Morgunblaðið - 04.01.2003, Side 42

Morgunblaðið - 04.01.2003, Side 42
DAGBÓK 42 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Víkverji skrifar... VÍKVERJI fékk Íslenska orða-bók í jólagjöf sem var honum mikið gleðiefni. Yfir jólahátíðina hefur honum þótt gaman að fletta þessum ágætu bókum og reynt að auka orðaforða sinn. Mikið hefur verið rætt um tilvistarrétt orðsins „sjitt“ í þessu vandaða riti og að ein- ungis tvö íþróttalið, ÍBV og KR, hafi fengið náð fyrir augum ritstjórnar- innar og þannig ratað í orðabókina. Víkverji rakst á annað sem hon- um þótti nokkuð undarlegt í orða- bókinni, það er hvernig orðin „flug- freyja“ og „flugþjónn“ eru skilgreind. „Flugþjónn“ er samkvæmt orða- bókinni „karl sem vinnur störf flug- freyju“. Á hinn bóginn er orðið „flugfreyja“ skilgreint sem „kona sem starfar um borð í flugvél við þjónustu og öryggisgæslu“. Þó aldrei hafi hann verið flug- þjónn eða flugfreyja hváði Víkverji þegar hann sá þetta nú þegar unnið er hörðum höndum að því að efla jafnrétti kynjanna. „Flugfreyjur“ litu vissulega dagsins ljós á undan „flugþjónum“ en þrátt fyrir það finnst Víkverja að eðlilegra hefði verið að skilgreina „flugþjóna“ á sama hátt og kvenkyns kollega hans, þ.e. sem „karl sem starfar um borð í flugvél við þjónustu og örygg- isgæslu.“ Vonandi verður þetta lagfært í næstu útgáfu orðabókarinnar, sem verður þó væntanlega ekki gefin út fyrr en eftir tuttugu ár. Er það trú Víkverja að árið 2023 muni núver- andi skilgreining á „flugþjónum“ stinga í stúf. x x x KVIKMYNDAHÚSIN hafa ný-lega tekið til sýningar annan kafla Hringadróttinssögu Tolkiens. Víkverji sá fyrstu bíómyndina um síðustu jól og bíður spenntur eftir að sjá mynd númer tvö. Myndin er hátt á þriðja tíma á lengd og þar sem aðdáendur Tolkiens hafa beðið óþreyjufullir eftir að sjá myndina hafa margir auglýsendur væntan- lega hugsað sér gott til glóðarinnar. Nokkrir vinir Víkverja hafa þegar séð myndina á hvíta tjaldinu og kvarta yfir því að fyrsti hálftíminn af auglýstum sýningartíma fari í auglýsingar. Margir eiga erfitt með að sitja svona lengi og finnst Víkverja ófor- svaranlegt að svo miklu magni aug- lýsinga sé dembt yfir fólk sem er búið að borga fyrir að sjá myndina og er ekki komið til að sjá auglýs- ingar sem tröllríða þjóðfélaginu. x x x ÁKVEÐIN angurværð hefuralltaf sett svip sinn á áramótin, að mati Víkverja, þó vissulega séu áramótin tími sem ber að fagna. Áramótin minna fólk á að því er ekki gefinn ótakmarkaður tími á jörðinni til að gera allt það sem það langar við líf sitt og til að uppfylla drauma sína. Allt árið um kring þýt- ur lífið áfram án þess að maður líti um öxl og velti því fyrir sér hvaða stefnu lífið sé að taka. Á áramót- unum hægir aftur á móti á lífinu og þá lítur Víkverji að minnsta kosti yf- ir farinn veg og hugsar sinn gang. Þó Víkverji sé ekki mjög gamall finnst honum alltaf erfitt að vita að hann verði árinu eldri á nýju ári. Það eru t.d. takmörk fyrir því hversu lengi menn geta talist ungir og efnilegir! Frábær söngnámskeið ÉG er algjörlega ósam- mála innihaldi greinar sem birtist