Morgunblaðið - 04.01.2003, Side 45

Morgunblaðið - 04.01.2003, Side 45
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 45 LEIKARINN Alan Bates og leik- stjórinn Ridley Scott hafa báðir veið aðlaðir af Elísabetu Englandsdrottn- ingu. Bates, eða Sir Alan eins og hann má hér eftir kalla sig, er 68 ára og er einn af mikilvægustu bresku leikurunum, sem komu fram á sjón- arsviðið á sjötta og sjöunda áratug- inum. Nýbakaður Sir Ridley hefur leikstýrt mörgum þekktum kvik- myndum en þeirra á meðal er Ósk- arsverðlaunamyndin Skylm- ingaþrællinn frá árinu 2000 … Leikarinn Russell Crowe hefur tekið að sér nýtt hlutverk með því að ger- ast skipverji á finnskri skútu sem tekur þátt í siglingakeppni milli Sydney og Coff’s Harbor í Ástralíu. Skútan, Travelex, er í eigu finnska skútustjórans Ludde Ingvall en hún er 25 metra löng og hefur unnið til margra sigl- ingaverð- launa. Þykir útlit fyrir að skútan slái metið á hinni 600 kílómetra siglingaleið frá Pittwater við Sydney til Coff’s Harbor en það er 19 ára gam- alt. Ásamt Crowe, sem er 38 ára, er um tugur annarra í áhöfn skútunnar en þetta er í fyrsta sinn sem hann tekur þátt í kappsiglingu …Söng- og leikkonan Jennifer Lopez er svo heilluð af unnusta sínum Ben Affleck að hún vill helst sjá hann á forsetastóli. „Ég held að Ben gæti orðið forseti Banda- ríkjanna ef hann vildi. Hann hefur hæfni, gáfur og allt annað sem til þarf svo ekki sé tal- að um fróðleik. Ég held að hann geti gert allt það sem hann kærir sig um,“ segir Lopez en nýlega lýsti P. Diddy, fyrrverandi kærasti hennar, því yfir að hann gæti vel hugsað sér að bjóða sig fram til for- seta Bandaríkjanna … Leikkonan Brooke Shields er barnshafandi. Eftir að hafa reynt lengi hefur hún loksins fengið þau gleðitíðindi að hún og eiginmaður hennar, sjónvarps- þáttaframleiðandinn Chris Henchy, eigi von á sínu fyrsta barni. Shields, sem er 37 ára, á að eiga í maí … Leikkonan Julianne Moore ætlar að ganga upp að altarinu og draga baug á fingur unnusta sínum, leikstjór- anum Bart Freundlich. Þau opin- beruðu á nýársdag en hafa ekki ákveðið brúðkaupsdaginn. Saman eiga þau 2 börn, 5 ára og 9 mánaða. Þetta verður í annað sinn sem hin 42 ára gamla Moore giftir sig. …Rachel Griffiths aðalleikkonan í sjónvarps- þáttunum Undir grænni torfu eða Six Feet Under gifti sig á nýársdag, unnusta sínum Andrew Taylor, í heimaborg hennar Ástralíu. FÓLK Ífréttum Russell Crowe: Sigl- andi skylmingakappi. Tilvonandi forseta- hjón? Myndasöguskúrkarnir (Comic Book Villains) Svört gamanmynd Bandaríkin 2002. Skífan VHS. (92 mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn James Robinson. Aðalhlutverk Donal Louge, Cary Elwes, Michael Rapaport. SÖFNUNARÁRÁTTAN getur verið ansi skæð, það þekki ég af eigin raun. En mér skilst að engir safn- arar séu þó eins langt leiddir og þeir sem veikir eru fyrir hasarblöðum, eða myndasögum, eins og á víst að kalla þau í dag. Myndasöguskúrk- arnir fjallar um nokkra slíka; full- orðna karlmenn sem sýna það og sanna að þeir eru tilbúnir að svífast einskis og jafnvel fórna mannslífum fyrir réttu tölu- blöðin, þessi allra sjaldgæfustu, sem alla sanna myndasögusafnara dreymir um að eiga í fórum sínum. Myndin segir frá tveimur eigend- um myndasagnaverslana sem bítast með kjafti og klóm um dýrmætt safn látins manns. Vandinn er bara sá að móðir hins látna hefur engan áhuga á að selja. Vel kann að vera að þráður þessi sé hinn álitlegasti fyrir unnendur myndasagna og vissulega eru kenjar þessara yfirgengilegu nörda sem um er fjallað skondnar á stundum. En ég er samt hræddur um að meira að segja þeim áhugasömustu svelgist á öllum hamaganginum. Vissulega á heimur myndasagna til að vera svo- lítið ýktur en öllu má nú ofgera. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Öllu má nú ofgera Grænir fingur (Green finger) Gamanmynd Bretland 2000. Myndform VHS. (91 mín.) Öllum leyfð. Leikstjórn og handrit Joel Hershman. Aðalhlutverk Clive Owen, Helen Mirren, David Kelly. ÓVÆNTAR vinsældir hinnar vel heppnuðu Full Monty hefur leitt af sér allnokkrar myndir með svipuðu sniði og svo sem lítið út á það að setja. Skárra að sjá myndir sverja sig í ætt við góða og mannlega gam- anmynd en ein- hvern ömurlegan og þunglyndisleg- an gelgjuhroll. En það er ekki þar með sagt að Græn- ir fingur sé einhver snilld. Því fer fjarri. Myndin á klárlega að vera gamanmynd en er eiginlega ekkert fyndin og saman- burðurinn við Full Monty er líka óþægilega mikill, þessi karl- mennskukrísa nákvæmlega hin sama. Myndin er þannig í mesta lagi dægileg afþreying, þokkalegasta stundargaman sem heldur manni svo sem alveg við efnið allan tímann. Og aðalástæðan er tvíþætt; fínn leik- ur og sú staðreynd að sagan skuli vera byggð á sönnun atburðum, tveimur föngum sem ákváðu að betr- umbæta sig með því að leggja fyrir sig garðyrkjustörf. Eiga þeir að hafa orðið einhverjir ógurlegir snillingar og fengu að keppa í virðulegri blómasýningu sem kennd er við Hampton Court höllina. Skarphéðinn Guðmundsson Fangar í blóma

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.