Morgunblaðið - 04.01.2003, Page 26

Morgunblaðið - 04.01.2003, Page 26
H ÁSKÓLAR á Íslandi sem annars staðar eru sem betur fer ekki lengur fyrir fáa út- valda heldur opnar mennta- stofnanir fyrir almenning. Sést þetta best á því að ríflega þriðjungur hvers fæðingarárgangs aflar sér nú há- skólamenntunar. Þetta hlutfall óx með vax- andi hraða alla síðustu öld og spáir Jón Torfi Jónasson, prófessor við Háskóla Ís- lands, að svo verði áfram. Þróun hér er með svipuðum hætti og í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum. Íslenska ríkið hefur á und- anförnum árum aukið verulega fjárframlög sín til háskóla og enn sem komið er standa íslenskir háskólar ekki frammi fyrir þeim vanda sem Ralf Dahrendorf lýsir í grein sinni hér á síðunni. Stjórnvöld forgangsraði Sá tími kann hins vegar að koma að ís- lenska ríkið geti ekki lengur tryggt rekstr- argrundvöll háskóla og niðurgreitt námslán í sama mæli og það gerir nú. Þá þarf að for- gangsraða verkefnum og líta t.d. til fjár- frekra og lítt arðbærra sviða ríkisrekstrar, s.s. landbúnaðar, sem hér á landi nýtur hlutfallslega hæstu opinberra styrkja í heiminum eða um níu milljarða króna ár- lega. Einnig geta byggðaaðgerðir eins og jarðgöng til Siglufjarðar (þar búa 1.400 manns) fyrir um sjö milljarða króna, sem boðin verða út í febrúar, tæplega talist skynsamleg fjárfesting ef horft er til heild- arhagsmuna íslensku þjóðarinnar. Önnur afleiðing breyttra rekstrarforsendna há- skólastigsins gæti orðið sú að námsmenn þyrftu að axla aukna fjárhagslega ábyrgð, sem gæti verið afkomutengd. Vísir að slíku fyrirkomulagi er nú þegar við endur- greiðslur námslána. Kostnaðarhlutdeild al- mennings hefur aukist á flestum sviðum op- inberrar þjónustu og ástæða er til að ætla að svo verði einnig með háskólamenntun í framtíðinni. Hér þarf þó að gæta þess að námskostn- aður komi ekki í veg fyrir að fólk leggi stund á háskólanám. Þvert á móti er það stefna stjórnvalda víðast hvar að mikilvægt sé að hækka menntunarstig, ekki síst með því að fjölga þeim sem stunda háskólanám. Óumdeilt er að menntun hefur jákvæð áhrif á efnahagslega afkomu þjóða. Jákvæð fylgni er milli menntunar einstaklinga og tekna þeirra, heilbrigðis, félagslegrar þátt- töku, námsárangurs barna og jafnvel lög- hlýðni. Af þessum sökum er því iðulega haldið fram að fáar fjárfestingar, jafnt ein- staklinga sem heilla samfélaga, séu jafn- arðbærar í margvíslegum skilningi og fjár- festing í menntun. Þetta ásamt hinni sjálfsögðu lýðræðislegu kröfu um jafnrétti til náms þarf að hafa í huga þegar stefna er mótuð um aðgengi að háskólamenntun. Eru Bandaríkin fyrirmynd? Sú hugmynd Dahrendorfs að líta til Bandaríkjanna sem fyrirmyndar í rekstri háskóla er þeim takmörkunum háð, að þar er aldagömul hefð fyrir rausnarlegum fjár- framlögum almennings sem auðmanna til hvers kyns mennta-, menningar- og velferð- armála. Hefð sem á rætur í þeirri hug- myndafræði að ríkisumsvifum skuli haldið í lágmarki og í áherslu sem hvers kyns trú- félög leggja á sjálfboðastarf og frjáls fjár- framlög einstaklinga. Vegna þessa eru margir bandarískir háskólar fjársterkir og geta m.a. veitt umtalsverðum fjölda efni- legra nemenda námsstyrki. Þrátt fyrir slíka námsstyrk legt jafnré rískt samf þetta varð hefur byg menntun. skattaíviln breytinga Hugmy ingu (diffe hins vegar breytt nem sundurgre skóla og h því hvort f kennslu og og rannsó allir háskó við. Það er vera hásk fremst leg þjálfun. H krafa ávís hvorki fyr háskóla. S sjálfir legg rannsókni senda fyri endur get Fjölbreytni, frels Eftir Margréti S. Björnsdóttur Sjálfstæði háskóla hefur aukist verulega en e.t.v. má ga 26 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. V IÐ lok ársins 2002 urðu söguleg umskipti í stjórn Reykjavíkurborgar. Tæplega níu ára samstarf vinstriflokkanna undir merkjum R-listans rann sitt skeið vegna svikabrigsla. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gekk á bak orða sinna, bauð sig fram til þings fyrir Samfylkinguna og varð að hætta sem borgarstjóri. Morgunblaðið sagði í forystugrein um afsögn Ingi- bjargar Sólrúnar: „Þetta mál er áfall fyrir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem stjórnmálamann og áfall fyrir Reykjavíkurlistann sem haldið hefur meirihlutavöldum í borgarstjórn Reykjavíkur nú á þriðja kjörtímabil. Raun- ar má segja að um sé að ræða einn mesta afleik íslenzks stjórnmálamanns á taflborði stjórnmálanna um langt árabil.“ x x x Í janúar 1994 var lagður grunnur að samstarfi fjög- urra vinstriflokka um stjórn borgarinnar í andstöðu við Sjálfstæðisflokkinn. Þetta voru Alþýðubandalag, Al- þýðuflokkur, Framsóknarflokkur og Kvennalisti. Var talsvert tekist á um skipan samstarfsins, þegar það var að mótast. Ekki síst var deilt um aðferðir við val á borg- arstjóra. Voru vinstrimennirnir þó sammála um eitt: Þeir ætluðu ekki sömu leið og í meirihlutatíð sinni 1978 til 1982, það er að ráða borgarstjóra utan borg- arstjórnar. Um tíma var ráðgert, að sá úr hópnum, sem veldist til þess að gegna stöðu borgarstjóra, segði af sér sem borgarfulltrúi og varamaður tæki sæti borgarstjór- ans í borgarstjórn. Þetta vildi Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir ekki samþykkja. Hún sætti sig ekki við að verða borgarstjóri án atkvæðisréttar, eins og það var orðað. Engir voru meiri talsmenn þess í kosningabaráttunni til borgarstjórnar vorið 1994 en einmitt R-listamenn, að þeir mundu aldrei aftur setja nokkurn utan síns hóps í embætti borgarstjórnar. Nú hefðu þeir fundið leið til að tryggja pólitíska samstöðu um einn úr hópi kjörinna borgarfulltrúa til að vera í forystu fyrir sig. Án þeirrar meginforsendu hefðu þeir aldrei stofnað til sameiginlegs framboðs. Á grundvelli samnings um kerfi, sem fulltrúar vinstri flokkanna töldu, að kæmi örugglega í veg fyrir svipuð vandræði í samskiptum þeirra og á árunum 19 var gengið til þess verks að sjóða saman málef Hið sérkennilega gerist nú við hrun hins umsa is, að talsmenn flokkanna, sem standa að R-lis láta í veðri vaka, að valdakerfið skipti í raun m en málefnasamningurinn. Með því er verið að samstarf flokkanna á fölskum forsendum. R-li sögunni sem samstarfsvettvangur, hann sneri tryggja fjölflokka samstöðu um borgarstjóra m kvæðisrétt. Þórólfur Árnason verður ekki með rétt. x x x Í tíð R-listans hefur Kvennalistinn horfið en flokkur og Alþýðubandalag fengið ný nöfn, þa fylkingin og Vinstri hreyfingin – grænt framb Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sat á alþingi fy Kvennalistann, þegar hún var valin til að verð arstjóraefni R-listans. Hafði hún einkum vaki hygli á þingi fyrir að snúast gegn samherjum an Kvennalistans í afstöðunni til samningsins Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu (EES- ins). Sat hún hjá við afgreiðslu samningsins en systur hennar voru á móti honum. Í nýlegu við Stúdentablaðið gefur Ingibjörg Sólrún rangle kynna, að hún hafi stutt samninginn. Hins veg sumarið 1991 þátt í að