í Velvakanda 27. desember síðastliðinn vegna söngnámskeiðs hjá Siggu Beinteins, Maríu Björk og Helgu Möller. Ég er að hefja mitt þriðja námskeið hjá Siggu, Helgu og Maríu og er ég mjög ánægð með þessi námskeið. Ég er nefnilega þessi feimna týpa en ég veit þó alveg hvað í mér býr. Á fyrsta námskeiðinu var ég ekki alveg sátt með tvo fyrstu tímana þegar Helga kenndi en ég var þá óvön því að hafa ókunnugt fólk að kenna mér söng. Svo þegar Sigga Beinteins kenndi var alveg frábært. Hún hefur einstakt lag á því að fá krakka til að sleppa sér og syngja hreint út. Eftir þetta fyrsta námskeið var ég al- veg heilluð og byrjaði á öðru námskeiði í beinu framhaldi af því fyrra. Og vil ég taka fram að Helga var þá mjög fín og skemmtileg og auðvitað var Sigga frábær! Hvað myndbandsupp- tökuna varðar þá er hún VIÐBÓT við námskeiðið. Ef ég vitna í greinina þá segir þar: „...það var video upptaka í einum tímanum og ef þú borgaðir ekki þá hafði barnið ekkert í tím- anum að gera...“ og svona virkar það auðvitað! Það er ekkert borgað fyrir þennan tíma og ef þú vilt ekki myndband þá áttu ekki að mæta í tímann! Það eru borgaðar 1.500 kr. fyrir spóluna sjálfa. Ég er mjög ánægð með þessi námskeið og skil ekki hvað foreldrar eru að kvarta og kveina yfir litlum metnaði og lélegri kennslu. Það er heldur ekki létt verk að kenna 6–9 ára píslum sem varla skilja hvað söngur gengur út á, vita ekki hvernig á að beita röddinni og hafa kannski engan metnað sjálfar. Ég vil benda á að Jó- hanna Guðrún fór á þessi námskeið en María Björk er hennar hvatamaður. Það er því alrangt að María sé metnaðarlaus, þvert á móti hún hefur mikinn metnað og hefur gaman af því að koma krökkum áfram. Ég hvet sem flesta að prófa þessi námskeið áður en fólk lætur segja sér eitthvað annað, innst inni er lítill stórsöngvari. Sólveig Helga, 13 ára. Úreltar reglur Í FJÖLMIÐLUM hefur undanfarið verið fjallað um það ófremdarástand sem er á stórhátíðum þeg- ar veitingastaðir og skemmtistaðir eru lokaðir í marga daga. Ég trúi ekki að það sé vilji veitinga- manna að hafa lokað þessa daga. Það þarf að koma fram hverjir ráða þessu og ef þetta eru gamlar reglur sem orsaka þetta finnst mér að það þurfi að afnema þær. Ferðaþjón- ustan er rísandi atvinnu- vegur og hún blómstrar ekki nema veitingastaðir og skemmtistaðir séu opn- ir. Jóhann. Tapað/fundið Lambhúshetta í óskilum LAMBHÚSHETTa fannst á gönguleið upp á Esju á nýársdagsmorgun. Upp- lýsingar í síma 565 6244. Armbandsfesti týndist ARMBANDSFESTI úr hvítagulli, um það bil eins cm breið, tapaðist föstu- daginn 20. desember sl., hugsanlega í Hafnarfirði eða Reykjavík. Skilvís finnandi hafi samband í síma 664 5813 eða 565 1329. Fundarlaun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 flótti, 8 nefnt, 9 illum, 10 ferskur, 11 deila, 13 hreinir, 15 beinpípu, 18 súlu, 21 skarð, 22 skot- vopn, 23 ávinningur, 24 íþróttagrein. LÓÐRÉTT: 2 hirðusöm, 3 örlög, 4 jórturdýr, 5 skrökvar, 6 geigs, 7 lítill, 12 kropp, 14 kyn, 15 gangur, 16 óþétt, 17 dökkt, 18 snjódyngja, 19 spretti upp, 20 mylsna. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 ræfil, 4 helft, 7 kotið, 8 nötra, 9 ann, 11 akir, 13 hana, 14 urðar, 15 form, 17 æfur, 20 hak, 22 ljúfa, 23 rætin, 24 róaði, 25 morði. Lóðrétt: 1 rækta, 2 fatli, 3 læða, 4 hann, 5 letja, 6 tjara, 10 naðra, 12 rum, 13 hræ, 15 fílar, 16 rjúfa, 18 fætur, 19 rengi, 20 hali, 21 króm. Skipin Reykjavíkurhöfn: Lóm- ur fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Langanes fór í gær. Rán, Víking, Siku og Brettingur fara í dag. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félags- heimilið, Hraunseli, verður opnað mánudag- inn 6. janúar. Edri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud.: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud.: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bókasafn- ið, kl. 15–16 bókaspjall, kl. 17–19 æfing kór eldri borgara í Damos. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan op- in kl. 10–13 virka daga. Morgunkaffi, blöðin og matur í hádegi. Gerðuberg, félagsstarf. Sund og leikfimæfingar í Breiðholtslaug á mánu- dögum og föstudögum kl. 9.30 Vetrardagskráin hefst aftur mánudaginn 6. janúar, m.a. dans hjá Sigvalda. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Allir velkomnir Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁÁ, Síðumúla 3–5, og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigs- veg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA- samtakanna. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 genga að Kattholti. Lífeyrisdeild Lands- sambands lögreglu- manna. Sunnudagsfund- urinn verður á morgun, sunnudaginn 5. janúar, í félagsheimili LR í Brautarholti 30, kl. 10. Félagar fjölmennið. Minningarkort Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Aust- urlandi: Egilsstaðir: Gallery Uglu, Miðvangi 5. Eskifjörður: Pósti og síma, Strandgötu 55. Höfn: Hjá Vilborgu Ein- arsdóttur, Hafnarbraut 37. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Norðurlandi: Ólafs- fjörður: Blómum og gjafavörum, Aðalgötu 7. Hvammstangi: Versl- uninni Hlín, Hvamms- tangabraut 28. Ak- ureyri: Bókabúð Jónasar, Hafnarstræti 108, Möppudýrunum, Sunnuhlíð 12c. Mý- vatnssveit: Pósthúsinu í Reykjahlíð. Húsavík: Blómasetrinu, Héðins- braut 1. Raufarhöfn: Hjá Jónu Ósk Péturs- dóttur, Ásgötu 5. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Suð- urlandi: Vestmannaeyjar: Apó- teki Vestmannaeyja, Vestmannabraut 24. Selfoss: Selfoss Apóteki, Kjarnanum. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Suðurlandi: Í Vestmannaeyjum: Hjá Axel Ó. Láruss. skó- verslun, Vest- mannabraut 23, s. 481 1826. Á Hellu: Mos- felli, Þrúðvangi 6, s.487- 5828. Á Flúðum: Hjá Sólveigu Ólafsdóttur, Versl. Grund, s. 486 6633. Á Selfossi: Í versluninni Írisi, Aust- urvegi 4, s. 482 1468 og á sjúkrahúsi Suðurlands og heilsugæslustöð, Ár- vegi, s. 482 1300. Í Þor- lákshöfn: Hjá Huldu I. Guðmundsdóttur, Odda- braut 20, s. 483 3633. