvæðinu ofan við Gufunesbæinn og kveikt í þrettándabrennu kl. 20. Skátarnir munu stjórna fjöldasöng þar sem álfadrottning og álfakóngur koma fram ásamt barna- og unglingakór Grafarvogskirkju. Dagskránni lýkur með flugeldasýningu í boði Egils- hallarinnar kl. 20.30. Þrettánda- gleði við Gufu- nesbæinn Grafarvogur GARÐABÆR, Kópavogur, Mosfells- bær og Seltjarnarneskaupstaður sameinuðust fyrir nokkru um endur- og símenntunaráætlun fyrir starfs- fólk í leikskólum sveitarfélaganna. Síðastliðið vor var gefinn út veg- legur námskeiðsbæklingur með upp- lýsingum um fyrirlestra og námskeið fyrir starfsmenn leikskóla sem dreift var til allra leikskólanna. Í tilkynn- ingu frá leikskólafulltrúm sveitarfé- laganna sem standa að áætluninni segir að starfsmenn hafi skráð sig á hin ýmsu námskeið og áhugi hafi ver- ið mikill og þátttaka góð. „Þetta er lofsvert framtak um samvinnu á milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og öðrum starfsgreinum til góðrar eftirbreytni,“ segir þar. Jóhanna Björk Jónsdóttir, leik- skólafulltrúi á Skólaskrifstofu Garða- bæjar, segir að þessi sveitarfélög hafi um langt skeið verið í nokkurri sam- vinnu. Hún bendir á að á liðnum árum hafi námskeið og endurmenntun starfsmanna sífellt orðið stærri og útgjaldafrekari liður í rekstri leik- skólanna. „Þetta var bundið í kjarasamning- um starfsmanna. Samkvæmt þeim áttu starfsmenn að fá þrjú lögbundin námskeið til að hækka upp í launa- flokkum. Þetta var tekið af í síðustu kjarasamningum, sí- og endurmennt- un er ekki lengur háð ákveðnum tímafjölda heldur á bærinn að veita þessa þjónustu,“ segir Jóhanna. Kópavogur og Garðabær tóku upphaflega höndum saman um mark- vissara samstarf á þessu sviði. Áður höfðu Seltjarnarneskaupstaður, Garðabær og Mosfellsbær haldið sameiginleg námskeið fyrir ófag- lærða starfsmenn og hófst það sam- starf um miðjan síðasta áratug. Fljótlega eftir að Kópavogur og Garðabær hófu nánara samstarf bættust Mosfellsbær og Seltjarnar- neskaupstaður í hópinn. Mikill áhugi fyrir hendi Jóhanna bendir á að samkvæmt nýjum kjarasamningum verði starfs- fólk í leikskólum að leggja stund á sí- og endurmenntun til að eiga rétt á launahækunum. „Við vitum ekki hvað önnur sveit- arfélög hafa lagt til grundvallar, þ.e. hversu marga tíma starfsfólk þarf að fara í til að hækka í launum. Við, þessi hópur, byrjuðum með 18–20 tíma á einu starfsári í leik- skóla. Við sjáum til þess að allir starfs- menn fái þessa tíma og flestir sækja sér miklu meira,“ segir Jóhanna. Á milli 70 og 80 manns starfa á leikskólum í Garðabæ. Hún segir að tekist hafi að ná kostnaðinum niður. „Við nýtum eigið húsnæði og leggj- um til mannauð, enda á leikskóla- stéttin fullt af fagfólki sem við reyn- um að nýta okkur,“ segir Jóhanna. Fjögur sveitarfélög standa í sameiningu að endur- og símenntun á leikskólum „Lofsvert framtak um samvinnu sveitarfélaga“ Höfuðborgarsvæðið ♦ ♦ ♦ BÆJARSTJÓRI Garðabæjar og for- maður Stjörnunnar, undirrituðu fyrir nokkru samning um rekstur íþrótta- valla við Ásgarð og í Hofsstaðamýri. Samkvæmt honum tekur Stjarnan að sér rekstur íþróttavallanna en um er að ræða endurnýjun á samningi sem gerður var árið 1999. Í tilkynningu frá Garðabæ segir að helstu forsendur samningsins séu að Stjarnan geti rek- ið vellina fyrir lægri kostnað en sveit- arfélagið, m.a. vegna þátttöku sjálf- boðaliða og félagið stýri sjálft afnotum af svæðunum. Það sé mat beggja aðila að þetta fyrirkomulag hafi gefist vel og því hafi verið ákveðið að framlengja samninginn með óverulegum breytingum. Nýi samningurinn gildir til loka árs 2006. Samkvæmt honum greiðir Garðabær Stjörnunni 12.975.000 kr. hvert ár samningstímans. Gert er ráð fyrir að greiðslur verði rúmar 14,5 milljónir á ári frá hausti 2003 þegar nýr gervigrasvöllur verður tekinn í notkun á Ásgarðssvæðinu. Í samn- ingnum segir að báðir aðilar séu sam- mála um að taka upp viðræður vegna reksturs vallarhúss á síðari stigum. Samningur gerður um rekstur íþróttavalla Fyrir- komulag sem gefist hefur vel Garðabær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.