stofna samtök gegn sam Nú virðist hún talsmaður aðildar Íslands að E bandinu (ESB)! Ingibjörg Sólrún afsalaði sér þingmennsku 1994, eftir að hún varð borgarstjóri. Tók Guðn björnsdóttir við sæti hennar sem 10. þingmaðu víkinga. Lá í augum uppi, að það samrýmdist e ystuhlutverki Ingibjargar Sólrúnar fyrir fjóra borgarstjórn að vera fulltrúi eins þeirra á þing Þegar gengið var til þingkosninga vorið 199 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ámæli frá kvenna manninum Kristínu Ástgeirsdóttur fyrir að ha kosningafundi hjá helstu andstæðingum Kven Þjóðvaka (brot Jóhönnu Sigurðardóttur úr Al flokknum) og Alþýðuflokknum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir svaraði Kristín VETTVANGUR Kurlin koma til graf Eftir Björn Bjarnason SKRÝTIN VIÐBRÖGÐ Viðbrögð Samtaka verslunar ogþjónustu við nýjum reglum Sam-keppnisstofnunar um viðskipti birgja og matvöruverslana eru skrýtin. Reglurnar, sem eru einungis leiðbein- andi, taka til viðskipta birgja og mat- vöruverslana á dagvörumarkaði. Í þeim er meðal annars fjallað um afskipti fyr- irtækja af verðlagningu og viðskipta- kjörum annarra fyrirtækja og hvernig afsláttarkjörum milli birgja og verslana sé best háttað. Þá er í þeim fjallað um skriflega viðskiptasamninga, markaðs- og kynningarstarf, hilluuppröðun og framsetningu. Meðal annars er kveðið á um að mat- vöruverslun sé óheimilt að fara fram á það við birgi að hann miðli upplýsingum um verð og önnur viðskiptakjör sem aðrar verslanir njóta hjá honum. Jafn- framt er birgi óheimilt að fara fram á það að verslun miðli sambærilegum upplýsingum um viðskipti sín við aðra birgja. Það er athyglisvert að stærsta versl- unarfyrirtækis landsins, Baugur, fagn- ar hinum nýju reglum en Samtök versl- unar og þjónustu gagnrýna þau. Í samtali við Morgunblaðið í síðustu viku sagði Jón Björnsson, framkvæmda- stjóri Baugs: „Það er ánægjulegt að fá reglur sem þessar og aðalatriðið er að þær séu til þess að bæta siðferði í við- skiptum en séu ekki samkeppnishaml- andi.“ Í ályktun Samtaka verslunar og þjónustu segir hins vegar að reglurnar sýni „eindæma forræðishyggju af hálfu stjórnvalda gagnvart frjálsum og eðli- legum viðskiptum þeirra sem í hlut eiga.“ Telja samtökin að nær væri að aðilar settu sér sjálfir viðskiptareglur án af- skipta hins opinbera. Þetta er sérstakt sjónarmið. Jafnvel hörðustu talsmenn hins frjálsa markað- ar telja forsendu frjálsrar samkeppni og markaðskerfis vera skýrar leikreglur. Þess vegna eru við lýði samkeppnislög í vestrænum markaðsþjóðfélögum. Þess vegna eru sett lög sem banna hringa- myndun. Í Bandaríkjunum þar sem menn hafa mikla óbeit á foræðishyggju gilda strangar reglur um framferði fyrir- tækja á markaði. Þar átti sér stað á síð- asta ári mikil umræða um það, hvernig breyta yrði reikningsskilavenju fyrir- tækja til að tryggja að uppgjör þeirra væru í takt við raunverulega afkomu. Nú eru í gangi málaferli í Bandaríkj- unum gegn háttsettum stjórnendum stórfyrirtækja er gerðust brotlegir við lög og reglur. Slík lög og hörð viðbrögð séu þau brotin eru talin forsenda þess að traust ríki gagnvart markaðskerfinu. Í síðasta mánuði urðu nokkur af þekktustu fjármálafyrirtækjum Banda- ríkjanna einnig að greiða háar sektir vegna vinnubragða greiningadeilda þeirra. Hér á landi hefur verið í gangi þrálát umræða á síðustu misserum um fá- keppni á matvörumarkaði. Þar hefur átt sér stað mikil samþjöppun og er nú svo komið að tvær stórar verslunarkeðjur ráða yfir