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Reykjanesi. Í Grindavík: Í Bókabúð Grindavíkur, Vík- urbraut 62, s. 426 8787. Í Garði: Íslandspósti, Garðabraut 69, s. 422 7000. Í Keflavík: Í Bókabúð Keflavíkur Pennanum, Sólvallagötu 2, s. 421 1102, og hjá Ís- landspósti, Hafnargötu 89, s. 421 5000. Í Vog- um: Hjá Íslandspósti b/t Ásu Árnadóttur, Tjarn- argötu 26, s. 424 6500, í Hafnarfirði: í Bókabúð Böðvars, Reykjavík- urvegi 64, s. 565 1630 og hjá Pennanum – Ey- mundsson, Strandgötu 31, s. 555 0045. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu LHS, Suð- urgötu 10, s. 552 5744, 562 5744, fax 562 5744, Laugavegs Apóteki, Laugavegi 16, s. 552 4045, hjá Hirti, Bón- ushúsinu, Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi, s. 561 4256. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Vesturlandi: Á Akranesi: Í Bóka- skemmunni, Stillholti 18, s. 431 2840, Dalbrún ehf., Brákarhrauni 3, Borgarnesi, og hjá Elínu Frímannsd., Höfða- grund 18, s. 431 4081. Í Grundarfirði: Í Hrann- arbúðinni, Hrannarstíg 5, s. 438 6725. Í Ólafsvík hjá Ingibjörgu Pétursd., Hjarðartúni 1, s. 436 1177. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Vestfjörðum: Á Suðureyri: Hjá Gesti Kristinssyni, Hlíðavegi 4, s. 456 6143. Á Ísafirði: hjá Jóni Jóhanni Jónss., Hlíf II, s. 456 3380, hjá Jónínu Högnad., Esso- versluninni, s. 456 3990, og hjá Jóhanni Káras., Engjavegi 8, s. 456 3538. Í Bolungarvík: Hjá Kristínu Karvelsd., Mið- stræti 14, s. 456 7358. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Norðurlandi: Á Blönduósi: Blómabúð- inni Bæjarblóminu, Húnabraut 4, s. 452 4643. Á Sauð- árkróki: Í Blóma- og gjafabúðinni, Hólavegi 22, s. 453 5253. Á Hofs- ósi: Íslandspósti hf., s. 453 7300, Strax, mat- vöruverslun, Suðurgötu 2–4, s. 467 1201. Á Ólafs- firði: Í Blómaskúrnum, Kirkjuvegi 14b, s. 466 2700, og hjá Hafdísi Kristjánsdóttur, Ólafs- vegi 30, s. 466 2260. Á Dalvík: Í Blómabúðinni Ilex, Hafnarbraut 7, s. 466 1212, og hjá Valgerði Guðmundsdóttur, Hjarðarslóð 4e, s. 466 1490. Á Akureyri: Í Bókabúð Jónasar, Hafn- arstræti 108, s. 462 2685, í bókabúðinni Möppu- dýrinu, Sunnuhlíð 12c, s. 462 6368, Pennanum Bókvali, Hafnarstræti 91–93, s. 461 5050, og í blómabúðinni Akri, Kaupvangi, Mýrarvegi, s. 462 4800. Á Húsavík: Í Blómabúðinni Tamöru, Garðarsbraut 62, s. 464 1565, í Bókaverslun Þórarins Stefánssonar, s. 464 1234 og hjá Skúla Jónssyni, Reykjaheið- arvegi 2, s. 464 1178. Á Laugum í Reykjadal: í Bókaverslun Rann- veigar H. Ólafsd., s. 464 3191. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Austfjörðum. Á Seyðisfirði: Hjá Birgi Hallvarðssyni, Botnahlíð 14, s. 472 1173. Á Nes- kaupstað: Í blómabúð- inni Laufskálanum, Kristín Brynjarsdóttir, Nesgötu 5, s. 477 1212. Á Egilsstöðum: Í Blómabæ, Miðvangi, s. 471 2230. Á Reyðarfirði: Hjá Grétu Friðriksd., Brekkugötu 13, s. 474 1177. Á Eskifirði: Hjá Aðalheiði Ingi- mundard., Bleiksárhlíð 57, s. 476 1223. Á Fá- skrúðsfirði: Hjá Maríu Óskarsd., Hlíðargötu 26, s. 475 1273. Á Horna- firði: Hjá Sigurgeir Helgasyni, Hólabraut 1a, s. 478 1653. Í dag er laugardagur 4. janúar, 4. dagur ársins 2003. Orð dagsins: „Trúið á ljósið meðan þér hafið ljós- ið, svo að þér verðið börn ljóssins.“ (Jóh. 12, 36.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.