Morgunblaðið - 04.01.2003, Síða 40

Morgunblaðið - 04.01.2003, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ                     BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. FRÁ því Ingibjörg Sólrún bauð sig fram til að verða borgarstjóri Reyk- víkinga hefur borgarstjórnarminni- hlutinn sagt að hún væri á leiðinni í landsmálin. Fyrir hverjar kosningar var reynt að magna upp ótta meðal borgarbúa um að hún hætti að vera borgarstjóri þeirra. Síðan eru liðin bráðum níu ár og enn vilja Reykvík- ingar Ingibjörgu sem borgarstjóra og enn vill hún vera borgarstjóri þeirra. Þrástagast var á spurningu sem alltaf snerist um að Ingibjörg myndi fljótlega yfirgefa stól borgarstjóra fyrir þingsæti. Ingibjörg svaraði spurningunni oftar en flestum öðrum, nú síðast annan jóladag, að borgarbú- ar þyrftu ekki að óttast að hún segði af sér embætti. Það gerði hún heldur ekki nema að nafninu til. Borgar- stjóra Reykvíkinga var bolað úr emb- ætti með rógi og ofstopa. Þegar Ingibjörg Sólrún þáði 5. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík létu andstæðingar hennar (og sumir er útnefndu sjálfa sig fyrr- verandi samherja) í veðri vaka að spurningin hefði einmitt staðið um það hvort hún ætlaði í landsmálin eða ekki. Hún hefði því gengið á bak orða sinna með ákvörðun um að bjóða sig fram til þings, þ.e. svikið kjósendur. Það eru hrein ósannindi. Kjarni máls- ins er sá að Reykvíkingar hafa ekkert á móti því að Ingibjörg bjóði sig fram til þings fyrir þá. Þvert á móti. Þeir vilja bara ekki missa hana sem borg- arstjóra. Þann vilja bar fulltrúum vinstri-grænna og framsóknar að virða. Enn síður er hægt bæði í senn að bola borgarstjóra úr embætti og segja að hann hafi valið að víkja. Ekk- ert samkomulag innan R-listans kveður á um að borgarstjóri – eða aðrir borgarfulltrúar – megi ekki skipta sér af „landsmálum“. Slík krafa kom aldrei til álita, einfaldlega vegna þess að hún er fáránleg. En þegar mikið liggur við er betra að veifa röngu tré en öngvu. Hvað Framsóknarflokknum gekk til er á allra vörum; það hentar ekki formanni flokksins að Ingibjörg bjóði sig fram til þings fyrir Reykvíkinga. Halldór Ásgrímsson er lafhræddur um sæti sitt, og þá skítt með borg- arbúa og þeirra vilja. Heiftin sýður. Einhvern veginn skal klekkt á Ingi- björgu og til fjandans með R-listann, sem framsóknarformaðurinn hefur aldrei viljað hvort eð er. Framgöngu hans verður minnst í vor. Vinstri-grænir létu etja sér á for- aðið eða álpuðust þangað fyrir eigin glópsku eingöngu, og eiga í greini- legum erfiðleikum með að snúa við án þess að sökkva dýpra í vilpuna. Grát- legt er að þekkja ekki sinn vitjunar- tíma. Jafnvel stuðningsmenn flokks- ins velta því nú fyrir sér hvort hann sé eingöngu stofnaður um pólitísk von- brigði og hégómagirnd forystunnar. Ráðleysi verður hans einkunn. Það er kunnara en frá þurfi að greina að báðir flutu þeir Árni Þór Sigurðsson og Alfreð Þorsteinsson inn í borgarstjórn á framgöngu og mannkostum borgarstjóra, aðallega. Þeir hefðu mátt hugleiða umboð sitt frá borgarbúum betur fremur en leggja hagsmuni þeirra umsvifalaust til hliðar af hollustu við ólánsama flokksformenn. Vinstri-grænir og framsóknarmenn hafa aðeins form- legt en ekki raunverulegt eða sið- ferðilegt umboð til að ganga gegn lýð- ræðislegum vilja borgarbúa eins og hann birtist fyrir hálfu ári. Ingibjörg Sólrún var kjörin borgarstjóri af Reykvíkingum, ekki Steingrími og Halldóri. HJÖRTUR HJARTARSON, Hringbraut 87, 107 Reykjavík. Borgarstjóri Reykvíkinga Frá Hirti Hjartarsyni MÆTUM á völlinn. Áfram Ísland. Framundan er mikil handboltaveisla. Nú strax á nýju ári keppir íslenska karlalandsliðið þrjá landsleiki á móti Slóveníu. Síðan tekur alvaran við og heimsmeistarakeppnin í handbolta byrjar 20. janúar 2003 í Portúgal. Miklu skiptir að sýna stuðning í verki og mæta á leikina á móti Slóveníu. Íþróttamaður ársins 2002, Ólafur Stef- ánsson, verður í lykilhlutverki, en það er ekki á hverjum degi að handknatt- leiksmaður er kjörinn íþróttamaður ársins. Það sem einkennir íslenskan karla- handbolta er hversu sterkur hann er, við stöndumst fyllilega samanburð við aðrar Norðurlandaþjóðir og þótt víðar væri leitað. Nýjustu dæmin sanna það, liðum Hauka og Gróttu-KR gekk vel í Evrópukeppni. Þótt gengi Gróttu-KR í deildinni hafi verið upp og ofan í vetur þá er Grótta-KR komið í 8-liða úrslit í Evrópukeppni (Challenge Cup). Mót- spilarinn getur ekki gengið að neinu vísu hvort heldur hann spilar á móti landsliðinu eða íslensku félagsliði, það er ekkert unnið fyrirfram. Íslenska landsliðið er skipað að mestum hluta leikmönnum er spila er- lendis og alltaf fjölgar þeim, sem styrkir íþróttina enn frekar. En hvað veldur því að við erum svona góð í bolt- anum en eigum samt slæma leiki inn á milli? Þessu er vandsvarað en eitt er víst að íslenska landsliðið getur unnið hvaða þjóð sem er, hvar og hvenær sem er, það er dagsformið sem ræður. Sama má segja um íslensk félagslið og hafa Haukar sannað það á undanförn- um árum. Til að skapa sigur þarf umgjörðin að vera fyrsta flokks. Landsliðsverkefnin eru dýr, það þekkja sérsamböndin. Samþykkt var á fjárlögum ríkisstjórn- arinnar nú fyrir áramótin að veita styrk til landsliða sem ná inn á hin „stóru mót“. Er þetta liður í því að koma til móts við þann mikla kostnað sem fylgir því að halda úti landsliði í af- reksíþrótt. Ég hvet allt áhugafólk um íþróttir að styðja nú vel við bakið á íslenska handboltalandsliðinu og mæta á völl- inn 4., 5. og 6. janúar þegar liðið mætir Slóveníu. ÁSGERÐUR HALLDÓRSDÓTTIR, viðskiptafræðingur. Handbolti á heimsmælikvarða Frá Ásgerði Halldórsdóttur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.