stærstum hluta markaðarins. Það hlýtur að teljast eðlilegt að Sam- keppnisstofnun setji reglur sem tryggi eðlilega viðskiptahætti í slíku umhverfi. Það er ekki fullnægjandi að aðilar á markaði setji sér sjálfir viðskiptareglur. Það er hlutverk samkeppnisyfirvalda að skilgreina hvað teljist eðlilegir við- skiptahættir. Vissulega er ekkert við því að segja ef Samtök verslunar og þjónustu hafa efnislegar athugasemdir við það, hvernig Samkeppnisstofnun skilgreinir eðlilega viðskiptahætti í reglum sínum. Það er eðlilegt að um- ræða fari fram um það. Samtökin virð- ast hins vegar setja sig upp á móti því að Samkeppnisstofnun setji yfirhöfuð regl- ur um þessi mál. Slík viðhorf eru ekki líkleg til að efla trú á frjálsum markaði. FATLAÐIR OG VIÐHORFIN Athyglisvert samtal birtist í Morg-unblaðinu í gær við ungan mann, Einar Erlendsson, sem fæddist með svokallaða CP-fötlun og er hreyfi- hamlaður. Hann er bjartsýnn, segist lifa ósköp venjulegu lífi, sé alinn upp við að líta á sig eins og hvern annan einstakling og á heildina litið hafi líf hans gengið afskaplega vel – en við- horf annarra hafi verið hans helzta hindrun. „Ég hef orðið fyrir fordómum frá ýmsu fólki óháð aldri þess og mennt- un. Annaðhvort er látið eins og ég sé ekki til eða að talað er niður til mín,“ segir Einar. „Það er mjög algengt að fólki finnist það þurfa að koma öðru- vísi fram við fatlaða en aðra og þá er komið fram við mann eins og maður sé eilífðarbarn. Að vissu leyti er þetta þekkingarleysi og ég veit að fólk ætlar ekki að gera þetta en það gerist oft. Það er mín skoðun að ekki sé nóg að aðgengið sé gott fyrir fatlaða, viðhorf til þeirra þarf líka að batna. Þetta tvennt þarf að fara saman.“ Í viðtalinu kemur sömuleiðis fram sú umhugsunarverða skoðun Einars að málefni fatlaðra séu nú stödd á svipuðum punkti og kvennabaráttan fyrir um tveimur áratugum. Í báðum tilvikum getur það sama átt við; að það er ekki nóg að breyta lögum og reglum og skapa öllum svipaðar að- stæður; viðhorfsbreyting verður að fylgja í kjölfarið. Þrátt fyrir þá miklu breytingu, sem orðið hefur á högum fatlaðra einstak- linga á undanförnum áratugum er áreiðanlega enn algengt að komið sé fram við fatlaða eins og þeir séu ekki fullgildir þjóðfélagsþegnar. Það skýr- ist að hluta til af vanþekkingu, eins og Einar vekur máls á. Þekking á högum fatlaðra hefur að verulegu leyti tak- markazt við hóp þeirra sjálfra, að- standenda og fagfólks sem starfar með fötluðu fólki. Það skiptir máli að fjallað sé opinberlega um fatlaða sem einstaklinga og að þeir verði sýnilegri. Annar þáttur í skýringunni er hugs- anlega sú áherzla, sem lögð hefur ver- ið á réttindi fatlaðra og hlutverk þeirra sem þiggjenda í samfélaginu – en eins og Einar Erlendsson bendir á, bera fatlaðir einstaklingar líka skyld- ur og geta lagt sitt af mörkum til sam- félagsins: „Þeir sem eru fatlaðir hafa vissulega ákveðin réttindi eins og aðr- ir þjóðfélagsþegnar. Þeir hafa líka ákveðnum skyldum að gegna og það er skylda mín eins og annarra að vinna. Það er afskaplega mikilvægt að fá tækifæri til þess og vera virkur þjóðfélagsþegn á flestum sviðum lífs- ins.“ Þessa afstöðu hefur vafalaust margt fólk, sem glímir við fötlun af einhverju tagi. Það er mikilvægt að búa svo um hnútana að því sé gert kleift að rækja skyldur sínar og það fái að vera virkir þjóðfélagsþegnar, en að viðhorfið sé ekki það að fatlað fólk eigi að loka inni á stofnunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.